Þjóðviljinn - 20.11.1974, Blaðsíða 10
10 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Miðvikudagur 20. nóvember 1974.
Ég er sá langbesti
— segir Alan Clarke og ber sig mannalega
Hver er besti miBframherji
Englands um þessar mundir?
„Alveg örugglega ég,” segir Alan
Clarke og er hvergi smeykur viö
almenningsálitiö, sem oft ef ekki
alltaf fordæmir staðhæfingar á
borö við þessa. En Clarke segir:
„Þetta er jú sannleikurinn og
hvers vegna má ég ekki segja
hann eins og hver annar?Fólk tal-■
ar um mig sem mikilhæfan knatt-
spyrnumann, og ef ég brosi ekki
hæversklega, hneigi mig i auö-
mýkt og segi að „þetta sé nú of
djúpt i árinni tekið o.s.frv.” þá er
ég allt i einu orðinn illa upp alinn
monthani, sem ekkert kann eða
get.
— 1 hvert skipti sem ég fæ bolt-
ann i leik finnst mér að ég sé á
leiðinni að fara að skora mark.
Það er þaö eina sem ég hugsa um
i leik, — skora, skora og skora
meira.
— Ég finn að ég hef leikið betur
i haust en áður, mér gekk illa i
fyrra, en eftir langt sumarleyfi,
lengra en áður, finnst mér ég
vera endurnærður og liflegri en
ég hef verið áður.”
Alan Clarke á þá ósk heitasta
að komast á ný i enska landsliöiö,
en hann hefur ekki verið i náðinni
undanfariö og sæti 1 landsliðs-
hópnum hefur ekki staöið honum
neitt sérstaklega til boða. Hann
veit þó að hann á möguleikann, —
og hann er staðráðinn i að nýta
hann til fulls.
„Ég ætla mér að fara i heims-
meistarakeppnina árið 1978. Ég
verð þá trúlega enn i fullu fjöri, 4
ár er að visu langur timi þegar
maður er orðinn þetta gamall, en
með mikilli æfingu ætti mér aö
takast að halda mér gangandi i
5—8 ár i viðbót.”
Alan Clarke — hefur hátt I ensku blööunum til að reyna að vekja at-
hygli á endurheimtri kunnáttu sinni og getu.
Við spámennirnir erum
svo sannarlega ekki öf-
undsverðir af okkar hlut-
verki um þessar mundir.
Enska 1. deildarkeppnin
er galopin í alla enda/ 8
stig eru á milli þess efsta
og þriðja neðsta og má
því segja að af 22 liðum í
deildinni séu tuttugu/ sem
hafa enn prýðisgóða
möguleika á efsta sætinu
áður en mótinu lýkur.
Það er þvi erfiðara en
oft áður að spá um úrslit
leikjanna/ — allt getur
gerst og Chelsea, sem sit-
ur í þriðja neðsta sæti
getur allt eins orðið Eng-
landsmeistari eftir
nokkra mánuði.
Burnley—Newcastle 1
Nú þýðir ekki lengur að spá
sérstakri baráttu i hinum og
þessum leikum. Enski boltinn er
ein rauðglóandi slagsmál út og i
gegn, enginn leikur er öðrum
mikilvægari, — allir geta haft
úrslitaáhrif. Newcastle, sem er
tveimur stigum á eftir efsta lið-
inu, skoraði hvorki meira né
minna en fimm mörk gegn
Chelsea á laugardaginn.
Carlisle—Leeds 2
Leeds er stöðugt að vinna sig i
álit á ný. Leikur liðsins gegn
Middlesbro á laugardaginn (2-
2) var að sögn þula BBC hreint
út sagt frábær og Leeds-liðið
sýndi þar sinn besta leik i haust.
Cariisle situr ásamt félögum
sinum úr 2. deild frá i fyrra á
botninum og er fyrirfram dæmt
til að tapa þessari viðureign.
leik og eru lykilmenn liðsins. 8
stig hafa fengist úr siöustu
fimm leikjum og leiðin I átt að
toppbaráttunni virðist sist erfið-
ari en hjá öðrum.
Derby—Ipswich X
Ipswich situr I efsta sæti 1.
deildar og ber sig mannalega
eftir 4-0 sigur yfir Coventry.
David Johnson var þá i aðal-
hlutverki, skoraði 3 mörk og
kom um leið liði sinu á toppinn
með betra markahlutfall en
Liverpool. Derby mátti þola 1-3
tap gegn Arsenal og skoraði
eina mark sitt úr vitaspyrnu.
Liverpool—West Ham 1
Liverpool virkar ekki nógu
sannfærandi og er að þvi er
virðist að missa af efsta sætinu.
Leikur liðsins gegn Everton (0-
0) var þó mjög góður og þótti
mörgum sem liðið fengi þar
nokkra uppreisn æru eftir slaka
leiki undanfarið. West Ham er
að þoka sér ofar og þá ekki sist
eftir 5-2 sigur yfir Úlfunum.
Luton—Everton 2
Luton er að verða vonlaust i
baráttunni og stefnir hraðbyri
að annarri deild. Everton átti
mjög góðan leik gegn Liverpool,
— engin veruleg varnarmistök
og leikur liðsins virðist hreint út
sagt „pottþéttur”, nema hvað
ekki væri lakara að framlinan
skapaði sér fleiri tækifæri.
Manch. City— Leicester 1
Birmingham skoraði 4 mörk
gegn engu i leiknum á móti
Manch. City og voru það svo
sannarlega i meira lagi óvænt
úrslit. Mér þykir þó ekki ástæða
til svartsýni varðandi City,
Leicester á i erfiðleikum lika og
heimasigur i þessum leik er sist
fjarri lagi.
Chelsea — Sheff. Utd. 1
Það kann að vera glapræði að
spá Chelsea sigri að þessu sinni,
þvi liðiö fékk á sig hvorki meira
né minna en fimm mörk á laug-
ardaginn án þess að geta svarað
fyrir sig. En eins og ég sagði áð-
an þá er enski boltinn ekkert
nema eitt stórt spurningamerki
svo að þessi úrslit eru i sjálfu
sér ekkert fáránlegri en hver
önnur.
Coventry — Arsenal 2
Arsenal er að ná sér heldur
betur á strik. Liðsandinn er að
sögn eins og best verður á kosið,
Alan Ball og Kidd leiða félaga
sina fram til sigurs i hverjum
Middlesbro — Q.P.R X
Jackie Charlton er hróðugur
yfir liöi sinu og segir að
Middlesbro sé á leið til frama og
frægðar — meiri en nokkru sinni
fyrr. Hann hefur óbilandi trú á
leikmönnum sínum og litur út
fyrir að hann hafi tryggt þvi
áframhaldandi sæti i 1. deild.
Jafnteflið gegn Leeds (2-2) var
mikill sigur og Charlton virðist
vera að vinna sér sæti sem mik-
ilhæfur leiðtogi og þjálfari i
ensku knattspyrnunni.
Tottenham —
Birmingham 1
Tottenham er að ná hylli
Mike Lambert, sem á einna stærsta þáttinn i þvi að Ipswich er komið I efsta sæti 1. deildarinnar,
skorar hér jöfnunarmark liös sins gegn Arsenai á dögunum (1—1).
Úrslit
1. deild
Arsenal — Derby 3-1
Birmingham — Man. City 4-0
Everton — •Liverpool 0-0
Ipswich — Coventry 4-0
Leeds — Middlesbro 2-2
Leicester • — Tottenham 1-2
enskra áhorfenda á ný eftir
ömurlega byrjun, ( liðið er að-
eins að færa sig upp á skaftið.
En vissulega verða Birming-
ham erfiðir andstæðingar. Þeir
unnu Manch. City með fjórum
mörkum gegn engu og sýndu þá
afburða góðan leik.
Wolves — Stoke i
1 rauninni ætti það að verða
mitt fyrsta verk að draga þessa
spá i land tafarlaust. úrslil
helgarinnar hreinlega hrópa á
þveröfuga spá, (Jlfarnir töpuðu
stórt en Stoke vann góðan sigur
yfirLuton. En Úlfarnir eiga ein-
hvern veginn smátaug i mér og
ég kann ekki við annað en að spá
þeim sigri, jafnvel þótt ég geti
e.t.v. ekki ráðlagt neinum öör
um að gera slikt hið sama.
Hull—Manch. Utd. í
Manch. Utd. tryggir forskoi
sitt af æ meira öryggi. 6 stigi
forskot er sannfærandi og visi
er að þetta lið á eftir að ná 1
deildarsæti á ný. Það er örugg
mál að frami I 1. deild er fram
undan, Utd, á eftir að endur-
reisa veldi sitt að fullu.
Newcastle — Chelsea 5-0
QPR —Carlisle 2-1
Sheff.Utd. — Burnley 2-2
Stoke — Luton Town 4-2
West Ham — Wolves 5-2
2. deild
Blackpool — Oxford 0-0
Bolton — Southampton 3-2
Bristol Rov. — Orient 0-0
Cardiff — Nottm.For. 2-1
Fulham — Sunderland 1-3
Manch.Utd. — Aston V. 2-1
Notts Co. — Sheff. Wed 3-3
Oldham — Norwich 2-2
Portsmouth — Hull 1-1
WBA — Bristol City 1-0
York City — Millvall 2-1
Staðan
1. deild
Ipswich 18 10 2 6 25-12 22
Liverpool 17 10 2 5 23-12 22
Everton 18 5 12 1 23-18 22
Manch. City 18 9 4 5 20-20 22
Sheff. Utd. 18 8 5 5 27-29 21
WestHam 18 8 4 6 34-27 20
Stoke 17 7 6 4 29-23 20
Newcastle 17 7 6 4 25-20 20
Derby 18 7 6 5 30-26 20
Middlesbro 17 7 6 4 24-21 20
Birmingham 18 8 3 7 30-25 19
Burnley 18 7 4 7 28-29 18
Wolves 18 5 6 7 20-23 17
Leifcester 16 5 5 6 19-20 15
QPR 17 5 5 7 19-23 15
Coventry 18 4 7 7 24-36 15
Leeds 17 5 4 8 21-20 14
Arsenal 17 5 4 8 21-22 14
Totteham 17 5 4 8 22-25 14
Chelsea 18 3 8 7 19-33 14
Carlisle 18 5 3 7 15-19 13
Luton 18 1 7 10 15-28 9
2. deild
Manch.Utd. 18 13 : i 2 : 31-9 29
Sunderland 17 9 5 3 27-12 23
Norwich 17 8 7 2 24-13 23
Framhald á 13. siðu.