Þjóðviljinn - 07.11.1974, Blaðsíða 1

Þjóðviljinn - 07.11.1974, Blaðsíða 1
UÚÐVIUINN Fimmtudagur 7. nóvember 1974 — 39. árg. 221. tbl. ÍBÚAR 1 ÆSU- r FELLI MOTMÆLA „Þetta er sennilega bensinstöö, sem þeir eru aö byrja á þarna”, sagöi borgarstjórinn, Birgir isleifur Gunngarson er Þjóöviljinn haföi samband viö hann i gær vegna undarlegra fram- kvæmda, er eiga sér staö i efra Breiöholti þessa dagana. Borgarstjóri sagöi aö i skipulagi væri ráö fyrir þvi gert aö þarna risi bensinstöö. Borgarstjóri sagöi aö sam- kvæmt skipulagslegu sjónarmiöi væri þaö taliö mjög æskilegt aö slik þjónusta væri i hverju hverfi. Þvi má bæta viö, aö íbúar fjölbýlishúss þess er bensinstöð sú, er hér er frá greint, kemur til meö að risa viö, hafa skrifað undir mótmæli gegn þvi aö hún veröi reist þarna. (Ljósm. Ari.) —úþ Eitt mesta mengunarhneyksli sögunnar til þessa er nú á döfinni i Vestur-Þýskalandi. Fullvíst er talið að stóriðjuver hafi þverbrot- ið lög um meðferð eitraðs úr- gangs, með þeim afleiðingum að • blásýra hafi komist i grunnvatn og eitrað sum helstu fljót lands- ins. Og embættismenn reyna aö þegja málið i hel. Sjá bls. 5 Þangvinnsla hefst í vor Þangvinnslan viö Reykhóla tekur til starfa næsta vor. Vélar I verksmiöjuna eru væntanlegar til landsins, og veröa þær settar niöur eftir áramótin. Bygginga- framkvæmdir vegna verk- smiðjunnar standa yfir, eru reyndar langt komnar. Verk- smiöjuhúsiö er um það bil aö veröa fokhelt, en þaö er 1500 fermetra hús aö flatarmáli. Vilhjálmur Lúðvikssöirhjá Iðn- þróunarstofnun Islands, stjórnar- formaður Þangvinnslunnar, tjáði Þjóðviljanum i gær, að væntan- lega yrði hægt að framleiða um 3000 tonn af þangmjöli næsta ár, en reiknað væri með að þegar framleitt væri með fullum afköstum, væri mjölmagnið 6700 tonn. Hafnarframkvæmdir við Reykhóla hafa nokkuð tafist, og kvað Vilhjálmur af þeim sökum ekki fyllilega ljóst af hvaða krafti þangvinnslan gæti hafist i vor, en þegar hefur verið keypt 270 tonna skip tilþangvinnslunnar. Það skip var keypt i Noregi, skip sem sérstaklega á að henta til þang- tökunnar, þar eð það er grunn- siglt. Sveitarstjórn Reykhólasveitar sér um að byggja hús yfir væntanlegt starfslið þangverk- smiðjunnar, og nú mun hafin bygging fjögurra húsa, en lán til þeirrar byggingar fékkst þar eð nú hafa ný lög um byggingu leigu- ibúða úti á landi tekið gildi. Vilhjálmur reiknaði með að fjöldi fastráðinna starfsmanna þangvinnslunnar yrði um þrjátiu. Verksmiðjustjóri verður væntan- lega Eirikur Kristjánsson. Einhverjir starfsmanna þurfa að hafa véltæknimenntun, en siðan þarf að þjálfa annað starfs- lið við hin sérhæfðu vinnubrögð, sem þangvinnslan krefst. Og skipstjóraréttindi þarf sá að hafa sem þangtökuskipinu stýrir. Skipið hefur þegar verið keypt, en meðan verkefni eru ekki fyrir það hér heima, er það leigt til flutninga erlendis. Vélar til verksmiðjunnar koma viða að. Þurrkari kemur frá Þýskalandi, þangskurðrtæki frá Bandarikjunum, dráttarvélar frá Bretlandi osfrv. Þangvinnslan er árstiðabundin, og áætlaði Vilhjálmur Lúðviksson, að yfir annatimann gæti fjöldi starfsmanna farið upp i fimmtiu. —GG Forkólfar „Varins lands” veröa hver fyrir sig aö lýsa yfir þvi, aö þeir sjái sjálfa sig I hvert skipti sem þeir heyra oröiö vl. Sjá opnu. KJÓSENDUR SNÉRU BAKI YIÐ KERFINU bandarísku kosningunum 60% sátu heima í WASHINGTON 6/11 — Þegar tal- iö haföi veriö I 429 kjördæmum af 435 I kosningunum til fulltrúa- deildar Bandarikjaþings höföu demókratar fengiö 284 þingsæti, en höföu 248 áöur. Republfkanar voru þá meö 145 en höföu áöur alls 187. t kosningunum til þriöjungs sæta I öldungadeildinni fengu demókratar tuttugu menn kjörna en repúblikanar fjórtán, og hafa þeir fyrrnefndu þá bætt viö sig fjórum sætum I deildinni. Þá var kosiö til 35 af fimmtiu rikisstjóra- embættum og unnu demókratar i þeim kosningum niu riki af repú- blikönum en töpuöu tveimur auk þess sem einn óháöur rikisstjóri náöi kjöri. Hinn mikli kosningasigur demókrata er einkum talinn stafa af þvi hve illræmdir repúblikanar séu orðnir út af öllu standinu með Nixon, Watergate o.fl., svo og verðbólgu og öðrum efnahags- vandræðum. Heykslin sem und- anfarið hafa verið að gjósa upp kringum Rockefeller bæta heldur ekki um. Mesta athygli vekur þó i sambandi við þessar kosningar hve kjörsóknin var litil, eða aðeins um fjörutiu af hundraöi. Er bent á að i þingkosn: ingunum i Bretlandi á dögunum var kjörsókn einnig mjög dræm eftir þvi sem gerist þar I landi, og er talað um þetta sem merki þess að fólk i vestrænum löndum sé að missa trú á þvi að kosningarétt- urinn veiti þvi i raun og veru nokkurt vald til áhrifa i þjóðfélög- unum. Kosningaúrslitin eru talin mik- ið áfall fyrir Ford forseta, og er talið liklegt, að þau dragi mjög úr möguleikum hans til þess að verða útnefndur forsetaefni flokks sins i kosningunum 1976. Um þessar mundir er erkilhaldið Ronald Reagan, rikisstjóri I Kali- forniu, talinn skæðasti keppinaut- ur Fords á þeim vettvangi. Demókratar hafa nú 62 sæti i öldungadeildinni á móti 38, sem Framhald á 11. siðu. Það er enn hægt að hindra smánarsamninga við vestur-þjóðverja OEINING I STJORNAR- FLOKKUNUM UM MÁLIÐ Það fer nú ekki lengur milli mála, að embættis- mannanefndin, sem fór til Þýskalands til samn- inga um landhelgismálið kom heim með fullbúið uppkast að samningi, þar sem gert er ráð fyrir því, að þýskum verksmiðju- togurum verði hleypt inn í landhelgina með leyfi ís- lenskra stjórnvalda. Það er jafnframt Ijóst, að innan stjórnarflokk- anna magnast nú ágrein- ingur um málið, þar sem ýmsum þingmönnum ekki sfst í Framsóknar- flokknum þykir þetta harður biti að kyngja með tilliti til fyrri yfirlýsinga. Veruleg hætta er þó á því, að samningarnir verði samþykktir, nema almenningur i landinu láti rösklega til sín taka og geri ráðamönnum Ijóst, að samningur um að hleypa verksmiðjuskip- um inn í landhelgina þýði pólitfskt sjálfsmorð fyrir þá, semaðhonum standa. Matthias Bjarnason, sjávar- útvegsráðherra, sagði I viðtali við Þjóðviljann, sem birtist á laugardaginn var, að rikis- stjórnin myndi ganga frá á- kvörðun i málinu strax á mánu- dag. Svo hefur ekki orðið, vegna vaxandi andstöðu, sem ráðherr- arnir hafa orðið varir við. Taliö er að þingflokkarnir muni fá samningsuppkastið i sinar hendur fyrir vikulokin, jafnvel i dag, og greinargerð er því fylg- ir. Það var Matthias Bjarnasón, sjávarútvegsráðherra, sem gaf embættismannanefndinni sér- staka heimild til að ganga frá fullbúnu samningsuppkasti, en upphaflega var ætlunin að hún aðeins kannaði viðhorf þjóð- verja. Vitað er að innan rikis- stjórnarinnar hefur sjávarút- vegsráðherra verið einn mestur áhugamaður um þessa samn- ingsgerð, en innan rikis- stjórnarinnar mun ekki hafa borið á umtalsverðri tregðu fyrr en Ólafur Jóhannesson kom heim frá útlöndum. Væntanlega minnist Ólafur sinna fyrri svar- daga um að aldrei megi hleypa verksmiðjuskipum inn i land- helgina, en útilokun verk- smiðjuskipa var af hans hálfu meginröksemdin til réttlæting- ar samningunum við breta. Fundur sá sem haldinn var á mánudagskvöldið af Félagi á- hugamanna um sjávarútvegs- mál, þar sem fram kom mjög hörð og almenn andstaða við samningana, hefur ugglaust haft sin áhrif. Talsmenn samn- inga innan rikisstjórnar og á al- þingi, eru komnir á undanhald. Það er verkefni félagasam- taka og alls almennings að reka flóttann og kenna ráðamönnum þá lexiu, sem þeir þurfa á að halda, — einmitt nú. Á morgun kann það að verða of seint. ALMENN MÓTMÆLI GETA RÁÐIÐ ÚRSLITUM

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.