Þjóðviljinn - 16.02.1975, Blaðsíða 17

Þjóðviljinn - 16.02.1975, Blaðsíða 17
Sunnudagur 16. febrúar 1975 ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 17 Mörg undanfarin ár hefur verið lögð á það sérstök áhersla i stefnuræðum utanrikisráð- herra á þingi, að náin samvinna við Norðurlönd sé einn af horn- steinum islenskrar utanrikis- stefnu. Ekki hefur ávallt rikt full samstaða á Alþingi um þessa stefnu. Skömmu fyrir lýð- veldisstofnunina 1944 fóru að heyrast raddir i ýmsum blöðum Sjálfstæðismanna um að „vestrið” stæði okkur opið, en „austrið”, þar með talin Norðurlönd, a.m.k. Finnland og Sviþjóð, væri viðsjárvert. Mátti skilja af málsmetandi mönnum i islenskum stjórnmálum, sem þá voru að upptendrast af hug- sjónum um vestræna samvinnu, að hagkvæmast væri fyrir is- lendinga að skera á tengslin við Norðurlönd. Með auknum engil- saxneskum áhrifum, breska hernáminu, bandarisku herset- unni, aðildinni að NATÓ og her- verndarsamningnum við Bandarikin i kjölfar Kóreu- striðsins óx þessari skoðun fylgi. Hagsmunir isl. borgara- stéttar voru orðnir samofnir bandariskum itökum og að áliti margra áhrifamanna i „lýð- ræðisflokkunum” voru Banda- rikin nú orðin að helsta bak- hjarli Islands, efnahagslega og hernaðarlega. Á þessum hápunkti kalda striðsins var að komast hreyf- voru til undirbúnings funda i Norræna þingmannasamband- inu kom meðal annars fram, að einungis 8—9 þingmenn þáver- andi stjórnarflokka, Fram- sóknarfl. og Sjálfstæðisflokks voru fylgjandi þvi að unnið yrði að undirbúningi að stofnun Norðurlandaráðs. Það voru ein- ungis þingmenn Alþýðuflokks og Sósialistaflokksins sem voru eindregið fylgjandi málinu og tryggðu þvi framgang. Á 28. fundi Norræna þing- mannasambandsins, sem hald- inn var i Stokkhólmi dagana 13. og 14. ágúst 1951, var samþykkt samhljóða að frumkvæði Hans Hedtofts, fyrrv. forsætisráð- herra dana, að hrinda hug- myndinni um Norðurlandaráð i framkvæmd. Embættismenn og ráðherrar unnu svo að frekari undirbúningi. 1 mai og júni 1952 samþykktu þjóðþing Danmerk- ur, Noregs og Sviþjóðar stofn- skrá og starfsreglur ráðsins og slikt hið sama gerði Alþingi i desember sama ár. Stofnfundur Norðuriandaráðs var svo hald- inn i fundarsal efri deildar danska þingsins i Christians- borg 13. febrúar 1953. Afstaða kommúnista Finnar voru ekki með i Kaup- mannahöfn og réð þar miklu andstaða sovétmanna og Eindregnustu stuðninRsmenn norrænnar samvinnu Einar Olgeirsson i ræðustól á Alþingi. UTILOKAÐIR FRA RÁÐINU ing á mál, sem legið hafði i lág- inni frá striðsbyrjun þegar dan- ir lögðu fram tillögu um norrænt fastaráð, sem tæki til meðferðar sameiginleg hagsmunamál Norðurlanda. P. Munch, þáver- andi utanrikisráðherra dana, var þeirrar skoðunar að i ráðinu ættu að vera forsætis- og utan- rikisráðherrar Noregs, Sviþjóð- ar, Danmerkur og Finnlands, svo og forsætisráðherra íslands (þar sem danir fóru með utan- rikismál okkar á þeim tima) svo og fulltrúar þjóðþinganna. Ætl- unin var að ráðið kæmi saman einu sinni á ári i hálfan mánuð, en i þvi yrðu engar ákvarðanir teknar né atkvæði greidd um mál. Þessi hugmynd fékk ekki góð- ar undirtektir, en meðan á strið- inu stóð og á fyrstu eftirstriðs- árunum var samstarf þjóðþinga mikið á dagskrá, sérstaklega i Danmörku og Sviþjóð. Opin- skáar umræður fulltrúa Norður- landa i Kaupmannahöfn og Osló snemma árs 1949 um stofnun Skandinavisks varnarbanda- lags færðu norrænum stjórn- málamönnum heim sanninn um nauðsyn á reglulegu samráði i erfiðum vandamálum, enda þótt þær bæru ekki tilætlaðan árangur. A alþjóðavettvangi var löngu farið að lita á Norðurlönd sem eina heild, og reglulegir utan- rikisráðherrafundir, sameigin- leg innganga i Evrópuráðið (allra nema Finnlands) og fleira gerði það að verkum, að um 1950 var það orðin útbreidd skoðun að koma ætti á skipu- lagsbundnu samstarfi norrænna þjóðþinga, þrátt fyrir óeiningu Norðurlanda i varnar- og ör- yggismálum. Áhugaleysi á Islandi Hér á tslandi var áhuginn fyr- ir þessum hugmyndum af skornum skammti. A þing- mannafundum sem haldnir kommúnistaflokka yfir höfuð gegn Norðurlandaráði. t sovéskum fjölmiðlum voru gerðar harðar árásir á ráðið, og stofnun þess talin vera að undir- lagi þeirra afla, sem réðu NATÓ, og megintilgangurinn væri að innlima Sviþjóð og Finnland i varnarsamstarf NATÓ-rikjanna. Allir stjórn- málaflokkar i Finnlandi voru sammála um að ekki væri tima- bært að ganga i ráðið. Finnska þingið var þó með i ráðum, þeg- ar unnið var að stofnun ráðsins, tók frá upphafi þátt i útgáfu „Nordisk-kontakt”, timaritsins, sem er nokkurskonar tiðindarit þjóðþinga á Norðurlöndum, og i Finnlandi var sú skoðun út- breidd, að það væri miður, að finnar væru ekki aðilar að ráð- inu. t október 1955 samþykktu allir flokkar i Eduskuntu (finnska þinginu) að finnar skyldu gerast þátttakendur i Norðurlandaráði, enda hafði þó nokkuð slakað á spennunni i Evrópu, þótt sovétmenn héldu uppi harðri gagnrýni á ráðið, þar til finnar gerðust fullgildir aðilar að Norðurlandaráði á fjórða fundi þess i Kaupmanna- höfn i janúar 1956. Afstaða íslenskra sósialista. Sósialistaflokkurinn á ts- landi leit öðrum augum á Norðurlandaráð, heldur en kommúnistaflokkar á Norður- löndum, og skildu þar leiðir sem oftar, þótt hér heimafyrir væri flokkurinn einatt spyrtur sam- an við þá og sagður halda sig stift á Moskvulinunni. I Sviþjóð og Danmörku lögðust kommún- istar gegn stofnun ráðsins, en i Noregi áttu þeir ekki fulltrúa á þingi. t borgaraflokkunum norsku var hinsvegar töluverð andstaða gegn ráðinu. Einar 01- geirsson, formaður flokksins, segir svo frá: „Við litum þannig á að itök bandarikjamanna hér væru orð- Forsætisnefnd Norðurlandaráðs á fyrsta fundi þess f Kaupmanna- höfn 1953. Frá v. Nils Herlitz, Svlþjóð, Hans Hedtoft, Danmörku, Magnús Jónsson, islandi, og Einar Gerhardsen, Noregi. Forsætisráðherrar á fyrsta fundi Norðurlandaráðs. Frá v. Tage Erlander, Sviþjóð, Erik Eriksen, Danmörku, Oscar Torp, Noregi , og Steingrimur Steinþórsson, tslandi. in svo geysisterk og áhrif þeirra á þjóðina og leiðtoga hennar svo mikil, að það væri beinlinis lifs- nauðsyn fyrir islendinga að tengjast N or ður löndun um sterkari böndum, og efla og treysta þau samskipti, sem átt hefðu sér stað milli íslands og annarra Norðurlanda. Sósial- istaflokkurinn mótaði þá stefnu þegar fyrir lýðveldistökuna, að efla bæri sérstaklega tengsl ts- lands við önnur Norðuriönd. I Norðurlandaráði sáum við leið til þess að skapa mótvægi við bandarisku áhrifin, og þess vegna stuðluðum við heilshugar að stofnun þess”. Þingsályktunartillaga um að- ild tslands að Norðurlandaráði var samþykkt á Alþingi i des- ember 1952 með 28 atkvæðum gegn 7. Þingmenn Alþýðuflokks og Sósialistaflokks greiddu allir atkvæði með tillögunni, en hvorki meira né minna en sex- tán þingmenn, flestir úr stjórnarliðinu, voru fjarverandi við atkvæðagreiðsluna, og er það nokkuð til marks um áhuga- leysið. ójafn eftirleikur Eftirleikurinn segir þó ef til vill meiri sögu en sjálf atkvæða- greiðslan. I janúar 1953 var lögð fram tillaga til þingsályktunar i Sameinuðu þingi um kjör full- trúa á fyrsta fund Norðurlanda- ráðs. Tillagan fól i sér að kosn- ingu fimm fulltrúa i Norður- landaráð skyldi hagað þannig að Sósialistaflokkurinn, sem þá hafði að baki sér 19.5 prósent at- kvæða og 9 þingmenn, fengi engan fulltrúa i ráðið, þ.e. með þvi að kjósa 2 i efri deild og 3 i neðri deild. Þess ber að geta að þingfylgi flokksins nægði honum til að fá fulltrúa kjörinn við hlut- fallskosningu i Sameinuðu þingi, enda hafði Einar Olgeirs- son jafnan verið i 5 manna sendinefnd Alþingis á fundum Norræna þingmannasambands- ins, og þingmenn voru þá aðeins 52. Greinargerð meirihluta utan- rikisnefndar um þingsálykt- unartillöguna var eins stuttorð og álit meirihluta menntamála- nefndar neðri deildar i útvarps- ráðsmálinu, enda rökþrotin og valdniðslan áþekk i báðum til- vikum. Jörundur Brynjólfsson, sem mælti fyrir áliti meirihlut- ans, bar það helst fyrir sig að i starfsreglum Norðurlandaráðs væri kveðið svo á að hvert þjóð- þing ákvæði sjálft tilhögun á kjöri fulltrúa sinna i ráðið og Framhald á 22. siðu.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.