Þjóðviljinn - 15.03.1975, Síða 1
Laugardagur 15. mars 1975 — 40. árg. 62. tbl.
Sendinefndin á hafréttarráðstefnu
Sendinefnd islands á 3. fundi
hafrcttarráðstefnu Sameinuðu
þjóðanna, sem hefst i Genf á
mánudaginn verður skipuð svo
scm hér segir:
Hans G. Andersen, sendiherra,
sem er formaður nefndarinnar.
Jón L. Arnalds, ráðuneytis-
stjóri sjávarútvegsráðuneytisins.
Már Elisson, fiskimálastjóri.
Jón Jónsson, forstöðumaður
hafrannsóknarstofnunarinnar.
Benedikt Gröndal.alþingismað-
ur.
Gils Guðmundsson, alþingis-
maður.
Haraldur Henrýssson, dómari.
Þórarinn Þórarinsson, al-
þingismaður.
Þór Vilhjálmsson, prófessor.
Ekki er gert ráð fyrir að
nefndarmenn sitji ráðstefnuna
allir á sama tima.
Sígarettu-
fjáröflun FRÍ:
Harðlega
gagnrýnd
Einn af stjórnarmönnum i
Erjáisiþróttasambandi ís-
lands, Einar Frimannsson,
hefur nú sagt af sér vegna
sigarettufjáröflunar, sem FRt
hefur hafið i samvinnu við
sigarettuinnflytjanda, og á að
gefa sambandinu 1.5 miljón
króna i aðra hönd á næstu
þremur mánuðum. Nokkur
ungmennafélög hafa harðlega
gagnrýnt þessa fjáröflunarað-
ferð, sem þykir bera vott um
hve f járhagsgrundvöllur
iþróttanna er slæmur.
Sjá 6. síðu
Vélskólanemarnir, sem gerðu könnunina á Akranesi ásamt kcnnara slnum, Ólafi Eirlkssyni, tækni-
fræðingi.
Vélskólanemar sanna:
Spara má 400 milj.
króna á einu ári
með því að lagfœra og hafa eftirlit
með húsakynditœkjum í landinu
Ein bekkjardeild Vélskóla ts-
lands undir forystu kennara sins
Ólafs Eirikssonar hefur gert i
meira lagi merkilega uppgötvun,
og sannað að hún er rétt. Þessi
hópur fór uppá Akranes dagana
f>. til 8. febrúar sl. og gerði könnun
á ástandi katla, sem notaðir eru
til húsakyndingar og iðnaðarnota.
Náði könnunin til 56 katla á af-
mörkuðu svæði á Akranesi. A
Akranesi cr talið að 1000 til 1200
katlar séu notaðir til húsahitunar
og nær könnun hópsins þvi til um
5% þeirra.
Tilefni könnunarinnar er hið si-
hækkandi oliuverð og sú nauðsyn
sem ráðamenn þjóðarinnar hafa
bent á að sé til að spara hið dýra
innflutta hráefni. Jafnframt vildu
nemendur einbeita sér að hag-
nýtu verkefni i stað þurra tilbú-
inna kennslubókaverkefna.
Hópurinn fékk til umráða
nýtnimælitæki, sum lánuð önnur
smiðuðu þeir sér sjálfir. Og þvi er
skemmst frá að segja að niður-
stöður þessarar könnunar eru á
þann veg, að eitthvað var að öll-
um kötlunum sem skoðaðir voru
nema einum. Og nýtni þeirra 56
katla sem skoðaðir voru var auk-
in um 9,2% að meðaltali, en það
skal tekið fram að hópurinn gerði
við það sem að var i kötlunum i
þeim tilfellum sem það var hægt,
en örfáir katlar voru svo lélegir
að ekki var hægt að gera við þá.
Mesta nýtnisaukning sem náðist
á einum katli var 36%.
Ólafur Eirikss. tæknifræðingur
og kennari við vélskólann sagði á
blm. fundi i gær, að þeim hefði
reiknast til að ef svona könnun og
viðgerð færi fram á öllum kyndi-
kötlum á landinu mætti spara
rúmar 400 miljónir kr. á ári i oliu.
Það munar um minna.
En hann tók fram og það gerði
Valdimar Jóhannsson vélaverk-
fræðingur, sem hefur farið yfir
rannsóknir hópsins og staðfest
þær réttar, að fólk mætti alls ekki
fara að reyna viðgerðir eða lag-
færingar sjálft. slikt gæti orðið
stórhættulegt. Þeir bentu einnig á
þörfina fyrir að koma upp sér-
stökum eftirlitsmönnum á vegum
rikisins og sveitarfélaga, sem
hefðu eftirlit með kynditækjum
og gætu mælt þau upp og gert við
þau en til þess þarf nokkuð dýr
tæki, kosta um 200 þús. kr. svo
viðgerð komi að fullu gagni.
Nú er það svo að fólk getur alls
ekki snúið sér til nokkurs aðila
sem getur framkvæmt slikar
mælingar eða lagfæringar. En
þegar i ljós kemur hve mikið má
spara með þvi að kippa þessu i
lag ætti það varla að vera neitt á-
horfsmál að málinu verði hraðað
sem mest. Þjóðviljinn mun nánar
skýra frá niðurstöðum könnunar
vélskólahópsins.
—S.dór.
Japanir vilja
kaup
a
ALLT
ÞAÐ
MAGN
af frystri loðnu,
sem við
getum framleitt
— Við erum með/ eins
og áður hefur komið
fram hjá okkur, samn
inga við japani um sölu
þangaðá frystri loðnu, og
japanirnir hafa sagt, að
þeir myndu kaupa allt
það magn frá okkur, sem
við gætum framleitt,
sagði Bjarni Magnússon
forstjóri íslensku um
boðssölunnar.
Skjóta þessar upplýsingar
Bjarna nokkuð skökku við þann
málflutning, sem hafður var
uppi af loðnuútflytjendum i vet-
ur meðan verið var að þjarka
um verðlag á loðnu á yfirstand
andi loðnuvertið.
Bjarni sagði, að þeir hefðu
lágmarkssamning upp á 2 þús
und tonna útflutning, en fram
leiðslan ekki nema brot af þv
eins og sakir standa.
— Verðiö er að visu ekki eins
hagstætt eins og það var i fyrra
sagði Bjarni. Annars getur
verðið breyst miðað við svona
litið framboð, þvi þau verð sem
við höfum eru lágmarksverð.
Alls voru fryst 18 þúsund tonn
af loðnu hérlendis á loðnuvertið
inni i fyrra.
—ú
286 lán greidd 1. apríl
Nýlega var ákveðið I húsnæðis-
málastjórn að veita fyrrihlutalán
til þeirra sem höfðu lagt fram
fullgildar umsóknir og áttu fok->
heldar ibúðir um sl. áramót. Lán-
in verða greidd frá 1. april nk.
Ennfremur var samþykkt nýlega
að veita siðarihlutalán til þeirra,
sem fengu fyririhlutalán i júni-
mánuði á sl. ári. Hér er um að
ræða lán út á 286 ibúðir samtals.
Lánveiting þessi miðast við þá
UDDhæð lána, sem i gildi var á sið-
astliðnu ári, það er 1 miljón og 60
þúsund krónur á hverja ibúð.
Félagsmálaráðherra hefur enn
ekki tekið afstöðu til þeirrar til-
lögu húsnæðismálastjórnar að
hækka lán i 17 hundruð þúsund út
á þær ibúðir, sem gerðar eru fok-
heldar eftir sl. áramót.
(Jrslitakeppni Taflfélags Kópa-
vogs er lokið. Sigurvegari varð
Bragi Halldórsson með tvo og
hálfan vinning i þremur skákum.
Annar varð Jóhannes Jónsson
með tvo vinninga.
Bragi hlýtur þátttökurétt i
landsliði 1975, en Jóhannes er
Skákmeistari Kópavogs 1975, þar
sem hann er búsettur i Kópavogi
en Bragi i Reykjavik.
Hraðskákmót Taflfélags Kópa-
vogs verður haldið á morgun,
sunnudaginn 16. mars kl. 14, i
Þinghól við Álfhólsveg II i
Kópavogi.
Flugleiðir œtla að
selja Air Bahama
Flugleiðir hafa boðið
Bahamamönnum að kaupa
meirihluta i Air Bahama. Þetta
kom fram á fundi sem foraáða-
menn Flugleiða efndu til I gær,
og sagt er frá á 3. siðu blaðsins i
dag.
Air Bahama hefur um nokk-
urra ára skeið verið i eigu dótt-
urfyrirtækis Loftleiða, Hekla
Holding Company, og siðan
Flugleiða. Hefur rekstur fyrir-
tækis þessa gefið góðan arð.
Lánið sem Flugleiðir fara nú
fram á að rikið ábyrgist er að
upphæð um 13.5 miljónir doll-
ara, til 7 ára. Liklegur ending-
artimi vélanna tveggja sem
kaupa á er talinn um 10 ár i við-
bót að öllu eðlilegu. Láninu
verður varið til þess að greiða
Seaboard World Airlines flugfé-
laginu sem á nú vélarnar. Áður
hafa Loftleiðir / Flugleiðir haft
vélarnar á kaupleigusamningi
og greitt fyrir þær 165 þúsund
dollara á mánuði. Hluti þeirra
upphæðar hefur tryggt Flug-
leiðum kauparéttinn nú. Við
kaupin lækka greiðslurnar til
Seaboard World Airlines úr 165
þúsund dollurum á mánuði i 122
þúsund dollara á mánuði.
Lánið sem Flugleiðir biðja
rikið um að ábyrgjast yrði tekið
hjá Export — Import-bankanum
i New York. Lánið hvildi á öðr-
um veðrétti á eftir rekstrarláni
sem er áhvilandi að upphæð
fimm miljónir dollara sem er á
1. veðrétti.
3. SÍÐA