Þjóðviljinn - 26.03.1975, Qupperneq 2
2 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Fimmtudagur 27. marz 1975.
AFTÚTNUN
Til er gömul saga af hinum fræga þýska
hljómsveitarstjóra Wilhelm Furtwangler.
Verið var að æfa óperuna Tannhauser eftir
Wagner í Vínaróperunni, þegar Furtwangler
allt í einu sló af, án nokkurrar augljósrar
ástæðu. En brátt kom í Ijós, hverju hafði verið
ábótavant í túlkun hljóðfæraleikaranna, því
meistarinn hrópaði til hornistanna: ,,Warum
werden sie nicht rot im Gesicht?" Og ekki var
Furtwangler ánægður fyrr en blásararnir
sýndu tilhlýðilega „tútnun" í túlkun sinni.
Mér kom þessi saga í hug, þegar ég las
tónlistargagnrýni í Vísi s.l. laugardag undir
fyrirsögninni — „Að sjá blásara tútna" —
Mér er persónulega kunnugt um það, að
mikill hörgull er hérlendis á hæf um og mennt-
uðum tónlistargagnrýnendum. Þess vegna er
Vísir óneitanlega meira en lítið vei settur að
hafa á sínum snærum tónlistarsérfræðing,
sem greinilega er ótrúlega f jölvis i tónmennt,
íhugull sérfræðingur og opinskár sannleiks-
elskandi, sem að því er virðist gæti allt að þvi
tekið sér orð f relsarans í munn „Guð f yrirgef
þeim, því þeir vita ekki hvað þeir gjöra".
Ef einhver tónlistarunnandi skyldi hafa
misstaf f ramangreindri gagnrýni, sl. laugar-
dag, þá má bæta lítillega úr því með því að
endurprenta hana, en af ótta við að það verði
ekki gert, ætla ég að leyfa mér að birta helstu
gullkornin úr gagnrýninni, ef vera kynni að
það gæti orðið til að lyf ta tónlistinni í landinu
nokkuð í þá átt sem henni ber. Og gef ég nú
sérfræðingnum orðið. Greinin hefst á þessum
orðum:
„Að sjá blásara Sinfóníuhljómsveitar
(slands tútna, roðna og belgjast upp af ákafa,
áreynslu og spilagleði er það ánægjulegasta,
sem ég hefi orðið vitni að á sviði Háskóla-
bíós".
Lítið er ungs manns gaman hefði nú
áreiðanlega verið sagt í sveitinni forðum, og
getur undirritaður ekki neitað því að honum
þykir heldur miður að hafa misst af þessari
umræddu tútnun, því fram kemur í greininni
að pákuleikarinn hafi meira að segja sýnt
umtalsverða tútnun líka og eins og Furt-
wángler hef ur löngu sýnt f ramá er ein megin-
undirstaða túlkunar í tónlist sjálf tútnunin.
Undirritaður hef ur æði oft haft tækifæri til að
hrífast af frábærri tútnun íslenskra hljóð-
færaleikara; þó verð ég að segja að mér er ef
m vill minnisstæðust hin blæbrigðaríka og
hrífandi tútnun pólska hörpuleikarans Spöndu
Waralövsku, sem lék með Sinfóníuhljóm-
sveitinni hérna um árið. Það er ótvírætt eftir-
minnilegasta og áhrifaríkasta tútnun, sem ég
hef orðið vitni að, þó að vísu hafi komið í Ijós
seinna um kvöldið að listakonan hafði drukkið
afan í Antabus til að ná hinum hárfínni blæ-
brigðum tútnunarinnar. En áfram með gagn-
rýnina í Vísi:
„Strax i upphaf i tónleikanna fann maður að
þetta yrði gott kvöld. Hljómsveitin náði strax
saman, hljómurinn þéttur og fallegur,
tónmyndun mjög góð, og allar innkomur svo
gott sem hárnákvæmar".
Af þessu er augljóst að innkomurnar hafa
verið nákvæmar, því það sem er svo gott sem
hárnákvæmt verður að teljast nákvæmt.
Þá ber að fagna því að hljómsveitin skyldi
strax ná saman, á því hefur oft orðið alvar-
legur misbrestur, sem er mjög til baga eink-
um ef allir eiga að spila sama lagið. Og þá
kemur sérfræðingurinn að einleikaranum.
„Hún kom, lék og svo gott sem sigraði" (og
síðar) „Hún er ákaflega „tekniskur" spilari,
hef ur mikinn kraft og eld í sér, og þó að tón-
myndun haf i ekki alltaf verið með besta móti
má kenna „nervösíteti" um, — eða þá, að
túlkun hennar og hljómsveitarstjórans hafi
ekki farið saman.-. Hljómsveitin hefði á hinn
bóginn mátt fylgja henni og hljómsveitar-
stjóranum betur, það var eiginlega eini mis-
bresturinn á leiknum."
Ef reynt er að taka kjarnann úr því sem að
f raman er sagt, þá virðist það einhvern veginn
svona: Hljómsveitin nær strax saman, inn-
komur eru ekki hárnákvæmar, einleikarinn
kom og lék (hús sigraði ekki), túlkun einleik-
arans og hljómsveitarstjórans fór ekki saman
og eini misbresturinn á leiknum var að hljóm-
sveitin fylgdi ekki hljómsveitarstjóranum og
einleikaranum. Þessi niðurstaða verður þeim
mun undarlegri ef litið er á framhaldið:
„Held ég að hljómsveitin hafi aldrei látið
eins vel af stjórn, eða leikið jafn vel hjá
nokkrum manni, hver einasta bending var
tekin til greina á svipstundu, og þurfti hann
ekki að hreyf a sig mikið til að fá það sem hann
vildi. Hann er ekki að eyða mikilli orku í
stjórnina, öll slög hnitmiðuð og mjög sam-
kvæmur sjálfum sér, ákveðin hreyfing táknar
alltaf sama hlutinn" (og síðar) „Fannst mér
sem þar væri hnefaleikakappi á ferð, sem
ætlaði að greiða rothöggið." (Og nú kemur
dálítið skrýtið) „Sjaldan hefur hljómsveitar-
stjóri fengið betri viðbrögð við bendingum
sínum, enda þarf sterkan persónuleika til að
fá 60 manna hljómsveit til að lúta skilyrðis-
laust stjórn og leika sem einn maður." (Rétt
áðan var þó sagt að hljómsveitin hefði ekki
fylgt hljómsveitarstjóranum nægjanlega vel).
Og i upphafi niðurlagsorðanna segir síðan
sérf ræðingurinn:
,, Hljómsveitin er að nálgast það að verða
alvöruhljómsveit á nútímamælikvarða hvað
stærðinni viðvíkur. Hún stækkar smám saman
til dæmis eru hornin orðin fimm" o.s.frv.
o.s.frv. o.s.frv.
Ef til vill mega landsmenn vænta þess að
hljómsveitin verði líka þegar fram liða
stundir alvöruhljómsveit hvað gæði snertir að
mati sérf ræðingsins, en þá er nú vissara að
sólistinn fylgi stjórnandanum, stjórnandinn
sólistanum, hljómsveitin stjórnandanum og
sólistanum, og umfram allt er áríðandi að
tútnunin sé svo gott sem í hámarki.
Hún kom ekki flatt uppá neinn, vísan, sem
Gunnar Guðmundsson f ramkvæmdastjóri
Sinfóníuhljómsveitarinnar heyrðist hvisla í
eyrað á Guðmundi Jónssyni söngvara eftir
umrædda tónleika:
Talsverð voru tilþrifin
i tónlistinni, Gvendur.
Túlkunin og tútnunin
tókust þar i hendur.
Gleðilega páskatútnun. Flosi.
Flugleiðir — sumaráœtlun:
Sumaráætlun
tekur gildi
1. apríl nk.
Aœtlunarflugið milli íslands og
Færeyja um Egilsstaðaflugvöll.
Fœrri ferðir um N-Atlantshaf
Hinn 1. aprfl n.k. gengur i ,gildi
sumaráætlun millilandaflugi is-
lensku flugfélaganna, Flugfélags
tslands og Loftleiöa. Flugáætlun
sumarsins er með svipuðu sniði
og á síöasta ári að öðru leyti en
þvi, að nokkru færri ferðir verða
á Noröur-Atlantshafsleiöinni,
milli Luxemborgar, tslands og
Bandarikjanna. Flug Loftleiða
yfir Norður-Atlantshaf verður
framkvæmt með þotum af gerð-
inni DC-8-63 en flug Flugfélags ts-
lands milli tslands og annarra
Evrópulanda með þotum af gerð-
inni Boeing 727. Ennfremur flug
félagsins til vesturstrandar
Grænlands. Flug til Færeyja
verður eins og að udnanförnu,
framkvæmt með Fokker Friend-
ship skrúfuþotum. Það nýmæli
verður I sumaráætlun að nú verö-
ur i fyrsta sinn millilandaflug frá
flugvelli utan Reykjavfkur og
Keflavikur. Hér er um að ræða
áætlunarflug milli tslands og
Færeyja, sem verður flogið milli
Egilsstaðaflugvallar og Voga á
Færeyjum.
Eftir 1. april fjölgar ferðum i á-
föngum. Þegar áætlunin hefur að
fullu tekið gildi verður ferðum
hagað sem hér segir.
Flug til Bandarikjanna og Græn-
lands.
Frá Keflavfkurflugvelli munu
þotur Loftleiða fljúga 18 ferðir á
viku til Bandarikjanna, þar af
veröa 15 ferðir til New York og
þrjár til Chicago. Af þessum 15
New York ferðum munu 12.koma
frá Luxemborg, tvær frá Norður-
löndum og ein frá Bretlandi. Að
auki eru þotuflug Flugfélags Is-
lands til og frá Norðurlöndum og
Bretlandi, þannig timasett að far-
þegar frá þessum löndum ná
framhaldsflugi frá tslandi til
Bandarikjanna með þotum Loft-
leiða.
Frá Keflavikurflugvelli til
Kennedyflugvallar i New York
verða ferðir sem hér segir: A
mánudögum þrjár ferðir, þriðju-
dögum ein ferð, á miðvikudögum
tvær ferðir, á fimmtudögum tvær
ferðir, á föstudögum þrjár ferðir,
á laugardögum þrjár ferðir og
sunnudögum ein ferð. Til Chicago
veröa ferðir á þriðjudögum,
fimmtudögum og sunnudögum.
Þoturnar, sem fljúga til Chicago
koma frá Luxemborg og hafa
stutta viðdvöl á Keflavikurflug-
velli. Til þessara flugferða verða
notaðar þrjár DC-8-63 þotur. Bo-
eing þotur Flugfélags tslands
munu fljúga fjórar ferðir i viku
frá Keflavikurflugvelli til Nars-
sarssuaq i Grænlandi, á mánu-
dögum, þriðjudögum, fimmtu-
dögum og föstudögum. Tvær
þessara vikulegu ferða eru leigu-
flug fyrir norræna flugfélagið
SAS og hinar i samvinnu við það.
Eins og undanfarin sumur
munu skrúfuþotur Flugfélags ts-
lands fljúga með feröamanna-
hópa til eyjarinnar Kulusuk við
austurströnd Grænlands. Alls eru
áætlaðar þangað 59 ferðir i júni,
júli, ágúst og september. Þessar
verða farnar með Fokker Friend-
ship flugvélum frá Reykjavikur-
flugvelli.
Framhald á 22. siðu.