Þjóðviljinn - 16.02.1975, Blaðsíða 4
4 SIÐA — ÞJÓÐVILJINN Sunnudagur 16. febrúar 1975
DIOBVIUINN
MÁLGAGN SÓSÍALISMA
VERKALÝÐSHREYFINGAR
OG ÞJÖÐFRELSIS
Ctgefandi: Útgáfufélag Þjóöviljans Umsjón meö sunnudagsblaöi:
Framkvæmdastjóri: Eiöur Bergmann Vilborg Haröardóttir
Ritstjórar: Kjartan ólafsson, Ritstjórn, afgreiösia, auglýsingar:
Svavar Gestsson Skólavöröust. 19. Sfmi 17500 (5 linur)
Fréttastjóri: Einar Karl Haraldsson Prentun: Blaöaprent h.f.
ÞEIR GRÆÐA Á ÁFÖLLUM ÞJÓÐARBÚSINS
Árið 1972 kostaði sykur sá sem lands-
menn flytja inn tæpar 300 miljónir króna
miðað við ársneyslu. Siðan hefur sykur
sexfaldast i verði, og það verð sem nú er á
þessari vörutegund jafngildir þvi að árs-
neyslan kosti 1.600-1.800 miljónir króna.
Þetta er dæmi um þá innfluttu verðbólgu
sem veldur okkur mjög verulegum
búsifjum og er notuð sem röksemd fyrir
siendurteknum gengislækkunum og
óbærilegri dýrtið. En verðhækkunin á
sykri er ekki áfall fyrir alla íslendinga:
fyrir suma er hún stórfelld gróðalind.
Verslunarálagning i smásölu og heildsölu
er fast hlutfall af innflutningsverðinu, og
eftir þvi sem sykurinn hækkar i verði
eykst álagningin að krónutölu. Árið 1972
nam þessi álagning i heildsölu og smásölu
um 80 miljónum króna. Ef sykurverðið
eins og það er nú helst óbreytt allt árið
verður þessi sama álagning i ár um 600
miljónir króna. Gróði verslunarinnar af
einum saman sykurinnflutningi hefui®
þannig hækkað um rúmar 500 miljónir
króna siðan 1972 — vegna innfluttrar
verðbólgu, vegna þess að þjóðarheildin
hefur orðið fyrir áföllum. Hliðstæða sögu
er að segja um allar aðrar innfluttar vörur
KJÓSENDUR BERA EINNIG ÁBYRGÐ
Gengislækkanir voru helsta stjórntæki
viðreisnarmanna. Þeim var ekki aðeins
beitt gegn svokölluðum ytri áföllum,
versnandi viðskiptakjörum eða minnk-
andi afla, heldur einnig þegar verkafólk
beitti afli samtaka sinna til þess að vernda
lágmarkskjör sin eins og gerðist 1961.
Samt komst viðreisnarstjórnin ekki
lengra en að lækka gengið á 11 mánaða
fresti. Sú ihaldsstjórn sem nú er við völd
er þegar búin að hnekkja þessu meti með
yfirburðum: nú liða aðeins fimm mánuðir
milli gengislækkana. Og landsmenn eru
þegar farnir að spyrja hver annan:
Hvenær verður gengið lækkað næst?
í meira en áratug barðist Framsóknar-
flokkurinn gegn viðreisnarstefnunni og þá
skorti ekki stór orð Ólafs Jóhannessonar
og annarra leiðtoga Framsóknar-
flokksins. Eftir stórsigur Alþýðubanda-
lagsins i kosningunum 1971 fékk
Framsóknarflokkurinn tækifæri til þess
að eiga þátt i þvi að sanna i verki að unnt
er að stjórna þjóðfélaginu eftir öðrum
leiðum en þeim sem mótuðu viðreisnar-
timabilið, og i kosningunum i fyrra sóru
leiðtogar Framsóknar að þeir væru
ánægðir með þá reynslu og myndu ekki
hvika frá vinstristefnu. En nú eru þeir
sestir i rikisstjórn sem fylgir lögmálum
viðreisnarinnar i hverju smáatriði.
Það er oft sagt að stjórnmálamenn séu
sem hækkað hafa i verði: með núgildandi
álagningarreglum getur maður imyndað
sér hvernig heildsalarnir núa saman
höndum af ánægju i hvert skipti sem þeir
frétta af erlendum verðhækkunum, i hvert
skipti sem viðskiptakjör Islendinga
versna af völdum alþjóðlegrar verðbólgu.
Athygli ólafs Jóhannessonar viðskipta-
ráðherra var beint að þessu stórfellda
hneyksli á þingi fyrir nokkrum dögum og
skorað á hann að taka fyrir óþjóðholla iðju
af þessu tagi, en undirtektir hans urðu
engar. Samband islenskra samvinnu-
félaga flytur inn mikið af sykri. — m .
samviskuliðugir: þeir lofi fyrir kosningar,
en sviki að kosningum loknum, og vist má
styðja þá kenningu ærnum tökum. En
hvað um kjósendur sjálfa? Hver verða
viðbrögð þess fólks sem veitti Fram-
sóknarleiðtogunum brautargengi i fyrra i
þeirri trú að þeir myndu áfram hafna við-
reisnarúrræðum en beita sér fyrir félags-
hyggjustefnu? Kjósendur bera ábyrgð
ekki siður en forustumenn, og hörð
viðbrögð þess fólks sem studdi Ólaf
Jóhannesson og félaga hans i fyrrq, geta
haft tafarlaus áhrif á stjórnmálaþróunina
á Islandi. Þeir kjósendur sem ekki gera
sér grein fyrir þessari ábyrgð hafa
brugðist, engu siður en stjórnmálamenn-
irnir. — m.
Stööugur vestanvindurinn ber
reykskýið beint á þennan stað og
segir læknirinn lif þeirra sem
þarna vinna i mun meiri hættu en
t.d. sjómannanna sem búa utan
hverfisins.
En Ibúarnir láta sér þetta I léttu
rúmi liggja. Þeir hafa vanist
brennisteinslyktinni frá verk-
smiðjunni og hafa ekki áhyggjur
af þvi þótt húsmæðurnar geti ekki
hengt þvottinn út til þerris vegna
ryks. Krabbi? A hann trúir eng
inn, svo Wilson læknir hefur ekki
fengið neinn stuðning viö varúð-
arráðstafanir vegna verksmiðj-
unnar. tbúarnir mættu ekki einu
sinni ikrabbameinsleit, sem hann
skipulagöi fyrir þá.
En ýmislegt styður kenningar
hans:
Engin mengunaruppspretta
önnur en malbiksverksmiðjan er i
Strandby.
t ofn verksmiðjunnar fer tunna
af oliu á klst., en aðeins 60%
brenna algerlega upp. Upp um
reykháfinn liður slðan hættuleg
blanda kolvetnisefna og ryks,
Wilson læknir skráði fyrstu
lungnakrabbatilfellin 1968, 15 ár-
■um eftir að verksmiðjan tók til
starfa. En samkvæmt niðurstöð-
um krabbameinsrannsókna er
þaö eftir aö hafa reglulega andaö
að sér krabbavaldandi efnum
þann tima sem sjúkdómurinn
kemur fram.
t nágrannabæjunum, þar sem
enginn verksmiðjuiðnaöur er,
hefur enginn veikst af lungna-
krabba.
Þótt ekki sé fullvist, að mal-
biksverksmiðjan sé eina orsök
krabbameinstilfellanna, — allir
sjúklingarnir voru lika reykinga-
menn — hefur barátta læknisins
þó leitt til þess að umhverfis-
málaráðuneytið i Kaupmanna-
höfn mun loks leggja fyrir þingiö
lagafrumvarp um mengunar-
varnir, sem lengi hefur verið
tregöast við. t þvi er gert ráð fyrir
mengunarsium á alla reykháfa
danskra verksmiðja.
Þaraðauki segist nú eigandi
malbiksverksmiðjunnar leiöur á
að láta ráðast á sig i blöðunum og
ætlar að hætta rekstrinum.
Lungnakrabbi af
völdum mengunar?
Dauðinn í
Strandby
í bænum Strandby
nyrst á Jótlandsskaga,
milli Álbæk og
Frederikshavn, er það
aðeins einn ibúanna 2000
sem efast um að um-
hverfið sé i lagi. Þessi
eini er læknir þorpsins
og hefur i þrjú ár reynt
að vekja athygli ibúanna
og bæjaryfirvalda á
banvænni hættu, að hans
mati: Malbiksverk-
smiðju, sem daglega
spýr f jórum tonnum úr-
gangsefna yfir götur,
hús og garða bæjarins.
Sjö manns hafa dáið úr lungna-
krabba i Strandby siðan 1968 og
allir I sama hluta bæjarins,versl-
unarhverfi þar sem búa um 200
manns. Og læknirinn, Knud Wil-
son telur ástæðuna þá, að hverfið
Wilson læknir meö kort af liggur i dæld um 500 metra frá
Strandby reykháfum verksmiðjunnar. Jbúar Strandbæjar trúa ekki aö reykurinn skaöi þá.