Þjóðviljinn - 01.11.1974, Page 4
4 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Föstudagur I. nóvember 1974.
DJÚÐVIUINN
MÁLGAGN SÓSÍALISMA
VERKALÝÐSHREYFINGAR
OG ÞJÓÐFRELSIS
(Jtgefandi: útgáfufélag Þjóðviljans Fréttastjóri: Einar Karl Haraldsson
Framkvæmdastjóri: Eiður Bergmann Ritstjórn, afgreiðsla, auglýsingar:
Ritstjórar: Kjartan Ólafsson, Skólavörðust. 19. Simi 17500 (5 linur)
Svavar Gestsson Prentun: Blaðaprent h.f.
Á KAUPMÖNNUM AÐ HALDAST ÞETTA UPPI?
Það voru ákaflega athyglisverðar upp-
lýsingar um verðlagsmál og mismunandi
vöruverð sem komu fram i sjónvarpsþætt-
inum Kastljós fyrir viku siðan. Þjóðviljinn
varð var við að margir vildu gjarnan eiga
þess kost að hafa við hendina niðurstöð-
urnar sem þar komu fram af rannsókn
Þórunnar Klemensdóttur hagfræðings.
Þessar niðurstöður voru þvi birtar hér i
blaðinu i gær og á fólk þvi kost á að skoða
þær betur en færi gefst til á hraðfleygri
stund fyrir framan sjónvarpsskerminn.
Þórunn byrjaði könnun sina með þvi að
velja af handahófi sex tegundir matvöru
og hreinlætisvöru og gekk siðan i sex
verslanir til að kynna sér verð og verð-
mismun á þessum vörutegundum. 1 ljós
kom að um gifurlegan verðmismun var að
ræða i hinum ýmsu verslunum, ekki bara
á sumum þessara vörutegunda heldur öll-
um. Nam mismunurinn á verði yfirleitt
frá um 30% og upp i yfir 80%. Til dæmis
kostaði sams konar túpa af tannkremi frá
67 krónum og upp i 93 krónur og sams kon-
ar jarðarberjasulta frá 82 krónum og upp i
145 krónur.
Svo vildi til að ein af þeim sex vöruteg-
undum sem Þórunn kannaði verð á er að-
eins flutt inn af tveimur heildsölufyrir-
tækjum. Það var þvi auðvelt að kynna sér
hvert væri heildsöluverðið á siðustu send-
ingunum til landsins og bæta siðan við lög-
legri hámarksálagningu i smásölu og
söluskatti til að fá út löglegt smásöluverð.
1 ljós kom að a.m.k. tvær af þeim fimm
smásöluverslunum þar sem þessi vöru-
tegund var fáanleg voru greinilega brot-
legar við lög, þar sem verð vörunnar
reyndist hærra en með nokkru móti gat
staðist, þótt gert væri ráð fyrir þvi, að ver-
ið væri að selja vöru úr dýrustu sendingu
sem til landsins hafði borist, hvað þá
heldur ef um væri að ræða eldri birgðir
sem keyptar voru inn á lægra verði.
Þarna er þvi um að ræða ótvirætt lög-
brot eða með öðrum orðum beinan þjófnað
sem gera verður kröfu um að dómstólar
landsins fái til meðferðar.
Þá kom það fram i sjónvarpsþættinum á
föstudaginn var að i einni og sömu verslun
reyndist stundum um að ræða svo ofboðs-
legan verðmun á sömu vörutegund eftir
þvi einu hvernig varan var pökkuð inn að
furðu gegnir. T.d. kostaði eitt kiló af púð-
ursykri ýmist 211 krónur eða 78 krónur,
1/2 kiló af jarðarberjasultu ýmist 155
krónur eða 59 krónur, og annað er eftir
þessu.
í þessum sama sjónvarpsþætti kom
einnig fram að almenningur hefur ekki
hugmynd um hvað algengustu vöruteg-
undir kosti og fólk leggur ekki á sig rann-
sóknarferðir milli margra verslana til að
kynna sér vöruverð á þessum stað eða
hinum. í þvi skjóli skáka svo kaupmenn og
setja á vöruna það verð sem þeim sýnist.
Svo á að heita að verðlagseftirliti sé
haldið uppi, en þetta verðlagseftirlit hefur
verið ákaflega máttvana þar sem það hef-
ur haft yfir mjög takmörkuðum starfs-
kröftum til ráða. Samt hefur það auðvitað
haft nokkur áhrif til bóta. Kaupmenn hafa
lengi haldið uppi þeirri kröfu að verðlags-
eftirlit verði afnumið með öllu og telja nú
að með ákvæðum i málefnasamningi nú-
verandi rikisstjórnar sé þeim gefið undir
fótinn með þetta. Þeir segja að almenn-
ingi sé fyrir bestu að álagningin sé alger-
lega frjáls, gróðinn óheftur.
Sjónvarpsþátturinn i siðustu viku leiddi
sérlega vel i ljós hversu fjarstæðukennd
þessi kenning kaupmanna er ef málið er
skoðað út frá hagsmunum almennings og
hversu langt ýmsir kaupmenn ganga i þvi
að seilast ofan i vasa viðskiptavinanna
vegna skorts á strangara verðlagseftirliti.
Auðvitað er þess brýn þörf, ekki sist nú
þegar kjör almennings fara versnandi, að
haft sé strangt eftirlit með verðlagi sem
allra flestra vörutegunda. Verðlagseftir-
litið þyrfti með stuttu millibili að gefa út
skrá yfir hámarksverð á sem allra flest-
um vörutegundum og slika skrá ætti að
skylda kaupmenn til að láta hanga uppi i
verslunum sinum svo að almenningur eigi
þess kost að sjá hvort i þessari eða hinni
verslun séu iðkaðir lögmætir verslunar-
hættir eða ekki.
Það er sagt að sliku fylgi óþarfa skrif-
finnska en skyldi ekki vera hyggilegt frá
sjónarmiði alþýðu manna og neytenda al-
mennt að ráðstafa litlu broti af þeim fjöl-
mörgu þúsundum sem nú stunda verslun-
arstörf til að þó ekki væri nema þrefalda
starfsliðið hjá verðlagseftirlitinu, þar sem
nú vinna átta manneskjur, og gera þetta
eftirlit virkara?
Efnisatriði
Washington
samkomu■
lagsins
óskýr
ViðræbufuIItrúar tslands og Bandarlkjanna: Þarna var rættum brottför bandarfska hersins frá tslandi.
Nú gerir Einar Ágústsson samning um að herinn verði áfram og um auknar hernámsframkvæmdir.
eða kannski”
Ýmislegt athyglisvert hefur
komið fram i viðtölum, sem Ein-
ar Ágústsson, utanrikisráðherra,
hefur átt við fjölmiðla siðan hann
kom heim með Washingtonsam-
komulagið upp á vasann. Ráð-
herrann hefur tekið það fram að
hér sé aðeins um rammasamning
við Bandarikjastjórn að ræða, og
ólokið sé að ganga endanlega frá
flestum atriðum samkomulags-
ins, enda verði varnarmálin i
„stöðugri” endurskoðun áfram.
Einkennilega oft hefur utanrikis-
ráðherra skotið sér undan að
svara áleitnum spurningum með
skirskotun til þessa „ramma”,
sem hann virðist ekki meira en
svo viss um hvað hafi að geyma.
I sjónvarpsþætti á dögunum
kom meðal annars fram hjá Ein-
ari Agústssyni, að hann „gerði
ráð fyrir” að islensku starfsmenn-
irnir 400, sem samkvæmt sam-
komulaginu eiga að taka við
störfum af bandarikjamönnum,
yrðu á launaskrá hjá NATO eða
Bandarikjaher með einhverjum
hætti. Samt taldi hann að þeir
yrðu islenskir starfsmenn og ekki
yrði hægt að nefna þá NATO-
starfsmenn, eða málaliða Banda-
rikjahers. Þetta var býsna óljóst
hjá ráðherranum.
Hitt er aftur á móti augljóst, að
það verður erfitt fyrir Framsókn-
arflokkinn að fylgja fram stefnu
sinni „um brottför hersins á frið-
artimum”, þegar fjögur hundruð
islendingar hafa starfað um skeið
á föstum launum hjá NATO eða
Bandarikjaher og eru sem starfs-
hópur orðnir háðir þessum er-
lendu aðilum fjárhagslega. Aður
hefur komið fram i viðtölum við
utanrikisráðherra, að þjálfun is-
lendinga til starfa á Keflavikur-
flugvelli taki langan tima, ef til
vill nokkur ár.
Þetta með timalengdina skiptir
máli. I sjónvarpinu kom meðal
annars fram, að utanrikisráð-
herra telur að Washingtonsam-
komulagið muni ekki gilda lengj,i
hæsta lagi kannski i tvö ár. „Muni
og kannski” — er ekki vaninn að
semja um ákveðinn gildistima,
þegar samkomulag er gert við er-
lend riki? Næstum þvi i sama orð-
inu og ráðherrann „spáir” um
gildistima samkomulagsins við
Bandarikjastjórn segir hann að
þess verði gætt, að gifurlegar
framkvæmdir á Keflavikurflug-
velli dreifist á það langan tima,
aö þær raski ekki eðlilegu efna-
hagslifi Islendinga og atvinnulífi
á Suðurnesjum. Ef svo hyggilega
á að fara að hlutunum er varla
um annað að ræða en að fram-
kvæmdirnar taki þrjú til fjögur
ár. Laglegt misræmi að tarna.
Engar tölur um upphæðir, sem
verja á i herstöðinni i samræmi
við samkomulagið, hafa verið
hafðar eftir utanrikisráðherra.
Hann hefur látið i veðri vaka að
ennþá sé ósamið um þær. Samt
sem áður birtir Þjóðviljinn 2.
október nákvæmar tölur um þetta
efni á forsiðu. Þær eru hafðar
F élagsf undur
Skipstjóra- og stýrimannafélagið Aldan
heldur félagsfund næstkomandi sunnudag
kl. 14, að Bárugötu 11.
Fundarefni:
1. Uppstilling til stjórnarkjörs
2. önnur mál
Stjórnin.
eftir bandariskum embættis-
manni, sem þykist vita betur en
islenskur ráðherra nýstaðinn upp
frá samningaborði i Washington.
Robert Dickerman, forstöðumað-
ur Menningarstofnunar Banda-
rikjanna á Islandi, segir i viðtali
við blaðið að heildarupphæðin sé
38,5miljónir dollara eða u.þ.b. 4,5
miljarðar islenskra króna. Verja
ætti 22,5 miljónum dollara til þess
að reisa 468 ibúðir fyrir banda-
riska hermenn á vallarsvæðinu
og 16 miljónum dollara til þess að
bæta öryggisbúnað Keflavikur-
flugvallar og aðskilja flugrekstur
hersins frá almennu farþegaflugi.
Af framansögðu og fleiru i mál-
flutningi ráðherrans að undan-
förnu má ráða að vafi geti leikið á
hvað raunverulega felist i
rammasamkomulaginu um „til-
högun varnanna” hér næstu árin.
Það er þvi full ástæða til þess að
stjórnarandstaðan á þingi reyni
að knýja fram skýr svör frá ráð-
herra um efnisatriði sam-
komulagsins i umræðum, sem
sjálfsagt fara fram i upphafi ný-
setts þings, enda þótt undirritun
hafi þegar farið fram og verði
ekki aftur tekin.
Óvissa þykir ekki góður skikkur
I alþjóðasamskiptum. Óvissa um
efni Washingtonsamkomulagsins
getur orðið til þess að Banda-
rikjastjórn takist að túlka það sér
i hag þegar að framkvæmdinni
kemur. Flokkur sem hefur
„brottför hersins” á stefnuskrá
sinni og fer með utanrikismál i
núverandi rikisstjórn getur varla
liðið slikt ráðslag.
. . . Æ
SKIPAUTÍTCRö R-IKISINS
M/s Hekla
fer frá Reykjavik um miðja
næstu viku austur um land til
Akureyrar og snýr þar við
austur um til Rcykjavikur
með viðkomu á Norður- og
Austurlandshöfnum.
Vörumóttaka: mánudag og til
hádegis á þriðjudag.