Þjóðviljinn - 15.02.1975, Page 4
4 SIÐA — ÞJÓÐVILJINN Laugardagur 15. febrúar 1975
DJOÐVIUINN
MÁLGAGN SÓSÍALISMA
VERKALÝÐSHREYFINGAR
OG ÞJÖÐFRELSIS
tJtgefandi: Útgáfufélag Þjóöviljans Umsjón með sunnudagsblaði:
Framkvæmdastjóri: Eiður Bergmann Vilborg Harðardóttir
Ritstjórar: Kjartan Ólafsson, Ritstjórn, afgreiðsla, auglýsingar:
Svavar Gestsson Skólavörðust. 19. Sími 17500 (5 linur)
Fréttastjóri: Einar Karl Haraldsson Prentun: Blaðaprent h.f.
SVIKAMYLLA GEIRS HALLGRÍMSSONAR OG HÚSKARLA HANS
Nú er augljóst, að framfærsluvisitalan
mun hækka um a.m.k. 30% á fyrsta hálfa
ári þessarar stjórnar. öll eldri met blikna
gjörsamlega hjá þessum ósköpum. Og
þetta eru mennirnir, ráðherrar Sjálf-
stæðisflokksins, sem fyrir nokkrum
mánuðum þóttust hafa ráð undir rifi
hverju til að kveða niður verðbólguna og
öfluðu sér kjósendafylgis undir þeirri
grimu.
Fyrirsjáanlegt er að komist
rikisstjórnin upp með áform sin, þá
standa allir þeir, sem ekki njóta láglauna-
bóta, frammi fyrir kjaraskerðingu sem
svarar tila.m.k. 30% almennrar verðlags-
hækkunar á hálfu ári, án þess nokkuð
komi á móti. Og þeir sem láglaunabót-
anna njóta hafa i raun orðið fyrir nokkurn
veginn álika kjaraskerðingu að tiltölu,
vegna þess, að þeir eru dæmdir til að
verja öllum tekjum sinum i brýnustu
nauðþurftir, — og þessar brýnustu nauð-
þurftir hafa hækkað langsamlega mest.
Þegar Þjóðviljinn kannaði fyrir fáum
dögum, hvað nokkur algengustu matvæli,
svo sem kjöt og mjólk, kaffi sykur og
brauð höfðu hækkað frá þvi Geir Hall-
grimsson og Ólafur Jóhannesson sórust i
fóstbræðralag, þá kom i ljós, að hækkun á
ársneyslu visitölufjölskyldunnar af hinum
algengu matvælum reyndist vera 64%. Og
könnun okkar á hækkun rafmagns til
heimilisnota, hitaveituvatns og sima-
kostnaðar i Reykjavik reyndist vera á
bilinu 40-60%.
Engin ábending hefur komið fram frá
stjórnarherrunum um það, hvað af
þessum vörutegundum fólk á að spara við
sig.
Á móti hinum gegndarlausu verðhækk-
unum hefur stóreignamaðurinn Geir Hall-
grimsson, sem sjálfur er i hópi
augðugustu manna á landi hér, slett i þá
sem minnst bera úr býtum 10%
kauphækkun, en bannað frekari uppbætur
á kaup með lögum.
Svo er ætlast til þakklætis og tiltrúar
almennings i landinu.
Rikisstjórnin hefur nú i huga að hleypa
af stokkunum stórkostlegri
verðhækkunarskriðu; gengislækkunin,
sem ákveðin var nú i vikunni er bara eitt
skrefið á þeirri braut. Og auðvitað er
ætlunin að greiða einhverjar „bætur” til
launafólks, svo að lýðurinn hafi fyrir eitt-
hvað að þakka.
En trúlega verður þetta gert eftir sömu
reglu og hingað til hjá þessari rikisstjórn,
þ.e. samkvæmt guðspjalli Sjálfstæðis-
flokksins. Fyrst skal verkamaðurinn, eða
sjómaðurinn eða hinn lágt launaði opin-
beri starfsmaður koma með einar þúsund
krónurnar á fætur öðrum úr sinum vasa i
svikamyllu Geirs Hallgrimssonar og
félaga hans, — en fyrir hverjar þúsund
krónur fær láglaunamaðurinn jú kannski
svo sem 500,- krónur til baka. Og fyrir það
ber honum auðvitað að þakka sinum
háverðugu stjórnarherrum, þvi að þannig
heldur launamaðurinn þó alltaf
helmingnum af raungildi teknanna.
Þetta er myndin af svikamyllu þess
„bótakerfis”, sem þessi rikisstjórn heitir,
og vill fá sérstakar þakkir fyrir. Mynd sú
er nakin og æpandi, þótt áróðursmenn
rikisstjórnarinnar sveitist blóðinu við að
færa hana i óhreinar skjólflikur.
En verðum við ekki öll að fórna okkur
fyrir velferð þjóðarbúsins? spyrja hinir
nytsömu sakleysingjar eftir pöntun frá
Ólafi Jóh. og Geir. Þannig á vist engla-
kórinn að syngja.
Litum á nokkrar staðreyndir:
1.1 nýjustu skýrslu frá Þjóðhagsstofnun
er talið, að okkar þjóðartekjur hafi
rýrnað um 3% á siðasta ári. Aldrei átti
að koma til greina að þessi litla rýrnun
hefði hin minnstu áhrif á lifskjör þess
helmings þjóðfélagsþegnanna, sem
lakar eru settir. Hinir áttu að bera þá
byrði, og var það vissulega enginn ofur-
þungi.
2. Viðskiptakjör okkar á siðasta ári voru
samkvæmt visitölu Seðlabankans (Sjá
Hagtölur mánaðarins, janúarhefti)
þrátt fyrir allt hagstæðari á siðasta ári
en þau höfðu nokkru sinni verið, nema
árið 1973. Halli á okkur i þeim efnum á
þessu ári, sem nú er hafið, ber að.svara
þvi með þvi að skera niður gjaldeyris-
eyðsluna, t.d. miljarðana þrjá, sem fóru
i bila á siðasta ári, — án þess að skerða
i nokkru umsaminn kaupmátt lág-
tekjufólks.
3. Vandi útflutningsatvinnuvega okkar er
vissulega nokkur, en eins og fram kom i
ræðu Lúðviks Jósepssonar á alþingi nú i
vikunni þar sem hann vitnaði i spár
Þjóðhagsstofnunar fyrir þetta ár, þá er
þar gert ráð fyrir að sjávarútvegurinn
(fiskveiðar + fiskvinnsla) muni á þessu
ári hafa 969 miljónir afgangs upp i
afskriftir. Hins vegar er þar reiknað
með að fullar afskriftir væru um 2700
miljónir og kemur þannig út tap upp á
rúmar 1700 milljónir. Með þvi að reikna
ekki með afskriftum umfram greiðslu
af föstum lánum, svo sem sjálfsagt má
telja, þá er áætlað heildartap sjávarút-
vegsins fyrir gengislækkun rétt um
1000 miljónir króna. Lúðvik benti á, að
500 miljónir mætti spara með þvi að
lækka vexti útgerðarinnar um 3-4%, og
hinar 500 miljónirnar hefði t.d. mátt ná i
með þvi að togararnir tækju upp
svartoliunotkun. Hér þurfti auðvitað að
færa nokkuð á milli, en siendurteknar
stórárásir rikisstjórnar ihalds og
Framsóknar á lifskjör almennigs verða
með engum rökum réttlættar sem
lifsnauðsyn þjóðarheildarinnar.
k
Alþingi og NATO
lagt að jöfnu
Því skyldi starfsmaður NATO ekki njóta sérstakrar
verndar — eins og alþingismaður9 spyr Mogginn!
Þau tíðindi gerðust I gær að út
kom tölublað af Morgunblaöinu
þar sem Alþingi Islendinga og
Natoeru einfaldl'- lögöaðjöfnu.
Félagið
Islensk grafík
styður FÍM
Á fundi hjá félaginu íslensk
grafík þann 8. febr. 1975 var
samþykkt að lýsa yfir
eindregnum stuðningi við Félag
islenskra myndlistarmanna i
deilunni um sýningarrétt á Kjar-
valsstööum, og mötmæla
harðlega ihlutun meirihluta
borgarráös i því máli. — Stjórnin.
Þessi afstaða kemur ekki fram I
blaöamannsskrifum i Mbl. eöa
aðsendum greinum. Hún kemur
fram i forustugrein þess, en þar
segir:
„Þingmenn Alþýðubanda-
lagsins og dagblaðið Þjóðviljinn
hafa að undanförnu veist all-
harkalega aö nafngreindum
islenskum rikisborgara og krafist
þess, að hann yrði sviptur
borgararéttindum, pólitiskum
réttindum sinum, vegna skoðana
sinna og starfa. Hér er um að
ræða starfsmann uppiýsinga-
þjónustu Atlantshafsbanda-
lagsins, sem Islendingar eru
aðilar aö.
Samkvæmt sérstökum
samningi aðildarrikjanna og
samkvæmt fslenskum skatta-
lögum, sem endurskoöuð voru i
tið vinstristjórnarinnar, njóta
starfsmenn bandalagsins skatt-
friðinda fyrir störf i þágu þess, en
greiða að sjálfsögðu skatt af
öðrum tekjum. Þetta ákvæði i
skattalögum vinstri stjórnar-
innar tekur eðlilega til starfs-
manns Islendinga hjá
upplýsingaþjónustu Atlantshafs-
bandalagsins. Hvers vegna á aö
svipta hann pólitiskum réttindum
sakir þessara laga?
Með stoö i áðurnefndum
samningum eru starfsmenn
Atlantshafsbandalagsins undan-
þegnir málssókn vegna ummæla,
er þeir láta falla viö framkvæmd
starfa sins i þágu þess, A SAMA
HATT OG ALÞINGISMENN.
Skýrt er tekiö fram, að þetta er i
þágu bandalagsins en ekki
viðkomandi starfsmanna. Það er
þvi ekki unnt að svipta starfs-
mann íslendinga hjá Atlantshafs-
bandalaginu pólitiskum borgara-
réttindum FREMUR EN HATT-
VIRTA ALÞINGISMENN.”
I þessari forustugrein
Morgunblaðsins, sem hér hefur
verið birt i heild, kemur fram
ótrúlega óþjóðlegt hugarfar. Þaö
hefur aldrei gerst áður að Alþingi
Islendinga og hernaðarbanda-
lagið NATO væru lögð að jöfnu —
en svo langt geta menn komist i
skriðdýrshætti slnum fyrir
erlendu valdi. Mbl. skilur greini-
lega ekki af hverju alþingismenn
njóta sérstakrar lagaverndar 1
þingsölum og meðan þing situr.
Þjóöviljinn eða Alþýðubanda-
lagið hafa aldrei krafist þess að
einn eöa neinn verði sviptur póli-
tiskum borgararéttindum. En
Þjóðviljinn og Alþýöubandalagið
hafa krafist þess aö maður sem
nýtur launa og skattfriðinda
vegna þjónustu við hernaöar-
bandalag verði ekki kosinn af
alþingi tslendinga i útvarps-
ráö, stofnun sem á að bera aöal-
ábyrgð á rikisútvarpinu, fjölmiðli
landsmanna allra.
Fundu tvær kindur
✓
1
Nýjahrauni
á
Fyrir skömmu fóru hjónin á
Vaðbrekku á Jökuldal ásamt
manni frá Aðalbóli á þrem snjó-
sleðum inn að Vatnajökli. Fundu
þau tvær kindur i Nýjahrauni sein
er milli Jökulsár og Jökulsár-
kvislar. Voru þær orðnar rýrar,
einnig fundu þau tvær kindur á
Kringilsárrana, en önnur þeirra
var dauð, sennilega drepin af
tófu, hin kindin var sæmilega
sig komin.
Snjór cr mikill inná öræfum, og
sáust ekki hreindýr, en aftur mik-
ið af þeim útum allt hérað. Margt
fé vantaði af fjalli I haust, t.d.
vantaði Vilhjálm Snædal bónda á
Skjöldólfsstöðum 50 lömb.
—Sveinn.