Þjóðviljinn - 15.03.1975, Side 3

Þjóðviljinn - 15.03.1975, Side 3
Laugardagur 15. marz 1975. ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 3 Leikfélag Reykjavíkur sýnir: F j ölskylduna eftir finnarín Claes Andersson geðlœkni, Ijóðskáld, jasspíanista og reviuhöfund A þriðjudaginn frumsýnir Leikféiag Reykjavikur fimmta vcrkefni sitt á þessu starfsári. Þar er á ferðinni Fjölskyldan eftir sænskumælandi finna, Cla- es Andersson að nafni. Leik- stjóri er Pétur Einarsson. Leikrit þetta er nýtt af nálinni þvi það var frumsýnt hjá Lilla Teatern i Helsinki i fyrravor. Þar hefur það gengið fyrir fullu húsi fram á þennan dag og nú er i bigerð að setja það upp viðar i Finnlandi og i Sviþjóð. Claes Andersson hefur fengist við margt á þeim 38 árum sem hann hefur að baki. Hann er geðlæknir að mennt og starfar sem slikur. A námsárum sinum fékkst hann við jasspianóleik með þeim afleiðingum að hann varð frægur um alla Skandina- viu. Hann hefur fengist við ljóðagerð og gefið út sex ljóða- bækur. Ein þeira, Rums- kamrater (Herbergisfélagar) kom til álita við verðlaunaaf- hendingu Norðurlandaráðs i vetur en landi Anderssons, Hannu Salama varð hlutskarp- ari. Fjölskyldan er fyrsta sviðs- verkið sem hann semur en hann hefur gert þrjú sjónvarpsleikrit auk nokkurra kabaretta. Andersson sækir gjarnan i starf sitt og það fólk sem hann kynnist i þvi þegar hann velur sér yrkisefni. Utangarðsfólk, drykkjusjúklingar og fólk sem reynir að stytta sér aldur eru daglegir gestir. f Fjölskyldunni leiðir hann áhorfendur að skrá- argati náungans svo notuð séu orð leikstjórans. Inn um skráar- gatið má lita f jölskyldulifið og á þvi eru bjartar og dökkar hliðar eins og gengur og gerist. Heim- ilisfaðirinn er alkóhólisti sem er að reyna að hætta en móðirin er heimavinnandi og þreytt eftir 20 ára hjónaband. Þau eiga þrjú börn, það yngsta sextán ára stúlka. Að sögn Péturs er leikritið mjög hefðbundið og engin fram- úrstefna. Það er raunsætt en þó er litið um bölsýni i þvi. Fjöl- skyldan er ekki skoðuð i félags- legu samhengi og Leikfélags- menn lögðu mikla áherslu á að leikritið ætti ekkert skylt við þau sænsku ádeiluverk sem hér hafa verið sýnd að undanförnu, Hvernig er heilsan, Elliheimilið o.fl. Viðfangsefni þessa verks er venjuleg fjölskylda með venju- leg vandamál, venjulegar sorg- ir og venjulega gleði og leikritið leysir ekki vandamálin. Heimilisfaðirinn er leikinn af Helga Skúlasyni, móðirin af Sigriði Hagalin en með hlutverk barnanna fara Hrönn Stein- grimsdóttir, Harald G. Haralds og Sigrún Edda Björnsdóttir en hún er sextán ára yngismær og stigur nú sin fyrstu spor á fjöl- unum. Auk þeirra kemur fram geðlæknir sem Sigurður Karls- son leikur og trúður kemur fram milli atriða, syngur, fer með ljóð og segir sina meiningu á efni leiksins. Hann er leikinn af Guðrúnu Asmundsdóttur. Tónlist við leikritið hefur Gunnar Þórðarson samið. Raunar samdi Andersson sjálf- ur tónlist við verkið en hann var óánægður með hana og hefur eindregið hvatt önnur leikhús til að setja nýja tónlist við það. Leikmyndir gerir Jón Þórisson og Magnús Axelsson sér um ljósadýrðina. Þegar sýningar á Fjölskyld- unni eru hafnar taka starfs- menn Leikfélagsins annað verk til æfinga. Það er eftir Jónas Arnason en hefur ekki hlotið nafn ennþá. Vigdis Finnboga- dóttir leikhússtjóri sagði að hér væri á ferðinni gamanleikur með rómantisku ivafi. Jón Sigurbjörnsson mun annast leikstjórn. Einnig er i bigerð að setja upp „kassastykki” fyrir Húsbygg- ingasjóð Leikfélagsins. Ekki er afráðið hvaða verk verður fyrir valinu en sterkar likur benda til þess að það verði Húrra krakki eftir Arnold og Bach. Af bygg- ingamálum Borgarleikhúss er það annars að frétta að teikn- ingar eru i burðarliðnum og standa vonir til að framkvæmd- ir geti hafist i sumar. Húsbygg- ingasjóður á núna um 30 miljón- ir og má komast nokkuð áleiðis fyrir það fé. Þá má geta þess af stofnskrá leikhússins er nú til afgreiðslu hjá borgarráði. —ÞH Flugvélakaup Flugleiða: Sama verð fy á þotunum rir 3-4 árum Ekkert við það að athuga að rikið fylgist vandlega með rekstri fyrirtœkisiris, sögðu forráðamenn Flugleiða á blaðamannafundi í gœr Forráðamcnn Flugleiða efndu til fréttamannafundar i gær. Var það fyrsti fréttamannafuhdurinn sem haldinn er frá þvi að samcin- ing flugfélaganna átti sér stað. Hið beina tilefni fundarins var beiðni félagsins um ríkisábyrgð á lánum til kaupa á tveimur flug- vélum af gerðinni DC-8-63, sem Loftleiðir gerðu um kaupleigu- samning fyrir nokkrum árum. t fyrirsvari á blaðamannafund- inum voru Orn Johnson, Alfreð Eliasson og Sigurður Helgason. Kaupleigusamningur Loftleiðir gerðu kaupleigu- samning um vélarnar tvær 1.7. 1971 og 1.5. 1972. Kaupleigusamn- ingurinn fólst i þvi að Loftleiðir greiddu 160 þúsund dollara á mánuði i leigu eftir hvora vél. 1 samningnum var tekið fram að eftir tiltekinn tima gætu Loftleiðir eignast þessar vélar. Nú er sá timi liðinn og er litið svo á að á leigutimanum hafi Loftleiðir ekki einasta verið að borga leigu eftir vélarnar heldur hafi fyrir- tækið einnig verið að eignast þessar vélar. Til þessa hefur verið greitt i heildarleigu fyrir vélarnar 8,1 milj. dollara en upphaflegt verð þeirra var talið 21,6 milj. dollara. Eftirstöðvar eru þvi 13,5 milj. dollara og það er sú upphæð sem nú er beðið um rikisábyrgð á. Forráðamenn Flugleiða sögðu á blaðamannafundinum að nú væru vélar þessar metnar á 22 milj. dollara — hafa þær með öðr- um orðum ekkert lækkað i verði i 3—4 ár. Það kom fram á fundinum að það eru Flugleiðir sem verða skráður eigandi vélanna og þær verða tryggðar á Islandi. Það kom ennfremur fram að önnur vélin hafði reyndar verið i eigu Hekla Holding Company, dóttur- fyrirtækis Loftleiða. Spurt var um viðhald vélanna. Svarað að viðhald myndi áfram fara fram i New York i meginat- riðum hjá Seaboard World Airlin- es, en það fyrirtæki er einmitt seljandi vélanna. Hluti viðhalds- ins fer fram i Luxemburg hjá Cargolux. Sagt var á blaða- mannafundinum að Flugleiðir þyrftu ekki að kaupa varahluti eða viðgerðaraðstöðu vegna kaupa á vélunum. örn Johnson minnti á að Flug- félag íslands hefði áður fengið á- byrgð rikisins á fyrstu þotu sinni. Rikið stæði nú i ábyrgð fyrir 6 miljónum dollara vegna flugfé- laganna. Bættust 13,5 miljónir dollara við jafngilti ábyrgðin 23% af brúttóársveltu Flug- leiða. Til samanburðar gat örn þess að ábyrgð rikisins vegna kaupa á þotu Flugfélagsins hafi verið 70% af veltu Flugfélags- ins. Það kom frám að það var i októbermánuði sl. að Flugleiðir fóru fram á rikisábyrgðina og hefur langleiðina siðan verið starfandi sérstök nefnd til þess að kanna þessi mál. Það kom fram að það var snemma i febrúar að flugfélögin sneru sér formlega til rikisstjórnarinnar. Vildu tals- menn Flugleiða ekkert segja um undirtektir stjórnarvalda, en þeir tóku þó fram, að æskilegt væri að svör rikisstjórnar og alþingis lægju fyrir fyrir vorið, en það yrði hugsanlega alveg á næstunni. Lán það sem rikið er beðið að á- byrgjast er frá Export-Import- bankanum i Washington. Hann lánar sjálfur allt að 40%, 40% lof- ar sami banki að útvega annars staðar frá og 20% úr einhverjum öðrum banka eins og Sigurður Helgason orðaði það. Sigurður sagði að þessi lán yrðu til 7 ára, vextir liklega um 8%. 40% þau sem ekki koma beint frá Export-Import-bankanum greiddust á fyrrihluta timabils- ins, en hitt á siðari 3 1/2 árunum. Hallinn Halli á rekstri Flugleiða varð alls um 210 milj. kr. á sl. ári. Þar var um að ræða 160 milj. kr. halla á millilandafluginu og 50 milj. kr. á innanlandsfluginu. Sigurður Helgason sagði að hallinn á milli- landafluginu hefði verið eingöngu á Norður-Atlantshafsfluginu, Evrópuflugið hefði staðið i járn- um. Rekstur Air Bahama og Cargolux er meðreiknaður i þess- um tölum. Rekstur Air Bahama hefur gengið tiltölulega vel, var sagt. Það er vegna þess að um er að ræða langar flugleiðir og á þeim hefur ekki orðið samdráttur i farþegafjölda. Spurt var um Hekla Holding Company, sem átti aðra þeirra véla sem nú stendur til að kaupa, og á nú Air Bahama. Sagt var að nauðsynlegt hefði verið að stofna slikt fyrirtæki sem væri i rauninni aðeins skel utan um Loftleiðir. Loftleiðir hefðu átt þetta fyrir- tæki. Spurt var hvernig þvi yrði svar- að ef rikið krefðist aukins eftirlits með Flugleiðum ef veitt yrði rikisábyrgð. örn Johnson svaraði spurningunni. Hann kvaðst telja eðlilegt, ef rikið léti svo stórar á- byrgðir i té, að það fylgdist vand- lega með rekstri félaganna. Rikisábyrgðasjóðir fengju nú að fylgjast með allri afkomu flugfé- laganna og okkur finnst eðlilegra að slikt eftirlit fari i gegnum rikisábyrgðasjóð og Seðlabank- ann en einhverja aðra aðila, sagði örn. Ég tel sjálfsagt og eðlilegt að rikið fylgist með rekstri okkar. Sagt var að Cargolux stæöi traustum fótum, en það er i eigu þriggja aðila, Flugleiða, sænska skipafélagsins Salen og nokkurra einstaklinga i Luxem burg. Cargolux rekur nú fimm RR-vélar, þar af eru tvær i sam eign Flugleiða og Cargolux, um 50%. Að auki er Cargolux með tvær leiguþotur. Cargolux starf rækir viðgerðaraðstöðu þá sem Loftleiðir i Luxemburg höfðu áð- ur. Sigurður Helgason sagði að engar áætlanir væru uppi um við- bót á flugflota Cargolux. Hins vegar er fyrirtækið nú að reisa stórt flugskýli. Hagnaður á sl. ári var um 15 milj. isl. kr. Fjölmargt fleira kom fram á blaðamannafundinum, sem ekki er kostur á aö rekja hér aö sinni — Við gerum okkur ljóst, sagöi örn Johnson, — að við höfum mikla ábyrgð gagnvart islensku þjóðfélagi og við viljum að sjálf- sögðu hafa sem best samstarf við það opinbera og við fögnum þvi að rikið fylgist með öllum okkar rekstri. En rikið getur ekki á sama tima falið okkur ábyrgðar- störf og komið i veg fyrir að við rækjum þau störf með eðlilegum hætti. Sigurður Helgason tók undir ummæli Arnar og bætti þvi við að bankar sem hefðu lánað Loftleið- um hefðu jafnan fylgst með rekstri fyrirtækisins. Ekkert væri eðlilegra, en að slikt aðhald væri fyrir hendi. Tveggja til þriggja herbergja ibúð með sima óskast til leigu strax, helst i Þingholtum, Norðurmýri eða Hliðum. Tilboðum óskast skilað til afgreiðslu blaðsins sem fyrst og eigi siðar en 21. mars n.k. merktum ,,April — 1975 — L. RÍKISSPÍTALARNIR lausar stöður SKRIFSTOFA RÍKISSPÍTALANNA: RITARI óskast á skrifstofu rikisspi- talanna frá 1. april n.k. eða eftir samkomulagi. Starfssvið? vélritun og almenn skrifstofustörf. Umsókn- um ber að skila til skrifstofunnar fyrir 21. þ.m. Umsóknareyðublöð fyrirliggjandi á sama stað. Reykjavik, 14. mars 1975. SKRIFSTOFA RÍKISSPÍTALANNA EIRÍKSGÖTU 5,SÍMI 11765

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.