Þjóðviljinn - 09.02.1975, Side 9

Þjóðviljinn - 09.02.1975, Side 9
Sunnudagur 9. febrúar 1975 ÞJÓÐVILJINN — StÐA 9 Haffræði tekur til allra rannsókna á hafinu, þeas., eðlisfræðilegum eiginleikum hafsins, hreyfingar þess, efnanna í sjónum.lífveranna, hafbotnsins og samskipta sjávar og lofts. Vekja þarf áhuga almennings á því að ganga vel um við sjávarsíðuna, og jafnframt á fólkið í landinu að gera þær kröfur til ráðamanna, að strendur landsins verði ekki mengaðar og gengið svo frá verksmiðjum og iðnaði við sjávarsíðuna, að ekki valdi skaða á dýrum og gróðri né spilli ströndinni. ingu hjá náttúrufræðikennurum i landinu á hafinu og vandamáluin þess. — Hvernig verður háttað kennslu i haffræöi viö Háskóla ís- lands, sem ætlað er að hefjist næsta haust? — Það er nú ekki búið að ganga frá námsskrá ennþá, en kennslan mun væntanlega hefjast með námskeiði i alinennri haffræði, þar sem aðallega verður fjallað uin landfræðileg einkenni, eðlis- og efnafræði sjávar og hreyfingar hafsins. 1 kjölfar þessa námskeiðs er ætlað að komi annað I almennri haffræði þar sem nemendum verði kynntar aðrar hliðar á haf- fræðinni, þ.e.a.s., sjávarbotninn, setlög hans, lifið i hafinu og loks nýting og verndun hafsins. Ég býst við að kenna fyrra námskeiöiö og hluta af þvi siðara, en geri ráö fyrir þvi að fá til lið- sinnis við mig ýmsa sérfræðinga á öðruin sviðum hafrannsókna til þess að kenna á siðara náinskeið- inu. Þessi tvö fyrstu námskeið eru hugsuð sem æskileg grein fyrir nemendur i náttúrufræöi viö Háskóla íslands, og sem undir- staða undir frekara haffræðinám, en jafnframt geri ég mér vonir um, að hægt verði að gefa stúdentum i efnafræðiskor Háskólans, sem lokiö hafa þessum tveimur fyrstu nám- skeiðum kost á að bæta við sig sérstökum náinskeiðuin i haf- efnafræði og ljúka fjögurra ára BS prófi i efnafræði með hafefna- fræði sem sérgrein. Þá vonast ég til þess að fljót- lega verði hægt aö bjóða nemend- um i eðlisfræöi upp á hliðstætt nám i hafeðlisfræði. Ég tel þar að auki að fyrstu tvö námskeiðin muni verða gagnleg fyrir þá liffræðistúdenta, sem hafa áhuga á sjávarvistfræði. Það má þvi segja aö þessi kennsla bjóði upp á þrenns konar möguleika. I fyrsta lagi gefur hún stúdentum i náttúrufræöum kost á almennri haffræði sem val- grein. 1 öðru lagi ætti hún að veita þeim, sem ljúka sérnámskeiðum nægilega undirstööu til að kenna haffræði við menntaskóla lands- ins. Og I þriðja lagi mundu þeir stúdentar, sem lokiö hefðu BS prófi með sérgrein I hafefna- og hafeölisfræði hafa nægilega undirstöðu til þess að halda til sérnáms erlendis i þessum grein- um. Ég geri ráð fyrir, að þessir siðast töldu myndu jafnan vera mjög fáir, þvi þaö er ekki mark- aður fyrir allt of marga sérfræð- inga i þessum greinum, en hins vegar tel ég að þaö sé mikil þörf á kennurum meö menntun i haf- fræði til kennslu viö framhalds- skólana, auk þess sem einhver þekking á haffræði er nauðsynleg fyrir alla náttúrufræðikennara. — Fær væntanleg haffræðideild við Háskólann sérstaka rann- sóknarstofu, eða munið þið fá að- stöðu hér á Hafrannsóknarstofn- uninni? — Það væri aö sjálfsögðu ákaf- lega kostnaðarsamt i svo litlu landi sem fslandi ef ætti aö setja upp sérstaka rannsóknarstofnun i þessum fræðum við Háskólann, a.m.k. fyrst uin sinn. Þess vegna virðist skynsalegra að fara þá leið, sem einmitt er ætlunin að fara, aö Háskólinn hafi nána samvinnu viö Hafrannsóknar- stofnunina I sambandi við kennslu og rannsóknir. Við gerum ráð fyrir þvi fyrirkomulagi að ég muni hafa rannsóknaraðstöðu hér við Hafrannsóknarstofnunina og þannig uppfylla rannsóknaskyldu mina og að stofnunin láti jafn- framt i té aðstöðu fyrir stúdenta, bæði á rannsóknarstofum og einnig að hún láti i té rannsóknar- skip fyrir stuttar rannsóknarferð- ir, og að þeir stúdentar, sem veldu haffræði sem sérgrein ættu kost á að komast með I rann- sóknarleiðangra, enda yröi aö- eins um fá neinendur að ræða hverju sinni. Það er rétt að láta það koma fram, aö ekki er talið æskilegt að haffræðinám hefjist að neinu marki fyrr en nemendur hafa öðl- ast góða undirstöðuþekkingu i viðkoinandi raunvisindagrein. — Hvað telurðu brýnast hér varðandi haffræöina? — Frekari þekking á hafinu umhverfis tsland er okkur hags- munamál, m.a. frá sjónarmiði is- lensks sjávarútvegs. Enn sein komið er vitum við allt of litið um þau ytri skilyrði sem ráöa styrkleika árganga fiskistofnanna og valda mismun- andi hrygningar- og fæöugöng- um. Ýtarlegar og vel skipulagðar rannsóknir á hinum ýmsu þáttum umhverfisins, bæði þeim liffræði- legu og eins hinum, sem lúta að eðli og ástandi sjávar, sýnist lik- legasta leiðin til aö veita svör við slikum spurningum. Þá tel ég mikilvægt, eins og ég gat um i upphafi, að auka þekkingu al- mennings á hafinu, eðli þess og nýtingarmöguleikum. Það þarf að vekja áhuga al- mennings á þvl að ganga vel um við sjávarsiðuna og jafnframt á fólkið i landinu að gera þær kröf- ur til ráöamanna og stjórnvalda að strendur landsins verði ekki mengaðar, og gengið verði svo frá öllum verksiniöjum og iönaði við sjávarsiðuna, að ekki valdi skaða á dýruin og gróðri, né spilli ströndinni, sem ætti aö vera æski- legur vettvangur fyrir unga sein aldna. Sjálfur veit ég fáa staði skemmtilegri til gönguferða en fjörur og strendur. En það er ekki gaman að ganga uin þær ef þær eru þaktar úrgangsefnum og ó- þverra. —úþ Jón Hjartarson: Ég ætla að giftast tannlækn- inum, þegar ég verð stór, segir litla stúlkan i auglýsingunni og þykir I þeim orðum gæta býsna- mikillar hagsýni hjá ekki eldra barni. Er ekki álika gulltryggt að giftast tannlækni og heilli togaraútgerð? Draumaprins hinnar fingerðu og forsjálu dóttur sælgætissalans er hvorki Iþróttahetja né sjómaður dáða- drengur, heldur auðvita þriflegur og þekkilegur tann- læknir. Hann er henni sá spari- gris, sem felur i sér allar heimsins lystisemdir, imbýlis- Það væri fróðlegt fyrir þing- menn og aðra stjórnmálamenn að fá vitneskju um það, hversu mörg prósent atkvæöisbærra manna I landinu eru með falskar tennur og þá ekki siöur, hvernig sú prósenta skiptist eftir landshlutum. Dreifbýlið hefur lengi veriö afskipt þessum efnum. Þau eru æði mörg þorpin, sem aldrei hafa komist i snertingu við annars óyndisleg tól tannlæknisins, nema þá einstaka menn færu suður tl þess arna, sem er auðvita bæði dýrt og timafrekt. hömuðust og hvernig dæmiö var reiknað, þau höfðu aldrei svo neinu næmi upp i tannviðgeröir. — Þau höföu raunar vanist þvi fyrir noröan að lita á tannlækn- ingar eins og hvern annan lúxus og forboðna lystisemd og það varö þá aö vera hér fyrir sunnan lika. Þessi fjölskylda er ein margra, sem farið hafa gjörsamlega á mis við heil- brigðisþjónustu tannlækna. Þau hafa réttar sagt veriö svikin um Heilsugæslumenn eöa gullsalar hús og allt það. Margur trúir þvi að tannlæknar hafi sömu náttúru og hænan góða I ævin- týrinu, sem gulleggjunum verpti. ■ Sómakærum tannlæknum hlýtur að vera hin mesta raun að þvl, hversu auðviröilegt mat fólk virðist leggja á stétt þeirra. Mönnum hættir til að lita á tannlækna sem vafasama bisnismenn, einatt er verið aö væna þá um skattsvik og fégræðgi, leynt og ljóst. Slikar aðdróttanir er auðvita illgerlegt aö kveða niður, sanna eða afsanna. Þær eru eins og vind- gnauö á glugga, og álika mikið mark á þeim takandi., Tann viðgeröir hljóta ævinlega að verða mjög dýrar. Tæki og efni sem til þeirra hluta þarf er hvort tveggja mjög dýrt. Eins er sjálfsagt aö ætla tann- læknum sæmilegt kaup. Þessi heilsugæsla hefur hingað til ekki verið hluti hinnar opinberu heilbrigðisþjónustu, greiddri af sjúkrasamlagi, heldur hafa tannlæknar lotið lögmálum viðskiptalifsins og einkafram- taksins, þar sem fólk verður að kaupa sina þjónustu fullu verði. Það er vitaskuld ástæöan fyrir þvi bisnisoröi, sem fer af tann- læknastéttinni. ■ A þvi hefur ekki mér vitan- lega verið gerð nein úttekt, hversu einkaframtakinu hefur tekist að rækja þenan þátt heil- brigöisþjónustunnar, að viðhalda tannheilsu lands- manna. Mig grunar raunar aö sú þjónusta sé gloppótt. Fróðlegt væri til dæmis að kanna, hvað þegnar þjóðfélagsins fara helst á mis við þessa þjónustu. Hvaða stéttir veröa helst útundan? Þaö er ansi hæt viö þvl að láglauna- fólk hafi litil efni á að kosta dýrar tannviögeröir, nema þá með þvi aö leggja á sig gegndarlausa yfirvinnu og þrældóm. Tannlækningar eru þannig sérréttindi efnafólks og þeirra sem hafa meðallaun og þar yfir. Þær eru nánast lúxus, rétt eins og skemmtanalifiö, utanreisur og tryllitæki. Varla getur þó nokkur heilvita maður leyft sér að meta tannviðhald ónauðsynlegra annarri heil- brigðisþjónustu. Það er i alla staði furðulegt að tennurnar skuli þannig samkvæmt heilbrigöislög- gjöfinni og fjárveitingum hins opinbera vera gjörsamlega afskiptar. Mönnum þætti liklega súrt I broti að þurfa að púnga út fjárfúlgum úr eigin vasa fyrir öllum þeim kostnaði, sem fylgir þvi til dæmis að græða maga- sár, með tilheyrandi sérfræði- þjónustu, myndatökum og spitalameöhöndlun. Við skulum taka til dæmis þau sæmdarhjónin, Gvend og Siggur. Þau eru að norðan. Þar liföi fólk við sæmilega tann- heilsu eins og fólk viðast hvar, meðan étinn var harðfiskur og tros og allt þar til sætabrauð kom til sögunnar og gosið og gotteriiö, sem fylgdi velmeg- uninni. Þrálát tannpina varð þar ekki læknuð með öðru móti en þvi að láta héraðslækninn rifa úr. Jaxlarnir voru flestir farnir úr Siggu, þegar þau Gvendur giftu sig. Meðan hún gekk með fyrsta krakkann hrundi efri garðurinn alveg. Neðrigarðurinn fór i rúst á þeim þriðja. (Þaö var blessunin hún Fia). Þá var ekki um annað að gera en fara suður og fá sér „stell”. ■ Neðrigómurinn i Gvendi bilaði á sjónum, (helvitis brauö- átið og eiturbrasið). Þegar þau hjónin fluttu suður á mölina meö börnin (nú, það átti að reyna að mennta þessi grey) þá héngu að visu nokkrar geiflur i efri gómnum á Gvendi, annars tuggðu þau hjón bæði mest meö postulininu. — Krakkarnir höfðu vitaskuld aldrei til tann- iæknis komið, enda svoddan kallar ekki sést þar norður i rassi nema þá fullir, i sumarfrii að frilista sig, skoða náttúruna og renna I árnar. ■ Þegar suður kom var eitthvað ifarið að fást um tannhirsluna á blessuðum börnunum. 011 voru þau með meira og minna skemmdar tennur og þó búiö aö draga úr marga jaxla. 1 einn jþurfti að smiða „brú” sem samkvæmt gildandi dýrtið kostar llklega 60 þúsund, annar þurfti gull og silfur uppi sig hér og hvar fyrir tugi þúsunda og blessunin hún Fia, augasteinn t'oreldra sinna, hafði þessar ekkisens skögultennur, sem þóttu óprýða hana svo mikiö hér fyrir sunnan, þó þær þættu bara sætar fyrir norðan. — Tannréttingameistari sló lauslega á það máli, hvað kostaði að ,,,,,ná bitinu jöfnu” og rétta á telpunni tanngarðana og lagfæra svo hún yrði nú ekki eins og afdalahross til munnsins. — Það gat aldrei kostað undir 250 þúsundum! Þeim hjónum taldist svo til að það kostaöi naumast minna en hálfa miljón að koma tannheilsu fjölskyldunnar i smæmilegt horf. Þau komu ekki með nein auðæfi meö sér að norðan. Það sem þaö var haföi varið i að komast i húsaskjól hér syöra. Gvendur vann á Dagsbrúanr- taxta, eitthvað i kringum 40 þúsund á mánuði fyrir dag- vinnuna. Sigga hafði alla tið þótt liðtæk við saumaskap, vann nú á saumastofu fyrir 38 þúsund á mánuði. Með þvi að taka á sig alla þá aukavinnu og yfirvinnu, sem til féll höfðu þau i sig og á. Hins vegar var alveg sama hvað hana. Skólatannlækningar er nýtilkomnar hér i Reykjavik og eru auðvita spor i áttina, en ná aðeins til barnaskólanna. — All- flesta þjónustu tannlækna verður enn sem fyrr að kaupa fullu verði eins og lúxuxvöru. ■ Maður hefur alla tið haldið að það væri fyrst og fremst Ihalds- semi fjárveitingavaldsins, sem stæði þessari vanræktu heil- brigöisþjónustu fyrir þrifum. Það myndi vitaskuld kalla á stóraukin útgjöld til heilbrigöis- mála, ef tannlækningar yrðu felldar inn i almannatrygginga- kerfið og greiddar af sjúkra- samlagi eins og aðrar lækningar. Ég hélt að tann- læknar beröust fyrir þvi meö oddi og eggju að þeirra grein yrði metin til jafns við aörar greinar heilbrigðisþjónustu. ■ Þeim mun furöulegri þykja manni þvi viðbrögð tannlækna i Reykjavik við þeim tilburðum sem loks eru uppi til að leiðrétta það misrétti, sem viðgengist hefur i þessum efnum. Tann- læknafélagið felldi semsé á fundi um siöustu helgi tillögur þess efnis að unglingar ófriskar konur, ellilifeyrisþegar og öryrkjar njóti stuðnings sjúkrasamlags til tannviðgerða. ■ Þeir eru áreiðanlega margir i þjóðfélaginu, sem vildu helst ákveða sinn kauptaxta sjálfir. Þeir eu lika margir, sem gjarna vildu stunda rekstur, sem skatt- yfirvöldum væri ógerlegt að gera neina úttekt á. Þessa aðstöðu hafa tannlæknar haft til þessa. Það tjóar hinsvegar ekki fyrir tannlæknastéttina að þumbast á móti almennum hagsbótum og sjálfsagðri leið- réttingu á heilbrigðis- þjónustunni. Telji tannlæknar sig missa spón úr aski sinum við það að sjúkrasamlagið annist greiöslur til þeirra, þá fer mann óneitanlega að gruna aö þeir hafi eitthvað óhreint i poka- horninu. Þar með fær skrafið um skattsvikin og peninga- plokkið byr undir báöa vængi. ■ Maður hefði haldið að tann- læknar hristu af sér allan slikan orðróm og glósur og stæðu nú einhuga að framgangi þessara miklu hagsbóta til handa sjúk- lingum sinum (eða vilja þeir fremur kalla þá viðskiptavini?) -------i staö þess að auðmýkja sig opinberlega og jafn blygðunarlaust og þeir hafa nú gert, samkvæmt niðurstöðum þessa dæmasausa fundar. Eru mennirnir að berjast gegn þvi að allur almenningur fái notið sérkunnáttu þeirra og þjónustu. Hverju á maður að trúa? — Hér hafa vonandi orðið einhver klaufaleg mistök. Fólk biöur hins vegar i ofvæni eftir þvi aö stjórn tannlæknafélagsins gefi einhverja skýringu á framkomu sinni. Slik uppákoma hlýtur eðlilega að verða til þess að menn fara að velta fyrir sér hvort tannlæknar vilji fremur láta lita á sig sem starfsmenn almennrar heilsugæslu ellegar einskonar gullsala. Er sælgætis- salinn bandamaður þeirra?

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.