Þjóðviljinn - 20.11.1974, Síða 2
2 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Miðvikudagur 20. nóvember 1974.
HF laupnum
Skrifstofuvélar hf. i nýtt húsnœði
tir viðhaldsdeild Skrifstofutækni hf, að Hafnarstræti 17 (Tryggvagötumegin), tæknlmenn að
störfum viö eftirlit, viðhald og viðgerðir.
Olivetti umboðið á Islandi,
Skrifstofutækni h/f, hefur ný-
verið flutt starfsemi sína i nýtt
húsnæði. Fyrirtækið er nú til
húsa að Hafnarstræti 17,
Tryggvagötumegin, þar sem
áður var veiðarfæradeild. O.
Ellingsens. Er hiö nýja húsnæði
að miklum mun rúmbetra, en
fyrra húsnæði fyrirtækisins að
Laugavegi 178. Innréttingar á
nýja staðnum teiknaði Jón
Þórisson.
Skrifstofutækni h/f hefur nú
til umráða 200 fermetra at-
hafnasvæði fyrir verslun og við-
haldsdeild. 1 sambandi við
verslunina starfa fimm manns
við sölustörf, en jafnmargir
starfa i viðhaldsdeild við við-
gerðir, viðhald og eftirlit. Þrir
starfsmanna viðhaldsdeildar
eru skrifvélameistarar, en allir
hafa fengið starfsþjálfun er-
lendis hjá Olivetti. Viðhalds-
deild sér um hverskonar við-
gerðir, bæði með og án sérstaks
viðhaldssamnings, sem öllum
viðskiptavinum Skrifstofutækni
h/f stendur til boða. öllum vél-
um frá Skrifstofutækni h/f fylg-
ir 1—2 ára ábyrgð.
I sambandi við nýja húsnæðið
býður Skrifstofutækni h/f upp á
fjölbreyttara vöruval en áður.
Auk Olivetti véla og Rapidman
rafreikna mun Skrifstofutækni
h/f hafa til sölu skrifstofuhús-
göng af nýjustu gerð, teikniborð
og teiknivéiar, bréftætara,
skjala- og peningaskápa, o.fl.
Mun fyrirtækið leggja áherzlu á
nýjungar i skrifstofutækni og
tækjum.
Rammagerðin
stœkkar við sig
í Hafnarstrœti
Rammagerðin hefur nú flutt
starfsemi sina i nýtt og glæsi-
legt húsnæði I Hafnarstræti 19.
Hönnuöur húsnæðisins er einn
aðaleigandi Rammagerðarinn-
ar, Jóhannes Bjarnason, og er
óhætt að fullyrða, að húsnæðið
er bæði hagkvæmt og snoturt.
Rammagerðin var stofnuð
1946, og var I fyrstunni nær ein-
göngu unnið að innrömmun
mynda og málverka, og séð um
sölu þar á. Smám saman hefur
Rammagerðin aukið umsvif sin,
og rekur nú verslanir á þremur
öðrum stöðum i bænum, auk
þess að vera i Hafnarstrætinu,
eða i Austurstræti 3, Hótel
Loftleiðum og yfir
sumarmánuðina að Hótel Sögu.
Enn fæst Rammagerðin við
að innramma myndir og mál-
verk, en sala innlendra minja-
gripa og innlends iðnaðar er þó
stærsti hluti starfseminnar.
Einnig selja verslanir Ramma-
gerðarinnar danskt og spánskt
postulin og þýskan borðbúnað,
svo eitthvað sé nefnt af þvi sem
innflutt er og til sölu er hjá
Rammagerðinni.
I rammageröinni er margt is-
lenskra minjagripa, sem bæði
eru framleiddir I heimahúsum
og á verkstæðum. Þá er og
feikna mikið úrval af ullarvöru
á boðstólnum i Rammagerðinni,
og er mikið af henni handunnið.
Þá selur verslunin einnig
stórglæsilegar islenskar vetrar-
flikur, sem viðskiptafrömuðir
fullyrða að sé sist lakari en
besta framleiðsla erlendis.
Einn þáttur i starfsemi
Rammagerðarinnar hefur verið
og er enn, að sjá um að senda
pakka til vina og kunningja við-
skiptavina sinna erlendis. Eru
slikar sendingar fulltryggðar
fyrir skakkaföllum á leið til við-
takenda.
Meiri aflagœði
Jóhann J. E. Kúld skrifar i
Fréttabréf Fiskmats rikisins að
við samanburð á heildargæðum
fisks veiddum i þorskanet árin
1973 og 1974, þá komi i ljós, að
heildargæði aflans i ár eru
heldur betri en I fyrra.
Af þorski fór 2,1% meira i 1.
flokk I ár heldur en 1973. Af ufsa
9,0% meira. Af ýsu 4,5% meira
og af löngu 3,0% meira. Ctkoma
á gæðum netaflans, er þvi
heldur betri en ég bjóst við mið-
að við aðstæður á s.l. vetrarver-
tið.
Haustmót Taflfélags Kópavogs
Bjöm Sigurjónsson og
Margeir em efstir
Þótt fáir viti um, þá er skák-
mót i gangi hjá Taflfélagi Kópa-
vogs. Haustmótið hjá TK er
haldið i félagsheimilinu við Alf-
hólsveg. Keppendur eru aðeins 12
og tefla þeir 7 umferðir eftir Mon-
radkerfi. A sunnudaginn var 5.
umferð tefld. Þá sigraði Björn
Sigurjónsson Guðlaugu Þor-
steinsdóttur og er i efsta sæti
ásamt Margeiri Péturssyni með
4.5 v. í 3. sæti er Þorsteinn Guð-
laugsson með 3.5 v.
Taflfélag Kópavogs hefur á aö
ftMaosi
Indversk
undraveröld
Vorum að taka upp nýjar vör-
ur I mjög fjölbreyttu úrvali,
m.a.
BALI-STYTTUR
PERLU-DYRAHENGI
UTSKORNA LAMPAFÆTUR
GÓLF- ÖSKUBAKKA OG
VASA
BLAÐAGRINDUR
og margt fleira nýtt.
Einnig reykelsi og reykelsis-
ker.
JASMIN,
LAUGAVEGI 133,
REYKJAVÍK. |
skipa mörgum sterkum skák-
mönnum. Arangur þeirra I deilda
keppninni bendir til þess að þeir
muni berjast um 2. sætið við
Akureyringa. Þaðer þvifurðulegt
UMSJÓN JÓN G. BRIEM
hve þátttaka i skákmótinu er lltil.
1 deildakeppninni sigraði TK
Skákfélag Hafnarfjarðar með
yfirburðum. A 7. borði tefldi
meistaraflokksmaðurinn Eirfkur
Karisson fyrir TK. Hann sigraði
andstæðing sinn örugglega og
vona ég að engum misliki þóf ég
birti skákina en hún var stutt og
skemmtileg. Þess ber að geta að
hvor keppandi hefur aðeins eina
og hálfa klukkustund til að ljúka
skákinni.
Skákstund til Skákkeppni TK
gegn SH.
7. borð.
Hvitt: Eirikur Karlsson TK
Svart: Viðar Helgason.
1. e4 e5
2. Rc3 Rf6
3. f4 exf
Hér er betra að leika d5. T.d. 4.
fxe5 Rxe4 5. Rf3 Bc5 6. d4 Bb4 7.
Bd2 c5
4. e5 Rg8
5. Rf3 d6
6. d4 g5
Betra var Rc6
7. Bc4 Rc6
8. 0-0 Ra5?
Hér var betra að reyna Rh6 þó
að hvitur fengi sterka sókn eftir 9.
Rxg5 Dxg5 10. Bxf4
9. Bxf7 Kxf7
10. Rxg5 Dxg5
10. . . . Kxg7 var engu betra
vegna 11. Dh5 Rh6 12. Hxf4 Dd7
13. Hf6.
11. Hxf4 Dxf4
12. Dh5 Ke7
13. Bxf4
Svartur hefur nú hrók og tvo
menn gegn drottningu og 2 peð-
um. Það ætti ekki að vera mjög
óhagstætt en skjólleysi kóngsins
vegur þungt. Hvitur hótar nú 14.
exd6 ásamt Dxa5. .
13. ... Kd7
14. e6 Kc6
65. Db5 mát.
A sunnudaginn var einnig teflt
héraðskákmót. Haustmóts TR.
Mótið var með allra skemmtileg-
asta móti núna og kom þar margt
til.
1) Verðlaun voru vegleg og
veitt strax að loknu mótinu ásamt
öðrum verðlaunum fyrir Haust-
mótið.
2) Keppendur voru margir, alls
70.
3) Mótið var skipað mjög sterk-
um hraðskákmönnum, svo sem
þeim Friðriki Ólafssyni, Inga R.
Jóhannessyni Guömundi Sigur-
jónssyni, Guðmundi Pálmasyni
og nýbökuðum skákmeistara TR,
Birni Þorsteinssyni auk annarra.
arra '
4) Keppnin var mjög spenn-
andi.
Úrslit urðu bessi: (20 skákir).
.-2. Ingi R. Jóhannss. 15 v.
Friðrik Ólafss. 15 v.
3. Jóhann örn Sigurj.s. 14,5 v.
4-6. Guðm. Pálmason 14 v.
Guðm. Sigurjónsson 14 v.
Bragi Kristj.s. 14 v.
7-9. Sævar Bjarnas. 13,5 v.
Helgi Ólafsson 13,5 v.
Kristj. Guðm.son 13,5 v.
Jón G. Briem
Er félagið Island
Fœreyjar dautt?
Bæjarpóstur góður.
Mig langar að biöja þig aö
koma eftirfarandi greinarkorni á
framfæri um Félagið — Island-
Færeyjar.
Vorið 1973 var boðað til fundar I
norræna húsinu með það fyrir
augum að stofna vináttufélag is-
lendinga og færeyinga, sem var
og gert. Hlaut það nafnið Félagið
— Island-Færeyjar. Fjölmenni
var á fundinum og var mikill hug-
ur i fólki á að efla samskipti mill-
um þjóðanna á ýmsum sviðum,
samskipti sem hafa verið furðu-
lega litil hjá þessum skyldu
frændþjóðum. Hygg ég að það
hafi verið von flestra sem á fund-
inn komu, að með stofnun þessa
félags væri ef til vill hægt að bæta
eitthvað úr þvi ófremdarástandi
sem hefur verið i þessum efnum.
Kosin var stjórn og er formaður
hennar Árni Johnsen
blaðamaður, sem var og einn
aðalhvatamaður að stofnun fél.
Furðu hljótt finnst mér hafa verið
um starfsemi þess siðan. Hef ég
litt orðið var við að auglýstir hafi
veriðfundireða hvaðþá annað,
utan einu sinni, að mig minnir.
En ég held að ég hafi séð
formanninn i fjölmiðlum við
móttöku á gjöf færeyinga hér á
þjóðhátiðinni á vegum fél. ásamt
einhverjum fleirum. Það gæti
náttúrulega vel hent, að það hafi
eitthvað farið framhjá mér, sem
verið hefur á dagskrá hjá fél. En
hálf er ég hræddur um, að það
hafi verið illa auglýst I fjölmiðl-
um. Kannski bara i Morgunblað-
inu?
En mig langar gjarnan að vita
eitthvað um félagið og hvort
eitthvað verði á dagskrá i fram-
tíðinni, eða þá hvort það sé hætt
starfsemi.
Með þökk fyrir birtinguna.
Félagi.
Salon Gahlin
— Ef að það er satt að það sé
þriggja kynslóða verk að skapa
„gentelman”, þá ætti það að vera
hrein ánægja fyrir einn annan að
heilsa uppá barnabörnin sin.
Leiðrétting
Bjarne Haagensen, sem kemur
mjög við sögu i þættinum Fiski-
mái i blaðinu I gær, er ekki höf-
undur þáttarins, eins og sumir
gætu haldið þar sem nafn hans
fylgir greininni eins og undir-
skrift. Ennfremur er vert að geta
þess — vegna undirfyrirsagnar —
að hann er stjórnarformaður
Unidas A.L. — en ekki
stjórnarstarfsmaður, eins og
fram kemur I fyrirsögninni.