Þjóðviljinn - 17.01.1975, Blaðsíða 2
2 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Föstudagur 17. janúar 1975.
w laupnum
Fjórir bátar
fórust,
og með 7 menn
Hér fer á eftir yfirlit Slysa-
varnafélags Islands um skip sem
fórust á nýliðnu ári þar sem jafn-
framt var um að ræða mann-
skaða.
Að kvöldi 14. febrúar sökk
nótaveiðiskipið Bylgjan RE 145,
566 tonn út af Alviðruhömrum á
leið til Austfjarðahafna með
loðnufarm. Einn af 12 manna
áhöfn skipsins fórst.
Hinn 1. ágúst fórst v/b Gustur
ÞH 165, 3 tonn, i róðri á Þistilfirði
og með honum tveir menn.
Hinn 25. ágúst fórst v/b óskar
Jónasson, RE 12, 15 tonná Faxa-
flóa og meö honum tveir menn.
Hinn 11. desember fórst v/b
Hafrún BA 10, 15 tonn,i róðri út af
Garðskaga og með honum tveir
menn.
Visur um áramót
Nú er komið enn nýtt ár
menn ætla að hætta að bragða
tár
Verðbólgan er ferlegt fár
og fjöldinn aura smár.
Nú fer allt i æti og skatt
eftir að vinstristjórnin datt.
Enn sú hægri herinn batt
og hann má nota i snatt.
Þingmenn fóru i flokkaflakk
en framsókn öll i sundur
sprakk
Þá Einar sagöi ókaylack
og aftur kaninn þakk.
Sú stjórn sem alþjóð uppi ber
og ihaldsfólkið valdi sér,
metur fátt sem islenskt er
á við kana her.
Áður var hér ættlands-stolt
sem okkur reyndist fremur
hollt,
en hefir illa i ýmsum tollt
þegar öllu er á botninn hvolft.
Lifsgæðakapphlaup erfitt er,
unga fólkið þetta sér
og notar það sem einfalt er,
en ekkert hentar ver.
Hér er að verða á ýmsu rót
ungir notá' gamalt dót,
setja á föt sin bót við bót
og buxur i pils á snót.
Æskan sýnir allt er hægt,
ekki er lengur silfur fægt.
Hægristjórn skal burtu bægt
og brátt mun snobb út rækt.
Sendur verður herinn heim
af honum þó við berum keim
hann kennir ýmsuin enskan
hreim
þvi ætt hver tengist þeim.
Af hernum þjóð þá hlýtur mennt
sem hefir hann okkar dætrum
kennt
þær eiga menn sina annast pent
annars verður þeim hent.
Rauðsokkur okkar þykjast þó
af þessum fræðum kunna nóg
og arka heldur út á sjó
en elda og bursta skó.
Smákaupmenn nú fara flatt
frá þeim jólaösin vatt
I Hagkaup og Kron var heldur
glatt
það hef ég fyrir satt.
Og heildsalastétt á hausinn fer
ef hannað er allt i landi hér
en allir kaupa þó erlent smér
ef engin skjalda ber.
Ef bændur hrökklast búum frá
sem bestu menn hjá Visi spá
má forsætisráðherrann glöggt að
gá
hvort greiðist leiðin þá.
Að bændamenning búum vér
byggt á meðan landið er
hana virða og vernda ber
hver vitur maður sér.
Þó prestur vinni ei verk sem
ber
það vist ei kirkjuráðið sér
á verstu stundum frá hann fer
svo furðulegt sem það nú er.
Þessu vil ég koma i kring
þó komist ég ekki inn á þing
um gröf skyldi prestur ganga i
hring
og gera þar krossmerking.
Lýk ég svo við ljóða spjall
með ljúfri ósk um stjórnarfall
fyrst Framsókn örm með
ihaldsdall
ekki heyrir kall.
Steinunn frá Hvoli.
SALON GAHLIN
— lskis beinir fleirum á hinn
mjóa veg dyggðarinnar en
áhrifamestu siðapredikanir.
Skrifstofustúlka
Ungmennafélag íslands óskar eftir að
ráða skrifstofustúlku frá næstu mánaðar-
mótum. Þarf að vera vön vélritun og
gjarnan að hafa einhverja þekkingu og
áhuga á starfi ungmennafélaganna.
Nánari upplýsingar á skrifstofu UMFÍ að
Klapparstig 16 Reykjavík.
UNGMENNAFÉLAG ÍSLANDS
Þakka auðsýnda samúð við andlát og útför eiginmanns
mins,
Halldórs Jónssonar,
Húsavik
Halidóra Gunnarsdóttir
sjónvarp nœsiu viku
Sunnudagur
17.00 Vesturfararnir. 6. þáttur
endurtekinn.Þýöandi Dóra
Hafsteinsdóttir.
(Nordvision).
18.00 Stundin okkar. Glámur
og Skrámur rabba saman
og Söngfuglarnir láta til sin
heyra. Þá kynnumst við
tveim kátum kaninum, sem
heita Robbi eyra og Tobbi
tönn. Trióið Þrjú á palli og
Sólskinskórinn syngja lög
viö texta eftir Jónas Arna-
son, og sýnd verður teikni-
mynd um Jakob. Stundinni
lýkur svo með spurninga-
þætti. Umsjónarmenn
Sigriöur Margrét Guð-
mundsdóttir og Hermann
Ragnar Stefánsson. Stjórn
upptöku Kristin Pálsdóttir.
18.55 Hlé.
20.00 Fréttir og veður.
20.25 Dagskrárkynning og
auglýsingar.
20.30 Réttur er settur. Laga-
ins fengið skipstjóra-
réttindi, er sendur til Suður-
Ameriku á skipinu
Pamperó, en skipið ferst i
ofviðri, og áhöfnin bjargast
við illan leik.
21.25 tþróttir. Meðal efnis er
mynd um skiðafimi.
Umsjónarmaður Ómar
Ragnarsson.
22.00 PG&E. Sænskur
poppþáttur.þar sem hljóm-
sveitin „Pacific Gas and
Electric” leikur og syngur.
Þýðandi Óskar Ingimars-
son. (Nordvision — Sænska
sjónvarpið)
22.50 Dagskrárlok.
Þriðjudagur
20.00 Fréttir og veður.
20.30 Dagskrárkynning og
auglýsingar.
20.35 Söngur Sólveigar.
Finnskt framhaldsleikrit i
þremur þáttum. Siðasti
þáttur. Þýðandi Kristin
Mántylá. 1 öðrum þætti
stýrir Eiður Guðnason,
fréttamaður
21.55 Vesturfararnir. Sænsk
framhaldsmynd, byggð á
sögu eftir Vilhelm Moberg.
8. og síðasti þáttur. Slöasta
bréfiö til Svíþjóðar.Þýðandi
Dóra Hafsteinsdóttir
(Nordvision)
22.45 Dagskrárlok.
F östudagur
20.00 Fréttir og veður-
20.30 Dagskrárkynning og
auglýsingar.
20.35. Lifandi veröld. Nýr
breskur fræðslumynda-
flokkur i sex þáttum um lifið
umhverfis okkur og jafn-
vægiö i riki nátturunnar. 1.
þáttur Lifið I ánni.Þýðandi
Sjónvarpiölýkur við aðsýna Vesturfarana eftir Jan Troell i næstu viku. Sjöundi þáttur verður sýndur á
sunnudaginn, þá verður sá sjötti Hka endursýndur, og svo kemur sá áttundi á skjáinn á miðvikudags-
kvöldið, og þann dag er sá sjöundi endursýndur. A meðfylgjandi mynd er m.a. Max von Sydow I hlut-
verki Karls óskars, landnema I Ameriku.
nemar við Háskóla Islands
setja á svið réttarhöld i
máli, sem ris út af sölu bif-
reiðar. Stjórn upptöku
Rúnar Gunnarsson.
21.30 Heimsmynd I deiglu.
Finnskur fræðslumynda-
flokkur um visindamenn
fyrri alda og athuganir
þeirra. 4. þáttur. Þýðandi
Jón Gunnarsson. Þulur Jón
Hólm. í þessum þætti
greinir frá Jóhannesi
Kepler og framlagi hans til
visindanna. (Nordvision
—Finnska sjónvarpið).
21.45 Vesturfararnir, Sænsk
framhaldsmynd, byggð á
sögum eftir Vilhelm
Moberg. 7. þáttur. Vafasöm
auðæfi.Þýðandi Dóra Haf-
steinsdóttir. Efni 6. þáttar:
Landnemarnir undu sér vel
við Ki-Chi-Saga. Börnin uxu
og döfnuðu og Karl óskar
ræktaði landið og byggði
stærra og betra hús. Aðrir
landnemar settust að í ná-
grenninu. Dag nokkurn kom
Róbert heim úr Kaliforniu-
förinni. Hann var veikur, og
Arvid var ekki i för með
honum. En hann haföi mikla
peninga meöferðis, sem
hann vildi gefa bróður
slnum. (Nordvision).
22,35 Að kvöldi dags. Séra
Valgeir Ástráðsson flytur
hugvekju.
22.45 Dagskrárlok.
Mánudagur
20.00 Fréttir og veður.
20.30 Dagskrárkynning og
auglýsingar.
20.35 Onedin - skipafélagið.
Bresk framhaldsmynd. 16.
þáttur. Ur vöndu að ráða.
Þýðandi óskar Ingimars-
son. Efni 15. þáttar: James
lætur loks undan fortölum
Frazers og ákveður að láta
smiða stórt gufuskip. Hann
stofnar hlutafélag, til að
afla fjár, og leggur jafn-
framt allt lausafé sitt i
þessa framkvæmd. Callon
fréttirum fyrirætlanir hans
og kaupir hlutabréf á laun.
Hann nær þannig meirihluta
I félaginu, og á fyrsta fundi
hluthafa tekur hann völdin.
Baines, sem nú hefur loks-
greindi frá unglingsárum
Solveigar. Hún býr við illt
atlæti móður sinnar, og
faðirinn er enn afskiptalitill
um hagi heimilisins. Solveig
er send i vist hjá stöndugu
og velmetnu fólki, en kann
illa við sig. Þegar heim
kemur, er henni skipað að
leita sér þegar atvinnu, en
móöir hennar aftekur að
styðja hana til náms.
(Nordvision — Finnska
sjónvarpið).
21:30 Or sögu jassinsDanskur
myndaflokkur um sögu og
þróun jasstónlistar. 2.
þáttur Þýðandi Jóhanna
Jóhannsdóttir. (Nordvision
— Danska sjónvarpiðl.
22.00 Heimshorn. Frétta-
skýringaþáttur. Umsjónar-
maður Jón Hákon Magnús-
son.
22.30 Dagskrárlok.
Miðvikudagur
18.00 Björninn Jógi.Bandarisk
teiknimynd. Þýðandi Stefán
Jökulsson.
18.20. Filahirðirinn. Bresk
framhaldsmynd. Krilið.
Þýðandi Jóhanna Jóhanns-
dóttir
18.50 Vesturfararnir, 7. þáttur
endurtekinn.Þýðandi Dóra
Hafsteinsdóttir.
(Nordvision)
19.40 Hlé.
20.00 Fréttir og veöur.
20.30 Dagskrárkynning og
auglýsingar.
20.35 Umhverfis jörðina á 80
dögum. Breskur teikni-
myndaflokkur, að mestu
byggður á samnefndri
skáldsögu eftir Jules Verne.
3. þáttur. Alltaf má finna
einhver ráðÞýðandi Heba
Júliusdóttir.
21.00 Landsbyggðin- Flokkur
umræðuþátta um málefni
dreifbýlisins. 3. þáttur.
Vestfirðir. Þátttakendur:
Svavar Jóhannsson,
Patreksfirði. Guðmundur
H. Ingólfsson, Isafirði,
' ölafur Þ. Þórðarson, Súg-
andafirði, Jóhann T.
Bjarnason, Isafirði, Karl E.
Loftsson, Hólmavik og
Ólafur Kris tj ánsson ,
Bolungavik. Umræbunum
og þulur óskar Ingimarsson.
21.05 Kastljós Frétta-
skýringaþáttur. Umsjónar-
maður Ólafur Ragnarsson.
21.55 Villidýrin. Breskur
sakamálamyndaflokkur.
Krókur á móti bragði.
Þýðandi Kristmann Eiðs-
soon.
22.45. Dagskrárlok.
Laugardagur
16 .30 iþróttir. Knattspyrnu-
kennsla. Þýðandi og þulur
Ellert B. Schram.
16.40 Enska knattspyrnan.
17.30 Aörar iþróttir.Meðal
annars badmintonkeppni I
sjónvarpssal og mynd frá
fimleikasýningu i Laugar-
dalshöll. Umsjónarmaður
Ómar Ragnarsson.
18.30 Lina langsokkur, Sænsk
framhaldsmynd, byggð á
barnasögu eftir Astrid
Lindgren. 4. þáttur.
Þýðandi Kristin Mántylá.
Aöur á dagskrá haustið
1972.
19.00 Hlé.
20.00 Fréttir og veður.
20.25 Dagskrárkynning og
auglýsingar.
20.30 Læknir á lausum kili.
Breskur gamanmynda-
flokkur. Fagrar framtiðar-
horfur. Þýðandi Jón Thor
Haraldsson.
20.55 Ugla sat á kvisti.Get-
raunaleikur með skemmti-
atriðum. Umsjónarmaður
Jónas R. Jónsson.
21.35 Tvær stúlkur,
Svipmyndir úr lifi breskrar
og hollenskrar stúlku.
Þýðandi Guðrún Jörunds-
dóttir.
22.10 ójafn leikur (23 Paces to
Baker Street). Bresk saka-
málamynd frá árinu 1965,
byggð á sögu eftir Philip
MacDonald. Þýðandi Jón
Thor Haraldsson. Vinsæll
leikritahöfundur, sem misst
hefur sjónina, er á ferðalagi
I Lundúnum. Af tilviljun
heyrir hann á tal manna,
sem eru að gera áætlun um
mannrán og jafnvel morð.
Hann leggur orðaskipti
þeirra vandlega á minnið og
tekur þegar að afla sér upp-
lýsinga um málið.