Þjóðviljinn - 22.04.1975, Blaðsíða 10
10 SIÐA — ÞJÓÐVILJINN Þriöjudagur 22. aprfl 1975.
(a n D [oiPSfeÉflF r /O ' A CD D 'pBSÍÖfltF '—r /° „ n D . r",
Norðurlandameistaramótið í júdi ó:
Tvö silfur og eitt brons
komu í hlut íslendinga
íslenska sveitin var langt frá sínu besta og náði aðeins 3. til 4. sæti
tslendingar hlutu þrenn
verðlaun á Norðurlanda-
meistaramótinu í júdó,
sem fram fór í Laugar-
dalshöllinni um helgina.
Þeir Halldór Guðbjörnsson
i léttmillivigt og Gisli Þor-
steinsson í léttþungavigt
hlutu silfurverðlaun, en
Benedikt Pálsson fékk
bronsverðlaun í opna
flokknum. Það sem mest-
um vonbrigðum olli var
frammistaða íslensku
sveitarinnar i sveitakeppn-
inni á laugardaginn,en þar
var íslenska sveitin langt
frá því sem hún getur best
og hafnaði í 3. til 4. sæti
ásamt svíum. Hefði sveitin
náð sínu besta þarf ekki að
efa að hún hefði náð 2. eða
jafnvel 1. sæti. En svona er
það i iþróttunum; einstakl-
ingar eða lið ná ekki alltaf
sínu besta.
A laugardaginn var keppt i
sveitakeppninni. Þá byrjuöu is-
lendingar á að sigra norömenn
4:log gaf þessi frammistaða góð-
ar vonir um að sveitin næði langt.
Næst var svo keppt við dani,en þá
hljóp allt i baklás og danir sigr-
uðu 4:1. Islendingar voru þarna
mjög óánægðir með sænskan
dómara sem dæmdi viti á islend-
ingana i tima og ótima. Það hrutu
mörg ljót orð i garð þess sænska
meðan á viðureigninni stóð.
F - *
'i-.i j m rfn
■ M
I J p
Þetta
stefnir í
rétta átt
— sagði Michal
Vachun, þjálfari
ísl. liðsins
Ánægöur? Hvenær er þjálf-
ari ánægður? Hitt er svo ann-
aö mál aö árangurinn á þessu
móti var betri en i fyrra, þá
hlutum viö þrjú bronsverölaun
en nú tvö silfur og eitt brons og
þaö segir okkur aö viö séum á
réttri leiö, það sýnir framfar-
ir, sagöi Michal Vachun hinn
tékkneski þjálfari fslenska
landsiiösins f júdó.
— Þar að auki var þetta mót
mun sterkara en f fyrra, þann-
ig að viö getum sæmilega vel
viö unaö. Það sem mér fannst
sárast var aö sigra ekki dan-
ina I sveitakeppninni. Þaö átt-
um viö aö geta. Þá var ég
einnig hissa á þvi hve Svavari
gekk illa. Það var eins og allur
baráttuhugur væri úr honum.
Gisli kom hinsvegar þægilega
á óvart, og Halldór er alltaf
sami baráttumaðurinn, stend-
ur sig ailtaf best þegar mest á
reynir.
— Þaö má þvf segja þegar á
heildina er litiö aö ég sé ekki
óánægöur. — S.dór
tslensku júdómennirnir sem hlutu verölaun á NM ásamt þjálfara slnum. F.v. Halldór Guöbjörnsson, Benedikt Pálsson, Michal Vachun -,
og GIsli Þorkelsson.
Þetta tap varð svo til þess að is- Kari Johannsson, F Opinn fl. 2. Erik Haugen, N
lendingar höfnuðu í 3. til 4. sæti Erik Haugen N 3. Seppo Reivuo, F
með svium. Finnar sigruðu i Roland Bexander, S 1. Simo Ackrenius Benedikt Pálsson, í
sveitakeppninni, danir urðu
númer tvö.
Á sunnudaginn var svo keppt i
einstaklingsgreinum og þar náðu
þeir Halldór, Gisli og Benedikt
þessum ágæta árangri. Mest kom
frammistaða Gisla á óvart og er
greinilegt að þar er að koma upp
júdómaður sem mikils má vænta
af í framtiðinni. Gisli var ekki
nema hársbreidd frá þvi að
hreppa gullverðlaunin.
Annars urðu úrslitin sem hér
segir:
Léttvigt
1. Lars Flygh, S
2. Tarvainen, F
3. Petter Lind, N
Kristensson, S
Léttmillivigt
1. Larry Edgren, S
2. Halldór Guðbj., I
3. P. Hansen, D
R. Nilsson, S
Millivigt
1. Conny Pettersson, S
2. Bertil Ström, S
3. Morten Yggerseth, N
P. Korpiola, F
Léttþungavigt
1. Simo Ackrenius, F
2. Gisli Þorsteinsson, 1
3. J. Nordestgaard, D
örn Terje Foss
Þungavigt
Seppo Reivuo, F.
Ekkier hægt annað
en vera ánægður
— Ég er mjög ánægöur meö
útkomuna á þessu móti, annaö
væri ósanngjarnt, sagöi
Eysteinn Þorvaldsson formað-
ur JSl er viö ræddum viö hann
eftir að NM i júdó iauk hér á
sunnudaginn.
— Það er ekki bara aö ég sé
ánægöur meö frammistööu
okkar manna i keppninni,held-
ur er ástæöa til aö fagna þvi
hve vel öll framkvæmd móts-
ins tókst. Ég tel aö hún hafi
veriö betri en á mótunum sið-
ustu árin, enda hefur ekki ein
einasta kvörtun borist vegna
framkvæmdarinnar og öll aö-
staöa hér hefur veriö uppá þaö
besta.
— Keppnin var harðari á
þessu móti en hún hefur veriö
undanfarin ár. Þaö er mikil
gróska I júdóiþróttinni á
Noröurlöndum. 1 sjálfu sér er
ég ekki óánægöur meö 3. sætiö
i sveitakeppninni. Þar töpuö-
um viö þremur glimum á vit-
um sem áttu sér enga stoö,
þannig aö þaö var ekki getu-
leysi sem réö úrslitum, heldur
klaufskur dómari.
— Þetta mót hefur sýnt okk-
ur aö um framfarir er aö ræöa
hjá okkur og viö stefnum aö
þvi aö senda menn á Evrópu-
mótiö sem fram fer I Frakk-
landi i ár og einnig stefnum
viö aö þvi aö senda menn á
Ólympiuleikana sem fram
fara I Kanada á næsta ári. Viö
munum óska eftir styrk frá ISÍ
til þess aö senda þátttakendur
á ÓL og mun ég leggja þá ósk
fram á sambandsráösfundi
tSt i næsta mánuði. Viö I JSt
teljum aö geta íslenskra júdó-
manna sé orðin það mikil aö
þeir eigi fullt erindi á
Ólympiuleikana.
— Þá er greinilegt að upp
eru að koma ungir menn sem
óöum eru aö taka sæti þeirra
eldri og reyndari og má I þvi
sambandi til að mynda nefna
Gisla Þorkelsson sem kom svo
skemmtilega á óvart i þessu
móti. Fleiri ungir og efnilegir
menn eru aö koma upp og ég
held aö viö þurfum engu aö
kvlöa I framtiöinni. —S.dór.
Eysteinn Þorvaldsson