Þjóðviljinn - 26.03.1975, Side 7

Þjóðviljinn - 26.03.1975, Side 7
Fimmtudagur 27. marz 1975. ÞJÓÐVILJINN—SIÐA 7 Víðast góð aflabrögð Fréttiraf þorskafla hafa veriö fremur fáar undan- farnar vikur, enda loðnan einokaö f réttablöðin. Þorskaflinn hefur þó verið all-nokkur, og nærtólf þús- und tonnum meiri á fyrstu tveimur mánuðum ársins en sömu mánuði í fyrra. Þjóðviljinn hafði tal af mönnum á nokkrum stöð- um úti á landi á þriðjudag og spurði þá frétta af afla- brögðum. Togaraaflinn umfram Ingólfur Pálsson, vigtarmaður i Keflavik, sagði að bátarnir væru eitthvað að kroppa, aðallega ufsa, vsv af Garðskaga. 2—3 bátar úr Keflavik hafa lagt net sin vestur á Breiðafirði og fengið 20—30 tonn af fiski undan- farna daga. Vestur þangað er það langtstim, að bátarnir landa ekki nema annan hvern dag, þeir sem þangað halda. Að jafnaði hafa 35—40 bátar landað i Keflavík á þessari vertíð, sem hjá bátunum er mjög svipuð og var á sama tima I fyrra. Þá höfðu um miðjan mars borist á land 3.025 lestir af fiski úr bátun- um i 609 róðrum, en um miðjan mars nú 3.200 lestir I 590 sjóferð- um, svo heldur hefur aukning á oröið siðan i fyrra. En togararnir nýju gera strik I reikninginn i Keflavikinni, eins og á svo mörgum öðrum stöðum. Þar hafa 4 togarar landaö 2.400—2.500 lestum i 22 löndunum, svo allur togaraaflinn er um- framafli miðað við siöasta ár. Bersi með 900 tonn 1 frystihúsi Norðurtangans á Isafirði fengum við þær fréttir að togararnirhefðu allir fiskað mjög vel það sem af er árinu, og var okkur nefnt til, að Bersi frá Súða- vik hefði aflað hvorki meira né minna en 900 tonn i janúar og febrúar. Þrir linubátar leggja þar upp afla, og hafa þeir verið með 8—11 tonn I róðri, mest steinbit. Rækjubátarnir eru hættir veið- um i Isafjarðardjúpi, enda hafa þeir þegar veitt upp i leyft magn. Þeir undirbúa sig nú undir hand- færaveiðar, en oft hefur færafisk- ur verið ágætur þar vestra i aprilmánuði. 585 tonnum meira í ár Um miðjan mánuðinn var afli Hornafjarðarbáta orðinn 585 tonnum meiri en var eftir sama tima af siðasta ári. Mestu munaöi hve vel fiskaðist á linu, en gæftir voru þó slæmar. 1 frystihúsinu þar fengum viö að vita, að 13 bátar væru með net i sjó þaðan, en einn Hornafjarðar- bátur er enn á loðnuveiðum af fjórum, sem fóru á loðnu i upphafi vertiðar. Afli bátanna er misjafn, frá nokkur hundruð kilóum i róðri upp i 13 tonn, sem þó mun vera einsdæmi. Aflinn mun yfirleitt vera 5—6 tonn i róðri. Besti mánuðurinn eftir 1 Þorlákshöfn vona menn að aflinn muni glæöast þaö sem eftir Starfsstúlknafélagiö Sókn AÐALFUNDUR Starfsstúlknafélagsins Sóknar verður haldinn miðvikudaginn 2. april 1975, kl. 8.30 e.h. i Lindarbæ — niðri. Fundarefni: 1. Venjuleg aðalfundarstörf. 2. Tillaga um verkfallsheimild. 3. önnur mál. Mætið vel og stundvislega. Stjórnin. Sígildar fermingargjafir Góö armbandsúr Rafhlööuverk Rafhlöðuvekjaraklukkur Skrifborösklukkur Loftvogir Gull og silfurhringir Men og nælur Úra og skartgripaverslun Sigurður Tómasson Jón Dalmannsson úrsmiöur gullsmiður Skólavöröustíg 21a er vertiðar vegna þess að besti aflamánuðurinn er enn eftir. Þar landa nú 25—30 bátar daglega, eftir þvi sem við fréttum á vigt- inni, og fá 3—6 tonn eftir daginn. Einn og einn bátur hefur þó aflað skár, en þeir bátar sækja þá lengra, og er meiri ufsi i afla þeirra, en afli hinna, sem skemmra róa, er aöallega þorsk- ur. Kristilegur þanka- gangur þorsksins Skúli Alexandersson á Hellis- sandi sagði að afli þar vestra hefði verið góður undanfarið, en heldur hefði þó dregiö úr aflanum siöustu dagana. Taldi Skúli þetta stafa af kristilegum tilfinningum þorsksins, sem vildi gefa mönn- um gott tækifæri til trúarlegra at- hafna um páskana. Frá Rifi róa nokkrar trillur með linu og 14 bátar með net. Netabátarnir hafa verið meö allt aö 20 tonn eftir nóttina. Gæftir voru mjög slæmar fyrri hluta marsmánaðar, og tiðin rysjótt seinni hluta mánaðarins. Skarðs- víkin er nú þegar komin með hátt á 6. hundrað tonn að landi á þess- ari vertið. Skúli sagðist að lokum vænta þess, að þorskurinn þyrfti ekki að taka sér lengri tima til kristilegr- ar umþenkingar en mannfólkið, og gæfi sig á miðunum eftir páska. — úþ Við bjóðum yður nytsamar vörur til FERMINGARGJAFA: Skatthol, snyrtikommóður, kommóður í ýmsum stærðum, skrifborð, svefn- bekkir, stakir stólar í mörgum gerðum o. fl. o. fl. VERZLIÐ AAEÐAN VERÐIÐ ER LÁGT Opið til kl. 7 á föstudögum — Lokað á laugardögum Verzlið þar sem úrvalið er mest og kjörin bez 28-600 Byggingavörukjördeild 28-602 Raftækjadeih 28-601 Húsgaqnadeild 28-603 Teppadeild

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.