Þjóðviljinn - 01.11.1974, Page 10
10 SIÐA — ÞJÓÐVILJINN Föstudagur 1. nóvember 1974.
sér Miriam i hennar stað. En þá
hugsun hugsaði hann ekki til
enda: Dagurinn var eins og liking
sem gekk upp. Með þvi að drekka
tiu sjússa I viðbót væri hægt að
trúa þessari ókunnugu stúlku fyr-
ir öllu saman. Hvað myndi hún
gera, hvaðmyndi gerast? Eins og
hún gæti lesið hugsanir hans að
nokkru, sagði hún:
— Hvaðhaldiðþér'að hann geri
við peningana?
— Geymi þá og biöi eftir að —
— Eftir hverju?
— Að allt falli i gleymsku.
— Hvað mynduð þérgera? Við
svona mikla peninga?
— Það hef ég ekki hugmynd
um. Ég hef ekkert imyndunarafl.
Auk þess getur maður i fastri
vinnu ekki aukið neyslu sina
snögglega.
— Já, það er nú það.
Hún virti hann fyrir sér yfir
glasbrúnina. Hún sýndist allt i
einu allsgáð og áhugasöm.
— Ég, sagði hún, — ég væri
ekki i neinum vandræðum með
peningana.
Hún vildi ekki aftur i glasið og
samtalið lognaðist út af.
— Dýrleg tónlist, sagði hún. —
Það er hægt að sjá þetta allt fyrir
sér, er það ekki? Pálma og ég veit
ekki hvað —
Hann kinkaði kolli. Platan tók
enda og hann ók henni að enda-
stöð. Hann vildi aka henni heim,
en hún afþakkaði það. Af bila-
stæðinu sáu þau sporvagninn var
ekki kominn ennþá.
— Ég hef ekki einu sinni
heimilisfangið yðar — ef það dytti
nú i okkur aö fara i gönguferð ein-
hvern daginn.
— Það er hægast að ná til min i
vinnunni. — Ég er — ég er búin að
skipta um vinnu. Ég vinn á hóteli
núna.
— Jæja.
— Ég fékk nóg af hjúkrunar-
heimilinu.
Hún lét hann fá slmanúmer.
Sporvagninn var ekki kominn
ennþá.
— Ég verð að gera játningu:
þér sögðuð mér nafnið yðar, en ég
er búinn að gleyma þvi i hrein-
skilni sagt.
— Merrild, Jette Merrild.
Sporvagninn kom út úr litla
skóginum. Hann dró andann
djúpt.
— Nú ætla ég að spyrja yður
um dálitið skrýtið: Viljið þér
koma i brúðkaup með mér?
— Er þetta bónorö?
— Eiginlega ekki. bað er —
— Þá fyndist mér nefnilega að
við ættum að hætta að þérast
fyrst.
Hann sagði henni i skyndi frá
bruðkaupi Miriams; langaði hana
til að koma lika?
— Það er dálitið dapurlegt að
fara einn i bruðkaupsveislu,
finnst þér ekki? sagði hann til að
fylla upp i þögnina sem varð.
Hún kinkaði kolli.
— Ég elska brúðkaup, sagði
hún. Meira að segja annarra
brúökaup. Jú, hvort ég vil koma
með!
— Þá hringi ég og við tölum
nánar um þetta.
— Gerðu það.
Hann sat kyrr i bilnum þar til
hann sá sporvagninn hverfa inn i
skóginn. Þungsinnið sem návist
framandi mannveru hafði bægt
frá, lagðist að honum eins og blý-
hjúpur. Ég hef þörf fyrir ein-
hvern, hugsaði hann. Getur það
verið hún sem ég þarfnast?
Spurningin var orðin enn flókn-
ari á mánudagsmorgun.
— Þetta virðist hafa verið gert
með al, sagði viðgerðamaðurinn.
Forstöðukonan á hjúkrunar-
heimilinu hafði aldrei heyrt nafn-
ið áður. Borck lagöi tólið á og leit
á bankadyrnar, sem enn voru
læstar. Hann haföi reyndar aldrei
haft trú á tilviljunum.
— Ætlarðu að koma með ein
hverja póstkortsvinkonu á laug-
ardaginn? spurði Miriam.
— Já, svaraði hann. — Það
geriég. Eina af litlu vinkonunum.
19
Miriam og Berg dönsuðu brúð-
arvalsinn og Simonsen lék undir á
pianóið I hátiðasalnum. Borck
stóö og virti hann fyrir sér; það
kom honum á óvart að Simon
sen skyldi kunna á pianó. Hvað
myndi gerast næst? Þarna var
Miriam að dansa við Berg og
hann hafði ekki hugmynd um
hvað þau tvö áttu sameiginlegt.
Simonsen gat leikið brúðarvals-
inn öllum til undrunar og ánægju.
Og þarna stóð hann sjálfur og
klappaði I takt við tónlistina með
ókunnuga stúlku sér við hlið sem
klappaði líka i takt við tónlistina.
Miriam og Berg dönsuðu valsinn
sinn I æ stærri hringjum og
áhorfendur urðu að draga að sér
fæturna.
Þegar brúðhjónin voru að nið-
urlotum komin, fékk einhver
Simonsen til að hætta. Við mikil
fagnaðarlæti — frá föðursystrum
og móðursystrum og frænkum að
þvi er virtist — kysstust brúð-
hjónin. Aftur var haldiö að snitt-
unum og gengið framhjá borðinu
með gjöfum. Móðurbróðir las
upp simskeyti.
— Leiðist þér? hvislaði Borck
að Jette. Hún hristi höfuðið.
— Mér leiðist aldrei i brúð-
kaupum.
Simonsen fék hrós fyrir brúðar-
valsinn. Simonsen ljóstraði þvi
upp að hann léki Chopin á hverj
um degi. Borck átti bágt með að
hugsa sér hann sitja og gera það
aleinan; mér hefur skjátlast dá-
litið um hann, hugsaði hann undr-
andi.
Gjöfin þeirra stóð hálfinnpökk-
uð á borðstofuborðshorninu:
koparvél sem lagaði kaffi og hélt
þvi heitu. Kortið hafði dottið I
gólfið og hann leyfði sér að festa
það við bréfið með lfmbandsbút.
Miriam mjakaði sér til þeirra til
að þakka fyrir.
— Þetta var góð hugmynd,
Flemming!
— Það er frá okkur báðum.
— Flemming átti hugmyndina,
sagði Jette.
— Hafið þið heilsast?
. Hann kynnti þær hvora fyrir
annarri. Þær virtu hvor aðra fyrir
sér.
— Ég kannast lika við yður úr
sjónvarpinu, sagði Jetta með
þurrlegum rómnum sem gat virst
hæðnislegur.
— tJr sjónvarpinu?
— Jette þekkir okkur bæði af
skjánum, þú manst hvenær.
— Já, svoleiðis.
— Við megum bara ekki láta
eins og við séum þar á hverju
kvöldi.
— Þetta er dásamleg gjöf.
Annað hvort ykkar hlýtur að hafa
giskað á að ég drekk býsnin öll af
kaffi. Jörgen gerir það reyndar
lika.
— Hefurðu veriö með henni?
spurði Jette, þegar Miriam var
farin.Borck játaði þvi. — Maður
finnur það alltaf, er það ekki?
sagði hún. Hann kinkaöi kolli.
Hann sótti mörg sherryglös
handa henni og hún fór að gerast
kát og dálitið loðmælt, á sama
hátt og á veitingahúsinu fyrir
viku. 1 þetta sinn trúði hann ekki
á það, en vissulega tæmdi hún
furðulega mörg glös á skömmum
tima.
— Þakk fyrir tekönnuna, sagði
Berg þegar hann kom til þeirra.
— Kaffivélina.
— Kaffivélina, ég átti viðkaffi-
vélina.
— Farið þið i ferðalag? spurði
Jette.
— Tiu daga til Madeira.
— Hvernig fer bankinn að án
yðar — án ykkar beggja?
— Það kemur afleysingamað-
ur. Gamli, heiðarlegi Borck fer i
staðinn hennar Miriam. Yfir-
maður okkar, sem viö foröuðumst
að bjóða hingað, hann tekur við
kassanum. Og svo tekur afleys-
ingamaðurinn við af mér, það er
vandalaust.
— Afsakið mig andartak.
— A leiðinni fram á snyrtiher-
bergið tæmdi Borck sherryglasið
útvarp
7.00 Morgunútvarp. Veður-
fregnir kl. 7.00, 8.15 og 10.10.
Fréttir kl. 7.30, 8.15 (og for-
ustugr. dagbl.), 9.00 og
10.00. Morgunbæn kl. 7.55.
Morgunstund barnanna kl.
9.15: Rósa B. Blöndals held-
ur áfram að lesa söguna
„Flökkusveininn” eftir
Hextor Malot (17). Þing-
fréttirkl. 9.45. Spjallað við
bændurkl. 10.05 „Hin gömlu
kynni” kl. 11.00: Strauss
kvartettinn leikur Strengja-
kvartett i C-dúr op. 76,
„Keisarakvartettinn”, eftir
Haydn / Erna Spoorenberg
og hljómsveitin St. Martin-
in-the Fields flytja
„Exultate Jubilate”, tón-
verk fyrir sópran, strengja-
sveit, óbó og horn (K 165)
eftir Mozart / Julius Kat-
chen pianóleikari, kór og
Sinfóniuhljómsveit
Lundúna flytja Kóralfanta-
slu op. 80 eftir Beethoven.
12.00 Dagskráin. Tónleikar.
Tilkynningar.
12.25 Fréttir og veðurfregnir.
Tilkynningar.
13.00 Við vinnuna: Tónleikar.
14.30 Miðdegissagan „Fanney
á Furuvöllum” eftir Hug-
rúnuttHöfundur les (2).
15.00 Miödegistónleikar.Willi-
am Bennett, Harold Lester
og Denis Nesbitt leika þrjár
flautusónötur eftir Handel.
Andre Saint-Clivier og
Paillard kammerhljöm-
sveitin leika Konsert i G-dúr
fyrir mandólin og hljóm-
sveit eftir Hummel: Jean-
Francois Paillard stj.
15.45 Lesin dagskrá næstu
viku.
16.00 Fréttir Tilkynningar.
(16.15 Veðurfregnir).
16.25 Popphornið.
17.10 Útvarpssaga barnanna:
„Hjalti kemur heim” eftir
Stefán Jónsson. Gisli Hall-
dórsson les (2).
17.30 Tónleikar. Tilkynning-
ar.
18.45 Veðurfregnir. Dagskrá
kvöldsins.
19.00 Fréttir. Fréttaauki. Til-
kynningar.
19.35 Þingsjá, Umsjón: Kári
Jónasson.
20.00 Tónelikar Sinfóniu-
hljómsveitar tslands i
Háskólabiói kvöldið áður.
Hljómsveitarstjóri: Kar-
sten Andersen Einleikari á
fiðlu: Vaclav Hudecek frá
Tékkóslóvakiu a. Sinfónia
nr. 1 i c-moll eftir Anton
Bruckner b. Fiðlukonsert i
D-dúr op. 35 eftir Pjotr
Tsjaikovský. — Jón Múli
Arnason kynnir tónleikana
21.30 Útvarpssagan: „Gang-
virkið” eftir Ólaf Jóh. Sig-
urðssomÞorsteinn Gunnars-
son leikari les (10).
22.00 Fréttir.
22.15 Veðurfregnir. Frá sjón-
arhóli neytenda. Jón Óttar
Ragnarsson lektor skýrir
frá matvælarannsóknum i
viðtali við Baldur Guðlaugs-
son
22.35 Tiu á toppnum. örn
Petersen sér um dægur-
lagaþátt.
23.50 Fréttir i stuttu máli.
Dagskrárlok.
-sjónvarp
20.00 Fréttir og veður.
20.30 Dagskrárkynning og
auglýsingar,
20.40 Tökum lagiö. Brezkur
söngvaþáttur. Hljómsveitin
„The Settlers” og fleiri
leika og syngja létt lög.
Þýðandi Jóhanna Jóhanns-
dóttir.
21.10 Kapp með forsjá.
Breskur gamanmynda-
flokkur. Þýðandi Kristmann
Eiðsson.
22.00 Kastljós. Fréttaskýr-
ingaþáttur. Umsjónar-
maður ólafur Ragnarsson.
22.35 Dagskrárlok.
FLÓ A SKINNI
I kvöld. Uppselt.
KERTALOG
laugardag kl. 20,30.
Fáar sýningar eftir.
ÍSLENDINGASPJÖLL
Sunnudag. Uppselt.
Gul áskriftarkort gilda.
MEÐGÖNGUTÍMI
Eftir: Slawomir Mrozek.
Leikstjóri: Hrafn Gunnlaugs-
son.
Frumsýning þriðjudag kl.
20,30.
önnur sýning miðvikudag kl.
20,30.
Aðgöngumiðasalan i Iðnó er
opin frá kl. 14. Simi 1-66-20.
Reiður gestur
ÍSLENSKUR TEXTI.
Hörkuspennandi ný karete
slagsmálamynd i litum og
Cinema-Scope I algjörum sér-
flokki. Mynd þessi hefur verið
sýnd við mikla aðsókn
erlendis, enda sú bezta sinnar
tegundar, sem hingað hefur
komið. Þeir sem vilja sjá
hressileg slagsmál láta þessa
mynd ekki fram há sér fara.
Sýnd kl. 6, 8 og 10.
Bönnuð börnuð innan 16 ára.
m w ó
Simi 16444
Froskaeyjan
Afar spennandi og hrollvekj-
andi ný bandarisk litmynd.
Aðalhlutverk: Ray Milland,
Sam Elliott, Joan Van Ark.
ÍSLENSKUR TEXTI
Bönnuð innan 16 ára.
Sýnd kl. 3, 5, 7, 9 og 11.
SENDLAR
ÓSKAST
hálfan eða allan daginn
MÚÐVUHNN
Sími: 17500
HVAÐ VARSTU AÐ
GERA t NÓTT?
i kvöld kl. 20
sunnudag kl. 20
ÉG VIL AUÐGA
MITT LAND
laugardag kl. 20.
Barnaleikritið
KARDEMOMMUBÆRINN
Höfundur leikrits og leik-
mynda: Thorbjörn Egner.
Hljómsveitarstjórn: Carl
Billich.
Leikstjóri: Klemenz Jónsson.
Frumsýning miðvikudag kl. 17
Leikhúskjallarinn:
ERTU NU ANÆGÐ
KERLING?
sunnudag kl. 20.30.
Fáar sýningar eftir.
Miöasala 13,15-20.
Simi 1-1200.
Simi 32075
JOE KIDD
Aðalhlutverk : Clint
Eastwood.
Sýnd kl. 7 og 11
Bönnuð innan 16 ára.
Einvígið
The most toizarre
murder weapon
everused!
Aðalhlutverk : Dennis
Weaven.
Leikstjóri: Steven Spielberg.
ISLENZKUR TEXTI.
Sýnd kl. 5 og 9.
Bönnuð börnum innan 12
ára.
Simi 22140
Tónaf lóð
Sýnd kl. 5 og 9.