Þjóðviljinn - 09.02.1975, Side 22
22 StÐA — ÞJÓÐVILJINN Sunnudagur 9. febrúar 1975
Orðsending
til allra landsmanna
Vegna hins alvarlega gjaldeyrisástands er nú
ríkir og sem að verulegu leyti stafar af hóf-
lausum innflutningi, þar á meðal á allskonar
iðnvarningi, sem hægt er að framleiða hér
innanlands sambærilegan að verði og gæðum,
vilja samtök iðnverkafólks hér með skora á
landsmenn alla að haga innkaupum sínum
þannig að innlenda framleiðslan hafi þar al-
geran forgang. Með því mundi sparast dýr-
mætur gjaldeyrir og atvinnuöryggi iðnverka-
fólks, sem nú virðist í nokkurri hættu, væri
tryggt. Enn er í fullu gildi hið fornkveðna að
hollur er heimafenginn baggi.
Þá vilja samtök iðnverkafólks benda á, að
naumast er vansalaust að dýrmætt hráef ni sé
f lutt úr landi lítt eða ekki unnið til f ullvinnslu
erlendis, svo sem verið hefir um lopaútflutn-
inginn til Danmerkur undanfarið.
Höf um í minni að sparaður gjaldeyrir er engu
þýðingarminni en gjaldeyrisframleiðsla.
Landssamband Iðnverkafólks
Iðja, félag verksmiðjufólks
Reykjavík
Iðja, félag verksmiðjufólks
Akureyri
Bifvélavirki - vélvirki
Óskum að ráða bifvélavirkja eða vél-
virkja til starfa nú þegar i véladeild á-
haldahússins i Borgartúni 5, Reykjavik.
Upplýsingar um starfið veita verkstjór-
arnir á vinnustað eða i sima 21000.
VEGAGERÐ RÍKISINS
ÚTGERÐAMENN!
KAUPUM FISK
TIL VERKUNAR
Hraöfrystistöð Eyrarbakka h.f.
Netagerð Ármanns
Stokkseyri
sími 3335 og heimasími 3325
■ Búum til troll
■ Viðgerðir á trollum
■ Netafellingar
Fljót og góö þjónusta reynið
viðskiptin
Björn segir: „Góöir Islendingar og aörir islendingar
mér...”
ég á mitt undir þvf aö þiö trúiö og treystiö
Mexikó
Framhald af 13. siðu.
Við borguðum henni 60 pesos
eða 480 krónur isl. og af þvi lifði
hún og sá börnum sinum far-
borða, bjó i gluggalausu herbergi,
hafði ekki aðgang að rennandi
vatni og bara kamar úti i garði
sem margar fjölskyldur voru
saman um.
En kynlegt var það, að ég
námsmanneskjan, var allt i einu
orðin atvinnurekandi i Mexikó.
Svona var þetta nú samt, — ég
var yfirstétt þar!
Þar sem ég var i skólanum eitt
ár var ekki mikið um að ég gæti
ferðast, timans vegna og pening-
anna. t lok skólaársins fór ég þó i
ferðalag suður landið og tii Gua-
temala og var það stórkostlegt.
Það er ævintýri likast að fara
með þriðja flokks rútum, þar sem
öllu ægir saman, fólki á öllum
aldri, svinum, hænum, kalkún-
um, blómum og grænmeti. öllu
þvi, sem fólk selur og kaupir á
markaði. Við hlið þér er kannski
bilveikt barn, en fyrir aftan er
verið að gefa ungabarni brjóstið
og fyrir framan situr fjölskylda,
sem er að borða en mexikanar
eru með afbrigöum matglaðir og
borða sinar „tortillas”, maiskök-
ur, i tima og ótima. Að ferðast á
þennan hátt er eins og að sitja
með spegilmynd af Mexikó fyrir
framan sig.
Lög
Framhald af bls. 3. ■
sambandi isl. verslunarmanna
eru konur i meirihluta, 54%, en
stjórn landssambandsins er
skipuð körlum eingöngu. I
Sjómannasambandi íslands eru
karlar yfirgnæfandi meirihluti,
98,2% og i stjórn þess sambands
eru eingöngu kariar. Innan
Verkamannasambands tslands
eru um 16.500 félagsmenn 61%
karlar og 39% konur. 1 stjórn
sambandsins eru 5 konur.
Við athugun á stjórnum félaga
þar sem félagsmenn voru af
báðum kynjum, kemur i ljós, að
stjórnirnar voru nær undan-
tekningarlaust skipaðir fleiri körl
um en konum, lika i þeim félögum
þar sem félagsmenn voru að
meirihluta til konur. Innan
Landssambands isl. verslunar-
manna voru 20 félög verslunar-
manna, i 13 þeirra voru konur i
meirihluta. 1 stjórnum verslunar-
mannafélaganna áttu sæti alls,
þe. i öllum verslunar-
mannafélögunum, 15 konur. Það
er ekki ein kona á stjórn hvers
félags að meðaltali.
Það má nefna sem dæmi, að i
Iöju, félagi verksmiðjufólks, i
Reykjavik voru 408 karlar og 1607
konur árið 1972, en i stjórn
félagsins voru 4 karlar og 3 konur
og var einn karlanna formaður. 1
Iðju, félagi verksmiðjufólks á
Akureyri, voru 294 karlar og 541
kona, en stjórnina skipa 4 karlar
og ein kona.
Aðild að Bandalagi starfs-
manna rikis og bæja eiga 14 félög
rikisstarfsmanna, 11 félög bæjar-
starfsmanna og 5 blönduð félög
eða samtals 31 féiag. 31. des. 1971
voru félagsmenn BSRB 7695, 58%
karlar og konur 42%. Þrátt fyrir
hið háa hlutfall kvenna eiga
engar konur sæti i stjórn BSRB.
Stjórnina skipa 11 karlar.
Félagsmenn BSRB af báðum
kynjum eru flestir i félögum
rikisstarfsmanna, þá félögum
bæjarstarfsmanna og fæstir i
blönduðum félögum. Hlutfall
kvenna er hæst I blönduðu
félögunum, 70,8%, þá i félöguin
rikisstarfsinanna og lægst i
félögum bæjarstarfsmanna.
Aðeins brot
Ofanritað, sem ólafur Ragnar
Grimsson, skýrði frá á ráðstefn-
unni er aðeins brot af þeim mikla
efniviði, sem fyrir liggur með
skýrslu Guðrúnar S. Vilhjálms-
dóttur. En af þessum dæinum má
ráða, hver úttekt þarna hefur
verið gerð á hag karla og kvenna
og hver stuðningur getur orðið að
niðurstöðum þessarar skýrslu —
ef opinberar verða — fyrir þá sem
berjast vilja fyrir jafnréttisstöðu
kynjanna á Islandi. Ekki vill
maður trúa þvi fyrr en á er tekið,
að það sé ástæðan fyrir tregðu
ráðuneytisins við útgáfuna. — vh
Stokkseyri
Framhald af bls. 2 4
stendur varla um alla eilifö. Þaö
er beðið eftir þvi að hreppsfé-
lögin taki ákvörðun.
Nú, við á Stokkseyri hugsum
lika talsvert uin hitaveitu núna.
Það kemur til greina aö fá heitt
vatn frá Þorleifskoti, þaðan sem
selfyssingar fá sitt heita vatn.
Við erum lika aö athuga með
bætta vatnsveitu — i þvi máli
kemur ýmislegt til greina. Og
svo er það gatnagerðin. Við
þurfum að láta bera oliumöl á
a.m.k. götuna gegnum þorpið”.
Frímann sagði að litið væri
um sameiginleg mál þorpanna,
reyndar stefnt að sameiginlegri
sundlaug og félagsheimili.
„Eftir nokkra áratugi renna
þessi þorp saman i eitt”, sagði
Frimann að lokum og við
kvöddum Stokkseyri og Eyrar-
bakka að sinni.
—GG
IÐJA
félag verksmiöjufólks
Hið árlega kaffiboð fyrir Iðju-félaga, 65
ára og eldri verður að Hótel Sögu, Súlna-
sal, sunnudaginn 23. febrúar kl. 3 e.h.
Aðgöngumiðar afhentir á skrifstofu fé-
lagsins að Skólavörðustig 16, opið daglega
frá kl. 9—12 og kl. 1—6 e.h.
FÉLAGSSTJÓRNIN