Þjóðviljinn - 21.12.1974, Síða 3
Laugardagur 21. desember 1974. ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 3
Jörundur t.v. virftir hér fyrir sér elna mynd slha isamt Halidéri
Péturssyni, sem getið hefur sér frægft fyrir teikningar sinar.
Jörundur sýnir 50 Esjumyndir:
„YEIT ALLTAF
MINNA OG MINNA
UM FJALLIД
í gær opnaði Jörundur Pálsson
arkitekt sýningu á 50 vatnslita-
myndum, sem hann hefur málað
á siðustu 20 árum. Sýningin
stendur aðeins yfir i dag og á
morgun og er opin frá klukkan 14-
20.
Þetta er fyrsta . einkasýning
Jörundar og i fyrsta sinn, sem
myndir eftir hann sjást á sýningu
hér á landi. Um helmingur mynd-
anna er til sölu en aðrar eru i
einkaeign.
Jörundur hefur málað griðar-
legan fjölda mynda af Esjunni.
Hann segist staðráðinn i að mála
fjallið i a.m.k. 10 ár i viðbót og
nefndi sem annað dæmi um slika
eljusemi heimsfrægan danskan
málara, sem ekki fékkst við ann-
að i rúm 30 ár en að mála undur-
fagra hlöðu á dönsku bóndabýli.
„Eftir þvi sem ég kynnist
Esjunni betur fer þekking min
hraðminnkandi”, sagði Jörundur,
„en ást min á fjallinu hins vegar
stöðugt vaxandi, hvernig sem á
þvi stendur”.
Náttúruhamfarir
Framhald af bls. 1.
þarna er, en það slapp ómeitt
nema ein kona sem meiddist litil-
lega.
í flóðinu fór steypustöð Gylfa
Gunnarssonar i rúst, svo og bif-
reiðaverkstæði Eiriks Arnasonar,
en þar voru nokkrir menn að
vinnu.
Tveir bilar a.m.k. lentu undir
skriðunni og úti sjó. Maður, sem i
öðrum bilnum var bjargaðist i
land. Hinn billinn var mannlaus.
Þá er jarðýtu saknað, en maður
var við vinnu i henni. Einnig fór
ibúðarhúsið Gamla Skuld, en það
var mannlaust.
Allir verkfærir menn i bænum,
sem tök höfðu á, voru við upp-
gröft i þeim húsum sem fólks var
saknað úr. Ekki var vitað hversu
margir voru á gangi á götum
þeim, sem skriðan fór yfir.
Klukkan rúmlega 8 i gærkveldi
hafði þremur verið bjargað úr
snjónum, og tveir þeirra voru
fluttir á sjúkrahús og var þá
a.m.k. 11 manns saknað.
Ekki var bilfært úr miðbænum
og inn i fjörðinn um miðjan dag i
gær, en mikil snjókoma hafði þá
veriö i Neskaupstað i um það bil
sólarhring. Allir vegir, i lofti og á
dáöi voru þá ófærir frá staðnum,
en sjóleiðin var fær. Rafmagn var
ibænum, nema þeim hluta hans,
sem skriðurnar féllu á.
trafoss hefur legið á Neskaup-
stað i nokkra daga og beðið þess
að verða lestaður, en ófærð hefur
hamlað. Fór hann i gær til Eski-
fjarðar, að sækja fólk til hjálpar-
starfs og einn lækni, sem þar er til
aðstoðar tveimur læknum sem
fyrir eru á Neskaupstað. Einnig
átti skipið að fara til Reyðar-
fjarðar og sækja þangað 30
manna lið og hjálpartæki, ýtu og
tvö ámoksturstæki. Þá ætluðu
Egilsstaðabúar að reyna að koma
til Reyðarfjarðar tveimur á-
moksturstækjum, sem ætlunin
var að koma til Neskaupstaðar,
þrátt fyrir það að ekki hefur um
áraraðir verið annars eins snjór á
Egilsstöðum.
Þá er og fengin heimild til þess
að Laxfoss, sem i gærkveldi var á
Fáskrúðsfirði kæmi til hjálpar og
þá með fólk úr öðrum byggðum á
Austfjörðum. Þá hefur og fengist
loforð fyrir þvi, að landhelgis-
gæslan láni varðskip til hjálpar-
starfsins. Flugvél landhelgis-
gæslunnar átti að fljúga austur i
gær, en hafði ekki getað hafið sig
á loft um klukkan 8 i gærkveldi.
Atti hún að fljúga með hjálpar-
tæki og varpa þeim niður yfir bæ-
inn, þar sem ekki var hægt að
lenda vegna ófærðar á flugvellin-
um i Neskaupstað.
t gærkveldi átti að flytja fólk úr
efstu húsunum i bænum i öruggt
skjól utar i firðinum.
Jóhannes Stefánsson i Nes-
kaupstað sagði okkur i gær, að
ekki væri vitað um snjóflóð á
þessum stað fyrr. Um aldamótin
féll þó snjóskriða nokkru innar,
eða i Naustahvammi, og tók hún
ibúðarhús með sér i sjó fram.
Fórust þá fjórir menn. ---úþ
Síðustu fréttir
Framhald af bls. 1.
Til stóö að flugvél Landhelgisgæslunnar flygi austur I gær tii að
kasta niöur gasgrimum og öðrum hjálpargögnum, en hætt var viö
það vegna hættu á þvi aö vélarhljóöiö hleypti af staö nýjum snjó-
flóðum. Eins var þeim tilmælum beint til fréttamanna sjónvarpsins
og annarra aö þeir flygju ekkiyfir staöinn af sömu ástæöum.
Landhclgisgæsluvélin átti aö leggja af staö til Egilsstaöa snemma
i morgun með hlustunartæki til aö nota viö leit þcirra sem enn er
saknað. Von var á irafossi fyrir þrjú i nótt meö stórvirkar gröfur og
mannafla til leilarinnar auk súrefnistækja, sem brýn þörf var á aö
bærust sem fyrst til sjúkrahússins. á
42 FENGU VIÐ-
BÓTARRITLAUN
42 rithöfundar fengu við-
bótarritlaun vegna ritverka,
útgefinna eða fluttra á árinu
1973.
Menntamálaráðuneytið
auglýsti nýlega eftir upplýs-
ingum frá rithöfundum um
verk þeirra á siöasta ári, og
bárust upplýsingar frá 98 aðil-
um. Nefnd sú, sem um upplýs-
ingarnar fjallaði var skipuð
tveimur fulltrúum frá Rithöf-
undasambandi íslands, þeim
Rannveigu G. Agústsdóttur,
B.A. og Bergi Guðnasyni, lög-
fræðingi. Einnig sat Þorleifur
Hauksson, cand. mag. i nefnd-
inni, tilnefndur af kennurum i
islenskum bókmenntum við
Háskólann og var hann for-
maður nefndarinnar.
A fjárlögum var gert ráð
fyrir að 12 miljónir króna
rynnu til greiðslu viðbótarrit-
launa, en það fé er fengiö með
þvi að rikið gefur eftir hluta af
söluskatti sem innkemur
vegna sölu eða flutnings rit-
verka. Nú koma rúmlega 285
þúsund krónur i hlut hvers
þeirra 42 rithöfunda sem
nefndin úthlutar viðbótarrit-
launum. Hér fer á eftir listi yf-
ir höfundana:
Ármann Kr. Einarsson
Baldur óskarsson
Birgir Sigurðsson
Björn Th. Björnsson
Björn Þ. Guðmundsson
Björn Magnússon
Björn Teitsson
Einar Bragi
Elinborg Lárusdóttir
Guðbergur Bergsson
Guðjón Sveinsson,
Guðmundur G. Hagalin
Gunnar Benediktsson,
Gunnar Gunnarsson,
Gunnar Gunnarsson,
Gunnar Gunnarsson, blaðam.
Gunnar M. Magnúss.,
Hannes Pétursson,
Hrafn Gunnlaugsson
Indriði G. Þorsteinsson
Ingimar Erl. Sigurðsson
Jóhann Hjálmarsson,
Jón Gunnarsson
Jón Óskar,
Jónas Guðmundsson,
Jökull Jakobsson,
Kári Tryggvason,
Kristján frá Djúpalæk,
Lýður Björnsson,
Magnús Þór Jónsson,
Njörður P. Njarðvik,
Oddur Björnsson,
Ólafur H. Simonarson,
Óskar Clausen,
Sigurður Guðjónsson,
Stefán Júliusson,
Steinar J. Lúðviksson,
Thor Vilhjálmsson,
Vésteinn Lúðviksson,
Yngvi Jóhannesson,
Þóra Vigfúsdóttir v/ Kristins
E. Andréssonar,
Þorgeir Þorgeirsson,
Þóroddur Guðmundsson.
Leikfang vindaima
— eftir Árna Larsson
Út er komin ný bók „Leikfang
vindanna”, eftir Arna Larsson og
er þetta önnur bók hans.
„Leikfang vindanna” er ljóða-
flokkur og skiptist i þrjá hluta:
„Um sólina, manninn og auðn-
ina”, „Valdið” og „Mannaður
heimur.”
Árni Larsson, sem er þritugur
reykvikingur, sendi fyrir tveimur
árum frá sér bókina „Uppreisnin
i grasinu”, en auk hennar hefur
hann ritað greinar um
menningarmál i blöð og timarit.
Arni er einn af stofnendum SÚR-
sambands ungra rithöfnda og
fékk viðbótarritlaun fyrr á þessu
ári.
„Leikfang vindanna” er offset-
fjölrituð hjá Letri s/f, útgefandi
er höfundur.
Visindasjóður Borgarspítalans:
Styrkjum
úthlutað
A föstudaginn fengu 9 læknar
fyrstu styrkina úr Visindasjóð
Borgarspitalans i Reykjavfk.
Heildarupphæft styrkjanna er 405
þúsund krónur sem skiptast I sjö
rannsóknir.
Visindasjóður spitalans er
þannig til orðinn að 6. janjar 1964
lögðu hjónin Úlfar Þórðarson
læknir og Unnur Jónsdóttir fram
bankabók með innistæðu að upp-
hæð tæpar 152 þúsund krónur sem
stofnframlag i sjóðinn. Er mark-
mið sjóðsins að hvetja til og
styrkja visindastarfsemi i sam-
bandi við Borgarspitalann. Er
sjóðurinn helgaður minningu
Þórðar Sveinssonar læknir og
Þórðar úlafarssonar flugmanns.
I skipulagsbréfi sjóösins segir
að borgarsjóður skuli greiöa ár-
lega i tiu ár 100 þúsund krónur og
komi til jafnhátt framlag úr öðr-
um áttum. Hefur þessum skil-
yrðum ætiö verið fullnægt og nú
eru eignir sjóðsins orðnar rúm-
lega 4.5 miljónir.
Heilbrigðisráð borgarinnar
myndar stjórn sjóðsins en auk
þess hefur Sverrir Þórðarson
blaðamaður setið i stjórn hans frá
upphafi fyrir hönd ættingja Þórð-
ar úlfarssonar.
í skipulagsbréfi sjóðsins er svo
kveðið á að fyrsta úthlutun úr
honum skuli fara fram 20. desem-
ber 1974 en þá hefði Þórður
Sveinsson fyllt öldina. Eftir það
skyldi úthlutun fara fram til
skiptis 20. desember og 14. júni.
A föstudaginn voru svo fyrstu
styrkirnir veittir eins og áður
sagði. Sjö umsóknir bárust og var
unnt að verða við þeim öllum.
Styrkhafar eru þessir:
1. Stefán Jónsson, Guömundur
Oddsson og óskar Þórðarson kr.
60 þúsund til rannsóknar á tiðni
blóftsega með geislavirku
fibriogeni. 2. Helgi Þórarinsson
og Asmundur Brekkan kr. 40 þús-
und til rannsóknar á nýrnaæxlum
sem voru röntgengreind við
Borgarspitalann árin 1966-73. 3.
Einar Baldvinsson og Óskar
Þórðarson kr. 50 þúsund til
kliniskrar rannsóknar á krans-
æðasjúkdómum (framhaldsrann-
sókn). 4. Páll Eiriksson kr. 50
þúsund til rannsóknar á gildi hóp-
lækninga við afleiðingum kran-
sæðastiflu. 5. Gunnar Guðjónsson
kr. 50 þúsund til rannsóknar á
sjúklingum eftir skurðaðgerðir á
slagæðum og til að hanna
kennslumyndasafn þar að lút-
andi. 6. Birgir Guðjónsson kr. 75
þúsund til rannsóknar á krabba-
meini i maga. 7. Asmundur
Brekkan kr. 80 þúsund til að rann-
saka skráningakerfi, upplýsinga-
kerfi og tölvunýtingu við röntgen-
deild Borgarspitalans árin 1966-
73.
—ÞH
Keyptu
Njálsbrennu
Frá fyrri árum hefur
Menningarsjóður gætt fjár,
sem Alþingi veitti til þess að
láta gera söguleg listaverk.
Þegar Maria H. ólafsdóttir,
listmálari, hélt málverka-
sýningu i Norræna húsinu fyrr
á þessu ári þótti málverk
hennar „Njálsbrenna” falla
undir þessa f járveitingu.
Menntamálaráð festi kaup á
verki Mariu og afhendir nú
Rangæingum það til eignar.
Þannig vill Menntamálaráð
stuðla að þvi að listaverkið fái
að koma fyrir almennings-
sjónir i stað þess að tapast úr
landi, en listakonan, Maria H.
ólafsdóttir er búsett i Dan-
mörku. Hafa opinberir sjóðir i
Danmörku svo og ýmsir
einkasjóðir þar fest kaup á
verkum hennar.
Þjóðlög með
Eddukórnum
Út er komin hjá Menningar-
sjóði, hljómplata, með is-
lenskum þjóðlögum. Þaö er
Eddukórinn sem flytur þjóð-
lög frá ýmsum timum, sum
vel þekkt, önnur minna. Upp-
taka fór fram i Danmörku.
Eddukórinn var stofnaður árið
1970 og hefur sungið við ýmis
tækifæri og komið m.a. fram i
útvarpi og sjónvarpi. A plöt-
unni eru t.d. lögin „Sofðu unga
ástin min”, „Grýlukvæði”, og
Krummi svaf i klettagjá”.
Kórinn skipa Sigriður
Sigurðardóttir, Sigrún
Jóhannesdóttir, Guðrún As
björnsdóttir, Sigrún Andrés-
dóttir, Arnmundur S. Back
man, Gunnar Guttormsson.
Friðrik Guðni Þórleifsson og
Sigurður Þórðarson.
Benedikt frá
Hofteigi áttræður
Benedikt Gislason frá Hofteigi er
áttræftur i dag. Hann tekur á móti
gestum á Hótel Esju kl. 16-18.