Þjóðviljinn - 16.02.1975, Blaðsíða 9

Þjóðviljinn - 16.02.1975, Blaðsíða 9
Sunnudagur 16. febrúar 1975 ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 9 Jón Hjartarson: PÓLITÍSK GANDREIÐ Húsi, þar segir frá kynnum af gömlum vinnumanni i Noregi, sem er ,,með áhyggjur og erfiði margra þrautpindra kynslóða á bakinu.” Að hata með pabba Nokkuð sérstætt er sögu- mynstrið i „Myndin af kónginum” eftir Gunnar M. Magnúss. Þar er brugðið upp nöturlegri mynd af sjávarplássi sem margar eru til frá þessum tima: danskættaður kaupmaður rikir yfir pappaklæddum kofum með ryðguðum þökum, brotnum stömpum, beinahrúgum og dansandi maðkaflugum. Og kóngurinn er að koma — hann stingur peningum og mynd af sér að „fátækri, veiklulegri þurra- búðarkonu” sem er móðir drengsins sem söguna segir, meðan faðir hans er rekinn uppá fjall með þungar byrðar ásamt öðrum erfiðismönnum: kaup- maður hefur skipað þeim að kynda þar bál af rusli þorpsins og stæla eldgos fyrir kónginn. Sögunni lýkur á einskonar til- hlaupi til uppreisnar — faðir drengsins grýtir kóngspen- ingunum i kaupmanninn með vel völdum orðum. Sögunni lýkur með þessum orðum: ,,í fyrsta skipti elskaði ég hjartanlega pabba og mömmu i lifsbar- áttunni. Og i fyrsta skipti hataði ég af alhug með pabba minum'/ öreigabókmenntir Sem fyrr segir höfðu aðstand- endur Rauðra penna áhuga á að koma á sambandi við skrifandi alþýðufólk. Nú er það svo, að ef menn velja skipta riihöfundum eftir uppruna, menntun og stétt, þá verður sú flokkun á Islandi miklu ógreinilegri og þýðingar- minni en ef sjónum er beint að löndum eins og Frakklandi eða Bretlandi. En hvað sem þvi liður er ljóst, að i Rauöum pennum má finna tvö dæmi um „öreigabók- menntir” i þrengri merkingu: þ.e. alþýðufólk skrifar um eigin lif og kjör og næsta umhverfi. f árganginum 1936 segir frá þvi að „Theódór Friðrikssoner eitt af alþýðuskáldum okkar, er sam- hliða basli og þrotlausu striti hefur miklu afkastað á bókmenntasviðinu Hann vinnur nú að mjög itarlegri ævisögu sinni og er kaflinn hér á eftir smábrot úr henni”. Þetta er semsagt kafli úr þeirri frægu bók „1 verum”,sem nú i vetur er lesin i útvarpi og Þórbergur Þórðarson hefur gert um merka ritgerð. Kaflinn lýsir vetursetu Theodórs með fjölskyldu á skelfilegu eyði- koti i Gönguskörðum. Hann gengur inn óslétt moldargólf, sér fyrir sér i baðstofunni upphlaðinn moldarbálka með mygluðu heyi: „Baðstofan var ekki undir súð, heldur var reft þvers og kross á langbönd og fyllt á milli með tróði. Þessir eldgöailu viðir voru berir að öðru leyti en þvi, að einhverjum bréfum og druslum hafði verið tjasiað á vegginn til þess að hlifa þvi að moldin hryndi niður”; annað eftir þvi. Það er þvi ekki að furða þótt sjálfsævisögu- ritarinn spyrji sjálfan sig þeirrar sömu spurningar og reyndar felst beint o£ óbeint i mörgum öörum örbirgðalýsingum i Rauðum pennum: „Hvaö hafði ég til saka unnið?” Hann svarar þvi sjálfur: kvænst i örbirgö og haldið tryggð við konu og börn. Theodór er reyndar svo grátt leikinn, að hann veltir þvi fyrir sér hvort ekki sé skynsamlegast aö fyrirfara sér til aö fjölskyldan geti fengið lif- trygginguna. Hver á sökina? Kristin Geirsdóttir er kynnt sem „ung skáldkona úr alþýðu- stétt”. Saga hennar heitir „Uppboðsdagur” — það er verið að selja ofan af Halli gamla i Naustum og Rannveigu konu hans. Hallur spyr sjálfan sig eins og Theódór „Var það hans sök að hún (Rannveig) varð að hrekjast út á kaldan klakann á gamals aldri?” Nei reyndar ekki — „sök” hans ver ekki meiri en Bjarts i Sumarhúsum, Hallur haföi lika freistast til að bygga „rándýran hjall” á veltiárum og kunni ekki á lög og viðskipta- flækjur. Hinn siúðrandi kotbóndi hrekst á mölina, meðan stór- bóndinn Jón á Fit sleppur, enda kann hann þá list að skulda og skulda mikið. (Þarna er að finna vissar hliðstæður við Jón á Útirauðsmýri). Það er lika eins- konar Sumarhúsastolt i gömlu konunni, Rannveigu: „Þeir skyldu ekki þurfa að aumka gömlu konuna á Naustum” segir hún við sjálfa sig og rennir á könnu handa uppboðsfólki. Viö fáum i leiðinni stuttorða lýsingu á ævi þessarar kotbóndakonu. Uppboðinu er lokið: „haglél skall á rúðunum, miskunnarlaust eins og örlög smælingjanna”. Eru þá sögur taldar. Auk þess var birtur þáttur úr sögulegu leikriti eftir Gisia Ásmundssonog fjallar hann um átök milli metnaðar og rómantiskra ásta- mála Gissurs jarls úti I Noregi. Raunsæishefð Niðurstöður þessarar skoðunar verða á þessa leið: Sögur Rauðra penna eru skrifaðar i anda raunsæislegrar hefðar. Sem frásagnar af kröppum kjörum alþýðufólks, fátækt og basli, skrifaðar i anda „samúðar með litilmagnanum” eiga þær margar hliðstæður og fyrirmyndir. Þær eru I anda „félagslegs raunsæis”. Hin sósialisku viðhorf koma m.a. fram i þvi, að allmikil áhersla er lögð á að sýna, að persónurnar eiga ekki sök á hlutskipti sinu, þjóðfélagið hefur forákvarðað hlut þeirra með stéttaskiptingu og þvi sem af henni leiðir. Með öörum orðum: beint og óbeint er róið gegn þvi viðhorfi sem er svo þægilegt rikjandi ástandi að „þver er sinnar gæfu smiður” (sbr. Theódór, Kristin, Stefán Jónsson). Um leið er það i anda hugmynda um væntanlega þjóð- félagsbyltingu að staða persón- anna versnar i sögunum, ef nokkuð er. Þolendur En sögurnar falla ekki undir „sósialrealisma” i þeim skiln- ingi, að þar sé sýnt hvernig augu alþýðumanns ljúkast upp fyrir nýjum skilningi, hvernig hann vex i átökum og fyrir samstöðu. Persónurnar eru þolendur, fórnarlömb samfélagsins, jafnt verkamaður Halldórs Stefánssonar sem einyrkjar Ólafs Jóhanns og Kristinar og vinnu- konur Ragnheiðar og Sigurðar Haralz. I vanmætti kalla þau á samúð og samstöðu og skilning sem ekki fæst innan sagnanna — en kannski utan þeirra. Um uppreisn, að menn taki sér sjálfir rétt, er varla að ræða — þótt pen- ingum sé grýtt i kaupmann (Gunnar M.), þótt Lára taki sér rétt til að stela i nafni barna sinna (Ragnheiður). Og eins þótt islenskur sendill fljúgist á við italskan fasistaforingja með góðum árangri i eftirminnilegri skrýtlu Halldórs Laxness, sem hefur sérstöðu i Rauðum pennum bæði vegna viðfangsefnis (smáþjóð og þjóðremba) og hug- blæ sem yfir sögu þessari hvilir. (Um næstu helgi: Ljóðlist og erlendar bókmenntir) Erfitt starf mun það vera að stjórna efnahagsöngþveiti þjóð- arbúsins. Bústólparnir hafa nú tekiö sér fri frá þeim flór- mokstri um sinn. Þeir eru búnir að setja hvitt um hálsinn á sér og hafa tekið sér sæti I þessu glaðværa norræna fjölskyldu- boði, sem nú stendur i Þjóðleik- húsinu. Menn hafa ævinlega gagn og gaman af þvi að bregða sér á mannamót, þó ekki sé til annars en sýna sig og sjá aðra. Forystumenn norrænna þjóða rækja orðiö frændsemi sin i millum af miklum skörungs- skap og kurteisi. Þeir hittast reglulega og hafa um sig fjöl- menni, skeggræða um allt og ekkert likt og gamlir og virðu- legir frændur i fermingarveisl- um. Það er mönnum hollt að koma þannig saman og fjölyrða um ekki neitt. Það eykur mönn- um skilning og viðsýni, svo framarlega, sem þeir koma sér saman um að koma sér ekki saman um neitt sem máli skipt- ir. • A meðan höfðingjarnir sitja þannig á velheppnaðri kjafta- törn og vikka sjóndeilarhring- inn, þrengir stöðugt meir að þjóöarbúskapnum heima fyrir. tslenskur þjóðarbúskapur hefur verið að drabbast niður seinasta misserið, bústofninn biður mál- þola og hjúin standa uppi ráð- villt og stjórnlaus. Ekki getur það talist farsæll framsóknar- bóndi, sem þannig býr. Gengisfelling hefur verið lausnarorð i islenskum þjóðar- búskap, allt frá þvi við fórum að ráöa okkar málum sjálfir. Gengisfelling hefur reynst öll- um rikisstjórnum hið mesta þjóðráð til þess að fela eigin ráðleysi. Gengishrunið hefur einungis verið misjafnlega mik- ið og tltt, eftir þvi hversu lélegar rikisstjórnir við höfðum. Þessi sem við höfum i dag er aldeilis afleit, þvi neita ekki einu sinni dyggustu stuðningsmenn henn- ar. Það gegnir furðu hve menn verða uppnæmir og undrandi við hverja gengisfellingu. Þetta stafar vafalaust af þvi hversu vel stjórnskörungum og em- bættismönnum tekst að halda á sér alvörusvipnum. Af ásjónu þeirra skin aldrei meiri ráð- deildarsemi og ábyrgðartilfinn- ing, heldur en þegar þeir koma fram fyrir alþjóð og kynna hin- ar „óhjákvæmilegu neyðarráð- stafanir”. Núverandi rikis- stjórn er enginn eftirbátur hinna fyrri i þessum efnum nema siður sé. Abyrðartilfinn- ing og þyngsta alvara er ein- kenni allra aðgerða stjórnarinn- ar. Þó er stjórn islenskra efna- hagsmála löngu orðin alþjóð- legur brandari. Peningaprelátar okkar fara að gengisfellingum likt og um sé að ræða strangtrúarlegar séri- moniur. Æðstiprestur peninga- mála þjóðarinnar, byrjar ævin- lega þessa helgiathöfn i musteri sinu, Seðlabankanum. (Að visu hafa þessar helgiathafnir ekki fengið verðugan samastað enn þá, en senn mun musterið mikla risa á Arnarhóli). Hann flytur þar boðskap sinn yfir frétta- mönnum, sem boða hann siðan öllum lýðnum samkvæmt ritú- alinu. Óbreyttir stjórar bankans aðstoða við athöfnina — þjóna fyrir altari. Siðan koma ráðherrar og leggja út af boðskapnum. Þeir lýsa þeirri neyð, sem þjóðinni var búin og ótal aðsteðjandi erf- iðleikum, sem leiddu til þessara óumflýjanlegu aðgerða. í ljósi þessara atburða allra séu þess- ar óeðlilegu aðgerðir þannig næsta eðlilegar. Landsmenn all- ir verði að skilja og játast undir þessar ráðstafanir — sem eru auðvitað algjörar neyðarráð- stafanir. — Samkvæmt þvi hef- ur rikt samfleytt neyðarástand i efnahagsmálum þjóðarinnar i fjörutiu ár. • Þessari andakt lýkur svo með þvi að verkalýðsforystan er kölluð til að leggja blessun sina yfir boðskapinn. Verkalýðsfor- ingjar Jesúsa sig auðvitað á alla lund. Náttúrlega þurfi hinir lægst launuðu að fá leiðréttingu mála. A þeim má jafnvel skilja að þarna sé vont mál á ferðinni, en við þvi sé ekkert að gera nema biða og sjá hvaða hliðar- ráöstafanir rikisstjórninni þóknist að gera i þetta skiptið. Auövitað gerir rikisstjórnin svo nákvæmlega sömu hliöarráð- stafanir og vant er, með sömu afleiðingum og vant er. • Gengisfelling verkar aftur á móti eins og vitaminssprauta á útjaskað og ofvaxið fargan is- lenskrar innflutningsverslunar. Þúsund heildsalar keppast við að kreista siðustu skildingana úr gjaldeyrissjóðunum til þess að flytja inn óþarfar vörur handa fólki að hamstra. — Stjórnmálamenn styðja inn- flytjendur gjarna i þessari við- leitni og gefa gengisfellingar i skyn með góðum fyrirvara svo að heildsalar og kaupmenn geti búið sig nógu vel undir kaupæð- ið.—Eins reynir hver braskari sem betur getur að koma ónýt- um krónum i erlendan gjaldeyri og hagnast þannig á hruninu. Islenska krónan er orðin eins og óværa, sem menn hrista af sér jafnharðan og þeir hafa á- unnið sér hana. Þetta er vita- skuld sjálfgert fyrir venjulega launþega sem eiga nóg með sitt daglega brauð. Meðal þeirra, sem eitthvað eiga umfram það, magnast kaupæði við hverja gengisfellingu af eðlilegum ótta við að tapa þvi litla sem það á af aurum. Verðbólgan hefur snar- ruglað verðmætamat fólks og hleypt af stað trylltu kapphlaupi eftir fölskum lifsgæðum. Gagn og gæði hlutanna skipta ekki lengur öllu máli, heldur þetta, hvernig þeir muni plumma sig i veröbólgunni, þegar hvaðeina kostar meira og meira, meir i dag en i gær. • Þannig er alþýða manna lokk- uð út i verðbólgukapphlaupið. Verkalýðsbarátta siðustu ára hefur verið bardagi við vind- myllu. öllu þvi sem launþegum hefur áunnist i kjaramálum, hefur verðbólgumyllan óðara þeytt i veður og vind. Ósvifnir stjórnskussar hafa meira að segja haft kjarabætur launa- fólks að átyllu fyrir frekari gengisfellingum. — Þannig hef- ur máttskilja á stjórnvöldum að efnahagsöngþveitið og verð- bólgan stafaði fyrst og fremst af þvi að verkalýður og launþegar almennt hefðu of hátt kaup. Þessu eiga menn jafnvel að trúa, þegar allt venjulegt kaup er langt undir þvi sem gerist i nágrannalöndunum. Verkalýðs- forystan hér á landi hefur vissu- lega brugöist skyldu sinni og ber á vissan hátt ábyrgð á þvi, hvernig komið er. Hún hefur lið- ið óhæfa efnahagsstjórn I ára- raðir og sýnt henni endalausa linkind, jafnvel gerst beinn þáttakandi. Venjulegir launþeg- ar hafa einungis haldið sinum hlut með óhóflegri vinnu — yfir- vinnu og þrældómi. — Þannig hefur verkalýðshreyfingin verið beisluö i þeirri pólitisku gand- reið, sem farin hefur verið i efnahagsmálum siðustu ára- tugi. Kjarabarátta launafólks held- ur áfram að vera vindmyllu- slagur, þar til hún verður nógu pólitisk til þess að taka frum- kvæði efnahagsmála i sinar hendur. LÆKNAR HULDU HÖFÐI Um þessar mundir fer fram rannsókn á starfsemi 1075 italskra lækna hjá rikissaksókn- aranum I Róm. Samkvæmt kæru sjúkrasamlaga byggða á reikn- ingum læknanna hafa margir þeirra nefnilega haldið fyrirlest- ur i Milanó um leið og þeir gáfu út lyfseðil i Róm. Eða einn og sami maður veriö staddur samtimis i hlutum Rómaborgar, sem liggja i fleiri kilómetra fjarlægð hver frá öðrum. Enn aðrir hafa reynst al- gerir „súpermenn” þarsem þeim hefur, að þvi er virðist, tekist að rannsaka hundruö sjúklinga á u.þ.b. 10 sekúndum hvern. Dæmi áþekk þessum um það hvernig læknar hafa reynt að auka mánaðarlaun sin hafa á- gerst svo á siðari árum, að sjúkrasamlögin standast nú ekki lengur mátið og hafa kært lækn- ana fyrir svik við tryggingarnai — og sjúklingana.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.