Þjóðviljinn - 09.02.1975, Síða 24

Þjóðviljinn - 09.02.1975, Síða 24
Höfnin á Stokkseyri — þar geta minni bátar athafnað sig ibliðu. Björgvin Sigurðsson, formaður verkaiýðsfélagsins Bjarma á Stokkseyri — Björgvin hefur verið formaður i f jörutiu ár. Eyrarbakki og Stokks- eyri — þessi sjávarpláss í Árnessýslu eru jafnan nefnd bæði í sömu and- ránni, enda svipar þeim mjög saman, voru reynd- ar áður einn og sami hreppurinn, Stokkseyrar- hreppur, sem skipt var 1897. Þjóðviljamenn heim- sóttu plássin bæði í roki og rigningu fyrir skömmu, hittu menn að máli, horfðu á brimið brjóta á skerjunum und- an Stokkseyri og á hafn- argarðinum hjá Eyrar- bakka, töluðu um verka- lýðsmál við Björgvin á Stokkseyri, Kjartan á Eyrarbakka og Frímann á Litla-Hrauni, ræddu um heimsmenningu eyrbekk- inga við Guðrúnu Bjarn- finnsdóttur og Jón Val- geir Ölafsson og fengu gert við bílinn hjá Guð- jóni í Smiðjunni. Sunnudagur 9. febrúar 1975 DJOÐVIUINN Hér er skemmtilegt Kjartan Guðjónsson verka- maður starfar í Plastiðjunni á Eyrarbakka og hefur verið for- maður Verkamannafélagsins Báru siðan 1971. Hann er úr Landeyjunum, fór ungur til sjós, vann i sild á Siglufirði, fór aftur i sveitina, kvæntist stúlku úr Fljótshliðinni, fór að búa, en varö aö hætta þvi þar eð hann fékk asina af heyinu og settist þá að á Eyrarbakka. ,,Hér er skemmtilegt að vera”, sagði Kjartan. ,,Ég hef unniö f Plastiðjunni siöan ég kom hingað. bað eru fiinmtán ár siöan. Búskapurinn lét mér reyndar vel, en lifiö hér er frjálst. Fólkið er vinnusamt og þaö vill vera hér. Menn flytja hingað og það er setið uin þau hús sem losna. Reyndar eru at- vinnumöguleikar að mestu bundnir við sjóinn og frystihús- iö, en margir stunda vinnu ann- ars staðar, t.d. inn i Sigöldu”. Við spurðum Kjartan um fé- lagslif á staönum: ~,,Það er þorrablót, áramótagleði i sain- komuhúsinu — upptalið. Hér er til leikfélag, en það er ekki leng- ur aðstaða til að færa leikrit á svið”. Verkamannafélagið Báran var stofnað 1903. Kjartan segir aö fundagerðarbækur vitni um átök i verkalýðsbaráttunni. Formannaskipti voru tið i félag- inu. ,,Nú er fundasóknin dræm. Það ber mest á þeim mönnum sem allt starfið hvilir á. Nú eru um 150 manns i félaginu. En þrátt fyrir dræma fundasókn, þá finn ég að mönnum þykir vænt um félagið, eyrbekkingum er hlýtt til Bárunnar, en ef verkalýðsbaráttan á aö vera virk, þá veröa menn aö sinna fé- laginu. Þegar ég kom hingaö á Bakkann, var félagið næstum dautt, það var eignalaust. En 1963 tók Andrés Jónsson i Smiðshúsi við þvi, hann lét endurreisa það og átti verulega stóran hiut i að blása lifi i það aftur”. Greiösluþoliö sprungið Við spurðum um komandi stéttaátök: „Nú eru allir út- gjaldaliöir að snarhækka, og reyndar er greiðsluþol verka- manna þegar sprungið. Kannski eru sjómenn enn verr stæöir en aðrir, þeir hafa alls ekki nógu góö kjör. Ef miöað er við tfma- kaup verkafólks, þá eru þeir langt á eftir. Ég er ekki alveg sáttur við það, aö niu manna nefnd ASl eigi ein að semja við vinnuveitendur — þó er kannski hægt að réttlæta aðferöina með þvi að nú eigi aðeins að ná aftur þvi sem vannst i siðustu samn- ingum. Staöreyndin er hins veg- ar sú, aö verkamenn, þeir , lægstlaunuðu, fara jafnan verst útúr þessum stóru samningum. Ég álit að við hér á Suöurlandi getum alveg samið fyrir okkur, eða þá aö Verkainannasain- bandið seinji eitt fyrir sin sam- bandsfélög. Nú er óhugsandi að vinna á okkarkaupi, og ég bendi á, að stytting vinnutímans, nið- urskurður á eftirvinnunni, er aöeins byrjunin á atvinnuleysi”. Hrepparígur, beinamjöl og fleira Nú búa kringum 1200 manns samanlagt á Stokkseyri og Eyrarbakka. Viðbúið er aö fólki fjölgi á þessum slóöum á næst- unni, og brú yfir ós Olfusár mun færa þorpin aftur i þá þjóöbraut sem þau einu sinni voru i. Aukin byggö þar við ströndina mun færa plássin saman, milli þeirra er það svæöi sem liggur fyrir að byggja á, og vafalitið renna hrepparnir saman i eina byggð eftir einhverja áratugi. Jón Valgeir Ólafsson, verk- stjóri I Plastiðjunni og kona hans, Guðrún Bjarnfinnsdóttir, voru sammála uin að hreppa- rigur hefði nokkuö komið i veg fyrir samvinnu stokkseyrjnga og eyrbekkinga, aö að þvi hlyti að reka að hrepparnir byggðu saman ýmsar stofnanir sem nauðsýnlegar eru, svo sem fé- lagsheimili, jafnvel gagnfræða- og menntaskóla, þvi unglingar úr plássunum verða aö leita burtu eftir annarri menntun en barnaskólainenntun. Reyndar eru einhverjar ráðagerðir um sundlaug að fæðast, og beina- verksmiðjan, sameiginleg frainkvæmd hreppanna tveggja er staðreynd. Þar gengur sam- starfið eins og best veröur á kosiö. Verði gerð brú yfir ós ölfusár, þá munu hreppsfélögin á Suður- landi standa saman að þeirri framkvæmd, og kaup á skuttog- ara eru næstum þvi orðin að staðreynd. „Sannleikurinn er sá”, sagði Jón Valgeir, ,,aö bygging brúar- innar yfir Olfusá hjá Selfossi olli beinlinis þeirri deyfð sem siðan færðist yfir mannlif hér i Bakk- anuin. Ég er ekki að segja að sú brúargerð hafi ekki verið nauð- synleg, en hún færði krossgötur manniifsins á Suöurlandi upp með ánni”. Og nú eru ýmsir farnir að vona að aftur verði lif og fjör við ströndina þegar ós-brúin kem- ur. Þá mun hluti hringvegarum- ferðarinnar fara um plássin og fiskvinnslan mun standa traust- ari fótum, þegar betri not verða af landshöfninni i Þorlákshöfn. „Það er dauft félagslifið hérna”, sagði Guðrún. „Það var siðast leikið hér fyrir þremur árum. Þá lékum við „Margt býr i þokunni”. Okkur vantar hús meö góðu sviöi. Og þeir mættu koma lagi á verslanirnar hér. Hér á Bakk- anum er ein búð frá K.Á. og önnur frá Höfn. Nú skilst mér að eigi að leggja útibúið frá Höfn niður. Þjónustan er engin. Mað- ur þarf að fara eftir hverri lopa- hespu, hverjum rennilás upp á Selfoss”. Formaður Bjarma i 40 ár Björgvin Sigurösson á Stokks- eyri hefur veriö formaður verkalýðsfélagsins Bjarma I 40 ár. Hann var 24 ára þegar hann var fyrst kosinn, en þaö var árið 1935. Eitt árið gegndi Björgvin ekki formennsku, þannig að hann hefur nú hafið sitt 40. for- mannsár — var kjörinn fyrir skemmstu, sjálfkjörinn eins og. oft áöur. Viö hittum Björgvin á skrif- stofu Bjarma, þar sem allt er fullt með pappira og skjalabæk- ur og Björgvin ræddi um verka- lýösmálin: „Við I Bjarma höf- uin ekki gefið niu-inanna nefnd- innrsainningsumboð. Við höfum ekki gert neinar athugasemdir við hana, en erum I grund- vallaratriðum á móti þvi að færa samningsumboð i hendur miðstjórnarvalds. En þaö er einmitt svona sem atvinnurek- endur vilja hafa þetta. Ég tek fram að þetta er ekki vantraust á menn, heldur aðferö og þetta eralmenntviðhorfiðútum land. En reyndar er okkar viðsemj- andi hér, ekki i Vinnuveitenda- sambandinu. Við spurðum um steminning- una meðal sjómanna: „Hún er góð. Við erum ekki i samfloti meö stóru nefndinni, heldur eig- um við bara við okkar menn hér i Stokkseyri. Kauptryggingin er vitanlega sameiginlegt mál. Það er þrýst á okkur að lækka skiptakjörin, en gegn þvi standa sjómenn eins og veggur. Út- gerðarmenn eru heldur ekki samstæðir um þetta. Þeir sjá að þetta borgar sig eins og það er núna — þeir yfirborga meira að segja á sumum bátunum, — en það tiðkast ekki lengur hér”. Hitaveita, gatnagerð og togari Það er róiegt núna á strönd- inni. Vertiðin er varla byrjuð, menn tala um brú, togara og gatnagerð. Við hittum Frimann Sigurðs- son, gæslumann á Litla-Hrauni, en hann er annar af tveimur hreppsnefndarmönnum vinstri manna á Stokkseyri. Friinann sagði að hrepps- nefndin kannaði nú væntanleg togarakaup. „Selfossi, Eyrarbakka og Stokkseyri stendur til boða að fá 450 tonna skuttogara frá Pól- landi. Við erum að kanna málið. Ætli hann kosti ekki kringum 300 miljónir. En þetta tilboð Framhaid á 22. siðu. Gamli sjógarðurinn á Stokkseyri og fulloröin kona á leiö til vinnu i frystihúsinu.

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.