Þjóðviljinn - 20.11.1974, Side 16
Ofriðlegt fyrir Miðjarðarhafnsbotni:
Skœruárás og mótmœli
DiOÐVIUINN
Miövikudagur 20. nóvember 1974.
Fylgisaukning
yinstri flokka
á ítaliu:
Líkur
á
lausn
RÓM 19/11 — Loksins eftir
langa mæðu er svo að sjá að
itölum ætli að takast að koma
upp hjá sér nýrri rikisstjórn. I
kvöld samþykkti stjórn svo-
kallaðs Lýðveldisflokks að
taka þátt í myndun minni-
hlutastjórnar þess flokks og
kristilegra demókrata undir
forsæti Aldos Moros. Sósia-
listar og sósialdemókratar
höfðu áður lofað stuðningi við
slika stjórn, en verða þó utan
hennar. Stjórnarkreppan á
'ltaliu hefur nú staðið yfir i
nærri sjö vikur.
Byggðakosningar fóru fram
á ítaliu á sunnudag og
mánudag og unnu vinstri
flokkarnir þar verulegan
sigur. Kristilegir demókratar
fengu 36 af hundraði atkvæða
(voru með 39.8 af hundraði i
næstu byggðakosningum á
undan), kommúnistar fengu
25.8% á móti 22.5% siðast, og
sósialistar 15.7% á móti. 13.8%
siðast. En flokkur nýfasista
(MSI) jók einnig fylgi sitt,
hækkaði úr 5.2% i 7%.
DAMASKUS, TEL AVIV 19/11 —
Allmargir menn voru drepnir og
særðir i bænum Beit Sjean i norð-
austurhluta tsraels i morgun, er
skæruliðar úr Alþýðulýðræðis-
fylkingunni til frelsunar
Palestinu (PDFLP) réðust inn i
ibúðarblokk i þeim tilgangi að
taka fólk i gislingu. Var tilgangur
skæruliðanna sá að fá látna lausa
fjórtán menn, sem eru i haldi i
tsrael vegna baráttu gegn yfir-
völdum þar, þeirra á meðal
Hilarion Capucci, erkibiskup
grisk-kaþólskra i Jerúsalem, en
hann er sakaður um vopnasmygl
til palestinskra baráttumanna á
yfirráðasvæði Israels.
Skæruliðarnir voru fjórir talsins
og féllu allir fyrir israelskum
öryggisliðum, sem voru kallaðir á
vettvang og ruddust þegar inn i
bygginguna. t tilkynningu frá
PDFLP segir að byggingin hafi
sprungið i loft upp er Israelsku
hermennirnir ruddust inn og hafi
fjölmargir þeirra látið lifið og
særst. tsraelsmenn segjast enga
hermenn hafa misst, en hinsveg-
ar hafi þrir ibúa sambýlishússins
látið lifið i bardaganum, tveir
þeirra konur, og átján særst, þar
á meðal börn.
1 tilkynningu PDFLP um viður-
eignina segir að i öðru lagi hafi
tilgangur árásarinnar verið sá að
hefna fyrir árásir israelsmanna
undanfarið á flóttamannabúðir
palestinumanna I Libanon.
PDFLP er upprunalega klofn-
ingsbrot úr Alþýðufylkingunni til
frelsunar Palestinu (PFLP), en
báðum þessum hreyfingum mun
þykja aðalleiðtogi palestinsku
baráttusamtakanna (PLO),
Jasser Arafat, full linur i sóknum.
Þeir Georg Mabasj læknir, for-
ingi PFLP, og leiðtogi PDFLP,
Najef Hoatme að nafni, eru báðir
kristnir, en Arafat er múhameð-
ingur.
Loft er nú vægast sagt lævi
blandið fyrir Miðjarðarhafsbotni
MOSKVU 19/11 —Múhameö Resa
Pahlavi íranskeisari, sem nú er
staddur i Moskvu i opinberri
'heimsókn, ræddi i dag i þrjár
klukkustundir viö Bresjnéf og
aðra sovéska leiðtoga um ýmis
atriði i samskiptum rikjnna. Tal-
ið er að einkum hafi verið til um-
ræðu sala trans á jarðgasi til
Sovétrlkjanna og illdeilur írans
og traks, sem.hefur náið og vin-
samlegt samband við Sovétrikin.
Sovétrikin kaupa nú þegar
10.000 miljónir kúbikmetra af
og spá margir að nýtt strið milli
Israels og araba brjótist út áður
en varir. Arafat lýsti þvi yfir i
Alsir i dag að PLO myndi herða
aðgerðir sinar gegn Israel, og All-
on, utanrikisráðherra tsraels,
sagði að isralesmenn myndu taka
jafn ómjúkum höndum á
palestinsku mótmælafólki á yf-
irráðasvæði sinu og liðsmönnum
PLO sjálfum. Undanfarna viku
hafa palestinumenn á vestur-
bakka Jórdanar og I Jerúsalem
haldið uppi stöðugum mótmæla-
aðgerðum og er enn ekkert lát á
jarðgasi árlega af Iran og veita
tran mikla tækniaðstoð við ýmsar
iðnaðarframkvæmdir. Verðið á
jarðgasi hefur rokið upp undan-
farið ásamt með oliuverðinu, og
vilja iranir þvi hækkaðverð fyrir
gasið, sem þeir selja sovétmönn-
um, en sovétmenn hafa til þessa
tekið dræmt i það. Ekki er þó talið
óliklegt að samkomulag náist um
þetta atriði, þar eð Sovétrikin
flytja út mikið af oliu (aðallega til
Austur-Evrópulanda) og hafa þvi
þegar á heildina er litið hag af
þeim. Segja israelsmenn að lög-
regla þeirra hafi alls handtekið
yfir hundrað og þrjátiu af mót-
mælafólkinu, nokkrir hafa slas-
ast, bæði af lögreglunni og mót-
mælafólkinu, og sextán ára
gömul palestinsk stúlka beið bana
á laugardag. Segja tsraelsmenn
að hún hafi látist af steinshöggi i
höfuðið, en palestinumenn að
israelskur skriðdreki hafi keyrt
yfir hana.
tbúar Beit Sjean eru flestir
Gyðingar frá Norður-Afríku.
háu verði á oliu og jarðgasi.
Talið er að keisarinn muni
einnig ræða sambúð sina við trak
við sovéska framámenn og þá
ekki sist mál íraks-kúrda, sem
berjast fyrir sjálfstjórn gegn
traksstjórn. tran og trak hafa
lengi átt i illdeilum út af áhrifum
á Persaflóasvæðinu og hefur
íranskeisari þvistyrktkúrda með
vopnaframlögum og fleiru. I gær
hét stjórn Sovétrikjanna á stjórn-
ir trans og traks að jafna deilu-
mál sin.
VtÆgilegar niðurstöður
99
Persakeisari sœkir Bresjnéf heim:
Ræða gas og kúrda
%
75
50
25
O
A B C D E F .
<20 21-30 31-40 41-50 51-6O 61-70 ÁRA
ALDURS FLOKKAR
Munur á heyrn bankamanna og járniðnaðarmanna kemur i Ijós strax I
yngstu aidursfiokkunum, en verður siðan æ meiri eftir þvi sem
aldurinn færist yfir. Bankastarfsmennirnir hafa, samkvæmt
könnuninni og sambærilegum erlendum könnunum, eðlilega heyrn.
Brotna llnan sýnir heyrn bankamanna hin járniðnaöarmanna.
Alþýðubandalagið
Viðtalstimi borgarfulltrúa
[Viötalstimi borgarfulltrúa Alþýðubandalagsins er i
pag milli klukkan 5 og 6 að Grettisgötu 3.
lAdda Bára Sigfúsdóttir, borgarfulltrúi verður til
Adda Bára. viðtals.
2000 Hz
Könnun á heyrn manna sem vinna daglega í hávaða —
„Niðurstöður ógnvekjandi fyrir málmiðnaðarmenn”
Heyrnardeild Heilsuverndar-
stöðvar Reykjavlkur, hefur
i samvinnu við fleiri deildii
stofnunarinnar, unnið að könnun
á heyrn tveggja starfshópa.
Könnunin stóð I sex mánuði, og
var mæld heyrn 426 starfsmanna i
járniðnaði og 306 bankastarfs-
manna. Járniðnaðarmennirnir
voru valdir, þar eð hávaði er yfir-
leitt mikill á þeim verkstæðum og
verksmiðjum sem þeir starfa á,
og bankamennirnir voru valdir til
samanburðar, þar eð hávaði i
bönkum er varla talinn
skaðlegur.
„Niðurstöður þessarar
könnunar eru ægilegar. Menn
hlýtur að reka i rogastans”, sagði
Guðjón Jónsson, formaður Félags
járniðnaðarmanna þegar niður-
stöður könnunar Heilsuverndar-
stöðvarinnar voru kynntar blaða-
mönnum.
Markmið rannsóknarinnar var
að afla vitneskju um heyrn starfs
manna á hávaðasömum vinnu-
stöðum og einnig voru kannaðir
nokkrir þættir varðandi heyrnar-
vernd á þessum sömu stöðum.
Þeir starfsmenn sem könnunin
tók til, voru á öllum aldri, frá 20
ára til 71 árs og stunduðu vinnu i
skaðlegum hávaða (hávaði yfir 85
desibel) i amk. þrjár klst. á
hverjum starfsdegi og höfðu auk
þess starfað við sambærileg
vinnuskilyrði amk. helming
starfsævi sinnar.
Niðurstöður könnunarinnar
verða að teljast geigvænlegar, en
Gylfi Baldursson, forstöðumaður
Heyrnadeildar Heilsuverndar-
stöðvarinnar benti á, að hefðu
verið valdir til könnunarinnar
menn, sem hefðu unnið i
skaðlegum hávaða allan daginn,
meira en helming starfsævi
sinnar, hefðu niðurstöður orðiö
enn hrikalegri.
Mikill munur á
heyrn hópanna
Rannsóknin sýnir, að verulegur
munur er á heyrn hópanna
tveggja, einkum þegar kemur I
efri aldursflokka, þar sem
skerðing heyrnar
járniðnaðarmanna er geig-
vænleg.
A linuriti þvi, sem hér birtist,
sést hvernig járniðnaöarmenn
annars vegar (samfellda linan)
og bankastarfsmenn hins vegar
(brotna linan) heyra tón, sem er á
efri mörkum tiönisviðs talaðs
máls.
Notkun eyrnahlífa
Notkun eyrnahlifa á vinnu-
stöðum varð ekki almenn fyrr en
undir lok siðasta áratugs.
Yngri menn sem i hávaða starfa
nota yfirleitt hlifar, en verr
gengur að venja þá eldri á
hlifarnar.
Þeir sem þátt tóku i heyrnar-
könnuninni, svöruðu m.a. hvers-
vegna þeir notuðu ekki heyrnar-
hlifar. Svörin voru margvisleg,
en aðeins 5 af 209 töldust
fullnægjandi, þ.e. 5 mannanna
höfðu frambærilegar ástæður
fyrir þvi að nota ekki hlifar.
Gerður var samanburður á
hópunum tveimur með tilliti til
þess, hvernig ástatt væri með
heyrn þeirra sem stunduðu
skytteri. Niðurstaðan reyndist
neikvæð fyrir skotmenn, og 20%
skotmannanna I könnunarhópun-
um báðum, kvörtuðu yfir suðu i
eyrum.
Stéttarþing Málmiðnaðar-
manna, sem haldið var um dag-
inn telur niðurstöðurnar ógnvekj-
andi, og telur brýnt að gerð verði
heyrnarprófun á öllum þeim sem
i málmiðnaði starfa og einnig að
gerðar verði sambærilegar rann-
sóknir á öllum atriðum vinnuum-
hverfisins, sem áhrif hafa á
heilsu verkafólks, svo sem
óhreinindum, lýsingu, loftmeng-
un og vinnuálagi. __
„ Vildu sjá
svona menn
— sögðu Rauðsokkar og fóru
að horfa á íhaldsmeirihlutann
i Hafnarfirði
55
,,Við höfum kosið að koma
og afhenda bæjarfulltrúum
Hafnarfjarðar þetta bréf per-
sónulega i stað þess að póst-
leggja það, þar sem okkur
langaði að sjá með eigin aug-
um svona menn”.
Svo hljóðar niðurlag bréfs
starfshóps Rauðsokka um
sveitarstjórnarmál, en brfið
fengu bæjarfulltrúarnir i
hendur á bæjarstjórnarfundi i
gærkvöldi. Rauðsokkar fjöl-
menntu á fundinn „til að sjá
svona menn”, en bréfið var
skrifað i tilefni þeirrar með-
ferðar, sem ihaldsmeirihlut-
inn i Hafnarfirði veitti tillögu
frá bæjarfulltrúa Alþýðu-
bandalagsins um könnun á
dagvistunarþörf barna i Hafn-
arfirði.
thaldsmeirihlutinn felldi til-
löguna, og létu ýmsir fulltrúar
ihaldsins þau orö um tillöguna
falla, að Rauðsokkar gátu ekki
annað en mótmælt.
Einar Mathiesen sagði að
jafnrétti væri hið versta tisku-
orð og notað i áróðursskyni.
„Jafnréttiskjaftæði”, sagði
hann reyndar. Árni Gunn-
laugsson sagði að dagheimili
stuðluðu að þvi að konur ynnu
úti, og „það þjónar engum til-
gangi að konur séu að vinna
utan heimilis, nema þá þeim
einum að safna sér peningum
fyrir lúxus, svo sem Mallorka-
ferðum”.
Þjóðviljinn hefur áður skýrt
frá þeim endemisorðræðum
sem leiddi af tillögu fulltrúa
Alþýðubandalagsins, en bréf
Rauðsokka verður birt i heild
siðar. —GG.