Þjóðviljinn - 21.12.1974, Page 14
14 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Laugardagur 21. desember 1974.
Formannafundur Heimsfriðarráðsíns:
Sameiginleg
baráttuvika
norrænna
friðarnefnda
inn i land. En þessi gönguferð i
áttina að bátahöfninni gat bent til
þess að sjálfsmorðsþankarnir
hefðu vaknað að nýju. Jói hafði
bersýnilega fengið sömu hug-
mynd. Slyngur strákur hann Jói.
En af hverju hafði hann ekki
gert alvöru úr sjálfsmorðinu þá?
Nú var hann aleinn og átti ekki á
hættu að sér yrði bjargað.
Sýslumaður fór enn einu sinni að
hugsa um vin sinn gagnfræða-
skólakennarann og athugasemdir
hans. Heimspekingurinn Heraklit
hefur skrifað að enginn stigi tvi-
vegis niður i sama fljótið. Kenn-
arinn sagði, að sennilega hefði
Heraklit fengið sér bað i Sútar-
ánni, þvi að sá sem hefur gert það
einu sinni, gerir það aldrei aftur.
Sennilega hafði Bottmer munað
eftir þvi, hvernig það var að
hoppa út i i fyrra skiptið og viljað
breyta um aðferð.
Um leið fékk sýslumaður hug-
mynd sem varð til þess að hann
settist skyndilega upp i stólnum.
Snaran sem Bottmer hafði notað
til að hengja sig i, var blettuð
menju, ,,sem notuð er til að mála
með báta” hafði lyfsalinn sagt.
Menjublettirnir gáfu til kynna
hvar Bottmer hefði fundið reipið.
Hann hafði séð til hvers hægt var
að nota það, stungið þvi á sig,
hætt við að drekkja sér og snúið
aftur heim á hótelið.
Hann hafði trúlega bægt frá sér
sjálfsmorðsþönkunum i lengstu
lög. Hann hafði ákveðið að fara
burt næsta morgun og beðið um
að láta vekja sig. Hann hafði farið
að hátta og opnað baukinn til að
taka inn töflu en ekki látið verða
af þvi. Loks — þegar hljótt var
orðið I húsinu, siðla kvölds —
hafði hann gefið allt upp á bátinn
og náð i snöruna.
Þetta kom allt saman og heim,
hugsaði Ek sýslumaður fegin-
samlega og saug smávindilinn
með áfergju. Allar staðreyndir
féllu inn i þetta. Meira að segja
hinir óskiljanlegu rauðu blettir á
reipinu höfðu næstum sjálfkrafa
fallið á sinn stað.
Það var aðeins eitt sem sýslu-
maður var ekki nógu ánægður
með. Timasetningin á andlátinu
var ailt of óákveðin. Hann leit svo
á að sjálfsmorðið hefði átt sér
stað siöla kvölds, kannski nálægt
miðnætti eða þar um bil, en
Skröderström læknir hafði aðeins
viljað segja að það hefði gerst
einhvern tima kvöldsins. Það átti
ekki vel við reglusemi sýslu-
mannsins. Hann hafði fengið
staðfest að útidyrunum á hótelinu
hefði verið læst klukkan niu. Ef
hann hefði aðeins getað fengið
bréf upp á það, að dauðsfallið
hefði átt sér stað eftir þann tima
Klukkan var farin að ganga
H. K. Rönblom:
Að
nefna
snöru —
sex. Smávegis ólga i maga sýslu-
mannsins gaf til kynna að matar-
timinn væri i nánd. En fyrst þurfti
hann að skeggræða dálftið við
lækninn, sem hafði lofað að lita
inn strax og heimsóknartimanum
væri lokið. Sennilega var það
fótatak hanssem hann heyrði nú.
Skröderström læknir gekk inn.
Þegar hann kom inn i herbergi
bar hann með sér blæ af fersku-
lofti og góðu skapi, likt og veiði-
maður sem kemur utanúr skógi
og engi, ilmandi af pipureyk og
barrnálum. Honum virtist aldrei
liggja neitt á. Hann gekk inn til
sjúklinga sinna og tyllti sér rétt
eins og hann hefði ekkert annað
að gera þann daginn.
— Hér hefurðu það skriflegt,
sagði hann og lagði pappirsörk á
borðið hjá sýslumanni. Meira hef
ég ekki til málanna að leggja.
— Geturðu ákveðið timann
nánar?
— Þvi miður, sagði læknirinn
og hagræddi sér i stólnum. Það
get ég ekki. Ef þú vilt vita meira,
verðurðu að sækja um krufningu.
— Það er ástæðulaust. Dánar-
orsökin er augljós.
Ek sýslumaður las skýrslu
læknisins. Þar stóðu hinar vana-
legu upplýsingar um einkenni
dauða og hrörnunar.
— Rigor mortis alger, sagði
sýslumaður. Og svo stendur að þú
hafir brotið upp stirðnunina i
vinstra olnbogalið.
— Já, ég mátti til, svo að ég
gæti —
— Það var og.
— Þú varst sjálfur viðstaddur.
Þú hefðir getað sagt —
— Ég var annað að gera. Enda
var þér frjálst að brjóta upp lið-
inn ef þér sýndist svo. Hvað hefði
ég átt að hafa á móti þvi.
Sýslumaður talaði eins og hann
væri með hugann við annað. Allt i
einu rétti hann höndina eftir sim-
anum.
— Er Strömberg yfirlögreglu-
þjónn við? Þakk fyrir. Ström-
berg? Þetta er Ek. Mér datt dálit-
ið i hug. Þú varst viðstaddur þeg-
ar hinn látni var fluttur burt af
hótelinu. Mig minnir að þú hafir
haft orð á þvi að dauðastirðnunin
væri enn óbréytt. Já, einmitt. Já,
ég skil. Knjáliðir, olnbogaliðir?
Sannleikurinn er sá að læknirinn
braut upp stirðnunina i öðrum
olnbogaliðnum þegar hann rann-
sakaði likið. Þann vinstri. Jæja,
er það svo? Þakk fyrir, meira var
það ekki.
Hann lagði tólið á og sneri sér
að lækninum.
— Strömberg segir að þegar
hann aðstoðaði við að flytja likið
árdegis þá hafi báðir olnbogaliðir
veriðalstirðir. Þú skilur hvað það
táknar.
— Já, sagði læknirinn dálitið
hikandi. Liðurinn sem ég losaði
um hefur náð að stirðna aftur.
— Það er augljóst. Og i sam-
bandi við timasetningu látsins!
Eins og þú veist manna best þá
tekur stirðnunin enda smám
saman. Eftir sex eða sjö stundir
— Vissulega, sagði læknirinn
og úr svip hans mátti lesa að það
væri að byrja að renna upp fyrir
honum ljós.
— Eftir sex eða sjö stundir er
stirðnunin alger og heldur ekki
áfram eftir það. Liður sem losað
er um eftir það, stirðnar ekki aft-
ur. Af þvi leiðir —
Nú var læknirinn með á nótun-
um.
— Hann hefur þvi verið dáinn
skemur en sjö tima þegar ég
gerði rannsókn mina! En ekki
miklu skemur, það tel ég vist.
Mér virtist Rigor mortis alger.
— Rétter það, sagði sýslumað-
ur. Þegar þú rannsakaðir hinn
látna hafði hann verið látinn i að
minnsta kosti sex stundir og i
mesta lagi sjö. Þetta gefur okkur
mikilvægar upplýsingar — reikn-
aðu til baka og þá sérðu það!
Formannafundur Heimsfriðar-
ráðsins (World Peace Council)
fór fram i Prag dagana 6.—9.
desember s.I. og var sóttur af 320
fulltrúum frá 125 löndum. Sótti
María Þorsteinsdóttir, formaður
islensku friðarnefndarinnar,
fundinn af tslands hálfu.
A fundinum var tekið upp það
nýmæli að fulltrúar hvers svæðis
eða álfu um sig tækju sig saman
um mótun stefnu i friðarmálum,
og starfaði fundurinn samkvæmt
þvi i nefndum á svæðagrundvelli.
Aðalmál fundarins voru þrjú: 1
fyrsta lagi öryggi og samstaða I
Evrópu, i öðru lagi afvopnun og i
þriðja lagi þróunarlöndin.
Öflugt friöarstarf
á italíu
Heimsfriðarráðiö á nú aldar-
fjórðungs afmæli og gert ráð fyrir
margháttuðu starfi af þvi tilefni.
Þannig munu friðarnefndir
Norðurlandanna gangast fyrir
sameiginlegri baráttuviku fyrir
friði i Stokkhólmi i mai i vor. I
sambandi við þá viku kemur
stjórn Heimsfriöarráðsins til
Stokkhólms. Dagskrá vikunnar
verður fjölbreytt; verður þar á
meðal annars fjallað um kjör
verkalýðsins og þátttaka lista-
manna verður mikil.
A fundi formanna friðarnefnd-
anna i Evrópu var meðal annars
skýrt svo frá af hálfu vestur-
þýsku nefndarinnar að á vegum
hennar hefði nýlega verið haldið
þing 600 fulUrúa frá 30 samtök-
um, og var vestur-þýska nefndin
mjög ánægð með árangur þess
þings. A Italiu er starf friðar-
hreyfingarinnar sérstaklega mik-
ið og fjölbreytt. Hreyfingin starf-
ar þar i nefndum, sem skipta með
sér málum, þannig til dæmis að
ein nefndin fjallar um málefni
Miðausturlanda, önnur um Chile
o.s.frv. Þátttaka er mjög mikil,
og komust itölsku fulltrúarnir svo
að orði að i þeirra landi mætti svo
heita að allt framfarasinnað og
upplýst fólk væri i friðarhreyfing-
unni. Þar er um að ræða fólk úr
öllum mið- og vinstri flokkum
landsins.
Sem dæmi um starf itölsku frið-
arhreyfingarinnar má nefna, að
hún skipulagði fimmtán þúsund
manns til starfs i þágu Þjóð-
frelsishreyfingar Vietnams, og
náði þátttakan i þvi starfi langt
út fyrir raðið hreyfingarinnar
sjálfrar. Italska friöarhreyfingin
hefur mikið samstarf við þá
bresku, og nýtur það samstarf
fjárhagslegs stuðnings frá bresku
verkalýðssamtökunum.
um.
Hálf mil|ón dollara
handa flóttafólki
frá Chile
Finnska friðarhreyfingin er
fjöldahreyfing með þátttöku allra
stjórnmálaflokka landsins og
flestra félagssamtaka. Eftir þing
Heimsfriðarráðsins i Moskvu i
fyrra héldu finnsku samtökin ráð-
stefnu, þar sem öll mál þingsins
voru tekin fyrir og rædd. 1 starfi
sinu hefur finnska friðarhreyfing-
in lagt sérstaka áherslu á að
vinna að öryggi Evrópu, og sagði
finnski fulltrúinn á formanna-
fundinum að árangurinn af þvi
starfi sýndi hverju væri hægt að
koma i kring, ef menn legðust á
eitt. Finnska hreyfingin safnaði
hálfri miljón dollara til hjálpar
flóttamönnum frá Chile. Finnarn-
ir eru sérstaklega áfram um að
náið samstarf um friðarmál tak-
ist milli Norðurlandanna allra.
Griski fulltrúinn á fundinum
skýröi svo frá að á timum herfor-
ingjastjórnarinnar hefði friðar-
Marfa Þorstefasdéttlr
hréyfingin verið bönnuð og ofsótt
i Grikklandi, en núverandi stjórn
væri henni hinsvegar vinsamleg.
Griska friðarhreyfingin hélt þing
i október með þátttöku margra
erlendra fulltrúa, og var þar fyrst
og fremst fjallað um mál Kýpur
og Austurlanda nær. Fulltrúi frið-
arnefndar Kýpur sagði, að i
yfirstandandi þrengingum þar i
íandi hefði mikilvægi friðarhreyf-
ingarinnar komið glöggt i ljós, þvi
að i innrásinni hefði kýpriska
friðarhreyfingin verið eina aflið,
sem ekki sundraðist, og hefði þvi
getað hjálpað föngum frá báðum
aðilum. Hreyfingin á Kýpur fékk
lika öflugan stuðning frá Heims-
friðarráðinu, og skipti sá stuðn-
ingur miklu máli.
Jólagjafir til
heimsfriðarstarfs
Fulltrúi Vestur-Berlinar sagði
ennþá kveða mikið að áróðri
bandarisku leyniþjónustunnar
CIA þar i borg og varaði við hætt-
unni af undirróðri CIA annars-
staðar, til dæmis i Grikklandi og
Portúgal, þar sem leyniþjónustan
stæði i sambandi við andbylting-
aröfl. Austur-þýski fulltrúinn
skýrði frá athyglisverðu nýmæli i
sambandi við jólagjafir, sem tek-
ið hefði verið upp þar i landi.
Þannig er mál með vexti, að
austur-þýska friðarhreyfingin
hefur opnað bankareikning, og
geta menn lagt inn á hann fram-
lög til stuðnings starfsemi hreyf-
ingarinnar i stað hinna venju-
bundnu jólagjafa. Sá, sem inn
leggur, tileinkar framlagið þeim,
sem hann hefði annars gefið jóla-
gjöf, og hinn fær tilkynningu um
það frá bankanum. Verður varla
annað sagt, en að þetta nýja form
á jólagjöfum sé i fyllsta máta i
anda þess boðskapar um kærleik
með öllum mönnum og frið um
gervalla jörð, sem tengdur hefur
verið jólunum.
Umræður urðu miklar á fundin-
um um hin ýmsu mál og deilur
um sum, og voru það einkum
vietnömsku og japönsku fulltrú-
arnir, sem gagnrýndu Heims-
friðarráðið og töldu það vera far-
ið af taka of deiga afstöðu gagn-
vart heimsvaldastefnu Banda-
rikjanna, en benda má á að viet-
namska þjóðin býr enn við styrj-
öld af völdum leppstjórnarinnar i
Saigon, sem hjarir eingöngu á
efnahagslegum stuðningi Banda-
rikjanna.
dþ.
ÖKUKENNSLA
Æfingatímar, ökuskóli og
prófgögn. Kenni á Volgu
1973. Vilhjálmur
Sigurjónsson, sími 40728
LAUGARDAGUR
21. desember
7.00 Morgunútvarp. Veður-
fregnir kl. 7.00, 8.15 og 10.10.
Fréttir kl. 7.30, 8.15 (og for-
ustugr. dagbl.), 9.00 og
10.00. Morgunbæn kl. 7.55.
Morgunleikfimi kl. 7.35 og
9.05. Veðrið og viðkl. 8.50:
Borgþór H. Jónsson veður-
fræðingur talar. Morgun-
stund barnanna kl. 9.15:
Benedikt Arnkelsson les
þýðingu sina á sögum úr
Bibliunni i endursögn Anne
De Vries (3). Tilkynningar
kl. 9.30. Létt lög milli liða.
óskalög sjúklingakl. 10.25:
Kristin Sveinbjörnsdóttir
kynnir.
12.00 Dagskráin. Tónleikar.
Tilkynningar. Tónleikar.
14.15 Aö hlusta á tónlist, VIII.
Atli Heimir Sveinsson sér
um þáttinn.
15.00 Vikan framundan.
Magnús Bjarnfreðsson
kynnir dagskrá útvarps og
sjónvarps.
16.00 Fréttir.
16.15 Veðurfregnir. „Aleinn”,
einleikur eftir Steingerði
Guömundsdóttur leikkonu.
Höfundurinn flytur.
16.40 Tiu á toppnum. örn Pet-
ersen sér um dægurlaga-
þátt.
17.30 Lesið úr nýjum barna-
bókum.Gunnvör Braga Sig-
urðardóttir sér um þáttinn.
Sigrún Sigurðardóttir kynn-
ir.
18.00 Söngvar i léttum dúr.
Tilkynningar.
18.45 Veðurfregnir. Dagskrá
kvöldsins.
19.00 Fréttir. Fréttaauki. Til-
kynningar.
19.40 Tvö á tali. Valgeir Sig-
urðsson talar við Ólöfu Rík-
harösdóttur ritara Sjálfs-
bjargar.
20.05 Létt tónlist frá hollenska
útvarpinu.
20.20 A bókamarkaðinum.
Andrés Björnsson útvarps-
stjóri sér um lestur úr nýj-
um bókum. Kynnir: Dóra
Ingvadóttir. — Tónleikar.
22.00 Fréttir.
22.15 Veðurfregnir. Danslög.
23.55 Fréttir í stuttu máli.
Dagskrárlok.
16.30 Jóga til heilsubótar.
Bandarlskur myndaflokkur
með leiðbeiningum i jóga-
æfingum. Þýðandi og þulur
Jón O. Edwald.
16.55 tþróttir. Knattspyrnu-
kennsla, Breskur kennslu-
myndaflokkur. Þýöandi og
þulur Ellert B. Schram.
17.05 Enska knattspyrnan.
17.55 Aðrar iþróttir: Hand-
knattleikur, mynd um þjálf-
un sundfólks o.fl. Um-
sjónarmaður Ómar
Ragnarsson.
19.15 Þingvikan. Þáttur um
störf Alþingis. Umsjónar-
menn Björn Teitsson og
Björn Þorsteinsson.
19.45 Hlé.
20.00 Fréttir og veður,
20.25 Dagskrárkynning og
auglýsingar.
20.35 Læknir á lausum kili.
Bresk gamanmynd. Læknir,
lækna sjálfan þig Þýðandi
Jón Thor Haraldsson.
21.05 Gagn og gaman.Kvik-
mynd, sem Þorsteinn Jóns-
son og Ólafur Haukur
Simonarson hafa gert fyrir
Sjónvarpið. í myndinni er
f jallað um stöðu listamanna
og samband þeirra við al-
menning.
21.35 Tökum lagið.Breskur
söngvaþáttur, þar sem
hljómsveitin „The Settlers”
og fleiri flytja létta tónlist.
Þýðandi Jóhanna Jóhanns-
dóttir.
22.05 Þegar spörvarnir falla.
(The Fallen Sparrow)
Bandarisk biómynd frá ár-
inu 1943. Aðalhlutverk John
Garfield og Maureen
O’Hara. Þýðandi Dóra Haf-
steinsdóttir. Myndin gerist i
Bandarikjunum árið 1940.
Maður, sem setið hefur i
fangabúðum á Spáni, kemur
heim. Hann fréttir að vinur
hans, sem hafði hjálpað
honum að sleppa úr fanga-
vistinni, hafi framið sjálfs-
morð. Þessu getur hann
með engu móti trúað, og
tekur að rannsaka málið.
23.35 Dagskrárlok.