Þjóðviljinn - 21.12.1974, Side 16

Þjóðviljinn - 21.12.1974, Side 16
UOÐVIUINN Laugardagur 21, desember 1974. Eþíópía lýst sósíalísk ADDIS ABABA 20/12 — Stjórnarnefnd herforingjanna i Eþiópiu lýsti þvi yfir i dag aö hún heföi ákveöiö að gera landið að sósialisku riki, þar sem tekiö yröi upp eins fíokks kerfi, mestur hluti atvinnulifs- ,ins settur undir beina stjórn rikisstjórnarinnar og sam- yrkjufyrirkomulag tekiö upp i landbúnaöinum. Var yfir- lýsing um þetta lesin upp i út- varpi þegar hundrað dagar voru frá þvi aö Haile Selassi keisari var settur af. bá sagði i tilkynningunni að kjörorö stjórnarbyltingarinnar „Eþiópia tikdem” (Eþiópia fyriröllu) þýddi i raun og veru „Eþiópia sósialisk.” Ennfremur segir i yfir- lýsingunni: „Sósialismi þýðir réttlæti, rétt hvers manns til aö ráða forlögum sinum, rétt hvers manns til vinnu og af- raksturs vinnu sinnar.” Reuter IRA býður vopnahlé ogfrið LUNDÚNUM 20/12 — Provisional IRA, sá armur Irska lýðveldishersins sem staðiö hefur fyrir flestum sprengjutilræöunum og skot- árásunum undanfarin ár, lýsti i dag yfir ellefu daga vopna- hléi af sinni háfu bæöi i Bret- landi og Irlandi. Jafnframt hefur IRA beint til bresku stjórnarinnar tillögum um varanleg frið. Utanrikisráöherra breta hefur tekiö jákvætt undir vopnahlésyfirlýsinguna, en ekkert sagt um friðartilboðið. Ekki er vitað hvað i friðartil- lögunum felst, en giskað hefur verið á að IRA geri að skilyrði að breska stjórnin gefi út yfir- lýsingu um að hún flytji her sinn á brott af Norður-írlandi, hætti að hafa menn i haldi án þess að þeim sé stefnt fyrir rétt og láti lausa alla pólitiska fanga Reuter. Sprengjutilrœði í Jerúsalem JERÚSALEM 20/12 — öflug sprenging særöi tólf manns, þar af tvo alvarlega, I miðri Jerúsalem i dag. Er þetta önn- ur meiriháttar sprengingin i miðri israelskri borg á niu dögum. Sprengingin var I Jehúda-götu, þar sem mikið er um verslanir, skrifstofur og veitingahús. tsraelskar orrustuflugvélar hafa þegar gert árásir á meintar stöðvar palestinskra skæruliða i út- jaðri Beirút i hcfndarskyni fyrir sprengjutilræðið. Reuter. Geir Gunnarsson. FJÁRLÖGIN 1975: 63% AUKNING NEYSLUSKATIA Og sérstakar jólagjafir handa lífeyris- þegum — stórkostleg kaupmáttarskerðing Við lokaumræðu fjárlaga i gær flutti Geir Gunn- arsson fulltrúi Alþýðubandalagsins i fjárveitinga- nefnd snarpa ádeiluræðu á rikisstjórnina og flokka hennar fyrir það hvernig staðið er að afgreiðslu fjárlaga. Geir tók sérstaklega til umfjöllunar hvaða jólagjafir hægri stjórnin færir þeim sem minnst hafa fyrir sig að leggja, elli- og örorkuþegum. Geir sagði m.a.: Með fyrstu fjárlögum hægri stjórnarinnar er ráðist harkalega á Hfskjör lifeyrisþega, það er ein aðferðin til þess aö ná saman end- uni á yfirspenntum fjárlögum. Almennur lifeyrir verður 13.339 kr. i janúar nk. og með tekju- tryggingu 21.398 betta á að hækka um 402 og 642 kr. 1. júni nk. En verðbólgan æöir áfram með 60% árlegum hraða. Fyrir mánaðarlifeyri fengust i ágúst sl. 254 franskbrauð, nú 222, 773 kg kartöflur, 319 nú, 81.4 kg strásykur, 48,5 kg nú, 32,7 kg kaffi, 27,7 kg nú, 522 1 mjólkur, 430 1 nú, 51.3 kg af súpukjöti, 40,5 kg nú, 49,9 kg af smjöri, 28,8 kg nú. Hvað fæst mikið fyrir þetta þegar 3% hækkunin kemur næsta sumar? Við 2. umræðu hækkuðu fjár- lögin um 800 miljónir, við 3ju um- ræðu hækka þau um 16-1700 milj- ónir til viðbótar. bar með verða áætluð útgjöld rikissjóðs 1975 47,2 miljarðar, tæpum 18 miljörðum eða rúmlega 60% hærri en á nú- gildandi fjárlögum. Lántökur til verklegra framkvæmda er lagt til að nemi 6 miljörðum. bað er þvi ljóst að niðurstöður fjárlaga i endanlegri mynd ganga þvert gegn þeim tveim aðalmark- miðum sem boðuð voru i greinar- gerð frumvarpsins frá fjármála- ráðherra: gegn útþenslu á rikis- útgjöldum — styrkja fjárhag rikissjóðs. Stefna rikisstjórnarinnar i efnahagsmálum er komin úr. böndunum. brátt fyrir kaupbind- ingu hafa verðlagshækkanir i tið stjórnarinnar orðið sem svarar 60% á ári. brátt fyrir lántökur og skulda- söfnun til að standa undir fram- kvæmdaliðum — þegar rekstrar- liðirnir hafa gleypt tekjurnar — verður að tefla á tæpasta vað við áætlun teknanna. Rikisstjórnin neyðist til að velja sér forsendur og gera ráð fyrir þróun sem er i algerri mótsögn við yfirlýsta stefnu hennar i efnahagsmálum sem er „hæfilegur samdráttur”. Stórskerðing á kaupmætti launa gengur einnig i berhögg við þær kröfur sem f járlögin gera til stór- aukinnar skattheimtu með neyslusköttum. Til þess að ná endum saman eru tekjuliðir hækkaðir umfram það dæmið sem hærra er i áætlun- um bjóðhagsstofnunar, þeirra tveggja sem stofnunin telur koma til greina að miða við. Verður þó að skera niður framlög til hafnar- framkvæmda, flugvallagerðar og til framkvæmda við verknáms- skóla og fleiri mikilvægra verk- efna. Ofan á allt þetta gripa stjórnar- flokkarnir til þess ráðs að skera niöur framlag til lifeyristrygg- inga miðað við þær fjárhæðir sem þyrfti til þess að unnt væri hjá þeim, sem ekkert hafa sér til lifs- framfæris annað en tekjutrygg- ingu almannatrygginga, fyrir óskertum kaupmætti lifeyris. Veruleg skerðing hefir nú þegar orðið á lifeyri þessa fólks sem við bágast kjör býr I þjóðfélaginu. Enn dynja verðhækkanir yfir og eiga eftir að gera það allt næsta ár. 1 f járlögum er hins vegar ekki gert ráð fyrir einni krónu til þessa fólks til að mæta augljósri kjara- rýrnun umfram þau aumu 3% sem eiga að koma til greiðslu frá 1. júni á næsta ári. betta vildi ég að þingmenn Framsóknarflokks og Sjálf- stæðisflokks vissu þegar þeir af- greiða nær 50 miljarða fjárlög — áður en þeir halda til sins heima að halda jólin hátfðleg. Kerbrotiní fjöruborðið Fálmkennd vinnubrögð segir Einar Yalur Heilbrigðisnefnd Hafnarfjarðar hefur samþykkt tillögur álvers- manna og Heilbrigðiseftirlits rikisins um að kerbrotaúrgangi frá álverksmiðjunni i Straumsvik verði komið fyrir i fjörukambi neðan álversins og þannig búið um að kerbrotin berist ekki I sjó heldur ýmist fjari af þeim eða falli yfir þau eftir gangi sjávap^' falla. svo að ákvarða megi rétta meö- höndlun þannig að draga megi úr eiturefnaáhrifum. bar sem að þessi efnagreining liggur ekki fyrir er förgun i sjávarkamb næsta tilviljuna- kennd ráðstöfun og ber enn vitni þeim fálmkenndu vinnubrögðum, sem hér eru viðhöfð i umhverfis- og mengunarmálum”. Einar Valur Inglmundarson, fyrrverandi umhverfissérfræð- ingur Heiibrigðiseftirlits rikisins. Jólaleyfi alþingis í dag halda þingmenn i jólaleyfi og verður fundum alþingis frest- að þangað til seint i janúar. Fjár- lög á að afgreiða i dag og einnig verður kjörið i ýmsar nefndir og ráð á vegum rikisins i dag, þó ekki i útvarpsráð þvi að stjórnar- fiokkunum tókst ekki að koma fram lagabreytingu þar um i tæka tið. Siðustu dagana hafa verið af- greidd ýmis lög sem samstaða hefur verið um meðal þing- manna, t.d. um hina nýju fisk- matsstofnun Framleiðslueftirlit sjávarafurða, en einnig nokkur umdeild mál eins og ráðstafanir i sjávarútvegi. Veðrun vinda og sjávar á sem sagt að gera kerbrotin óskaðleg. Enda þótt þess hafi verið krafist márgsinnis i bjóðviljanum, að það yrði sannað, að þessi aðferð væri hættulaus, hefur það ekki þótt nauðsynlegt, og aðeins verið visað til þess sem tiðkast erlendis iþessum efnum. bjóðviljinn innti Einar Val Ingimundarson, um- hverfisverkfræðing, fyrrverandi starfsmann Heilbrigðiseftirlits- ins, eftir þvi hvort nægilega vel væri tryggt, að eiturefnin i ker- brotunum menguðu ekki sjóinn og grunnvatnið kringum álverk- smiðjuna. Fálmkennd vinnubrögö Einar Valur svaraði: „Til þess að gera megi kerbrot óskaðleg verður að liggja fyrir fullkomin efnagreining á innihaldi þeirra, Jólatré Loðhúfu- og frakkamennirnir, sem þarna standa upp við vegg f skjóli fyrir norðangarranum, eru þarna samankomnir til aö sjá hvernig farið er aö þvi að kveikja á jólatré. frá bjóðverjar sendu hingaö til lands jólatré, fært islenskum sjómönnum að gjöf, og líkast til sem merki um samstöðu með þeim i landhelgis- striðinu. þýskum Tréð stendur við Hafnarbúðir, og siðdegis I gær tók Birgir tsleifur, borgarstjóri við trénu og þakkaði þýskum gjöfina með snjallri ræðu að vanda. GG HAPPDRffTTI ÞJÚÐVILJANS 1974 Nú eru síðustu forvöð að gera skil. DREGIÐ Á MÁNUDAGINN DRÆTTI ALDREI FRESTAÐ Skrifstofa happdrættisins að Grettisgötu 3 og afgreiösla Þjóðviljans opnar til kl. 19 í dagog til kl. 22 á mánudag — Gerið skil strax í dag eru

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.