Þjóðviljinn - 16.04.1975, Page 11
Miðvikudagur 16. april 1975 ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 11
Norðurlandamótið í júdó
á íslandi um næstu helgi
í fyrra hlaut ísland þrenn bronsverðlaun og ein silfurverðlaun á NM í júdó
Norðurlandameistara-
mót í júdó verður haldið í
fyrsta sinn á islandi um
næstu helgi, 19. og 20. apríl
i Laugardalshöllinni. Á
mótinu verður bæði sveita-
keppni og keppni einstakl-
inga í þyngdarf lokkum.
Mótið hefst á laugardag kl. 14.
Borgarstjóri Heykjavikur, Birgir
Isl. Gunnarsson, setur mótið, og
strax á eftir hefst sveitakeppnin.
Sveitir Norðurlandanna fimm
keppa, og eru 5 menn i hverri
sveit — einn i hverjum þyngdar-
Dómara-
merki
i judo
Það eru sjálfsagt ekki
niargir sem vita hvað köll og
bendingar dómara I júdó
þýða. Hér fyrir ofan eru
niyndir sem sýna hvernig
dómarar benda þegar þeir
dæma i júdó og orðin sem
standa við hverja mynd eru
þau orð scm þeir kalla um
lcið.
Við efstu myndina, þar sem
höndin er rétt beint upp stend-
ur Ippon — sem þýöir fuilnað-
ar-sigur. Næst sem Wasa-Ari
sem þýðir hálfur sigur og tveir
slikir i sijmu viöureign þýðir
fuilnaðarsigur. Þá kemur
næst Yuko sem þýðir að kepp-
andi hafi komist i all-verulega
hættu, og gefur Yuko ákvcðin
stig. Þar næst kemur Koka
sem er iægsta stig sem gefiö
er i képpninni. Verst er svo
bcnding um vlti.
flokki. Finnar urðu Norðurlanda-
meistarar i sveitakeppni i fyrra,
en islenska sveitin varð í öðru
sæti og siðan komu sviar og danir.
Sveitakeppninni lýkur væntan-
lega á 6. timanum siðdegis á
laugardag.
Á sunnudag verður svo keppni
einstaklinga i þyngdarflokkum.
Keppnin hefst kl. 10 árdegis, og
verða fyrstu umferðirnar i öllum
flokkum glimdar fyrir hádegið.
Kl. 14 á sunnudaginn hefst svo
keppni i undanúrslitum og úrslit-
um i þyngdarflokkunum.
Hverju landi er heimilt að
senda tvo menn i hvern þyngdar-
flokk. tslendingar senda fulla
keppendatölu i alla þyngdar-
flokkana. t fyrra hlutu þrir is-
lenskir júdðmenn bronsverðlaun i
einstaklingskeppninni á NM :
Svavar Carlsen i þungavigt,
Sigurjón Kristjánsson i millivigt
og Jóhannes Haraldsson i létt-
vigt.
A stofnári JSt, 1973, var Svavar
Carlsen eini islenski þátttakand-
inn á NM og vann silfurverðlaun I
þungavigt. 1 fyrra voru islensku
þátttakendurnir 10 að tölu. Stjórn
JSI mótaði þegar i upphafi þá
stefnu að taka þátt i þessum mót-
um. Jafnframt ákvað stjórnin að
taka þátt i undirbúningi og stofn-
un Juddsambands Norðurlanda.
Aðalfundur NJU er jafnan hald-
inn i tengslum við Norðurlanda-
mótið, og verður hann nú haldinn
á laugardagskvöldið á Hótel
Esju.
tstenska landsliðið I júdó
íslenska júdóliðið
sem keppir á NM
í því eru þrír bronsverðlaunahafar frá
og silfurverðlaunahafi frá árinu áður
íslenska landsliðiö sem
keppir á NM í Laugardals-
höllinni um næstu helgi er
skipað mjög sterkum júdó-
mönnum sem miklar vonir
eru bundnar við. i þessum
hópi eru þrír júdómenn
sem náðu í bronsverðlaun
á NM í fyrra, þeir Svavar
Carlsen, Sigurjón
Kristjánsson og Jóhannes
Haraldsson og þar að auki
náði Svavar silfurverð-
launum á NMáriðáður. En
liðið verður þannig skipað
að þessu sinni:
Þungav. yfir 93 kg
Svavar M. Cartsen, JFH, 37 ára
ganiall. Islandsmeistari i þunga-
vigt og opnum flokki, einn okkar
reyndasti maður i alþjóðamótum.
Hefur unnið silfurverðlaun á
Norðurlandamóti i þungavigt.
Hannes Ragnarsson, JFR, 27 ára.
Annar i þungavigt á tslands-
meistaramóti. Hefur keppt i flest-
um mótum hér undanfarið, og
m.a. keppt i landsliðinu á Norður-
landamótinu i Khöfn 1974 við góð-
an orðstir.
Léttþungav. 93 kg
Gisli Þorsteinsson, A, 22 ára. Nýr
i landsliði, en er mjög vaxandi
júdómaður, varð m.a. sigurveg-
ari i léttþungavigt á afmælismóti
JSt i vetur. Má mikils af honum
vænta i framtiðinni.
Haiidór Guðnason, JFR. 26 ára.
Nýr i landsliði, en hefur sýnt ótvi-
ræða keppnishæfileika i júdó að
undanförnu.
Benedikt Pálsson, JFR, 32 ára.
Nýr i landsliði, en núverandi Is-
landsmeistari i léttþungavigt.
Mjög sterkur júdómaður.
Milliv. 80 kg.
Sigurjón Kristjánsson, JFR, 29
ára. tslandsmeistari i millivigt.
Reyndasti júdómaður okkar, og
hefur unnið tækniverðlaun JSI.
Mjög liflegur i keppni; glimur
hans einkennast af sókn og enda
oft með glæsilegum úrslitabrögð-
um. Sigurjón hefur mesta reynslu
landsliðsmanna okkar á alþjóða-
mótum.
.Viðar Guðjohnsen, A, 17 ára.
Yngsti maður liðsins, tslands-
meistari unglinga, annar á sið-
asta tslandsmóti i opnum flokki.
Hefur tekiö þátt i alþjóðamótum
með ágætum árangri, m.a. sigrað
i sinum þungaflokki á bresku
móti unglinga. Þótt Viðar sé ung-
ur, má telja hann meðal reyndari
júddmanna okkar og mestu
keppnismanna.
Léttmilliv. 70 kg.
Haildór Guðbjörnsson, JFR, 28
ára. Einn af reyndari landsliðs-
mönnum okkar. Halldór hefur um
árabil verið einn okkar þekktasti
langhlaupari, en hefur nú breytt
um og hefur keppt i júdö undan-
farin ár, með góðum árangri.
Hann er tslandsmeistari i létt-
vigt, og hefur einnig tekið þátt i
keppni erlendis, m.a. siðasta
Norðurlandamóti.
Gunnar Guðmundsson, UMFK, 29
ára.Hann er nýliði i landsliðinu,
en er sérlega harðskeyttur
keppnismaður, og varð næstur á
eftir Halldóri i keppni um
meistaratitilinn.
Léttv. 63 kg
Jóhannes Haraidsson, UMFG, 32
ára. Reyndur landsliösmaður,
með keppni erlendis að baki. Jó-
hannes er Islandsmeistari i létt-
vigt og hefur verið ósigrandi i
þeirri vigt hér á landi um árabil.
Ómar Sigurösson, UMFK, 19 ára.
síöasta NM
Sigurjón Kristjánsson reyndasti
júdómaður okkar um þessar
mundir, bronsverölaunahafi frá
siðasta NM
Nýliði i landsliði, en mikiö judó-
mannsefni, og sérlega mikill
keppnismaöur. Framh á 15. siðu.