Þjóðviljinn - 01.11.1974, Síða 2

Þjóðviljinn - 01.11.1974, Síða 2
2 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Föstudagur 1. nóvember 1974. WMmmm Sendinefnd Islands hjá S.Þ. Sendinefnd tslands á 29. allsherjarþingi Sameinubu þjóöanna, taliö frá vinstri: Hörður Helgason, skrifstofustjóri, Hans G. Andersen, ambassador. Þórarinn Þórarinsson, alþingismaöur, Ingvi Ingvarsson, ambassador og fastafulltrúi lslands hjá S.þ., Tómas Karisson, vara- fastafulltrúi, Einar Agústsson, utanrikisráöherra og formaöur sendi- nefndarinnar og Ivar Guömundsson, ræöismaöur Islands f New York. dflt? laupnum Flugleiðir leigja Cargolux flugvél Flugleiðir h.f. hafa gert samn- ing við vöruflutningafélagið Cargolux i Luxemborg um leigu — meðáhöfnum — á þotu af sömu gerð og þær, er halda uppi áætl- unarflugi Loftleiða. Þotan er af gerðinni DC-8Super 63 og var hún afhent i Luxemborg s.l. föstudag. Annast hún vöruflutninga Car- golux milli Luxemborgar og Hong Kong fram i miðjan desember n.k. og verða farnar þrjár feröir i viku. Rekstur Cargolux gengur til- tölulega vel, þótt félagið hafi ekki farið varhluta af örðugieikum vegna mikillar hækkunar á elds- neyti — og timabundins skorts á þvi. Flugliðar eru nú samtals 63, flestir islendingar. 40 miljónir í öryggistœki Alls starfa 159 manns á vegum flugmálastjórnar, en samanlagö- ur kostnaður við rekstur flug- málastjórnar, viðhaldskostnaður, laun og annar rekstrarkostnaður var 320 miljónir 915 þúsund sið- asta ár. Það ár var kostað til 46 miljón- um i 'flugvelli, 17,3 miljónum i byggingar á flugvöllum og 40 miljónum i flugöryggistæki. Jólamerki Thorvaldsens Jólamerki Thorvaldsensfélagsins er komið út. Að þessu sinni er merkiö prentað á vinrauðum grunni, og á þvi trónar gyllt harpa, en hún er minnismerki um Hallgrim Pétursson. Með þessu merki hyggst Thor- valdsensfélagið heiðra þriggja alda árstið Hallgrims. Agóði af sölu merkisins rennur til liknarstarfsemi Thorvaldsensfélagsins. 40% er besta nýting á fiski hjá fisksölum Vegna skrifa sjómanns i Bæjar- póst um álagningu fisksala á fisk vill fisksali taka fram: Landssambandsverð á ýsu upp úr báti er 35.25 krónur kflóið, en ekki 30 krónur eins og skrifað var. Þegar fisksalar kaupa fisk upp úr bát er 10% þess sem keypt er is, en hann selur fisksalinn að sjálfsögðu ekki aftur. 011 ýsa er seld hauslaus, og allur fiskur, úr fiskbúðum, en hausinn er 20% af þyngdfisksins. Viö það að slægja fiskinn léttist hann um 10%. Hæsta nýting, sem fisksali get- ur náð út úr fiski frá þvi hann kaupir hann og þar til hann selur hann aftur er 40%, en meðaltals- nýting yfir árið er 38%. Þess vegna verður að henda 60—62% þess sem keypt er við skipshlið áður en það er selt út úr fiskbúð. Það, að afkoma fiskbúða er svo slök, sem er, stafar af þvi, að verðlagsstjóri miðar verð á seld- um fiski úr fiskbúðum við 47% nýtingu, en eins og bent er á hér aö framan tekst ekki að ná slikri nýtingu út úr fiskinum. sjónvarp nœstu viku Sunnudagur 18.00 Stundin okkar. 1 þessum þætti kemur Tóti litli aftur viö sögu, og sama er að segja um söngfuglana og dvergana, Bjart og Búa. Þá dansa nokkrar stúlkur úr Dansskóla Eddu Scheving japanskan dans og drengir úr júdódeild Ármanns sýna júdó, sem er þjóðariþrótt japana. Einnig heyrum við japanskt ævintýri um dans- andi teketil og þýskt ævin- týri um litla stúlku, sem villist I stórum skógi. Um- sjónarmenn Sigriður Margrét Guðmundsdóttir og Hermann Ragnar Stefáns- son. Stjórn upptöku Kristin Pálsdóttir. 18.50 Skák. Stuttur, banda- riskur skákþáttur. Þýðandi og þulur Jón Thor Haralds- son. 19.00 Hlé. 20.00 Fréttir. 20.25 Dagskrárkynning og auglýsingar. 20.35 Fiskur undir steini. Kvikmynd og umræðuþátt- ur. Fyrst verður sýnd mynd, sem Þorsteinn Jóns- son og Ólafur Haukur Simonarson hafa gert fyrir Sjónvarpið, og er i henni fjallað um menningarlif og lifsviðhorf fólks i islensku sjávarþorpi. 21.05 Umræður. Að myndinni lokinni hefjast i sjónvarps- sal umræður um efni henn- ar. Umræðunum stýrir dr. Kjartan Jóhannsson, en auk höfunda myndarinnar taka þátt i þeim þeir Guð laugur Þorvaldss. háskóla- rektor og Magnús Bjarn- freðsson, fulltrúi. 21.40 Akkilesarhællinn. Breskt sjónvarpsleikrit. Höfundur Brian Clark. Aöalhlutverk Martin Shaw. Þýðandi Heba Júliusdóttir. Aðalsöguhetjan er knatt- spyrnusnillingurinn Dave Irvin. Hann er hátt metinn atvinnumaður og getur veitt sér flest, sem hugurinn girnist. Hann á þó við sin vandamál að striða. Frægð- in er honum stöðugt til ama, og jafnframt óttast hann, að knattspyrnuferill sinn sé senn á enda. 22.40 Að kvöldi dags. Séra Marteinn P. Jakobsson, prestur við Landakots- kirkju, flytur hugvekju. Mánudagur 20.00 Fréttir. 20.30 Dagskrárkynning og auglýsingar, 20.40 Onedin skipafélagiö. Bresk framhaldsmynd. 5. þáttur. Hart á móti höröu. Þýðandi óskar Ingimars- son. Efni 4. þáttar: James reynir enn að finna ódýra vörugeymslu, og loks fréttir hann af skemmu sem er i eigu ekkju nokkurrar. Hann gerir tilboð i vöruskemm- una, en Callon hyggst spilla áætlun hans og býður þvi hærra verð. James kemst nú að þvi af tilviljun, að skransalinn, sem ekkjan hefur léð skemmuna til af- nota, kaupir og selur stolna muni. Hann hótar að ljóstra þessu upp, og kemst þannig að hagstæðari kjörum en ella. A meðan þessu fer fram veðsetur Webster skipstjóri hús sitt. Callon kemst yfir skuldabréfið og tekur húsið i sina vörslu, og James og kona hans verða að gera sér að góðu að setj- ast að i hinni nýfengnu vöruskemmu, sem er væg- ast sagt heldur óvistlegur bústaður. 21.35 iþróttir. Meðal annars svipmyndir frá iþróttavið- burðum helgarinnar. Um- sjónarmaður ómar Ragnarsson. 22.05 í leit að Eden. Bresk fræðslumynd um fornleifa- rannsóknir i Austurlöndum nær. Breski fornleifafræð- ingurinn Geoffrey Bibby hefur um margra ára skeið unnið að rannsóknum sinum austur við Persaflóa með aðstoð danskra og arab- iskra visindamanna. Hann telur sig nú hafa fundið hinn týnda aldingarð Eden, og rökstyður kenningu sina meðal annars með frásögn- um, sem er að finna á rúna- töflum hinna fornu Súmera. Þýðandi og þulur Stefán Jökulsson. 22.50 Dagskrárlok. Þriðjudagur 20.00 Fréttir. 20.30 Dagskrárkynning og auglýsingar. 20.40 Hjónaefnin. Itölsk fram- haldsmynd, byggð á sam- nefndri skáldsögu eftir Alessandro Manzoni. 3. þáttur. Jónatan Þórmunds- son. Efni annars þáttar: Hettumunkurinn Kristófer heitir Renzó og Lúciu aðstoð sinni, og heldur þegar til fundar við don Rodrigó. Eft- ir harða en árangurslausa orðasennu visar valdsmað- urinn munkinum á dyr. Að- ur en hann fer á brott, kem- ur aldraður maður i þjón- ustu don Rodrigós að máli við hann og heitir honum aðstoð sinni og upplýsingum um fyrirætlanir húsbónd- ans. Agnes, móðir Lúciu, ræður þeim Renzó til að taka hús á klerkinum don Abbondio, sem læst vera veikurog hleypir engum inn til sin. Segir hún, að með þvi að lýsa sig sjálf hjón i viður- vist klerks og tveggja vitna sé hjónabandið löglegt. Þessi fyrirætlan fer þó út um þúfur. Þjónar don Rod- rigos gera tilraun til að ræna Lúciu, en gripa i tómt. Mæðgurnar og Renzó flýja nú til klaustursins, og Kristófer munkur sendir þau til reglubræðra sinna i Monza handan Como-vatns. 21.55 Sumar á noröurslóðum. Bresk-kanadiskur fræðslu- myndaflokkur. Hreindýr i Kanada. Þýðandi og þulur óskar Ingimarsson. 22.20 Heimshorn. Fréttaskýr- ingaþáttur. Umsjónarmað- ur Sonja Diego. 22.50 Dagskrárlok. Miðvikudagur 18.00 Björninn Jógi. Nýr, bandariskur teiknimynda- flokkur. Þýðandi Guðrún Jörundsdóttir. 18.25 Gluggar. Breskur fræðslumyndaflokkur. Þýð- andi og þulur Jón O. Ed- wald. 18.45 Fílahiröirinn. Bresk framhaldsmynd. Surani. Þýðandi Jóhanna Jóhannsdóttir. 19.10 Hlé. 20.00 Fréttir. 20.30 Dagskrárkynning og auglýsingar. 20.40 Loginn I noröri. Heim- ildamynd um sögu Finn- lands frá lokum fyrri heimsstyrjaldarinnar til vorra daga. Myndin er gerð i sameiningu af finnska sjónvarpinu og BBC og inn i hana er fléttað gömlum kvikmyndum, meðal annars myndum úr seinni heims- styrjöldinni. Þýðandi og þulur Gylfi Pálsson. (Nord- vision — Finnska sjónvarp- iö) 21.35 Bróöurhefnd. (Run Sim- on Run) Bandarisk sjón- varpskvikmynd frá 1973, byggð á leikriti eftir Lionel E. Siegel. Leikstjóri George McCowan. Aðalhiutverk Burt Reynolds, Inger Stev- ens og Royal Dano. Þýðandi Kristmann Eiðsson. Aðal- persóna myndarinnar er indiáni, sem dæmdur hefur verið til fangavistar fyrir að hafa myrt bróður sinn. Hann á þó enga sök á glæpn- um, og þegar hann er látinn laus, einsetur hann sér að koma fram hefndum á morðingjanum, eins og reglur ættar hans kveða á um. Hann verður ástfanginn af stúlku, sem starfar að velferðarmálum indiána, og reynir hún að telja hon- um hughvarf. 22.50 Dagskrárlok. Föstudagur 20.00 Fréttir og veöur. 20.30 Dagskrárkynning og auglýsingar. 20.40 Eldfuglaeyjarnar. Fyrsti flokkur fræðslu- myndaflokks um dýralif og náttúrufar á Trinidad I Vestur-Indium og á nær- liggjandi eyjum. Itisa- skjaidbakan. Þýðandi og þulur Gisli Sigurkarlsson. (Nordvision — Sænska sjón- varpið) 21.10 Frá Listahátið ’74. Ein- leikur á pianó i Háskólabiói 9. júni. Daniel Barenboim leikur Impomptu i Ges dúr op. 51, og Scherzo nr. 3 I cis- moll, op. 59 eftir Chopin. 21.30 Lögregluforinginn. Þýskur sakamálamynda- flokkur. A elleftu stundu. Þýðandi Auður Gestsdóttir. 22.25 Kastljós. Fréttaskýr- ingaþáttur. Umsjónarmað- ur Eiður Guðnason. 23.00 Dagskrárlok. Laugardagur 16.30 Jóga til heilsubótar. Bandariskur myndaflokkur meö leiðsögn i jógaæfing- um. Þýðandi og þulur Jón O. Edwals. 17.00 Enska knattspyrnan. 17.55 tþróttir. Meðal efnis verða myndir af amerlskum körfubolta, keppni vikunnar (bein útsending) og svip- myndir frá kappaksturs- keppni. Umsjónarmaður Ómar Ragnarsson. 19.15 Þingvikan. Þáttur um störf Alþingis. Umsjónar- menn Björn Teitsson og Björn Þorsteinsson. Hlé. 20.00 Fréttir og veður, 20.25 Dagskrárkynnihg og auglýsingar. 20.30 Læknir á lausuni kili. Breskur gamanmynda- flokkur. Ung og ástfangin. Þýðandi Jón Thor Haralds- son. 20.55 Vaka.Dagskrá um bók- menntir og listir á liðandi stund. Umsjónarmaður Gylfi Gislason. 21.35 Julie Andrews. Breskur skemmtiþáttur, þar sem söngkonan Julie Andrews og fleiri flytja létt lög og skemmtiatriði. Þýðandi Heba Júliusdóttir. 22.30 Játningar nasistanjósn- arans (Confessions of a Nazi Spy). Bandarisk biómynd frá árinu 1939. Leikstjóri Anatole Litvak. Aðalhlut- verk Edward G. Robinson og George Sanders. Þýðandi Jón Thor Haraldsson. Myndin gerist skömmu fyr- ir siðari heimsstyrjöldina og lýsir viðureign banda- rískra yfirvalda við njósna- hring þýskra nasista þar i landi. Aðalsöguhetja myndarinnar er nasisti, sem gengur i lið með banda- riskum aðilum og reynir að koma upp um sem mest af starfsemi sinna fyrri sam- herja vestan hafs.

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.