Þjóðviljinn - 16.04.1975, Side 10
10 SÍÐA — ÞJÓÐVXLJINN Miövikudagur 16. april 1975
Sýna a
annað
Sovéski fimleikaflokkurinn hélt
sýningu í Laugardalshöllinni i
gærkveldi fyrir fullu húsi áhorf-
enda. Vakti sýningin óskipla at-
hygli áhorfenda eins og búist var
við, enda er hér um að ræða það
besta sem sést I fimleikum i
heiminum i dag.
Flokkurinn sýnir aftur annað
kvöld i LaugardalshöIIinni og
verður forsala á þá sýningu i
Laugardalshöllinni I dag.
Forráðamenn FSÍ munu hafa
áhuga á þvi að flokkurinn sýni I 3.
sinn nk. föstudagskvöld en ekkert
hefur enn verið ákveðið hvort af
þvi verður. Myndirnar hér til
hliðar tók Einar á æfingu fim-
ieikafólksins sl. mánudagskvöld.
HM í íshokkí
Sovétmenn
halda enn
forystunni
Sovétmenn halda enn foryst-
unni i heimsmeistarakeppninni i
ishokki sem stendur yfir i
V-Þýskalandi.
1 fyrrakvöld sigruðu þeir finna
5:2 og hafa þar með unnið alla
leiki sína til þessa, sjö talsins.
Tékkar sigruðu svia 7:0 og eru
tékkar fast á eftir sovétmönnum,
hafa aðeins tapað einum ieik,
gegn sovétmönnum. Staðan I
keppninni er nú þessi:
Sovétrikin
Tékkóslóvakía
Sviþjóð
Finnland
Pólland
Bandarikin
7 7 0 0 58:17 14
7601 41:14 12
7403 34:16 8
7304 29:27 6
7106 11:57 2
7007 17:59 0
11 i
Sigurmarkið
á síðustu
mínútunni
þegar Valur sigraði Ármann 1:0
Valsmenn unnu heppnissigur
yfir Armanni i Reykjavikurmót-
inu i knattspyrnu i fyrrakvöld 1:0
og var markið skorað á slðustu
minútu leiksins. Það var hinn
bráðefnilegi leikmaður Vals,
Magnús Bergs sem komst einn
innfyrir Ármanns-vörnina og
skoraði.
Með þessum sigri hafa Vals-
menn tekið forystuna i mótinu
a.m.k. i bili, en þeir hafa leikið
gegn Þrótti og Armanni og unnið
báða leikina og er eina liðið sem
hefur unnið tvo leiki.
Leikur Vals og Armanns var af-
spyrnulélegur, dæmigerður vor-
leikur af verstu gerð.
KSÍ og FRÍ gera
nýjan samning
við sjónvarpið
Þessa dagana standa yfir
samningar milli íslenska sjón-
varpsins og Knattspyrnusam-
bands og Frjálsiþróttasam-
bands Islands um útsendingar
sjónvarpsins á efni frá mótum
þessara aðila á sumri kom-
anda. Þeir samningar sem i
gildi hafa verið eru orðnir
nokkuð gamlir og greiðslur
sjónvarpsins fyrir efni frá
iþróttaviðburðum orðnar
langtá eftir verðlagi I landinu.
Ómar Ragnarsson Iþrótta-
fréttamaður sjónvarpsins
sagði að þessir nýju samning-
ar væru mjög margþættir og
tæki efiaust nokkurn tima að
ganga endanlega frá þeim.
Ekki sagðist hann geta sagt
frá á þessu stigi málsins
hverjar brcytingar yrðu gerð-
ar frá fyrri samningum, en
þær yrðu nokkrar.
Ekki verður um neinar
breytingar að ræða á útsend-
ingum, þ.e. að ekki verður um
beinar útsendingar að ræða,
til þess vantar sjónvarpið enn
tæki, sem kosta þó ekki meira
en annar fóturinn á Lén-
harði fógeta, að sögn kunn-
ugra.