Þjóðviljinn - 15.03.1975, Blaðsíða 6
• SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Laugardagur 15. marz 1975.
Nqskaupstaður
Ekkert atvinnuleysi
Vélar frystihússins prufukeyrðar í nœstu viku
Vélar frystihússins i Nes-
kaupstað verða væntanlega
prufukeyrðar i næstu viku og er
gert ráð fyrir að það geti hafið
starfsemi fyrir eða um páska,
að sögn Ragnars Sigurðssonar,
hafnarstjóra i Neskaupstað.
Hér hefur ekkert atvinnuleysi
verið, sagði Ragnar ennfremur.
Fiskurinn af Barða og Bjarti
hefur verið saltaður nema ýsan,
sem farið hefur á Seyðisfjörð
eða aðra nærliggjandi staði.
Barði fiskaði fyrir 14,5 miljónir i
janúar og febrúar og Bjartur
fyrir 13,1 miljón.
Þá hefur niðurlagningarverk-
smiðjan verið starfrækt svo til
frá áramótum, og aðallega unn-
inn ufsi og eitthvað litillega af
hrognum.
Þó að loðnu sé ekki landað á
staðnum I vetur, hefur verið
nokkuð að gera á netaverkstæö-
inu, þótt vinnuálagið þar hafi aö
sjálfsögöu verið minna þennan
vetur en oft áður. Bátar hafa
alloft komið inn með nætur sfn-
ar til viðgerðar, bæði heimabát-
ar og bátar lengra að komnir.
Unnið hefur verið að þvi að
rifa bræðsluna niður og að ná
þeim tækjum út úr henni, sem
heilleg eru. Nokkur snjór er i
verksmiðjunni ennþá og eitt-
hvað af viðkvæmum hiutum
liggur þar undir snjó. Búiö er að
ná út úr verksmiðjurústunum
sjóðaranum, pressunni, skil-
vindunum og miklu af rafmót
urum, og er talið að flest af
þessu sé viðgerðarhæft. Þá var
miklu af varahlutalager verk-
smiðjunnar bjargað úr snjón-
um. Ekki treysti Ragnar sér til
að segja ákveðið til um það
hvort bræðslan yrði flutt inn að
nýju höfninni eða ekki, en taldi
þó likur á að svo yrði. Til þess
þarf að vinna mikið starf við
nýju höfnina, og er það reyndar
gert, og mun hönnun hafnarinn-
ar t.d. að mestu vera lokið.
Steypusalan og Bifreiðaþjón-
ustan hafa verið að koma sér
fyrir til bráðabirgða I i húsnæði,
sem Steypusalan á. Verkstæðis-
starfsemi Steypustöðvarinnar
gæti fariö að hefjast, og verið er
að vinna að kaupum á steypubil.
Miklu tókst að bjarga úr snjón-
um af varahlutalager Bifreiða-
þjónustunnar, og er þess vænst,
að hún geti hafið starfsemi
næstu daga.
Oliusnjórinn er nú kominn i
örugga vörslu i bátakvinni og i
hráefnisgeyma Sildarbræðsl-
unnar, en þar verður hann lát-
inn biða þar til snjórinn bráðnar
og þá verður oliunni fleytt ofan-
af.
Unnið er að finhreinsun svæð-
anna, sem olian fór yfir. Er það
gert með þvi að sprauta yfir
svæðin oliueyðandi efnum og
siðan aftur með vatni eða sjó.
—úþ
Fimm sovéskir
listamenn
á afmœlistónleikum MÍR
Fimm kunnir listamenn
frá Sovétríkjunum koma
fram á afmælistónleikum
og danssýningu, sem fé-
lagið MÍR efnir til í sam-
komusal Menntaskólans
við Hamrahlíð sunnudag-
inn 16. mars kl. 14.30.
Listamennirnir eru:
Vitali Gromadski bassasöngv-
ari frá Moskvu, einsöngvari við
Filharmóniuna i Moskvu og verð-
launahafi I hinni alþjóðlegu Schu-
mann-samkeppni söngvara.
Boris Feoktistof, einleikari á
balalæka, heiðurslistamaður
Rússneska sovétlýðveldisins.
Svetlana Zvonaréva, pianóleik-
ari, konsertmeistari við Fil-
harmóniuna i Moskvu.
Þjóðdansaparið Galina Sjein og
Vladimir Vibornof, eindansarar
hjá Moskonsert.
Listamennirnir eru i 7 manna
sendinefnd, sem hingað kemur á
vegum Sambands sovéskra vin-
áttufélaga og félagsins Sovétrik-
in-tsland i tilefni 25 ára afmælis
MIR, Menningartengsla Islands
og Ráðstjórnarrikjanna. Með
þeim eru tveir af forystumönnum
félagsins Sovétrikin-ísland: Stúd-
enetski aðstoðarsjávarútvegs-
ráðherra Sovétrikjanna, formað-
ur félagsins, og A. Sorokin einn af
stjórnarmönnum þess. t upphafi
tónleikanna i MH á sunnudag
flytur Stúdenetski ráðherra
ávarp. Einnig flytja ávarp Vil-
hjálmur Hjálmarsson mennta-
málaráðherra og prófessor Mar-
grét Guðnadóttir varaformaður
MIR.
Til stóð að hinn kunni norrænu-
Velta Hagkaups um
915 miljónir í fyrra
Hið þekkta sovéska þjóðdansapar, Galina Sjein og Vladimfr Vfbornof,
en þau koma fram á afmæiistónleikum MtR á morgun IMH.
Sigrún Jóhannsdóttir verslunarstjóri hjá Hagkaup f Kjörgarði og Stef-
án Gunnarsson, yfirsmiöur.
Þekktur skólakór
í heimsókn til MH
A föstudagskvöid kom skóiakór
frá Viborg Kadedralsskoie, sem.
er menntaskóli I Viborg á Jót-
landi.f heimsókn til Menntaskól-
ans I Hamrahliö. tkórnumeru 55
nemendur og þrir kennarar eru
með I förinni, auk söngstjórans,
Ole Gad.
Kór þessi er mjög eftirsóttur og
hefur sungið viða um lönd. Und-
anfarið hefur hann farið tvisvar á
ári um Evrópu i söngferðir. Kór-
inn syngur i hátiðasal Hamrahlfð-
arskóla á morgun, sunnud. 16.
mars kl. 20.30 og gefst þá ibuum
höfuðborgarsvæðisins tækifæri á
að heyra þennan ágæta kór. Að-
göngumiðar verða seldir við inn-
ganginn. Krikjutónleika heldur
kórinn i Háteigskirkju miðviku-
daginn 19. mars kl. 20.30. Kórinn
og kennararnir munu dveljast hér
sex daga og búa á heimilum hjá
nemendum og kennurum
Mentnaskólans við Hamrahlið.
Kórfélagar ferðast i nágrenni
Rvikur og til Vestmannaeyja og
syngja á Laugarvatni á fimmtu-
dag.
Það kom fram á fundi með
starfsfólki llagkaups f hinum
nýju húsakynnum f Kjörgarði, að
velta fyrirtækisins á sl. ári nam
915 miljónum króna, en það var
um 80% aukning frá árinu áður.
Hjá fyrirtækinu eru nú á launa-
skrá um 200 manns, þar af um 80
manns á saumastofu Hagkaups,
sem hefur aukiö starfsemi sina ár
frá ári.
Verslunarstjóri hjá Hagkaup I
Kjörgarði er Sigrún Jóhannsdótt-
ir, en hún var áður verslunar-
stjóri i Lækjargötunni. Hún sagði
aö i versluninni yrði á boðstólum
fatnaður, vefnaðarvara, skóvara,
búsáhöld, gjafavara og nýlendu-
vara. Sérstök deild i versluninni
er fyrir tiskufatnað táninga og
mikiö af þeirri framleiðslu er
saumað hjá Hagkaup. Þá geta
viöskiptavinir fengið sér hress-
ingu á kaffistofu, sem tekur um 30
manns i sæti. Um 20 manns munu
vinna i versluninni.
Innréttingar hannaöi Björn
Björnsson, en yfirsmiður var
Stefán Gunnarsson. Hann hefur
séð um innréttingarsmiði fyrir
Hagkaup frá byrjun.
Sú breyting varð á hjá fyrri
verslunum á 1. hæð, að íiltima
flutti á efri hæð, bókaverslunin
flutti á Skólavörðustiginn en bús-
áhaldadeildin og fatadeildin
hættu rekstri. Happdrætti háskól-
ans flutti upp á 2. hæð, en Skeifan
er áfram með húsgögn i kjallar-
anum.
Hagkaup hóf starfsemi árið
1959 i verslunarhúsnæði við
Miklatorg, en hefur siðan fært út
kviarnar hröðum skrefum. Pálmi
Jónsson er einkaeigandi þess.
sj
íræðingur M. Stéblin-Kamenski
prófessor i Leníngrad ætti og sæti
I sendinefndinni, en hann gat þvi
miður ekki komið að þessu sinni
og fellur þvi fyrirhugaður há-
Hinn árlegi kynningar- og nem-
endamótsdagur skólans —
skrúfudagurinn — er haidinn i
fjórtánda sinn I dag laugardaginn
15. mars.
t dag gefst væntanlegum nem-
endum og foreidrum þeirra — svo
og forráðamönnum hinna yngri
nemenda og öðrum sem áhuga
hafa, kostur á að kynnast nokkr-
um hluta af skólastarfinu, þar eð
nemendur verða við störf í öllum
verklegum deildum skólans: i
vélasal, raftækjasal, smiöastofu,
rafeindatæknistofu, kælitækni-
stofu og efnarannsóknastofu.
Nemendur veita upplýsingar um
tækin og skýra gang þeirra.
Nemendur Vélskólans búa sig
undir hagnýt störf f þágu fram-
leiðsluatvinnuveganna og má þvi
búast við að marga fýsi að kynn-
ast þvi með hvaða hætti þessi
skólafyrirlestur hans niður.
Samkoman i Mennaskólanum
við Hamrahlíð á sunnudaginn
hefst kl. 14.30 og er öllum heimill
aðgangur meðan húsrúm leyfir.
undirbúningur fer fram, en á sfð-
ari árum hefur nokkuð ör þróun
verið I kennsluháttum skólans.
Skólinn telur ekki siður mikil-
vægt að halda tengslum við fyrr-
verandi nemendur og álitur það
vera til gagns og ánægju fyrir
báða aðila.
Nemendur skólans eru um 340 i
vetur, þar af 300 i Reykjavik.
Dagskráin hefst með hátiðar-
fundi i hátiöarsal Sjómannaskól-
ans kl. 14.00. Að loknum hátiðar-
fundi hefst svo kynning á starf-
semi skólans og stendur kynning-
in til kl. 17.00.
Kaffiveitingar verða á vegum
Kvenfélagsins Keðjunnar i veit-
ingasal Sjómannaskólans frá kl.
14.00.
Að skrúfudeginum standa þess-
ir aðilar: Vélskóli tslands, Skóla-
félagið, Kvenfélagið Keðjan og
Vélstjórafélag íslands.
Auglýsingasiminn er 17500
Skrúfudagur