Þjóðviljinn - 15.02.1975, Síða 8

Þjóðviljinn - 15.02.1975, Síða 8
8 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Laugardagur 15. febrúar 1975 ÚTVARPSANNÁLL SKÚLA Á LJÓTUNNARSTÖÐUM Ef þjóöin treystir forsjá þeirra, sem guö hefur gefiö völdin og stjórnviskuna... Skúli Sumir menn eru þannig af guöi gerðir að þegar þeir tala i útvarp, finnst hlustandanum, sem á sér einskis ills von, hefir kannski leg- ið hálfsofandi uppi i divan, að þeir séu að boða heimsendi og yfirvof- andi dómsdag. Fari maður svo að leggja við hlustir kemst maður að raun um, að það er á valdi ræðu- manns, að forða þjóðinni, jafnvel allri veröldinni frá slikum ósköp- um. Hann er spámaðurinn, sjá- andinn, sem getur leyst hinn and- varalausa lýð frá villu sins vegar, svo framarlega sern hann vill trúa á orð spámannsins og treysta leiðsögn hans. Ég ber allt- af dálitía virðingu fyrir þessum spámönnum útvarpsins, þeir minna mig á spámenn Gamla- testamentisins. Hins vegar skal ég játa, að ég efast dálitið um, að þeir séu i raun eins miklir spámenn og mann- kynsfrelsarar og orð þeirra gætu gefiö ástæðu til að ætla. Nú ætla ég að nefna þrjá menn er ég hefi heyrt i útvarpi nýlega og virðast vera haldnir þessari spámannsnáttúru. Sá fyrsti er Gunnlaugur Þórðarson doktor, annar er Pétur Guðjónsson, sem mig minnir að hafi verið kynntur sem formaður i Samtökum áhugamanna um sjávarútveg og sá þriðji er Hilm- ar Jónsson bókavörður i Keflavik. Gunnlaugur Þórðarson flutti erindi um stjórnarskrármáliö. Ég heyrði að visu ekki nema siöari hluta þeirrar iesningar. En það sem ég heyröi, bar þess glöggan vott, aö manninum var mikið niðri fyrir og að honum fannst mikið á þvi velta að ráðum hans væri hlýtt. Meðal annars vildi hann lögbjóða það i sjálfri stjórnarskránni, að kona væri i öðruhverju sæti á hverjum fram- boðslista. Taldi hann, að konur væru betri helmingur mannkyns- ins og að margt myndi betur fara, ef þær hefðu horfuráðin i stjórn heimsmálanna. Get ég vel fallist á þessa skoðun fyrirlesarans. En séu kenningar nútima kven- réttindafræðinga réttar um að konan sé jafnoki karlmannsins á öllum sviðum, hlýtur sú spurning að vakna, hvort hún sé ekki einnig jafnoki hans i hinu illa. Ef svo væri, stæðum við litlu nær, þótt konur færu aö ráða gangi ver- aldarsögunnar. Sá sem með vald- ið fer, hefir ávallt tilhneigingu til að misbeita þvi á örlagastundu, sjálfum sér til framdráttar og öðrum til óþurftar. Pétur Guðjónsson ræddi um landhelgismálið i Degi og vegi. Loftleiðaumboð Kristjáns Guðlaugss. I Keflavik gengst fyrir Lundúnaferð um páskana i ár eins og undanfarin ár. Að þessu sinni verður möguleiki fyrir menn að velja úr mörgum knatt- spymuleikjum, sem leiknir verða um páskana og er listi yfir þá hér á eftir. Farið verður frá Keflavík 22. mars og komið aftur heim 31. mars. Þetta verður sem sagt 9 daga ferð og kostar hún 27.200.00. Innifalið i þessu verði eru ferðir til og frá flugvelli, hótel og morgunverður. Hótelið verður i hjarta borgarinnar og þaðan er stutt bæöi til að versla og skemmta sér. Þátttakendur i þessari ferð hafa möguleika á að sjá einhvern af þessum leikjum. Eriiidi hans var að mörgu leyti athyglisvert. En hann spillti fyrir sér með svo æðibunulegum flutn- ingi, að aðrir hafa naumast lengra komist. Hlustandinn tók meir eftir þvi, hvernig hann tal- aði, en hinu, hvað hann sagði. Svo var það bóka- vörðurinn í Keflavík Svo var það bókavörðurinn i Keflavik, Hilmar Jónsson, sem einnig talaði um dag og veg. Hann talaði einnig eins og heimurinn væri að farast. En i hans augum voru það ekki kvenréttindi, né landhelgismál, sem ógnuðu ver- öldinni, heldur kommúnisminn. Hann var upphaf ræðunnar, endir og sömuleiðis miðjan. Það sem einna furðulegast var i málflutningi mannsins, var sú staðhæfing hans, að nýafstaðin úthlutun svonefndra viðbótarrit- launa, væri eitt átakanlegasta táknið um aðvifandi kommún- istahættu á þessu landi. Og sönnunin, sú hin veigamesta fólst i þvi, að formaður nefndar þeirrar, er þessum peningum deildi út, skrifaði i Þjóðviljann. Jafnframt gaf hann i skyn, að flestir þeir, er hlotiö höfðu náð fyrir augum nefndar þessarar væru handbendi kommúnismans. Reyndar eru reglur þær, sem farið er eftir við þessa úthlutun, hrein vitleysa, en ég held að hún eigi ekkert skylt við pólitik og skal ekki farið frekar út i þá sálma að sinni. Það er svo skritið með þessa út- hlutun, að sumir seih ekkert fengu, verða vondir, eins og bóka- vöröurinn i Keflavik. Svo finnast einnig dæmi þess, að menn geta orðið vondir, þegar þeir fá þau, eins og Þorgeir minn Þorgeirs- son. Kannski hefir hann orðið vondur, sökum þess að náöarsól þeirra, sem úthluta styrkjum til rithöfunda hefir ekki skinið á hann fyrr. 1 tilefni af þessari ádrepu Hilm- ars Jónssonar, fór ég að hugleiða, hvort ekki væri hægt að finna ein- hverja þá leið, er allir gætu sætt sig við, eða að minnsta kosti ein- hverja þá leið, að enginn þyrfti annan að klaga. Árangurinn af þessum vanga- veltum minum læt ég fylgja hér með, mér vitrari mönnum til vin- samlegrar athugunar. Ollu þvi fé, sem rikið lætur af hendi rakna, til eflingar islenskri ritlist, skal safnað saman i einn sjóð. Við gætum kallað hann Rit- höfundasjóð tslands. Laugardagur 22. mars: Tottenham — Liverpool Chelsea — Middlesbro Þriðjudagur 25. mars: Liverpool — Newcastle i Liverpool Birmingham — Carlisle i Birmingham Chrystal Palace — Colchester I 3. deild, i London Föstudagur 28. mars: Tottenham — Wolve West Ham — Stoke Sennil. leikinn kl. 11 f.h. Laugardagur 29. mars: Arsenal — Stoke Ipswich — Leichester QPR — Tottenham West Ham — Chelsea Fararstjóri verður hinn kunni knattspyrnuaðdáandi Kristinn Danivalsson. dr. Gunnlaugur Þórðarson, spámaður kvenfólksins. Hilmar Jónsson, spámaður andkommúnista. Othluta skal úr sjóðnum árlega og sér sérstök nefnd um úthlutun- ina. Hún mætti gjarnan vera kos- in af Alþingi pólitiskri kosningu. Það skiptir ekki máli hvernig slik nefnd er kosin. Siðan sendir RiL höfundasamband íslands nefnd- inni skrá yfir alla sina félaga, smáa og stóra. Nefndin telur félagana og deilir siðan i útkomuna með tveim. Sú tala, sem út kemur er fjöldi þeirra styrkja sem úthluta skal og skulu þeir vera misjafnlega háir, likt og vinningar i happ- drætti. Siöan labbar nefndin með list- ann frá Rithöfundasambandinu upp á skrifstofu borgarfógeta og lætur draga þar út nöfn þeirra höfunda, sem styrk eiga að hljóta, það árið og hve háan. Við gætum kallað þetta rithöf- undahappdrætti, þar sem annar- hvor höfundur hlýtur vinning, misjafnlega háan, eftir vilja al- mættisins. Sumir gætu að visu orðið heppnir, unnið ár eftir ár, aðrir ó- heppnir kannski ekki fengið neitt árum saman. Við skulum að minnsta kosti vona að bókavörðurinn i Keflavik finni náð fyrir augum almættis- ins, þó ekki væri nema vegna þess, hve hann berst hraustlega gegn heimskommúnismanum. Eins og prestur/ sem býr banvænan sjúkling undir dauðann Eins og prestur sem er að búa banvænan sjúkling undir dauð- ann, keppast nú ráðamenn þjóð- arinnar og máttarstólpar þjóðfé- lagsins i atvinnurekendastétt hver um annan þveran. við þaö aö búa þjóðina undir það að taka við þvi sem þeir telja óumflýjanlegt, versnandi lifskjör. Viö heyrum þetta á hverjum degi og oft á dag I leiðurum stjórnarblaðanna, i fréttum og fréttaaukum, og fundarsam- þykktum af ýmsu tagi. Tölunum er látið rigna yfir saklausan og varnarlausan landslýðinn, svo hann ruglast i riminu og veit naumast sitt rjúkandi ráö. Auð- vitað gleyma menn tölunum jafn- óðum. Það er aðeins eitt, sem eft- ir situr i vitundinni. Tölunum ber aldrei saman. Þær breytast meira að segja frá degi til dags, hjá sama aðila. Sumir reikna i prósentvis, aðrir bera saman töl- ur frá árinu i fyrra og hitteðfyrra. Daglega berast okkur fréttir af þvi að skipuð hafi verið nefnd, til þessaðgreiða fram úr vandanum og lækna meinið. Suma dagana eru skipaðar margar nefndir i sama tilgangi. Og allt þetta leggja þeir á sig, þarna fyrir sunnan, til þess að hjálpa þjóöinni yfir þrengingarnar. En þjóðinni ber lika skylda til að sýna þakk- látsemi, með þvi að taka á sig kross lifskjaraskerðingarinnar, með þögn og þolinmæði. Eins og presturinn, sem hug- hreystir hinn deyjandi meö lof- orði um himnarikisvist, þannig er þjóðin hugguð með þeirri hugg- un, að hún muni eiga bjarta og hamingjurfka framtið, ef hún að- eins sýnir stillingu og þolgæði i lltilfjörlegum stundarþrenginum, og treystir forsjá þeirra sem guð hefir gefið völdin og stjórnvisk- una, sem nauðsynleg er til þess að bjarga þjóðarskútunni úr þeim vandræðum, er yfir hana hafa gengið. Efi um hæfni hins kapítalíska þjóðfélags Það væri svo sem allt I lagi, fyr- ir venjulegt alþýðufólk, að trúa öllu þvi sem þvi hefir verið sagt um óhjákvæmilega, yfirvofandi lifskjaraskerðingu, ef, já ef það gæti jafnframt treyst þvi, að slik lifskjaraskeröing gengi jafnt yfir alla. Nei, ekki jafnt yfir alla,held- ur legðist með þvi meiri þunga á menn, sem þeir væru betur i stakkinn búnir. En ætli að þeir verði ekki frekar fáir, sem trúa sllku. Og ætli að það verði ekki nokk- uð margir, sem fara að efast um hæfni hins kapitaliska þjóðfélags, tilþess að leysa vandamál liðandi stundar. Kapitaliskt þjóðfélag, borið uppi af frjálsu framtaki einstakl- ingsins hefir sannarlega ekki af miklu að státa um þessar mundir. Er það ekki hið frjálsa framtak einstaklingsins, sem nú hrópar hæst á hjálp þjóðfélagsins. Nú skulum við ekki frekar ræöa hið leiðinlega heilaþvottahlút- verk, sem útvarpið hefir verið látið leika allt frá þvi, að forsætis- ráöherrann upphóf sina raust á gamlárskvöld og aðeins huga að hinni venjulegu dagskrá. Er þar skemmstfrá að segja, að hún hef- ir reynst okkur oft og einatt, sem sönn hugarfró og sálubót, eftir allan heilaþvottinn. Otvarpsstjóri og forseti lýöveldisins Ja, gamlárskvöld, það er nú það. Þá var Jónas Jónasson framreiðslustjóri, eða yfirkokkur gamanmálanna. Sumt var þar dálitið sniöugt, annað leiðinlegt, t.d. hið lang- dregna þref þeirra Jónasar og Bessa. Hins vegar var á nýársdag fluttur bráðskemmtilegur þáttur eftir Sigurð Ó. Pálsson. Þar var Njáll gamli á Bergþórshvoli flutt- ur inn I nútiðina og fengið það veglega hlutverk, að hjálpa Ólafi Jóhannessyni til þess að mynda rikisstjórn fyrir Geir Hallgrims- son. A gamlárskvöld flutti Andrés Björnsson sina hefðbundnu ára- mótahugleiðingu. En Guð fyrir- gefi mér. Ég sofnaði undir henni. En ég trúi þvi, að hún hafi verið góð. Á nýársdag flutti forsetinn sina hefðbundnu áramótahugleiðingu. Góður ræðumaður Kristján Eld- járn. Það kastar ekki rýrð á hann, sem slikan, þótt ég, vesæll mað- ur, hnyti um eina setningu i ræðu hans, sem að visu var tilvitnun i alkunnugt ljóð. Hann var að tala um þjóðhá- tiðarárið og hátiðahöldin á þvi herrans ári. Jafnframt lét hann þess getið, að sumir hefðu verið óánægðir og gagnrýnt hátiðahöld- in. Við sliku var auðvitað ekkert aö segja. Forsetinn, sem aðrir, hefir auðvitað fullan rétt til þess að gagnrýna menn fyrir þeirra gagnrýni. En mitt i þessum hug- leiðingum skaut hann inn tilvitn- uninni, sem ég drap á áðan; Last- aranum likar ei neitt. Lastari er nokkuð stórt orð. Við sem höfum gagnrýnt eitt eöa ann- að i sambandi við margnefnd há- tiðahöld, höfum ekki gert okkur grein fyrir þvi, að þessari nafn- gift yrði á okkur klint. En þetta gjörir vitanlega ekkert til. Það er hvort tveggja, að þeir lifa lengst, sem með orðum eru vegnir, og í annan stað hefir forsetinn sama rétt til þess og aðrir islendingar, að orða hugsanir sinar á hvern þann hátt, er honum þykir við hæfi. Miðvikudagur og líf- ið gengur sinn gang Miðvikudagur og lifið gengur sinn gang, kvað Steinn Steinarr. Hinir virku dagar koma nú hver af öðrum og útvarpiö hefir klæðst sinum hversdagsfötum og slik klæði fara þvi jafnan best. Það koma reyndar sunnudagar, sjöunda hvern dag, en þeir eru vel þolanlegir. Þá fá þeir sem vinna við stofnunina reyndar að sofa einni stund lengur og við sem för- um á fætur jafnt helga daga sem virka, söknum þess, að heyra ekki i útvarpi fyrr en klukkan átta. Svo koma einnig klassiskir tónleikar, sem við lokum fyrir, eins og það væri popp. En eftir hádegið gefum við okkur stund- um tóm til að hlusta á sunnudags- erindin, nú siðast erindi Sigurðar Hjartarsonar um Suöur-Ameriku. Þá gátum við hlustað á þættina hans Páls Heiðars um inngöngu Islands i Atlantshafsbandalagið. Tókust þeir yfirleitt nokkuð vel og hafa orðiö til fróðleiks fyrir hina ungu. Reyndar fannst mér, að viðtölin við suma er þarna komu viö sögu og studdu þetta fyrirtæk- ið, bæru þvi vott, að Atlantshafs- bandalagið væri aumur blettur á sál þeirra. Má sem dæmi nefna Eystein Jónsson. Þegar allt kemur til alls, er mánudagurinn sá dagur vikunn- ar, sem við hlökkum mest til. Hann er okkar hvildardagur eftir ofhlaðna dagskrá helgidaganna tveggja, og á mánudagskvöldum er fluttur skemmtiþáttur sem kemur okkur æfinlega i sólskins- skap og við förum strax að hlakka til næsta mánudags. Þessi af- bragðsgóði gamanþáttur nefnist: Blöðin okkar. 21. til 28. jan. 1975. Skúli Guðjónsson. Limdúnaferð um páska

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.