Þjóðviljinn - 15.03.1975, Síða 11
Laugardagur 15. marz 1975. ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 11
Alþingi ber að hefja baráttuna
gegn áfenginu til aukins vegs
áfengisgróðanum ár hvert
Ekki nóg að
Fyrir nokkrum dögum
f lutti Helgi Seljan á alþingi
þá ræðu um áfengismálin,
sem við birtum í heild hér á
eftir. Ræðan var f lutt, þeg-
ar Helgi mælti fyrir þings-
ályktunartillögu, sem hann
stendur að ásamt þing-
mönnum úröllum flokkum
um skipan nefndar til að
gera tillögur um úrbætur í
áfengismálum.
Tillaga þessi um nefndarskipan
um áfengismál var borin hér
fram i desembermánuði, en er nú
fyrst að koma á dagskrá, að sumu
leyti vegna óska frá flutnings-
mönnum nú eftir áramótin, en til-
lagan hljóðar þannig, að Alþingi
álykti að kjósa nú þegar nefnd
manna, er hafi það verkefni að
gera úttekt á stöðu áfengismál-
anna i dag, sérstaklega með tilliti
til hrikalegra afleiðinga af
ofneyslu áfengis, sem hvarvetna
blasa við. Nefndin skal leitast við
aö gera tillögur til úrbóta. Hún
skal hraða störfum sem mest og
ljúka bráðabirgðaáliti og tillögu-
gerð fyrir 15. febr. nk. Nefndin
skal skipuð 5 mönnum eftir til-
nefningu hvers þingflokks.
Alþingi getur ekki
látið sem ekkert sé
Tillaga þessi var sem sagt flutt
snemma i desember og flutnings-
menn eru úr öllum flokkum, auk
min þeir Karvel Pálmason, Jón
Ármann Héðinsson, Sverr-
ir Bergmann, sem þá sat á þingi
,,sem varam. og Oddur Ölafsson.
Þessi tillaga var sem sagt flutt i
þvi skyni, að e.t.v. mætti hraða
þessu máli þannig, að unnt yrði,
að afgreiða það fyrir áramót og
þessi nefnd hæfist þegar handa og
skilaði bráðabirgðaáliti og til-
lögugerð fyrir þann tima, sem nú
er nokkuð löngu liðinn^
Þetta varhugsaðhjá okkur sem
skyndiathugun og álit manna,
sem ynnu þetta verkefni og ef, —
þ.e.a.s. ef eitthvað á að gera i
þessum málum, skiptir náttúru-
lega dagsetning og annað þvi um
likt ekki okkur flutningsmenn
neinu meginmáli. Það er aðalat-
riðiö að vekja athygli á vanda-
málinu I heild hér I sölum Alþing-
is, þvi eins og segir I greinargerð
þá getur Alþingi ekki látið sem
ekkert sé þegar hörmulegar af-
leiðingar áfengisneyslu lands-
manna birtast okkur daglega, oft
á þann hátt, að beint manntjón
hlýst af.
Ástæðurnar fyrir flutningi
þessarar tillögu voru annars veg-
ar ástandið I áfengismálum okkar
og einmitt á þessum tima sem
hún var flutt, hrikalegar fréttir
um það ástand, ýmiss konar
glæpú afbrot af alvarlegu tagi,
þar sem ástæðan var ætið hin
sama, neysla áfengis, ofneysla á-
fengis, og okkur var ljóst öllum,
að afsökunin fyrir þessu öllu sam-
an hefur venjulega verið einföld-
uð: Menn voru undir áhrifum,
þegar þessir verknaðir voru
drýgðir og þeir hafa almennings-
álitið hér á landi að miklu leyti
með sér. Það er kannski einmitt
það, sem er nauðsynlegast að
reyna að breyta, þ.e. álit almenn-
ings gagnvart neyslu áfengis og
þá ekki sist varðandi ofneyslu
þess. Hins vegar er neysla áfeng-
is á Islandi orðin þannig, að að
langmestu leyti er um ofneyslu að
ræða.
Hin ástæðan var sú, að þegar
tillaga okkar kom fram hér fyrr á
þessu þingi um afnám vinveitinga
I veislum hins opinbera, var að
þvi vikiö, að sú tillaga snerti að-
eins yfirborð þessara mála. Við
kæmum ekki að kjarnanum og
þess vegna vildum við þá koma
þessu máli að hér i öllum sinum
geigvænleik. Aðeins væri það þó
spuming um aðferð og þá vænt-
ráðstafa bara
anlega og vonandi aðgerðir i
framhaldi af þvi. Menn hafa orðið
töluverða ótrú á þvi að setja
nefnd i hvaðeina, og nefndar-
skipun er e.t.v. ekki likleg tilraun.
Tillögur sænskrar
þingnefndar
En við höfðum að nokkru fyrir
okkur skipan sænska þingsins
sem skipaði fyrir nokkrum árum
nefnd til þess að gera itarlega út-
tekt á áfengismálum i Sviþjóð.
Reynslan af þeirri nefnd var sú,
að hún skilaði að visu mjög itar-
legu áliti, en hennar timi var ekki
i neinu samræmi við það sem við
lögðum til, þvi að hún mun hafa
skilað áliti eftir 7 ára starf, að þvi
er ég best veit. En álit hennar og
aðgerðir þær, sem hún leggur til
eru hins vegar býsna athyglis-
verðar og ég get ekki stillt mig
um það, að minna á helstu niður-
stöðurnar frá þessari sænsku
nefnd i þessu sambandi, þó að
flest af þvi, sem ég nefni hér hafi
áður verið nefnt i sambandi við á-
fengisvandamálið. Ég sem sagt
geri ekki nákvæma grein fyrir þvi
hér, það tæki of langan tima, en i
nánari útfærslu þessara atriða
kemur margt mjög athyglisvert i
ljós i niðurstöðum þessarar
sænsku þingnefndar. Og ég vik þá
að fyrsta atriðinu, en fyrsta atrið-
ið i tillögu sænsku nefndarinnar
var einmitt þetta, að svipta á-
fengið og áfengisneyslu öllum
dýrðarljóma. Þetta var sem sagt
atriði númer eitt og mig langar til
að minnast sérstaklega á það i
þessu sambandi vegna þess að á-
stæðurnar fyrir tillöguflutningi
okkar um það, að hið opinbera
gangi á undan með góðu fordæmi,
gengur einmitt i þessa sömu átt,
að svipta áfengið og áfengisneysl-
una öllum dýrðarljóma. Sá dýrð-
arljómi kemur ekki sist ofan að
og þess vegna er full ástæða til
þess að minna á þetta hér, að
þetta er það atriði sænsku
nefndarinnar sem hún setur núm-
er eitt. I öðru lagi leggur hún til,
að fræðsla hvers konar verði efld
og bein kennsla tekin upp um
skaðsemi áfengis. Fræðslan verði
út frá læknisfræðilegu, sálfræði-
legu, þjóðfélagslegu og efnahags-
legu sjónarmiði. Fyrir þessari
fræðslu er svo gerð náin grein og
mjög merkileg i þessari sænsku
skýrslu. 1 þriðja lagi, að menn
geri sér ljósa grein fyrir umfangi
vandamálsins, viðurkenni það
sem stórvandamál og um leið
reyni þá að komast fyrir orsakir
þess og vita eins gjörla og unnt er
um útbreiðslu þess. I fjórða lagi,
að berjast sérstaklega gegn allri
áfengisneyslu á unglingsárum,
gera barnadrykkju útlæga með
samstilltu átaki skóla, foreldra og
yfirvalda.
Þetta er nú kannski sá þáttur-
inn, sem er i dag hvað hrikaleg-
astur hjá okkur, vegna þess að i
þessum málum hefur þróunin
orðið svo ör niður á við núna allra
siðustu árin.
t fimmta lagi, að samræma
baráttuna gegn áfengisbölinu,
þem þjóðfélagsháttum og þvi um-
hverfi, sem við i dag lifum við.
Þetta er mjög mikilvægt atriði
vegna þess, að margir þeir aðilar,
sem i dag berjast gegn þessu böli
hafa einmitt ekki aðlagast nægi-
lega þvi þjóðfélagsumhverfi, sem
við nú lifum i og eru of mikið i
gamla timanum varðandi þá bar-
áttu, sem þeir heyja.
t sjötta lagi, að hafa jákvæð á-
hrif á umgengni fólks gagnvart á-
fengi á öllum sviðum, ekki sist i
skemmtanalifinu, þar sem já-
kvæð áhrif eru mikilvægust.
Um þetta þarf vist ekki mikið
að segja hér hjá okkur, þar sem
allt okkar skemmtanalif er svo
gegnsósa af vinneyslu eins og
raun ber vitni.
t sjöunda lagi, að taka áfengis-
varnir i rikari mæli inn i heilsu-
gæsluna, en nú er og tryggja með
þvi fyrirbyggjandi aðgerðir, og i
áttunda lagi, að koma i veg fyrir
heimabrugg, smygl og annan ó-
löglegan tilbúning og innflutning
áfengra drykkja.
Það þvo allir
hendur sínar
Þetta eru svona samandregin
helstu atriðin, sem mér sýndust
koma út úr þessari sænsku
skýrslu, en henni fylgir mjög náin
og góð útfærsla og aö mörgu leyti
mjög lærdómsrik og ég held að
við mættum taka mikið mið af
Eftir
Helga Seljan,
alþingismann
henni, ef — ég segi ennþá ef, —
okkur er yfirleitt nokkur alvara
með að taka á þessu máli, ef okk-
ur er i raun og veru nokkur alvara
með það, að þetta sé eitthvert
vandamál. Maður efast satt að
segja um það, af bæði ræðum og
skrifum um þessi mál, að þarna
sé nokkuð á ferðinni annað en
það, sem við megi búast og sem
sjálfsagt sé að una við.
þingsjá
Við vildum vekja athygli á þvi,
að það væru jafnvel nauðsynleg
einhver skyndiúrræði i þessum
málum, en viö leggjum einnig á-
herslu á, að allt vandamálið kall-
ar á nákvæma könnun og hvoru
tveggja þarf að athuga. Nefnd
eins og sú, sem hér er lagt til að
verði skipuð gæti t.d. dæmt þar
um.og niðurstaða jafnvel skjótrar
athugunar gæti bent á einhverja
leið fram á við.
Það er rétt, vandamálið er
margþætt og vandamálið er
hrikalegt og spurningin er um
það, hverja á að kalla til ábyrgð-
ar varðandi þetta vandamál. Eitt
er þó að minnsta kosti vist, að allt
okkar tal og allar okkar gerðir i.
þessum efnum einkennast af á-
byrgðarleysi. Það er enginn sek-
ur. Það þvo allir hendur sinar.
Það er nú einu einni svo, að
hlutverk Alþingis er að setja lög.
Auðvitað vitum við það, að þau
lög eru misjafnlega haldin og
vafalaust eru flest lög i einhverju
brotin, en fá hygg ég að séu þó svo
almennt og alvarlega brotin sem
einmitt okkar áfengislöggjöf. Og
þá fyrst og fremst að þvi er tekur
til barna og unglinga og að öllu
hinu frátöldu er vandinn stærstur
þar og þar af leiðandi eru lögbrot-
in þar einnig alvarlegust.
Ég hef nokkrar skýrslur i
höndum, sem sanna þetta ótvi-
rætt, bæði varðandi börn og ung-
linga og einnig varðandi löggæsl-
una sjálfa, dómsmálaráðuneytið
t.d., sem virðist gefa út vinveit-
ingaleyfi til hverra sem er, af
hvaða tilefni sem er. Það þurfa
varla held ég að koma saman, að
þvi er manni sýnist þar, nema
svona 10—15 menn, til þess að fá
vinveitingaleyfi, þó að skýr á-
kvæði séu um það i lögum að svo
skuli ekki vera. Skýrslur löggæsl-
unnar segja sitt um afleiðingar og
við vitum að afbrot framin i ölæði
eru nær daglegt brauð. Tölur frá
Áfengisverslun rikisins segja sitt
um fjármunasóunina, sem er
gifurleg og alvarleg,og þó er að-
eins hálfsögð sagan i sambandi
við fjármunasóunina þar. Eftir er
að telja hinar glötuðu vinnustund-
ir eða ónýtu vinnustundir og eyði-
legging ýmiss konar, bæði efna-
leg sem andleg, sem fylgir i kjöl-
farið. En hrikalegar tölur mil-
jarða varðandi söluna sjálfa
segja þó sitt. Geðlæknar og
taugalæknar segja sina sögu um
fjölþættar afleiðingar áfengis-
neyslu á andlegt heilsufar fólks.
Af þvi mætti segja marga sorgar-
sögu um fólk i blóma lifsins.
Þannig mætti áfram telja.
Hin glötuðu mannsefni
Einkenni skemmtanalifsins i
dag eru afgerandi og hafa ótrúleg
áhrif, e.t.v. meiri en allt annað.
Vínneysla við hvert hátiðlegt
tækifæri, sem kallað er, gefur á-
fenginu einmitt þann dýrðar-
ljóma, sem sænska nefndin lagði
til númer eitt að svipt yrði af. Það
er rétt að tillaga okkar um afnám
vinveitinga i opinberum veislum
er smáskref i þá átt, en hún er
e.t.v. mikilvægari en menn grun-
ar. Þessi vinneysla til hátiðar-
brigða, eins og það er svo fallega
orðað, endar oftar en ekki með ó-
sköpum, þó ekki sé það almennt,
fremur einstaklingsbundið. Og ó-
talin er enn sú saga, sem gerist á
heimilum, áhrif vinneyslunnar á
uppeldi, á fjölskyldulif. Ofneysla
áfengis kallar þar á upplausn og
hörmungarástand oft á tiðum. Oft
er þetta ástand umborið, þó þessi
ofneysla skilji i raun eftir sig djúp
spor i sálarlifi barna og unglinga.
Þetta hafa m.a. taugalæknar og
geðlæknar leitt skýrt i ljós við
könnun á vandamálum fólks á
fullorðinsárum, að orsakir til ým-
iss konar andlegra veilna og sjúk-
leika hefur mátt rekja beint til
erfiðleika af þessum sökum i upp-
eldinu. Það þarf heldur ekki að
fara beint út i það, að fara út i
sögu rónans svokallaða, sem á
sér ekki viðreisnar von, sem við
allir erum búnir að dæma úr leik
og viljum helst ekkert fyrir gera
helst ekki vita af, eða ólæknandi
sjúklingsins, sem þó er ekki i
þessum hópi,og við þurfum ekki
að fara langt út i það, að tala um
hin glötuðu mannsefni, sem við
tölum gjarnan um af viðkvæmni
oft á tiðum, en ypptum svo aðeins
öxlum. Þarna voru á ferðinni
hæfileikarog atgervi, sem glötuð-
ust fyrir vinneysluna og við þvi er
i rauninni ekkert að segja. Þetta
er viðkvæðið. Allt er þetta svo
margsagt, að það þarf ekki að
vera að halda langa tölu þar um.
Spurningin er aðeins, hvað á að
gera, eða kannski fremur, á eitt-
hvað að gera? Er kannski best að
láta allt reka á reiðanum og er
það kannski einmitt hlutverk Al-
þingis að skipta sér hér ekkert af
vandamálinu, gera ekki neitt?
Verður aðflutnings-
bann eina leiðin?
Mér hefur, siðan ég kom hér á
Alþingi, sýnst að það væri ærið
mikil tilhneiging til þess að gera
ekkert. Ég skal játa það, að ég hef
oft verið i vafa um hvaða leiðir
ætti að fara að þvi marki, sem ég
teldi æskilegast, og heildarlausn
hef ég ekki á takteinum. En jafn-
vel núna á þessum siðustu timum,
þegar þetta vandamál hefur færst
alveg sérstaklega niður á við i
aldursflokkunum, niður til ung-
linga og jafnvel barna. Þá hef ég
hallast æ meir að minu gamla
viðhorfi, sem ég hafði unglingur,
að með illu skuli illt úr drifa, að
aöflutningsbann væri tilraun,
auðvitað djörf og auðvitað dýr ef
hún mistækist, en óneitanlega
kemur hún upp i hugann æ sterk-
ar þvi fleiri skuggalegar myndir,
sem upp eru dregnar sem bitur
sannleikur þessa alvörumáls. En
ég er ekki að leggja þá leið til.
Sjálfsagt er að leita allra leiöa.
Og ég hef lengi verið þeirrar
skoðunar, að um leið og almenn-
ingsálitið hefði breyst, væri orðið
neikvætt áfengisneyslu yfirleitt,
þá værum við þegar komin spor i
áttina, kannske komin vel á veg
með að snúa þróuninni algerlega
við. Hitt get ég ekki, og viö
flutningsmenn, við getum hrein-
lega ekki unað við það, að Alþingi
sitji alltaf hjá i þessum málum og
aðgerðarleysi þess sé algert,
slikt er vitavert og ábyrgðar-
laust. Það er ekki nóg að setja
lög, sem við vitum að eru svo
þverbrotin, jafnvel þar se'm sist
er ástæða til. Og betri
framkvæmd þegar settra laga
hlýtur auðvitað að vera sjálfsögð
krafa. Það er rétt, þau lög eru
þegar i dag illa framkvæmd af
dómsvaldinu i landinu. Verulega
illa framkvæmd. Og einstakar
kvartanir sem berast frá aðilum i
þessum efnum, sem eiga þó að
heita opinberir aðilar jafnvel,
einstakar kvartanir frá þessum
aðilum eru æ ofan i æ hundsaðar i
hinu háa dómsmálaráðuneyti.
Viö teljum
fordæmið
mikilsvaröast.
En fleira þarf vitanlega til að
koma. Ég er viss um að nefnd
sem ynni starf sitt af einlægni og
af afli hlyti að geta visað á ein-
hverja útgönguleið og ég álit að
vandamálið sé þess eðlis, að það
megi einskis láta ófreistað. Min
skoðun er sú og okkar flutnings-
manna allra og ég hygg miklu,
miklu fleiri, að Alþingi eigi ekki
að hafa það eitt hlutverk i þessum
málum, að ráðstafa áfengisgróð-
anum á fjárlögum ár hvert. Við
flutningsmenn allir erum opnir
fyrir öllum nýjum leiðum og
nýjum hugmyndum. Við teljum
þó fordæmið mikilsverðast og á
það verður aldrei lögð of þung
áhersla. Við leggjum einnig
áherslu á það, að almenningsálit-
ið verði sterkasti bandamaðurinn
i baráttunni. Það er nú i dag öfl-
ugasti óvinur okkar i þessari bar-
áttu. En eitt hlýtur þó öllum að
vera ljóst, að það er aðgerða þörf
og það ber að gera tilraun og
Alþingi á að hafa þar frumkvæði,
hefja þessa baráttu til aukins
vegs, og gefa baráttunni gegn
áfengisbölinu þannig aukið gildi,
veita eitthvert fordæmi i þessum
efnum. Ég er nefnilega sannfærð-
ur um það, að allir þeir mörgu,
sem úti i þjóðfélaginu starfa að
baráttu gegn áfengisbölinu, þeir
meta framlag okkar mikils, ef
það væri gert i fullri alvöru. Þvi
er þessi tillaga okkar flutt.
Vitanlega mun sú nefnd sem
fær þetta mál til athugunar
breyta dagsetningum. Fyrir okk-
ur skiptir það ekki öllu máli,
hvort hér verður um nefnd að
ræða, sem skili bráðabirgðaáliti
eða hvort hér verður komið á
fastri nefnd sem vinnur að þess-
um málum. Menn segja kannske,
að tilsé áfengisvarnarráð og aðr-
ir aðilar, sem með þessi mál eigi
að fjalla, en ég held að það sé ekki
nokkur vafi á þvi, að hér þurfi að
koma til nýr aðili, einmitt beint
frá þinginu sjálfu, að menn jafn-
vel hér úr þinginu vinni að þessu
vandamáli beint og geri um það
tillögur, hafi t.d. þessar sænsku
tillögur og hina itarlegu greinar-
gerð sem þeim fylgir til
snokkurrar viðmiðunar: þvi
skiptir það okkur ekki neinu máli,
hvernig þessari nefnd verður
falið að starfa, en við leggjum á
það höfuðáherslu, að hún fái að
starfa, að hún verði sett, þrátt
fyrir allt og þrátt fyrir misjafna
reynslu okkar af nefndum
yfirleitt.