Þjóðviljinn - 09.02.1975, Qupperneq 7
Sunnudagur 9. febrúar 1975 Þ.’rtOVILJINN — SÍÐA 7
KÓRINN heitir þctta skemmtilega keramikvcrk úkrainska lista
mannsins Taras Lcvkiv.
írar eignast
nýjan dýrling
Irar hafa öðrum þjóðum frem-
ur sýnt kaþólsku kirkjunni trú-
festu. Það hefur vist ekki þótt
vonuin fyrr, að þeir eignuðust
nýjan dýrling, en það hefur nú
3kki gerst i sjö hundruð ár.
Dýrlingurinn nýi er hinn bless-
aði Oliver Plunket. Hann var
erkibiskup og var tekinn af lifi ár-
ið 1681. Enskir dæmdu hann til
dauða og drápu með grimmdar-
legum hætti fyrir meinta aðild
,,að samsæri um að endurreisa
Rómartrú”.
Oliver var lýstur blessaður
maður 1920 og siðan hafa margir
unnið að þvi að gera úr honum
fullkominn dýrling. Það sem réði
úrslitum var kraftaverk sem Oli-
ver er talinn hafa unnið er deyj-
andi móðir itölsk varð alhress á
skammri stundu á sjúkrahúsi
einu i Napoli árið 1958 (Skv. Ire-
land today).
Enn ein indjána-
þjóð er horfin
Nýlega lést i Chile gömul kona
sem Angela Lois hét. Hún var sið-
asti Onaindjáninn sem andann
dró: þjóðum jarðar hefur enn
fækkað um eina.
Onaindjánar voru fruinbyggjar
Eldlands, hinnar hrjóstrugu eyju
við suðurodda Suður-Ameriku.
Þegar sæfarinn Magellan kom að
eldlandi voru þeir um 2000 talsins.
Þeir lifðu eingöngu á veiðum og
bjuggu i skinntjöldum. Þeir voru
hávaxið fólk og nýkomið af stein-
aldarstigi.
Ofsóknir hvitra manna, sjúk-
dómar og önnur vandræði hafa
fækkað Onaindjánum jafnt og
þétt. Alllangt er siðan þeir voru
útdauðir á þeim hluta Eldlands
sem tilheyrir Argentinu. En
Chilemegin voru þeir enn um 120
talsins fyrir aðeins þrjátiu árum.
Og nú eru þeir allir dauðir.
Ríkurogham-
ingjusamur
ítalski listmálarinn
Giorgio de Chirico, sem
þénað hefur miljónir á
málverkum sínum, sem
hanga á söfnum og í auð-
kýfingahúsum um allan
heim, hefur látið hafa það
eftir sér að yndislegasti
draumur sem sig hafi
dreymt haf i verið, að hann
blundaði á rúmdýnu
stoppaðri með hundrað-
köllum.
— Það eru bara hræsnarar,
sem halda þvi fram, að peningar
geri mann ekki hainingjusaman,
segir þessi gamli sérvitringur.
Það er einmitt það sem maður
verður. Litið bara á mig!
0
ÁRNI BJÖRNSSON:
ÞJÓÐFRÆÐAGUTL
AUskonar gömul húsráð eru til við hiksta. Hér er eitt: Að halda fyrir
nefiðog drekka sem mest vatn á sem skemmstum tima.
Hnerri og hixti
Allir kannast við þá venju að
segja „Guð hjálpi þér”, þegar
einhver hnerrar. Það er nokkuð
misjafnt eftir þjóðum, hvað
sagt er við slika uppákomu. Til
dæinis segja Danir „Prosit”,
sem þýðir eiginlega: verði þér
til gagns, og er viða notað við
þau tækifæri, þegar við segjum
„skál”. Þjóðverjar segja und-
antekningarlitið „Gesundheit”,
sem merkir heilbrigði. Sumar
þjóðir segja vist ekki neitt.
Það er sagt, að á einum hinna
endalausu afvopnunarfunda
kjarnorkuveldanna i Genf, þar
sem menn eru feikilega orðvar-
ir til að láta ekki hanka sig á
hinu minnsta vixlspori, þá hafi
bandariski sendiherrann eitt
sinn hnerrað. Rússarnir litu
hver á annan. Attu þeir að segja
„Guð hjálpi þér”? Þeir báðu um
fundarhlé til að ráða ráðum sin-
um. Hvernig yrði það túlkað, ef
þeir segðu „Guð hjálpi þér”, og
hvernig, ef þeir segðu það ekki?
Eftir margra klukkustunda þóf
með dulinálsskeytasendinguin
til Moskvu, komu þeir aftur i
fundarsalinn og sovézki
ambassadorinn sagði hátiðlega:
„Guð hjálpi þér”. Þá urðu
Bandarikjamennirnir klumsa.
Þetta var svo óvænt framlag i
viðræðurnar, að þeir báðu um
að fundinum yrði frestað til
næsta dags, svo að þeir gætu
mótað afstöðu sina til þess,
hversu fram skyldi haldið.
Trú og tilgangur
Okkar saga segir, að þessi
siður sé fyrst kominn upp i
Svartadauða. Hann gekk i
héraði einu sem annarsstaðar
hér á landi og strádrap allt fólk.
Loksins kom hann á einn bæ,
þar sem tvö systkin voru. Þau
tóku eftir þvi, að þeir sem dóu á
bænum fengu fyrst geysilega
hnerra. Af þessu tóku þau uppá
þvi að biðja Guð fyrir sér og
hvort fyrir öðru, þegar þau
fengu hnerrana. Og lifðu þau
tvö eftir i öllu héraðinu. Af
þessu skal jafnan biðja Guð
fyrirsér, þegar maður hnerrar,
iOg deyr þá enginn af hnerrum.
önnur útgáfa af sögunni
segir, að Svartidauði hafi auð-
vitað fyrst komið upp i þeirri
vondu Babylon, þannig að menn
hafi verið að grafa i fornar
rústir. Hafi þá sést sem svartar
agnir um loftið sveima, og þvi
væri hann kallaður Svartidauði.
Hánn byrjaði þannig, að menn
fengu ákaflegan hnerra, og i
söinu svifum kom blóðgusan og
andinn fór með. — Þá voru tveir
bræður á ferð. Fékk annar
geysilegan hnerra. Þá segir
hinn: „Guð hjálpi þér bróðir
minn.” Bróðurnum þeim er
hnerraði batnaði. Þannig er
sagt að sá fagri siður hafi upp
komið að biðja Guð að hjálpa
sér, nær menn hnerra. En hvaða
Guð þeir hafa trúað á i Babylon
um þetta leyti, má Guð vita.
Enn önnur skýring á þessuin
sið er reyndar sú, að skirður
maður og fermdur geti i raun-
inni með góðri breytni verið
óhultur fyrirárásum Djöfulsins,
þvi að Guð sé i hans önd. En
þegar maður hnerri, þá skreppi
öndin úr brjóstinu nokkur
andartök, hann verði semsé
andlaus. Og þá hafi Andskotinn
tækifæri til að skjótast ofani
brjóstið á manni Þvi riði á að
vera fljótur að segja guð hjálpi
mér (eða þér), svo að þessi
ódæmi gerist ekki.
Annars er ýmiskonar trú
tengd hnerrum, og yfirleitt eru
þeir heldur góðs viti: „Mér á þá
eitthvað að bætast vikuna þá
arna”, sögðu menn, ef þeir
hnerruðu i rúmi sinu á sunnu-
dagsmorgni. En aðrir segja, að
menn þurfi að hnerra fastandi
þrjá hnerra á sunnudagsmorgni
svo að þeim gefist eitthvað þá
viku.
Betra er en ekki að hnerra á
mánudagsmorgni, þvi svo sagði
tröllkonan: „Betri er mánu-
dagshnerri en móðurkoss,” og
má ætla á það, þvi að einsog
tröll eru trúlynd, eins eru þau
sannorð. Og ef maður hnerrar i
rúmi sinu á nýársdagsinorgun,
þá lifir maður það ár.
Ef maður hnerrar' i net sin,
meðan hann riður þau eða
bætir, þá verða netin fiskin. —
Þegar maður hnerrar yfir mat
sinuin, boðar það gestakomu. en
sumir segja, að það sé komið
undir aldri mannsins: Ef elsti
maður hnerrar, meðan farið er
með matföng, á einhver
svangur að koma og borða af
þeim mat. Það er kallað „að
hnerra öðrum gest”, En hnerri
yngsti maður, hnerrar hann
meiri mat i húsið eða einsog þar
segir:
Elsti hnerrar mann fleiri,,
miðlungur mann frá borði,
yngsti hnerrar mat meiri.
Grátur og hixti
Ég kann þvi miður enga sögu
um upprunahikstans.en kannski
gæti einhver sent hana hingað.
Hinsvegar kannast flestir við þá
trú, að einhver ódámurinn sé að
nefna mann og sá eltki góð-
orður, þegar maður færhiksta.
„Þar er maður á orði, sem
maður er ekki að borði,” segir
máltækið. Og þessari trú
bregður fyrir i frásögn af ein-
hverjum frægustu viðburðum
Islandssögunnar, viðureign
Jóns biskups Arasonar og Daða
i Snóksdal. Þar segir svo:
— Jón biskup Arason
forboðaði Daða þennan vetur og
bannfærði hann siðan, og sendi
presta sina út og marga menn
aðra, bæði vestur i Dali og viðar
um Skálholtsbiskupsdæmi til að
lesa yfir hönum, ef þeir mætti,
og hans mönnum þau forboð og
bannsbréf, og gjöra sem
flestum kunnug. Arni prestur
Arnórnsson i Hitardal var
bræðrungur við Daða og var
með þeim góð frændsemi og
samheldi á móti fyrirtektum
Jóns biskups. Árni var farinn i
kynnisför um veturinn i Snóks-
dal, og er hann og Daði sátu
saman og mæltust við, kom að
Daða hiksti harður, svo hann
undraði og ætlaði að mundi slita
önd af sér. Þá mælti Daði: „Nú
er ég þar að orði, sem ég er þó ei
að borði.” Árni prestur var
haldinn margvis. Hann mælti:
„Satt vil ég yður segja. Þér eruð
nú á orði norður á Hólum, og er
Jón biskup nú að bannsyngja
yður.”
Stundum virðist orðið hikst
merkja öllu heldur ekki eða
ekkasog, en þó er ekki að vita.
hvað af þessu hefur þótt bera
vitni um guðrækilega innlifun
Lárenziusar biskups, þegar
messugjörð hans er svo lýst:
„Messuembætti sjálft fram-
flutti herra Lárenzius með svo
mikilli viðurkomningu hjartans
og tára úthellingu. að löngum
mátti meir heyrast til hans
gráturog hiksti en orðagrein i
lágasöngunum.”
Annars þykir hiksti yfirleitt
heldur hvimleiður, og munu til
ýmis ráð við honum, sem ég bið
fólk endilega að segja oss frá og
senda. Einkum eru þó til
fallegar bænir á móti hikáta,
einsog þessi:
Kristur i brjósti mér,
burt fari hiksti,
fyrri var ég i huga Guðs
beldur en hiksti.
Guð friði þess manns sál, sem
dó af hiksta.Hvör sein i einu
andartaki les þessa bæn niu
sinnum, mun laus verða við
allan hiksta.