Þjóðviljinn - 26.03.1975, Side 8

Þjóðviljinn - 26.03.1975, Side 8
8 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Fimmtudagur 27. marz 1975. Nýtt útvarpsráö hefur nú tekið til starfa og senn líðurað því að í Ijós komi hvort útvarpsráðs- skiptin hafa í för með sér kúvendingu í stefnu- mótun. Fyrrverandi út- varpsráð/ og þá sérstak- le'ga meirihluti þess var umdeildur, en enginn getur neitað því að hann ruddi braut ýmsum nýj- um hugmyndum í dag- skrárgerð og margt af því, sem fyrir hans til- stilli var til leiðar kom- ið, mun eftir standa. Út- varpið var t.d. opnað fyrir þjóðf élagslegri umræðu og óhlutdrægn- isskyldan skilgreind víð- ar en áður var. Þar með var skapaður annar starfsgrundvöllur fyrir starfsmenn ríkisfjöl- miðlanna. Njörður P. Njarðvík, lektor, fyrrv. formaður útvarpsráðs setti í útvarpsviðtölum og á öðrum vettvangi fram ýmsar hugmyndir um framtíðarskipan út- varpsmála i sinni for- mannstíð. Þjóðviljinn ræddi við hann um þess- ar hugmyndir og um viðskipti útvarpsráðs- meirihlutans við em- bættismenn og löggjafa- vald og fer viðtalið hér á eftir. .. , /Almennilegt dreifingarkerfi er frumskiiyrði... litasjónvarp fjarstæða eins og á stendur. ...Meirihiuti útvarpsráðs starfaði ícftir menningarpóiitiskum Ilnum og almennum lifsviðhorfum, — en ekki eftir flokkspólitiskum linum. „Við opnuðum ríkisútvarpið til vinstri,, án þess að loka því til hœgri” — Þegar þú tókst sæti i út- varpsráði hafði um nokkurt skeið átt sér stað umræða um óháða rikisfjölmiðla. Hver var undirrót þeirrar umræðu? — Allan viðreisnartimann — rúman áratug, — hafði útvarps- ráð og stjórn útvarpsins verið ó- breytt. A siðasta skeiði þessa timabils hafa menn — og þá sennilega helst Benedikt Gröndal, þáverandi formaður útvarpsráðs — verið komnir á þá skoðun, að það þyrfti að rjúfa bein tengsl milli stjórnvalda og rikisútvarps- ins, og þá sérstaklega bein af- skipti af dagskrá hljóðvarps og sjónvarps. Allir sem til- þekkja vita að stjórnmálamönnum var á þessum timum gjarnt að beita áhrifum sinum til þess að veita rikisfjölmiðlunum pólitiskt að- hald. Bjarni Benediktsson lét til dæmis skrifa upp fyrir sig fjöld- ann allan af dagskrám og hafði bein eða óbein afskipti af málefn- um rikisútvarpsins með gagnrýni á dagskrám. Á viðreisnartímanum var ó- hlutdrægnisskylda útvarpsins skýrð eins þröngt og framast var unnt. Mér finnst persónulega að þá hafi rikt ákveðin tilhneiging til þess að kalla vinstri skoðanir pólitik en hægri skoðanir stað- reyndir. Við þekkjum mörg dæmi um bannlýsingar i útvarpi og sjón- varpi frá þessum árum. Einstakir menn voru settir i bann — ekki vegna þess að þeir skiluðu vondu dagsverki, heldur beinlinis vegna skoðana sinna. Hér nægir að minna á Magnús Torfa Olafsson, sem siðar varð ráðherra rikisút- varpsins, og Ólaf Ragnar Grims- son. Það frumvarp, sem viðreisnar- stjórnin undirbjó og varð að lög- um árið 1971, er merkt timamóta- plagg i sögu rikisútvarpsins. Það er engin leið að skilja þessi lög öðruvisi en að með þeim sé stefnt að þvi að gera rikisútvarpið miklu óháðara stjórnvöldum og pólitiskum sveiflum en áður var. — Hver voru þau meginatriði frum varpsins, sem til bóta horfðu? —• 1 fyrsta lagi var einkaréttur til útvarpsreksturs færður frá rikisstjórn til útvarpsins sjálfs sem stofnunar. í öðru lagi fólst i lögunum að útvarpsstjóri skyldi ráða alla starfsmenn i stað ráð- herra áður, að undanskildum þrem framkvæmdastjórum. t þriðja lagi var svo kjörtimabili útvarpsráðs breytt — i stað kosn- inga i ráðið eftir hverjar alþingis- kosningar skyldi það nú sitja i fjögur ár i senn óháð þingkosn- ingum. — Siðastnefnda breytingin hef- ur i reynd orðið sú eina, sem deil- ur hafa risið af. Hvað héldu menn að ynnist með þessari breytingu þegar hún var gerð? — Þessi breyting á kjöri út- varpsráðs skipti ekki bara máli frá pólitisku sjónarmiði. Hún var þess eðlis, að með henni voru ráðinu og útvarpinu sem stofnun sköpuð heilbrigðari starfsskil- yrði. Otvarpsráð, sem á það á hættu að verða vikið frá hvenær sem er, á miklu erfiðara um vik að móta heildarstefnu i starfi sínu. Vald útvarpsráðs er mikið og nýtt útvarpsráð getur á svip- stundu ónýtt allar gerðir forvera sins, þótt þetta hafi ekki verið al- gengt i reynd. Þegar alþingis- kosningar eru tiðar getur fyrir- komulagið á kosningu ráðsins orðið hreinn skripaleikur. Árið 1959 voru tvennar alþingiskosn- ingarog það ár sátu þrjú útvarps- ráð. Svona skyndiskiptingar geta leitt til þess að alla festu vantar i störf útvarpsráðs og það setur starfsmenn útvarpsins i vanda. Það er annars athyglisvert að skoða það nánar, hvaða nefndir og ráð það eru, sem' kosning i fylgir alþingiskosningum. Það .kemur nefnilega á daginn að það eru einkum nefndir, sem um menningarmál fjalla. Nefndir og ráð, sem ætla mætti að væru miklu áhrifameiri, svo sem bankaráð eru ekki háðar þessari •kvöð. Fyrir þá sem að menning- armálum vinna er vissulega vert að gaumgæfa þá tilhneigingu, sem fjárveitingarvaldið virðist hafa til afskipta af menningar- málum. — Þú segir að löggjöfin frá ’71 hafi markað timamót, en meðan þú varst formaður útvarpsráðs var haft eftir þér i viðtöium, að þú vildir gera ýmsar frekari breyt- ingar á starfssviði útvarpsráðs og stjórn rikisútvarpsins. Hverjar voru þær helstar? — Helsti gallinn á löggjöfinni um útvarpið hefur mér alltaf fundist vera sú staðreynd að rik- isútvarpið sem slikt hefur enga kjörna stjórn. 1 vitund almenn- ings hefur útvarpsráð verið þessi stjórn, en það er ekki rétt. Með lögunum frá ’71 er kveðið fastar á um hlutverk útvarpsráðs og það skilgreint sem ritstjórn dagskrár, eingöngu. Stofnunin sem heild hefur enga stjórn. 1 lögunum er ákvæði um sérstaka fram- kvæmdastjórn, og skipa hana út- varpsstjóri, þrir framkvæmda- stjórar deilda og formaður út- varpsráðs. Þessi stjórn á samkv. lögunum ,,að vinna að samræm- ingu á starfi deilda og gera tillög- ur um önnur mál, sem fyrir hana eru lögð”. Hlutverk hennar hefur ekki verið skilgreint nánar með reglugerð og þau þrjú ár sem ég gegndi formennsku I útvarpsráði starfaði þessi framkvæmdastjórn aldrei reglulega, þrátt fyrir itrek- aðar beiðnir. Af þessu leiðir að útvarpsstjór- inn er i raun einvaldur embættis- maður, þótt hann að forminu til sé að visu háður eftirliti mennta- málaráðuneytisins. Þetta er úrelt fyrirkomulag og alls ekki i sam- ræmi við þær kröfur um lýðræðis- lega stjórnarháttu, sem allstaðar eru nú uppi. Eðlilegast væri að þessi mál væru færð i svipað horf og tiðkast annars staðar á Norðurlöndum. Annarsvegar væri kjörin á alþingi stjórn rikis- útvarpsins, sem sinnti fjármálum þess, áætlanagerð, framkvæmd- um og almennri þróunarþörf stofnunarinnar. Hinsvegar væri kjörin ný nefnd eða nýtt ráð, sem tæki við af útvarpsráði, og hefði ekki það vald að samþykkja dag- skrá fyrirfram, heldur fjallaði um hana eftirá. Hlutverk þess væri þá að vera úrskurðaraðili um 3. grein útvarpslaganna, þ.e.a.s. reglurnar um óhlut- drægnisskyldu rikisútvarpsins. Ráðið skæri þá úr um hvenær þessi regla væri brotin, og birti niðurstöður sínar, en að öðru leyti væri dagskrárgerðin i höndum starfsmanna útvarpsins. Hugsanlega mætti gera ráð fyrir einhverskonar millibils- ástandi, þar sem dagskrárgerð væri að hluta í höndum dagskrár- manna og að hluta á snærum kjörins ráðs. En ég tel mjög æski- legt að stefnt verði i þessa átt. — Ber þetta að skilja svo, að þú berir ekki fullkomið traust til nú- verandi starfsmanna útvarpsins? — Sú mynd sem ég hef dregið upp hér að framan er i minum huga brot af æskilegu framtiðar- skipulagi útvarpsrekstursins. Hitt er svo annað mál, að megin- stofn starfsliðs útvarps og hljóð- varps er ráðinn á pólitiskum grundvelli, skipaður af ráðherra, á viöreisnarárunum. Og það er ekkert launungarmál, að vel hæft vinstri sinnað fólk hefur verið sniðgengið i ráðningum. Þetta er einkum áberandi hvað snertir starfsfólk sjónvarpsins. Hinsvegar ætti að skapast ann- ar grundvöllur til mannaráðn- inga, þegar útvarpsstjóri ræður starfsfólk sitt en ekki pólitiskir ráðherrar. — Við höfum fjallað nokkuð um æskilegar skipulagsbreytingar á yfirstjórn útvarpsins, ef svo má taka til orða. Finnst þér ástæða til þess að breyta til á fleiri sviðum útvarpsrekstursins? — Já, ég tel að það eigi að breyta skipulagi rikisútvarpsins i veigamiklum atriðum, t.d. skipt- ingu þess i deildir. Það starfar nú i þremur deildum, fjármála-, hljóðvarps- og sjónvarpsdeild. Fréttaþjónusta rikisútvarpsins er veigamesti þátturinn i starfsemi þess og ég tel að stofna eigi fréttadeild, sem hafi sérstakan framkvæmdastjóra, eins og hinar þrjár. Núverandi fréttastjóra- embætti yrðu þá lögð niður. Þessi fréttadeild tæki við og samræmdi fréttastreymi, og sið- an yrði unnið úr þvi á tvo mis- munandi vegu. Þessi lausn á mál- unum er að sumu leyti hugsuð til hagræðingar og sparnaðar, en einnig, og ekki siður, með tilliti til mismunandi hæfni hvors miðils fyrir sig. Eins og nú háttar er allt of mik- ið um það að sjónvarpsfréttir kl. 20 séu endurtekning af hljóð- varpsfréttum kl. 19. — En hefur þú þá I huga að fréttastofur hljóðvarps og sjón- varps verði áfram aðskildar eðii starfi I einu lagi? — Ég imynda mér að þær geti ofurvel starfað i einu lagi, og fyrii þvl yrði gert ráð i nýju útvarps- húsi, og ekki ætti að vera óhugs- andi að koma þessu i kring með auknu húsrými sjónvarpsins. 1 þessum hugmyndum um framtið arskipulag útvarpsins hallast ég að þvi að það fari eftir málaflok).- um, hvort fréttamenn vinna efni fyrir sjónvarp eða hljóðvarp. R’.eð þessu fyrirkomulagi held ég að fréttamenn nýttust betur á sér- hæfðara sviði, og þeim gæfist betra tækifæri á að afla sér þekk- ingar og yfirsýnar á vissum málaflokkum. — Hvernig fyndist þér eðlilegt að aðrar deiidir rikisútvarpsins þróuðust? — Ég er þeirrar skoðunar að sameina eigi leiklistardeildir beggja miðla og setja upp út- varpsleikhús. Það er fráleitt að ráöinn skuli sérstakur leiklistar- stjóri hljóðvarps með kröfum um sérmenntun, á meðan leiklistar- deild sjónvarpsins, sem veltir tugum miljóna, er i höndum al- menns dagskrárstjóra, sem enga menntun hefur á sviði leiklistar. Með þessu gæfist, að ég held, einnig tækifæri til að ráða e-t tak- markað starfslið að útvarpsleik- húsi. Þá á ég ekki fyrst og fremst við fastráðna leikara, heldur fremur leikstjóra og dramaturga. Slikir starfskraftar gætu t.d. farið yfir handrit og leiðbeint höfund- um með það fyrir augum að laga verk þeirra að eðli viðkomandi fjölmiðils og reyna að gera þau þannig úr garði að þau séu frem- ur ódýr en dýr. Ef þetta hvorutveggja næði fram að ganga væri brostinn grundvöllurinn fyrir skiptingu sjónvarps i Lista- og skemmti- deild annarsvegar og Frétta- og fræðsludeild hinsvegar. Þess- vegna tel ég að leggja eigi báðar þessar deildir niður, og setja upp tvær deildir i staðinn sem skiptart þannig, að önnur sinnti innlend.-i dagskrárgerð, annarri en frétt- um, fréttaskýringum og leikrit- um, en hin sinnti eingöngu að- keyptu efni. Erlent aðkeypt efni er nú á milli 60 og 70 prósent af allri dagskrá sjónvarpsins. Vali á þvi og með- ferð allri hefur ekki verið sinnt nándar nærri nóg, meðal annars vegna þess að núverandi dag- skrárstjóm hefur þurft að leggja svo mikla vinnu i innlenda dag- skrárgerð. Hvað snertir hljóðvarpsdeild- irnar, tónlistardeild og talað orð I dagskrá hljóðvarps, hafa þær báðar verið vanmannaðar og þar mætti efalaust margt betur fara i skipulagi, eins og t.d. valdsviö dagskrárstjórans. En þær hug- myndir, sem ég hef tiundað hér, myndu að sjálfsögðu hafa i för með sér talsverða breytingu á skipulagi útvarpsrekstursins, og full þörf er á þvi að ræða þessi mál meir en gert hefur verið. — Þú hefur nú rakið hugmynd- ir þfnar um æskilega framtiðar- þróun á skipulagi útvarpsrekst- ursins. Hvað um þau verkefni, sem blasa við rikisútvarpinu I ná- inni framtlð? — Það er algjört forgangsverk- efni að koma á almennilegu dreifikerfi hljóðvarps. Ekki er vansalaust að eftir meira en fjörutiu ára starfsemi skuli út- varp ekki heyrast sómasamlega um allt land og á helstu fiskimið- um við landið. Brýna nauðsyn ber til að reisa hið fyrsta nýja og miklu öflugri langbylgjustöð. Að- stæður hér á landi gera þessa framkvæmd nauðsynlega, auk þess sem langbylgjustöð okkar er i beinni hættu. Alþjóðasamband útvarpsstöðva hefur áhuga á að fækka langbylgjustöðvum, og er stefnt að þvi að bæta úr þrengsl-

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.