Þjóðviljinn - 16.04.1975, Page 5
Miðvikudagur 16. april 1975 ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 5
af erlendum vettvangi
Tækninni hefur nú fleygt svo fram að hægt er að ná málmum upp af miklu dýpi. Það hefur aftur haft I
för með sér ný viðhorf f auðlindamálum heimsins yfirleitt.
Hafsbotnsmálin á
hafréttarráðstefnu
A orkumálaráðstefnunni i Paris
og þó fyrst og fremst á hafrétt-
arráðstefnunni i Genf eru hafs-
botnsmájin mjög til umræðu.
Þar eigast við annarsvegar hin
kapitalisku iðnriki, með Banda-
rikin fremst i flokki, en hinsveg-
ar þróunarlöndin, sem hafa
samtök oliusölurikja (OPEC)
fyrir einskonar múrbrjót. So-
vétrikin og Kina munu heldur
styðja siðarnefndu fylkinguna,
en fara þó hægt i sakirnar, sér-
staklega mun afstaða Sovétrikj-
anna tviræð.
Þeirri skoðun, að strandriki
eigi rétt á nýtingu auðlinda, svo
sem fiskimiða og oliu og jarð-
gass i hafsbotninum, á mun
stærra svæði úti fyrir ströndum
sinum en áður var viðurkennt af
flestum rikjum, vex nú óðum
fylgi. Enn er óljóst hvort
Genfarráðstefnan kemur ein-
hverju meiru til leiðar en sú i
Caracas, sem varð til litils: en
þótt svo að Genfar-ráðstefnan
samþykki 200-milna auðlinda-
lögsögu sem eðlilega megin-
reglu, þá eru deilurnar um nýt-
ingu hafsbotnsins jafn óleystar
fyrir það.
//Lebensraum"
kapítalismans
í sambandi við hafsbotnsmálin
er talað um kalt strið um hrá-
efnin, svo að næstum minnir á
árin fyrir siðari heimsstyrjöld.
Ein af meginástæðunum til
þeirrar styrjaldar var hráefna-
hungur iðnaðarstórveldanna
Þýskalands og Japans. Nú telja
kapitalisku iðnrikin að þeirra
efnahagslega „lebensraum” sé
farið að þrengjast óþægilega
vegna þess að þróunarlöndin,
sem fyrst og fremst framleiða
hráefni eru farin að heimta
meira en áður fyrir sinn snúð.
Þar gengu OPEC-rikin auðvitað
á undan með góðu fordæmi vet-
urinn 1973—74, þegar þau fjór-
földuðu verðið á útfluttri oliu, og
þegar er farið að votta fyrir þvi
að riki, sem framleiða einstök
hráefni eins og kaffi, kopar,
hrágúm og báxit myndi hliðstæð
hagsmunasamtök um að hindra
verðfall á hráefnum.
Hér sjá hin kapitalisku Vest-
urlönd og Japan vegið að sjálfri
þeirri forréttindaaðstöðu, sem
þessi lönd hafa haft i heiminum
svo öldum skiptir. Ein aðal-
ástæðan til velsældar Vestur-
landa undanfarna áratugi er að
þau — eða fjölþjóðlegu auð-
hringar — hafa ráðið heims-
markaðsverðinu á hráefnunum,
og þannig hefur efnahagslegu
sjálfstæði þróunarlandanna
verið næsta þröng takmörk sett.
Sivaxandi þörf iðnrikjanna fyrir
hráefni hefur haft i för með sér
siaukna framleiðslu i þróunar-
löndunum, en verðið hefur verið
lækkað að sama skapi. Hér er
komin ein meginástæðan fyrir
þvi að bilið breikkar stöðugt
milli rikra þjóða og fátækra.
Ákvarðanirnar um framleiðsluv
og verðlag á hráefnum hafa til
þessa ekki verið teknar i fram-
leiðslurikjunum, heldur af
stjórnarvöldum vestrænu iðn-
rikjanna og stjórnum auðhring-
anna þar.
Gagnstæðir hagsmunir
iðnríkja og
þróunarlanda
Astæðurnar til að átökin um
hráefnin harðna einmitt nú eru
einkum tvær;i fyrsta lagi sú að
hráefnaframleiðslurikin eru
orðin meðvitandi um mátt sinn
og tekin að bindast samtökum
að fordæmi oliuframleiðslu-
rikja, og i öðru lagi sivaxandi
þörf Bandarikjanna fyrir að
flytja inn málma. Fyrir siðari
heimsstyrjöld fluttu Bandarikin
út málma, en nú verða þau að
flytja meira og meira af þeim
inn með hverju ári sem liður.
Á hafréttarráðstefnunni i
Genf stefna Bandarikin að þvi
að hafsbotninn utan auðlinda-
lögsögu strandrikja verði settur
undir stofnun á vegum Samein-
uðu þjóðanna, en að sú stofnun
veri næsta valdalitil, þannig að
einstök riki og jafnvel fyrirtæki
fái næstum ótakmarkað frelsi til
þess að rannsaka hafsbotninn
utan strandrikjalögsögu og nýta
auðlindir þar eftir getu og vild.
Þróunarlöndin vilja lika stofnun
á vegum Sameinuðu þjóðanna,
en vilja hafa hana valdamikla
og láta allar rannsóknir og nýt-
ingu á auðlindum hafsbotnsins
gerast á hennar vegum milli-
liðalaust. Tilga'ngur þeirra er að
auðiindunum á hafsbotni verði
varið til að jafna lifskjörin i
heiminum, mjókka bilið milli
rikra og fátækra. Ýmis smærri
iðnriki, svo sem Sviþjóð, hafa
tekið svipaða afstöðu. Hinsveg-
ar sækja Bandarikin sitt mál
fast, enda eru þau komin lengra
en nokkurt annað riki i þeirri
tækni, sem þarf til að nýta auð-
lindir á miklu dýpi. Ef þeirra
vilji i hafsbotnsmálum yrði ofan
á i Genf, gæti það vel þýtt það i
framkvæmd að þeim og öðrum
kapitaliskum iðnrikjum — það
er að segja þeim stærstu þeirra,
eins og Japan, Vestur-Þýska-
landi og Bretlandi — yrði i raun
réttri afhentur hafsbotninn utan
strandrikjalögsögusvæða til
nýtingar.
Málmauður á
á hafsbotni
Eins og sakir standa eru það
einkum málmar, sem hér er um
að ræða og ekkert smáræði af
þeim. Bandarikjamenn álita að
á botni Kyrrahafsins eins séu
358 miljarðar smálesta af
mangani, eða um fjögur þúsund
sinnum meira en vitað er til að
sé i jörðu á þurrlendi. Á botni
Kyrrahafsins er lika reiknað
með að séu um 43 miljarðar
smálesta af áli (200 sinnum
meira en á þurrlendinu),
fimmtán miljarðar smálesta af
nikkel (1500 sinnum meira en i
landi), fimm miljarðar smá-
lesta af kóbolti (5000 sinnum
meira en i landi ) og kannski tiu
miljarðar smálesta af titani.
Það segir sig þvi sjálft að yfir-
ráðin yfir hafsbotni úthafanna
og nýtingu auðlindanna þar geta
skipt óhemju miklu máli varð-
andi efnahagslega og pólitiska
framvindu i heiminum á kom-
andi timum.
1 hafréttarmálum hefur
stefna Islands til þessa einkum
miðast við baráttu fyrir fullum
fyrirráðum yfir fiskimiðunum á
grunnmiðum landsins, eins og
eðlilegt má kalla. Hinsvegar er
mikil nauðsyn fyrir tsland að
fylgjast gaumgæfilega með þró-
un hafsbotnsmála yfirleitt á al-
þjóðavettvangi og vera vel á
verði gegn þvi að þar sé ekki
gengið á rétt okkar. t fljótu
bragði verður ekki annað séð,
en að i þeim málum eigum við
samleið með þróunarlöndunum,
þar sem við, eins og þau yfir-
leitt, höfum varla ráð á af eigin
rammleik að framkvæma rann-
sóknir á auðtindum á hafsbotn-
inum og nýta þær. dþ
5
fulltrúa-
fundur
Landssam-
taka
Kfúbbanna
ORUGGUR AKSTUR
Haldinn aB HOTEL SOGU dagana 18. og 19. april 1975.
Föstudaginn 18. aprll:
Kl. 12.00 Sameiginlegur hádegisverbur. Hallgrímur Sigurftsson framkvæmda-
stjóri Samvinnutrygginga Avarp.
Kl. 13.00 Fundarsetning: Stefán Jasonarson form. LKL ORUGGUR AKSTUR.
Kosning starfsmanna fundarins.
Kl. 13.30 Avarp: Halidór E. Sigurftsson samgöngumálaráöherra.
Kl. 14.00 Tryggvi t>orsteinsson læknir á Slysadeild Borgarspitalans flytur erindi.
Erindi II: Pétur Sveinbjarnarsonframkvæmdastjóri UMFERÐARRAÐS:
„Stafta umferftaröryggismála á tslandi".
K1 16.30 Erindi III: Páll Porsteinsson fyrrv. alþingism. frá Hnappavöllum:
„IIRINGVEGURINN og áhrif hans."
Kl. 17.30 Skýrsla stjórnar LKL ORUGGUR AKSTUR —
Stefán Jasonarson form.
Umræftur og fyrirspurnir.
Nefndarkosning: Umferftaröryggisnefnd,
Fræftslu- og félagsmálanefnd,
Allsherjarnefnd.
Kl. 19.00 Kvöldverftur á hótelinu.
Kl. 20.00 Einar Einarsson uppfinningamaftur:
„Nýjung i notkun nagladekkja” — m/kvikmynd.
Kl. 20.30 Nefndastorf — á hótelinu, frameftir kvöldi.
Laugardaginn 19. aprfl:
Kl. 9.00 Lok nefndastarfa — frágangur tillagna.
Ki. 10.00 Fréttir úr heimahögum. (Skýrslur)
Fulltrúar klúbbanna hafa orftift.
Kl. 12.00 Hádegisverftur á hótelinu.
Kl. 13.30 Nefndir skila störfum.
Nefndaformenn hafa framsögu.
Kl. 15.00 Kaffihlé.
Kl. 15.30 Framhaldsumræftur um nefndaálit.
Kl. 17.00 Stjórnarkjör. Fundarslit.
Kl. 18.00 Kvöldverftur á hótelinu.
Stjórn LKL ORUGGUR AKSTUR
r
Ibúar Mosfellshrepps
Fræðslufundur um brunavarnir verður
haldinn i Hlégarði fimmtudaginn 17. april
n.k. kl. 20.00.
l. Slökkviliðsstjórinn i Reykjavik, Rúnar
Bjarnason, sýnir kvikmyndir og flytur
erindi um brunavarnir i heimahúsum.
2. Forstjóri Brunabótafélags Islands,
Ásgeir ólafsson, ræðir um tryggingar.
íbúar Mosfellshrepps eru hvattir til að
fjölmenna á fundinn.
HREPPSNEFNDIN
F orstöðukona
og fóstra
Stöður forstöðukonu og fóstru við nýtt
dagheimili Borgarspitalans eru lausar til
umsóknar frá 1. mai n.k. Nánari upplýs-
ingar veitir forstöðukona spitalans i sima
81200.
Reykjavik, 14. april 1975.
Stjórn sjúkrastofnana
Reykjavikurborgar.