Þjóðviljinn - 30.10.1974, Blaðsíða 10
10 SIÐA — ÞJÓÐVILJINN Miövikudagur. 30. október. 1974.
Af hverju reynirðu ekki við happ-
drætti i staðinn?
— Þaö væri vist betra, sagði
hann og laut höfði iðrunarfullur.
Slðdegis á laugardag gekk hann
meðfram norðurströndinni þar
sem hann hafði nokkrum sinnum
synt um sumarið. Hann gekk út i
mjúkan sandinn. Þegar hann
sneri sér við, sá hann að aðeins
allra nýjustu fótsporin voru sýni-
leg ennþá. Það var eins og kuld-
inn væri á undanhaldi i þetta sinn,
dagsbirtan entist lengur en hann
hafði búist við.
Hann hafði áður orðið þess var
að gönguferð meðfram ströndinni
hafði hressandi áhrif á hann. Til-
breytingarleysi strandar og hafs
auðveldaði honum að ihuga
vandamál og leysa þau. En i þetta
sinn bólaði ekki á lausninni. Það
væri óhugsandi að komast i sæti
Miriams, breyta samningnum i
spjaldskránni hennar og útvega
sér afrit. En að kalla á lásasmið
og útskýra fyrir honum að hann
heföi týnt lyklinum að sinu eigin
hólfi? Það var of fráleitt. Og þeg-
ar hólfið opnaðist og hann tæki
fram bláa nestiskassann i allra
augsýn? Alveg fráleitt, öldungis
fráleitt. 1 fyrsta skipti gerði hann
sér fullkomlega ljóst, að hann
hafði glatað peningunum. Og
hann hafðieitthverthugboð um —
óljóst að visu — að hann hefði um
leið glatað einhverju sem var enn
þýöingarmeira. Meðvitundin um
brauðkassann óaðgengilega
myndi tortima honum. Þessi til-
raun hans til raunsæis gerði á-
standið engu bærilegra. Hann var
ekki að ýkja neitt. Án brauðkass-
ans — fyrst hann vissi hvar hann
var niðurkominn — var lif hans
einskis virði. Hann byrjaði aftur
upp á nýtt með þessar vangavelt-
ur sem bitu I halann hver á ann-
arri eða runnu út I eintóma vit-
leysu.
Það var ekki orðið aldimmt,
þegar hann kom að staðnum þar
sem hann hafði synt um sumarið.
En á leiðinni til baka — meðan
hann bograði móti vindinum —
hvarf siðasta dagsbirtan. í fyrstu
gat hann greint sporin sin I sand-
inum, siðan urðu þau ógreinileg
og loks var votur sandurinn orð-
inn rennisléttur, likt og þar hefði
aldrei nokkur maður stigið fæti.
A veitingahúsinu i fiskiþorpinu
fékk hann sér te og ristað brauð.
Þar var aðeins einn gestur auk
hans, kona i síðri rúskinnskápu
sem sneri i hann baki og horfði á
barnatimann I sjónvarpinu — tal-
ið var svo lágt að hann undraðist
aðhún skyldi hafa áhuga á mynd-
inni. Aður en hún sneri sér við og
bað um sígarettupakka, hafði
bakið virst honum kunnuglegt.
Þegar hún leit við, sá hann að
þetta var stúlkan sem hann hafði
hitt við jarðarför föðurins.
18
Hún hafði ekki séð hann ennþá,
og hann sat og velti fyrir sér hvort
hann gæti sloppið. Vissulega var
tilhugsunin um samtal þeirra i
kirkjugarðinum og bilnum að
brautarstöðinni aðlaðandi og hlý-
leg á köldum degi. En nú, þegar
hann gat með engu móti talað um
þaö sem hann hafði áhyggjur af,
var umhugsunin um að þurfa að
sýna kurteisi, svara spurningum
og hlusta og spyrja sjálfur, næst-
um óþolandi.
Hún fékk sigaretturnar sinar og
hann náði i frammistöðustúlkuna
i bakaleiðinni til að borga. Hann
talaði eins lágt og hann gat til að
hann þekktist ekki á röddinni.
Stúlkan i skinnkápunni virtist
engan áhuga hafa á þvi sem var
að gerast bakvið hana, hún
mændi stöðugt á sjónvarpsskjá-
inn og reykti sigarettu á meðan.
En þegar hann gekk út úr borð-
salnum, heyrði hann að hún kall-
aði aftur I framreiðslustúlkuna.
Ekkert hafði orðið úr hlákunni,
kuldinn var aftur undir frost-
marki. Á bilastæðinu stóð billinn
hans og það var sprungið á öðru
framhjólinu.
Meðan hann fékkst við tjakk-
inn, heyrði hann að dyrnar að
veitingastofunni skelltust aftur og
fótatak nálgaðist hann á bilastæð-
inu. Einhver nam staðar.
— Get ég nokkuð hjálpað?
Hann sneri sér við þar sem
hann sat á hækjum og leit upp til
hennar.
— Nei, hvað sé ég, það eruð
þér'.
Hún var með stóra axlartösku
úr taui sem var ekki i stil við rú-
skinnskápuna, hún gekk aö hon-
um og rétti fram kalda og þétta
litla hönd, meðan hann bjástraði
við tjakkinn sótti hún óbeðin
varadekkið i skottið og velti þvi til
hans, hún hjálpaði honum að
halda því beinu svo að götin lentu
á réttum stöðum.
— Þér hafið vist gleymt að láta
pumpa það. Það er dálltið lint.
— Það bjargast að næstu
bensínstöð. Vitið þér hvar hún er?
— Ég þekki þetta umhverfi út
og inn.
— Eruð þér á gönguferð?
— Ég ætla með sporvagni.
— Inn til Kaupmannahafnar?
— Mmm.
Hjá þvi varð ekki komist, hann
hlautað bjóða henni far. I klukku-
tima eða meira myndi það forða
honum frá hugsunum um hólfið ó-
aðgengilega.
Bíllinn hallaðist ögn á nýja
framhjólinu. Þau óku gegnpm
mörg þorp með lokuðum bensin-
stöðvum, hægar og hægar til að
skemma ekki dekkið og felguna.
Hún rýndi i mælaborðið og skrúf-
aði óbeðin frá hitanum. Loks
fundu þau bensinstöð sem hægt
var að skipta við; meðan hann
fékk loft og bensin og gekk kring-
um bilinn, hafði hún lesið á litla
miðann sem bundinn var við stýr-
iö.
— Þér hefðuð átt að fá nýja oliu
útvarp
7.00 Morgunútvarp,
Veðurfregnir kl. 7.00, 8.15 og
10.10. Fréttir kl. 7.30, 8.15
(og forustugr. dag 1.), 9.00
og 10.00. Morgunbænkl. 7.55
Morgunstund barnanna kl.
9.153 Ró^a~ B. Blöndals
heldur ádram að lesa
„Flökkusveininn” eftir
Hector Malot (15) „Vér
viljum fara til og byggja”
kl. 10.25, prédikun frá 1944
eftir Sigurbjörn Einarsson
biskup. Baldur Pálmason
les. Kirkjutónlist kl. 10.40.
Morguntónleikar kl. 11.00:
Gonzalez Mohino ieikur
Sónötu i d-moll fyrir gltar
op. 61 eftir Joaquin Turina /
Ion Voicou og Victoria
Stefanescu leika Sónötu nr.
2 fyrir fiðlu og pianó eftir
Enesco / Nicanor Zabaleta
og Filharmonlusveitin I
Berlín leika Hörpukonsert i
e-moll op. 182 eftir
Reinecke.
12.00 Dagskráin. Tónleikar.
Tilkynningar.
12.25 Fréttir og veðurfregnir.
Tilkynnigar.
13.00 Við vinnuna: Tónleikar.
14.30 Miðdegissagan :
„Fanney á Furuvöllum”
eftir Hugrúnu Höfundur
byrjar lesturinn.
15.00 Miðdegistónleikar. Rita
Bouvoulidi leikur á pianó
tvær rapsódlur op. 79 eftir
Brahms. Dietrich Fischer-
DPIESKAU SYNGUR LÖG
EFTIR Mendelssohn: Wolf-
gang Sacallisch leikur á
pianó. Janos Sebestyen og
Ungverska kammersveitin
leika Sembalkonsert I A-dúr
eftir Dittersdorf og „Hjarð-
ljóð” eftir Werner: Vilmos
Tatrain stjórnar.
16.00 Fréttir. Tilkynningar.
(16.15 Veðurfregnir).
16.25 Popphornið.
17.10 (Jtvarpssaga barnanna:
„Hjalti kemur heim” eftir
Stefán Jónsson. Gisli Hall-
dórsson les (2)
17.30 Framburðarkennsla i
dönsku og frönsku á vegum
Bréfaskóla Samb. Isl.
samvinnufél. og Alþýðu-
samb. tsl.
18.00 Tónleikar. Tiikynningar
18.45 Veðurfregnir. Dagskrá
kvöldsins.
19.00 Fréttir. Fréttaauki. Til-
kynningar.
19.35 ÓÓÞetta land á ærinn
auð”. Jón R. Hjálmarsson
ræðir við Þórarin
Þórarinsson fyrrverandi
skólastjóra á Eiðum.
20.00 Kvöldvaka.a. Einsöngur
Sigurveig Hjaltested syngur
lög úr lagaflokknum
„Bergmáli” eftir Askel
Snorrason við ljóð Guðfinnu
Jónsdóttur frá Hömrum. b.
Mildi biskupinn i Skálholti.
Ragnar Jóhannesson cand.
mag. segir frá Árna biskupi
Ólafssyni. c. sögur af dýrum
Jónina úr Dal segir frá. d.
Vlsur eftir Vestur-
tslendinga. Þorsteinn
Matthíasson kennari tekur
saman. e. Um Islenska þjóð-
hætti.Arni Björnsson cand.
mag. flytur þáttinn. f. „Eitt
er landið ægi girt”. Bárður
Jakobsson lögfræðingur
flytur þætti úr sögu sjó-
mennskunnar: — sjötti
hluti. g. Kórsöngur. Lilju-
kórinn syngur lög við tez
eftir Einar Benediktsson.
21,3 0 Útvarpssagan :
„Gangvirkið” eftir Ólaf
Jóhann Sigurðsson.
Þorsteinn Gunnarsson
leikari les (9)
22.00 Fréttir
22.15 Veðurfregnir. Spurt og
svaraö. Erlingur Sigurðar-
son leitar svara við spurn-
ingum hlustenda.
22.45 Djassþátturl umsjá Jóns
Múla Árnasonar.
23.30 Fréttir ' I stuttu máli.
Dagskrárlok.
0 sf ónvarp
18.00 Bfddu bara! Sovézk
teiknimynd um iitla kaninu
og stóran úlf, sem eltir hana
á röndum. Þýðandi Hallveig
Thorlacius.
18.10 Sagan af grisnum, sem
spilaði damm. Sovésk leik-
brúðumynd um litinn gris,
sem talinn er vita lengra en
nef hans nær. Þýðandi Hall-
veig Thorlacius.
18.20 Sögur af Tuktu. Kana-
diskur fræðslumyndaflokk-
ur, nfestsiðasti þáttur.
Tuktu og vinir hans, dýrin.
Þýðandi Jóhanna Jóhanns-
dóttir. Þulur Ingi Karl Jó-
hannesson.
18.35 Filahirðirinn. Brezkur
myndaflokkur fyrir börn og
unglinga. Ar fuglanna.
Þýðandi Jóhanna Jóhanns-
dóttir.
19.00 Hlé
20.00 Fréttir og veður
20.30 Dagskrárkynning og
auglýsingar
20.40 Nýjasta tækni og vfsindi.
Horft um öxl og fram á við.
Mynd um geimrannsóknir
áttunda tugar aldarinnar.
Umsjónarmaður örnólfur
Thorlacius.
21.05 Sumar á norðurslóðum.
Bresk-kanadiskur fræðslu-
myndaflokkur. Vfgi
rostunganna. Þýðandi og
þulur óskar Ingimarsson.
21.35 Eiginmaður óskast. (The
Crooked Hearts). Banda-
rísk sjónvarpskvikmyn dfrá
árinu 1973, byggð á sögu
eftir Colin Watson. Leik-
stjóri Jay Sandrich. Aðal-
hlutverk Rosalind Russel,
Douglas Fairbanks yngri,
og Maureen O’Sullivan.
Þýðandi Dóra Hafsteins-
dóttir. Myndiri greinir frá
konu nokkurri, sem kynnast
vill stöndugum karlmanni á
sinurn aldri. Hún leitar
ásjár hjá „klúbbi maka-
lausra”, og kemst brátt I
samband við mann, sem
henni er aö skapi. En fyrr en
varir vakna þó grunsemdir
, um, að hann sé ekki allur
þar sem hann er séður...
22.45 Dagskrárlok
FLÓ A SKINNI
I kvöld kl. 20,30.
ÍSLENDINGASPJÖLL
fimmtudag kl. 20,30. Blá
áskriftarkort gilda.
FLÓ A SKINNI
föstudag kl. 20,30. — 220.
sýning.
KERTALOG
laugardag kl. 20,30. Fáar sýn-
ingar eftir.
ISLENDINGASPJÖLL
sunnudag kl. 20,30. Gul
áskriftarkort gilda.
Aðgöngumiðasalan I Iðnó er
opin frá kl. 14. Sfmi 16620.
Reiður gestur
ISLENSKUR TEXTI.
Hörkuspennandi ný karete
slagsmálamynd I litum og
'Cinema-Scope I algjörum sér-
flokki. Mynd þessi hefur verið
sýnd við mikla aðsókn
erlendis, enda sú bezta sinnar
tegundar, sem hingað hefur
komið. Þeir sem vilja sjá
hressileg slagsmál láta þessa
mynd ekki fram há sér fara.
Sýnd kl. 6, 8 og 10.
Bönnuö börnuð innan 16 ára.
Sfmi 16444
Vökunætur
ELIZABETH TAYLOR
LAURENCE HARVEY
'TÍIGH-T \MŒ"
Sérlega spennandi og vel leik-
in ný bandarisk litmynd, um
dularfulla atburði á myrkum
vökunóttum. Mynd þrungin
spennu frá upphafi að hinum
mjög svo óvænta endi.
Leikstjóri: Biran G. Hutton
tSLENSKUR TEXTI
Bönnuð innan 16 ára.
Sýnd kl. 3, 5, 7, 9 og 11,15.
SENDLAR
ÓSKAST
hálfan eða allan daginn
MÚÐVIUINN
Sími: 17500
#þJÓÐLEIKHÚSIÐ
HVAÐ VARSTU AÐ GERA 1
NÓTT?
i kvöld kl. 20.
föstudag kl. 20
ÉG VIL AUÐGA MITT
LAND?
laugardag kl. 20.
Leikhúskjaliarinn:
ERTU NU ANÆGÐ
KERLING?
i kvöld kl. 20.30. Uppselt.
LITLA FLUGAN
fimmtudag kl. 20.30
Miðasala 13,15—20.
Slmi 1-1200.
«IOE KIDD
Sýnd kl. 7 og 11.
The mostbizarre
murder weapon
ever used!
Aðalhlutverk : Clint
Eastwood.
Sýnd kl. 7 og 11
Bönnuð innan 16 ára.
Einvígið
Aðalhlutverk: Dennis
Weaven.
Leikstjóri: Steven Spielberg.
ÍSLENZKUR TEXTI.
Sýnd kl. 5 og 9.
Bönnuð börnum innan 12
ára.
HÁSKÓLABÍÓ
Simi 22140
Tónaflóð
Sýnd kl. 5 og 9.
örfáar sýningar eftir.