Þjóðviljinn - 16.02.1975, Síða 16

Þjóðviljinn - 16.02.1975, Síða 16
16 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Sunnudagur 16. febrúar 1975 FORÐA HRÍÐUM Grettir í Þórisdal t Grettissögu segir: „Um haustið fór Grettir i Geitland og beiö þar til þess, er bjart veður kom. Þá gekk hann upp á Geitlandsjökul og stefndi á landsuður eftir jöklinum og hafði með sér ketil og eldsvirki. — Grettir fór þar til, er hann fann dal i jöklinum, langan og heldur mjóan, og lukt að jökl- um öllum megin, svo að þeir slúttu fram yfir dalinn. Hann komst ofan I einhverjum stað. Hann sá þá fagrar hliðir grasi vaxnar og smákjörr. Þar voru hverar, og þótti honum sem jarðhitar myndi valda, er eigi luktust saman jöklarnir yfir dalnum. A litil féll eftir dalnum og sléttar eyrar báðum megin. Litill var þar sólargangur, en það þótti honum ótal, hve marg- ur sauður þar var i dalnum. Þaö fé var miklu betra og feitara en hann hefði þvi likt séð. — Grettir bjóst nú þar um og gerði sér skála af þeim viði, sem hann fékk þar til. Tók hann sér nú sauði til matar. Var þar betri einn sauður til niðurlags en tveir annarsstaðar. — Ein ær mókollótt var þar með dilki, sú er honum þótti mest afbragð i vera fyrir vaxtar sakir. Var honum forvitni á aö taka dilkinn, og svo gerði hann og skar siðan dilkinn. Hálf vætt mörs var i dilkinum, en hann var þó öllu betri. En er Mókolla missti dilks sins, fór hún upp á skála Grettis hverja nótt og jarmaði, svo að hann mátti enga nótt sofa. Þess iöraðist hann mest, er hann hafði dilkinn skorið, fyrir ónáðum hennar. — Hvert kvöld, er hálfrökkvið var, heyrði hann hóað upp i dalnum, og þá hljóp féð allt til hins sama bóls hvert kvöld. — Svo hefur Grettir sagt, að fyrir dalnum hafi ráðið blendingur, þurs einn, sá er Þórir hét, og i hans trausti hafði Grettir þar verið. Viö hann kenndi Grettir dalinn og kallaði Þórisdal. Dætur kvað hann Þóri eiga, og hendi Grettir gaman að þeim, enda tóku þær þvi vel, þvi að þar var eigi margkvæmt. En þá er fastað var, gerði Grettir þá minning, að þá skyldi eta mör og lifrar um langaföstu. — Ekki bar þar til tiöinda um vet- urinn. Þá þótti Gretti þar svo dauflegt, að hann mátti þar eigi lengur vera. Fór hann þá i brott úr dalnum og gekk suður þvers af jöklinum og kom þá að norð- an að miðjum Skjaldbreið. Reisti hann upp hellu og klapp- aði á rauf og sagði svo, að ef maður legði auga sitt við rauf- ina á hellunni, að þá mætti sjá i gil það sem fellur úr Þórisdal”. Valdadalur/ Áradalur Frásögn þessi úr Grettissögu er hin elsta sem getur Þóris- dals, sem siöar á öldum hét ým- ist Valdadalur og þá kenndur viö Skugga-Valda, verndargoð útilegumanna, — eða hinu illúö- lega nafni Áradalur. Dalur þessi var um aldir alræmdur sem allsherjar verndarból fjallabúa, og mun frásögn Grettlu ekki hafa dregið úr þeirri hugmynd Af mestri sannfæringu og ná- kvæmni hefur Jón Guömunds- son lærði rakið fjallbúavisindi, en auk Aradals hefur hann hug- mynd um huldar byggðir af svipuöu tagi i dal í Herðubreið og við Ullarvötn á Vatnahjalla- vegi. I einni ritgerð Jóns, er nefnist „Lftiö ágrip um hulin pláss og yfirskyggða dali á ís- landi” er m.a. eftirfarandi sögn um Aradal og byggð þar: Tröllin taka þig allan „Einn maktarmaður skuli einu sinni hafa viljað leita upp nefndan Þórisdal, er sumir kalla Aradal. Sá maður hét Teitur, var við tólfta mann og kom undir Skjaldbreið. Þá gjörðist mikil þoka og heyrði hann og hans fylgjarar kvæöa- raust í myrkrinu stórkostlega uppkoma, svohljóðandi: Tröllin taka þig allan Teitur ef þú fer að leita. Við þetta létti hann leitinni og fór heim við svo búið. Mælt hefur verið að eitt sinn ÞORSTEINN FRÁ HAMRI TÓKSAMAN Væri ég einn sauðurinn 1 hliðum, skyldi ég renna i Aradal, forða hriðum, forða mér viö hrlöum. í brag þessum greinir Jón fyrst frá upphafi byggðar I daln- um, gerir eitt úr Skugga-Valda og Avalda skegg, sem þekktur er úr Vatnsdælu, og nefnir dal- búann þvi Skegg-Avalda, telur hann hafa gerst einrænan og tekið sér þessvegna ból i daln- um, og segir: Blendingar hafa búið þar með; býsna stórt og feitt er féð; samtimis aukinni trú á útilegu- menn og kynngi þá er geröi þeim kleift að slá hulu yfir blómlega byggð sina. I Ar- manns sögu, sem raunar mun vera 18. aldar smíð i stil fornra landvættasagna greinir svo frá upphafi vættabyggðar I daln- um: „Valdi hét maður og var kall- aður Skugga-Valdi. Hann átti byggð i Valdadal. Sá dalur er austur frá Skjaldbreið og er læstur jöklum. Valdi var tröll- aukinn jötunn og hamrammur mjög. Hann átti margt sauðfé, svo eigi vantaði á tiu eða tólf hundraða, þvi þar var sauðland gott i dalnum, og gekk sjálfala”. — Samkvæmt Armanns sögu gengur siðan Þórir Þórálfsson af Valda dauðum og reisir bú i dal hans, sem siöan er við Þóri kenndur og kallaður Þórisdalur. sem menn héldu haustréttir við fjallgarðinn, hafi einn kollóttur sauður verið kominn i fjárrétt- ina, svo stór að mændi upp yfir öllum þeim stærstu sauðum. Þá skuli þar að réttinni i sömu svif- um hafa komið einn ókunnur maöur stór að vexti. Sá leit inn- yfir réttargarðinn og mælti svo: „Og þú ert kominn hér Kollur Kollsson, mesta skitseiði i Ara- dölum”. Hann kastaði svo þess- um sauð á bak sér og gekk i burtu”. Áradalsóður Þekktast rita Jóns varöandi þetta efni mun þó hinn mikli Áradalsóður hans, er hann hef- ur valiö svohljóöandi stef, sem mönnum hefur stundum þótt hljóða einsog ósk hans sjálfs, þegar gætt er stöðugra ævi- hrakninga hans: ævintýrin oft hafa skeð með ýmsum bragar smlðum... Næst drepur Jón á dvöl Grett- is i dalnum, en siðan vikur hann aö sögnum um skipti byggðar- manna við dalbúa. Þar greinir hann I fyrstu frá skitseiöinu Koll Kollssyni, en þvi næst kemur saga af villu fimmtán vetra stúlku i dalinn, og er hún fróðleg um venjur og siði dalbúa: Fyrst á morgni er fólk upp stóö, fákennd heyröi hún sungin ljóð: „Oss sé iagleg lukkan góð lagin með blóma bllðum. Skegg-Avaldi, skjól vort blitt, skyggðu nú yfir landið þitt, svo aldrei verði héraðið hitt heims af kristnum lýðum”. Næst greinir bragur Jóns læröa frá Steinku-Varða nokkr- um, sem ráfar i draumleiðslu i dalinn og kynnist innbyggjum; kemur þar fram visan um fjár- mark Aradalsmanna, sem margir kunna: Netnálina nú skal tjá og niu bita eyranu á, hangandi fjöður og hófurinn hjá er heiðursmark hjá lýðum. Forða hriöum, forða mér við hríðum... Loks segir frá manni sem lendir I kaupavinnu hjá dalbú- um og fær vistarlaunin vel gold- in, svo sem hér segir litið af, en það eru orð dalbónda: Ég skal ljá þér lipran klár, löstur er samt að hann er grár, ber hann ei á bakinu sár né bilar i nokkrum striðum. Jón endar kvæðið meö erindi, er hljóðar svo ef viðlag fylgir heilt: Svo skal lykta Ijóðaslag: væri ég einn sauðurinn I hllðum, langt er komið á ævidagi skyldi ég renna I Aradal. Gamli Jón hefur gert þann brag til gamans að skemmta lýðum. Forða liriðum, forða mér við hriðum. Um þessar mundir voru ó- byggðir Islands váþrunginn hulduheimur, magnaöur forn- eskju og kynjum;og meðan sam- timinn hafði uppá fátt aö bjóöa nema skortinn, var það alþýö- unni freisting að lyfta minning- unni um dvöl Grettis I Þórisal uppi hillingaheim þarsem dul- kynjaöir fjallabúar, sem kannski voru ókindur mestu, slógu töfraþoku yfir gnægð grasa og vista i hlýjum dal sem maöur gat kannski villst i af hendingu. Áradalur kannaður Arið 1664, sex árum eftir að Jón lærði var allur, áræddu loks tveir prestar, séra Björn Stefánsson á Snæfuglsstöðum og séra Helgi Grimsson á Húsafelli að leita uppi hinn alræmda dal, og voru við öllu búnir. Þeir fundu dalinn nokkurnveginn samkvæmt tilvisun Grettis sögu. Ferðalýsingar þeirra hafa oftar en einu sinni birst á prenti, og má nærri geta hvernig dal- skoran, köld og gróðurlaus, stakk i stúf viö grónar alls- nægtahugmyndir þjóðtrúarinn- ar. Nú er altitt orðiö að menn geri ferð sina I Þórisdal. En lengi eftir afrek klerkanna, og allt fram á sföustu öld, var hin aldna forynjutrú það rik i mönn- um að margir reyndu aö sætta hinar andstæðu niðurstööur um landkosti i dalnum, „sem að visu hefðu nú rýrnað mjög”. (Grettis saga, Armanns saga, Munnmælasögur 17. aldar, Huld, Blanda o.fl.) Veldi Playboy aö hrynja Hugh Hefner heitir frægur maður: það var hann sem stofnaði Playboy. Timarit þetta, sambland af berum stelpum, partiskrýtlum og allmerkum við- tölum við sjaldhafnarfólk, færði eiganda sinum auð og frægð. A auði þessum ætlaði Hefner að búa til „Disneyveröld fyrir fullorðna”, net af klúbbum og hótelum og farartækjum sem gæti sinnt margvislegri skemmtanaþörf vel fjáöra og ekki sérlega hugmyndarikra karlmanna. En nú sýnist veldi Hefners að hruni komiö 1 fyrsta lagi er hann grunaður um að hafa miðlað gestum sinum kókaini og er nú i rannsókn mál fyrrverandi einkaritara hans, Bobbie Arnheim, sein dæmd var fyrir aðild að kókaindreifingu i fimintán ára fangelsi og framdi sjálfsmorð sköminu siðar við dularfullar aðstæður. Og i öðru lagi er blátt áfram tap á rekstri Hefners. 1 fyrra minnkaði gróði fyrir- tækja hans um helming, eða niður i 5,9 miljónir dollara. Playboy hefur misst 600 þúsund lesendur til blaða sem birta „djarfari” myndir (Penthouse ofl). A hótel- um og klúbbum Hefners hefur verið mikið tap. Hann staösetti klúbba sina á röngum tima og á röngum stöðum : nálægt miðborg- um sem æ fleiri bandarfkjamenn forðast að vera á ferli um eftir að dimma tekur. Og auk þess kom það á daginn, að Hefner reyndist of teprulegur i kynferðismóral sinum á vorum dögum opinskás kláms og vændis. Peningamönn- um I skemmtanahugleiðingum þótti leiðinlegt til lengdar að mega aðeins horfa á „kanlnur” Hefners, en ekki snerta á þeim. 1 þriðja lagi hefur veldi Hefners skroppið saman blátt áfram af þvi, að hann rekur fyrirtækja- bákn sitt einn og fer ekki eftir neinu öðru en eigin duttlungum. Það er visu alvanalegt i sögu einkaframtaksins, að sonurinn eða sonarsonurinn rifa niður það sem ættfaðirinn „byggði upp. En dæmi Hefners minnir á það, að stundum gerist hvorttveggja, uppbygging og niðurrif, i einni og sömu kynslóð. Hefner ásamt kaninustelpum slnum: tollir ekki I tlskunni.

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.