Þjóðviljinn - 15.03.1975, Blaðsíða 5
Laugardagur 15. marz 1975. ÞJófyyiLJINN — StPA 5
Aðalfundur
Aðalfundur Sparisjóðs vélstjóra verður
haldinn að Hótel Esju, Suðurlandsbraut 2,
sunnudaginn 16. mars n.k. kl. 14.00.
Dagskrá:
Venjuleg aðalfundarstörf.
Aðgöngumiðar að fundinum verða af-
hentir ábyrgðarmönnum eða umboðs-
mönnum þeirra fimmtudaginn 13. mars
og föstudaginn 14. mars i afgreiðslu
Sparisjóðsins og við innganginn.
Stjórnin.
Styrkir til fram- '
haldsnáms iðnaðar
manna erlendis-
Menntamálaráðuneytiö veitir styrki til iðnaðarmanna,
sem stunda framhaldsnám erlendis, eftir þvi sem fé er
veitt i þessu skyni á fjárlögum ár hvert.
Styrkir verða fyrst og fremst veittir þeim, sem ekki eiga
kost á styrkjum eða námslánum úr lánasjóði islenskra
námsmanna eða öðrum sambæriiegum styrkjum og/eða
lánum. Heimilt er þó, ef sérstakiega stendur á, að veita
viðbótarstyrki til þeirra, er stunda viðurkennt tækninám,
ef fé er fyrir hendi
Styrkirnir eru eingöngu veittir tii náms erlendis, sem ekki
er unnt aö stunda hér á landi. Skal námið stundað við við- <
urkennda fræðslustofnun og eigi standa skemur en tvo
mánuði, nema um sé að ræða námsferð, sem ráðuneytið
telur hafa sérstaka þýðingu.
Styrkir greiðast ekki fyrr en skilað hefur verið vottorði frá
viökomandi fræðslustofnun um, að nám sé hafið.
Umsóknum um styrki þessa skal komið til menntamála-
ráðuneytisins, Hverfisgötu 6, Reykjavik, fyrir 15. aprfl nk.
Umsóknareyðubiöð fást I ráöuneytinu.
Menntamálaráðuneytið
11. mars 1975.
Skólahljómsveit
Kópavogs
Tónleikar
Skólahljómsveit Kópavogs, eldri og yngri
deild, og Hornaflokkur Kópavogs, halda
tónleika i Háskólabiói á laugardaginn kl.
3.
Kynnir: Jón Múli Árnason
Stjórnandi: Björn Guðjónsson.
Aðgöngumiðasala i Háskólabiói.
SKÓLAHLJÓMSVEIT KÓPAVOGS
Sérkennaranám
í Svíþjóð
Skólaárið 1975—76 mun væntanlega tveimur tslendingum
gefast kostur á námsvist i sérkennaradeildum við kenn-
araháskóla f Sviþjóð. Um er að ræða nám til undirbúnings
stuönings- og sérkennslu fyrir nemendur, sem eiga við
örðugleika að etja vegna aölögunarvandkvæöa eöa fötlun-
ar af einhverju tagi. Til inngöngu er krafist kennaraprófs,
og yfirleitt er skilyröi að umsækjandi hafi gegnt fullu
kennslustarfi um a.m.k. þriggja ára skeið.
Þeir sem kunna að hafa hug á að sækja um námsvist sam-
kvæmt framansögðu skulu senda umsókn til menntamála-
ráðuneytisins.Hverfisgötu 6,Reykjavik, fyrir 1. april nk. á
sérstöku eyðublaði, sem fæst i ráðuneytinu ásamt nánari
upplýsingum um námssvið og inngönguskilyröi. Vakin
skal athygli á, að eingöngu er um að ræöa námsvist, en
ekki styrk.
Menntamálaráðuneytið,
11. mars 1975.
af erlendum vettvangi
Uppreisnartilraun
ihaldsherforingjanna í
Portúgal varð hvorki f ugl
né fiskur, sagði Vísir í
leiðara í fyrradag með
vonbrigðaandvarpi.
Þetta er ekki nema rétt
hjá Visi, aldrei þessu
vant. Samtök vinstrisinn-
aðra herforingja virðast
eftir gagnbyltingar-
tilraunina í upphafi vik-
unnar vera traustari í
sessi en nokkru sinni
fyrr, svo og þau öfl póli-
tísk sem styðja þessi
samtök, en þau eru
einkum Kommúnista-
flokkur Portúgals og
ýmis önnur marxísk
samtök.
Flest er enn á huldu um
ástæðurnar til þess að portú-
galska Ihaldið skyldi hleypa af
stokkunum þessari gagn-
byltingartilraun einmitt nú, en
ekki er nægt að segja að hún
kæmi á óvart. Siðan einræðis-
stjórninni var steypt i april s.l.
hefur þróunin i stjórnmálum
Portúgals verið til vinstri, þó
hægt hafi farið og kannski fyrst
og fremst á yfirborðinu. Núna
rétt fyrir mánaðamófin til-
kynntu hinir vinstrisinnuðu
valdhafar að þeir hefðu i hyggju
Concalves forsætisráðherra —
ætlum ekki að glata þvi, sem
kostaö hefur svo miklar fórnir, i
einum kosningum.
Alvaro Cunhai — flugumenn
ihaldsins komu af stað múgæs-
ingum og reyndu að koma
sökinni á kommúnista.
borgum og i vissum sveita-
héruðum sunnanlands, þar sem
þeir hafa haft forustu um að
flýta fyrir skiptingu jarðnæðis.
Skoðanakannanir — sem að visu
munu hafa verið handahófs-
kenndar — hafa bent til þess að
heildarfylgi kommúnista væri
ekki nema 10-15%, og sam-
kvæmt könnunum blæs öllu
byrlegar fyrir til dæmis Sósia-
listaflokknum og Kristilega
demókrataflokknum, sem upp á
siökastið hefur verið talinn
sterkasta haldreipi ihaldsins i
stjórnmálum. Yfir og milli-
stéttir borganna styðja auðvitað
ihaldsflokkana, miðdemókrata
og kristilega demókrata, heils-
hugar, og þessir flokkar geta
einnig gert sér vonir um mikið
fylgi i dreifbýlinu i norðurhluta
landsins. Sveitafólk þar um
slóðir lifir enn og hrærist i
miðaldahugsunarhætti og er
fullt af rótgrónum undirlægju-
skap gagnvart embættis-
mönnum, sem margir eru
ennþá ihaldssamir, og þó
einkum klerkum kaþólsku
kirkjunnar. Sagt er að klerk-
arnir séu þegar farnir að ógna
hverju sóknarbarni sinu
með helvitisvist, sem kjósi
kommúnista, og má fastlega
reikna með að sá áróður verði
þungur á metaskálunum.
Portúgalskar
morgunblaðsfréttir
Vel trúlegt er að ihaldið hafi
verið farið að gera sér vonir um
að geta endurheimt völdin i
kosningum með þvi að beita i
þeim til hins ýtrasta peninga- og
klerkavaldi. Þegar sú vonar-
stjarna fölnaði við ummæli Gor
calvesar, hafi svo verið gripið
til ofbeldis. Allavega bendir
þegar margt til þess að framá-
menn ihaldsflokkanna hafi
verið aðilar að gagnbyltingar-
V aldaránstilraunin
í Portúgal
verulegar umbætur i þjóðfélags-
ogefnahagsmálum, þám.þjóð-
þjóðnýtingu á helstu iðnaðar-
nýtingu á helstu iðnaðarfyrir-
tækjunum og viðtækar umbætur
i landbúnaðar- og jarðnæðis-
málum. Það hefur ekki farið
leynt að hægri- og miðjuöflin i
stjórnmálum Portúgals hafa
lengi verið • á nálum út af
umbótastefnumiðum Herja-
hreyfingarinnar (MFA) og
kommúnista, og vera má að
nýnefnd yfirlýsing um þjóð-
■ nýtingu og skiptingu jarðnæðis
hafi tekið steininn úr.
Byltingarráðið
tekur í taumana
Eins og sakir standa er ekki
anað að sjá en vopnin hafi snúist
gersamlega í höndum ihaldsins
við gagnbyltingartilraunina á
þriðjudaginn. Spinola, sá leið-
togi þess er mestur ljómi hefur
staðið af, er kominn til Spánar á
sneypulegum flótta og ekki
annað sýnna en Franco ætli að
úthýsa honum. Og i Portúgal
sjálfu hafa vinstriherforingj-
arnir myndað byltingarráð,
sem á að leysa af hólmi rikis-
ráðið og svokallaða herforingja-
nefnd til frelsunar þjóðinni.
Stofnun byltingarráðsins virðist
þýða allsnarpa beygju til vinstri
og það hefur þegar tekið hraust-
lega i taumana til að tryggja
ástandið og fyrirbyggja frekari
skemmdarstarfsemi af hálfu
gagnbyltingaraflanna. Bankar
og iðnaður landsins er frá gam-
alli tið að miklu leyti i höndum
fárra ætta, og nú hefur verið
brugðið við titt og fjölskyldu-
höfuðætta þessara handtekin og
tilkynnt að þjóðnýttir verði allir
þeir bankar landsins sem eru i
innlendri eigu. Þetta er mikið
atriði, þvi að bankarnir eru
mjög áhrifamiklir i iðnaðinum.
Með gagnbyltingartilraun sinni
virðist þvi ihaldið hafa fengið
fram það, sem það helst vildi
forðast: að flýtt yrði
þjóðnýtingaráformum stjórnar-
Misbeiting
auðmagnsins
Auðmenn þeir, sem hand-
teknir voru, hafa þó siður en áVo
það eitt á samviskunni að hafa
verið I vitorði með gagnbylt-
ingarherforingjum. Siðan
stjórnarbyltingin var gerð i
april, hefur innlenda auðvaldið
gert mikið að þvi að flytja fjár-
magn sitt úr landi, bæði til að
forða þvi frá hugsanlegri
þjóðnýtingu og til þess að valda
nýju stjórninni, sem tók við
algeru þrotabúi af einræðis-
stjórn Caetanos, auknum
erfiðleikum. Auðmennirnir eru
einnig sakaðir um að hafa ausið
fé i sjóði hægri- og miðflokk-
anna og þannig misbeitt valdi
sinu yfir auðmagninu.
Annað, sem kann að hafa ýtt
undir ihaldið að freista gagn-
byltingar er sú ákvörðun Herja-
hreyfingarinnar að hætta ekki
stjórnmálaafskiptum eftir þing-
kosningarnar, sem eiga að fara
fram eftir tæpan mánuð. Vasco
Goncalves, forsætisráðherra,
hafði látið svo um mælt: „Við
ætlum ekki að glata i kosningum
þvi, sem kostað hefur Portúgal
svo mikið að öðlast.”
Helvítishræösla
sveitamanna
Og þótt einhverjum kunni
undarlegt að virðast er veruleg
hætta á þvi að portúgalska
þjóðin kjósi sig á ný i klær
ihaldsins. Kommúnistar eru að
visu öflugir meðal verkalýðs i
samsærinu, og ef að vanda lætur
um slík tilfelli mun óhætt að
ganga að þvi sem gefnu.
Ýmisleg teikn á hinum
pólitiska himni höfðu raunar um
skeið bent til þess að gagn-
byltingartilraun væri i aðsigi.
Ekki alls fyrir löngu kom upp sá
kvittur að Sovétrikin hefðu
beðið portúgölsku stjórnina um
hafnaraðstöðu fyrir fiskiskip.
Enginn virðist vita um uppruna
þess kvitts, en hann minnir
sláandi á morgunblaðsfréttir
um sovéska kafbáta og flug-
vélar I grunsamlegri nálægð við
Austfirði, eða dufl frá sama
stórveldi á sunnlenskum
fjörum, en slikar og þvilikar
„fréttir” eru nokkuð vissar með
að skjóta upp kollinum á
viðkvæmum augnablikum i
pólitikinni hér innanlands. Og
daginn áður en gagnbyltingar-
tilraunin var gerð var ráðist á
fund miðflokksins lýðdemó-
krata (Pardido Popular
Democartico, PPD) i Setúbal
skammt frá Lissabon, og
kenndu lýðdemókratar
kommúnistum um. Cunhald,
leiðtogi kommúnista, hefur
hinsvegar lýst þær ásakanir
ósannindi og er fullyrt af hálfu
kommúnista að hér hafi verið að
verki flugumenn frá hægri, sem
hleypt hafi upp fundinum til að
koma sökinni á kommúnista og
aðra vinstrimenn, i þeim til-
gangi að spana almennings-
álitið gegn kommúnistum og
bæta þannig skilyrðin fyrir
gagnbyltingu.
Sem sagt, i bráðina virðist
gæfan brosa við vinstrimönnum
i Portúgal. Hitt er svo annað
mál að mörg eru ljónin á vegi
þeirra, efnahagslegt ófremdar-
ástand, sem þeir taka að erfðum
frá ihaldi Salazars og Caetanos,
og svo eru það nágranninn
Frankóspánn og „bandamenn-
irnir” i Nató. Hætt er við að
margur i þeim herbúðum hafi
um þessar mundir erfiðar
draumfarir út af siðustu
atburðum i Portúgal. dþ