Þjóðviljinn - 30.10.1974, Qupperneq 9
Miövikudagur. 30. október. 1974. ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 9
Þeir mættust
í nótt
Þeir Muhamed Ali og George Foreman,
núverandi heimsmeistari i þungavigt i
hnefaleikum, mættust i nótt i Zaire i Af-
riku ihnefaleikakeppni aidarinnar eins og
leikur þeirra hefur veriö kallaöur. Þar
var úr þvi skorið hvort Ali nær
HM-titlinum aftur eða hvort Foreman
heldur honum áfram. Ali ætlar að hætta
keppni eftir þennan ieik.
3 lið fá heima-
leikjabann í EB
Evrópuknattspyrnusambandið UEFA hefur ákveðið að setja
þrjú liö i heimaleikjabann i næstu umferð i EB vegna óeirða áhorf-
enda á leikvöngum þeirra I siöustu heimaleikjum iiðanna. Verða
þau að leika i minnst 100 km fjarlægð frá heimaborgum sinum i
næstu leikjum.
Þessi lið eru grisku liðin Panathinaikos og Olympiakos Piraeus og
portúgaiska liðið Sporting Lissabon. Auk þessa fá öll liöin sektir,
grisku liðin fá 1430 og 715 sterlingspunda sekt og portúgalska liðið
420 sterlingspunda sekt.
Öll þessi lið léku á heimavelli i 1. umferð EB, og á öllum stöðunum
urðu miklar óeirðir á áhorfendapöllunum, svo að tii vandræöa
horfði. UEFA hefur tekið á sig rögg vegna siikra atburða og dæmir
iiðnú msikunnarlaust i heimaleikjabönn og sektir, komi til óeirða á
áhorfendapöllum þeirra i EB.
Sigursveitin fer í EB meistarasveita á næsta ári
N.k. fimmtudag, 31. október,
fer fram sveitakeppni I júdó á
vegum Júdósambands tslands, og
er þetta fyrsta tslandsmeistara-
mótið þessarar tegundar. Sveita-
keppni islenskra félagsliða hefur
aldrei fyrr verið háð, en fslenska
landsliðið hefur fjórum sinnum
háð iandskeppni á þessu ári .
Keppni sem þessi er mjög vinsæl
erlendis, og má vænta þess að hún
verði það einnig hér á landi.
Búist er við að sjö sveitir taki
þátt i keppninni á fimmtudaginn,
en hverju félagi er heimilt að
senda tvær sveitir á mótið. I
hverri sveiteru 5 keppendur, einn
i hverjum þyngdarflokki.
Sigursveitin öðlast rétt til
þátttöku I Evrópubikarkeppni
meistarasveita sem Evrópu-
júdósambandið hyggst efna til i
fyrsta sinn á næsta ári.
Keppnin á fimmtudaginn
verður fyrri umferð þessa
meistaramóts, en seinni umferðin
verður háð 7. desember. Keppnin
verður háð i hinu nýja æfinga-
húsnæði Júdókan h.f. i Brautar-
holti 18, 4. hæð, og hefst kl. 7 á
fimmtudagskvöldið.
Með þessu móti hefst fjölþætt
dagskrá nýs starfsárs JSl.
Júdómenn eiga mörg og stór
verkefni fyrir höndum i vetur og
næsta sumar.
Lúxembúrgarar sviku
samningana við KKÍ
og körfuknattleikssambandið kærir til alþjóðasambandsins
Fyrirhugaðir voru hér á landi
tveir landsleikir i körfuknattleik
við lúxembúrgara um næstu
helgi. Nú hefur hinsvegar komið
bréf frá körfuknattleiksmönnum
þar i landi þar sem þeir segja sig
svo fátæka að þeim sé ókleift að
standa við þessa samninga og
komi þeir þvi hvergi.
Þetta þykir Einari Bollasyni
formanni og félögum hans i stjórn
KKI auðvitað súrt i brotið, eru
reiðir og hyggjast kæra lúxem-
búrgara til aiþjóðakörfuknatt-
leikssambandsins fyrirsamnings-
rof. Ætlar Einar o/co að krefjast
fébóta, enda hafa þeir þegar lagt
út háa fjárupphæð til undir-
búnings leikjunum, fyrir utan öll
önnur óþægindi sem þeir hafa af
þessu.
Eitt sinn langaði hollendinga að
koma hingað til lands með körfu-
knattleikslandslið sitt, en sökum
anna var ekki hægt að taka á móti
þeim. Séu þeir enn sömu löngunar
verður nú pláss fyrir þá I pró-
grammi KKt, og verða þeir þvi
boðnir velkomnir til íslands i stað
lúxembúrgara.
Glannaleg
íþrótt
Nokkuð virðist það vera glannalegur leikur sem maðurinn hér á
myndinni er að framkvæma. Eigi að siður er þarna um viðurkennda
keppnisiþrótt að ræða sem nefnist á ensku canoeing, og er myndin tekin
á heimsmeistaramóti i greininni I Sviss fyrr á þessu ári. Hvernig ætli
mönnum þætti að fara niður einhvern af stóru fossunum okkar i svona
farartæki?
Eysteinn
endur-
kjörinn
formaður
Arsþing Júdósambands Islands
var haldið I Reykjavik 19. október
s.l. JSt var stofnað I ársbyrjun i
fyrra, og hefur sambandið haft
mörgum og stórum verkefnum aö
sinna.
A liðnu starfsári háðu islenskir
júdómenn fjórum sinnum lands-
keppni, hinar fyrstu frá upphafi,
og stóðu sig með prýði. Þá tóku
islenskir júdómenn þátt i Norður-
landameistaramótinu i Kaup-
mannahöfn og Evrópumeistara-
mótinu I London. Hingað til lands
kom fyrsta erlenda júdólandslið-
ið, lið Tékkóslóvakiu, og einnig
kom hingað vesturþýska ung-
lingalandsliðið. JSt réð i fyrra
landsliðsþjálfara i fyrsta sinn, og
hefur starf hans borið frábæran
árangur. A árinu var haldið
fyrsta dómaranámskeiðið á
Evrópumælikvarða hér á landi og
útskrifaðir 14 dómarar, þar af 6
landsdómarar. Þá var haldið
þjálfaranámskeið i fyrsta sinn, og
mikil störf unnin i skipulags- og
tæknimálum. Skipulegt unglinga-
starf var tekið upp af sam-
bandinu.
Aðalmál júdóþingsins að þessu
sinni var afgreiðsla mikilvægrar
reglugerðar um gráðanir, sem
Michal Vachun landsþjálfari hef-
ur lagt grunninn að með mikilli
nákvæmni og ágætri kunnáttu.
Gráðanir i júdó eru mjög til að
efla áhuga og virðingu fyrir
iþróttinni. JSÍ er aðili að Evrópu-
Eysteinn Þorvaidsson
sambandinu og Alþjóðasambandi
júdómanna, og eru gráðunarregl-
urnar i samræmi við ströngustu
kröfur á alþjóðamælikvarða.
Reglugerð um gráðudómara var
lika samþykkt á þinginu.
Júdómenn eiga mikil verkefni
fyrir höndum á nýbyrjuðu starfs-
ári, og ber þar hæst Norðurlanda-
meistaramótið i júdó sem haldið
verður i Reykjavik 19. og 20. april
i vor. JSí annast allan undirbún-
ing og framkvæmd mótsins.
I stjórn JSl fyrir næsta starfsár
voru kosnir: Eysteinn Þorvalds-
son formaður, og aðrir i stjórn:
Sigurður H. Jóhannsson, össur
Torfason, Jóhannes Haraldsson
og Einar Eriendsson.
andsmeistaramót í júdó
Flokkakeppni í júdó
veröur háö á morgun