Þjóðviljinn - 22.04.1975, Blaðsíða 11
Þriðjudagur 22. apríl 1975. ÞJÓÐVILJINN — StÐA 11
Atli
Þór
sá um
sigur-
inn
fyrir
KR
m~. " í . >. •
*%-**'.
Atli Þór Héðinsson skorar mark KR gegn Vlkingi.
Marteini mistókst
iofri vítaspyrna
Glæsilegasta mark Reykja-
vikurmótsins til þessa var skorað
i leik KR og Vlkings og þetta var
eina mark leiksins, sigurmark
KR. Það kom á 20. mlnútu. Bolt-
inn var gefinn langt fram, alveg
uppundir endamörk, Jóhann
Torfason hljóp undir boltann og
skallaði hárnákvæmt fyrir
markið til Atla Þórs Héðinssonar
sem skaiiaði knöttinn I netið.
Þarna var bæði um fallegt mark
að ræða og þá ekki slður fallegan
undirbúning. Fengi maður að sjá
fleiri sllk atvik I leikjum færi
maöur ekki alltaf svona ergilegur
heim af vorleikjunum sem verið
hafa hver öðrum lakari.
Þessi leikur KR og Vikings var
ömurlega lélegur ef þetta mark
er undan skilið. KR-ingarnir
reyndu að ná upp spili en gekk
ekkert, völlurinn harður og bolt-
inn alltof léttur og erfitt að hemja
hann. Vikingarnir reyndu aftur á
móti mest langsendingar fram
völlinn, alveg eins og I fyrra sum-
ar. Sú aðferð getur heppnast á
grasi,en á hörðum malarvelli með
léttan bolta er slik leikaðferð von-
laus enda fór það svo að Viking-
arnir áttu varla marktækifæri í
leiknum.
Nú eru ekki nema 3 vikur þar til
Islandsmótið hefst og mikið má
leikur liöanna batna, ef knatt
spyrnan á sumri komanda á ekki
að verða lakari en um árabil ef
marka má leiki liðanna til þessa.
Að vfsu breytist leikur þeirra
oftast til batnaðar þegar þau
koma á grasið, og svo verður ef-
laust nú, en þó finnst mér vorleik-
irnir að þessu sinni lakari en þeir
hafa verið um langt árabil.
í þessum umrædda leik sýndu
einstaka menn góða spretti. Atli
Þór er til að mynda greinilega i
betri æfingu en hann hefur verið
áður og óskar Tómasson hjá Vik-
ingi virðist einnig I góðri æfingu
og verður gaman að sjá þessa
leikmenn á grasinu i sumar.
—S.dór
og því skildu
Valur og Fram
1:1 í einum
skásta leik
Rvk-mótsins
til þessa
Þegar aðeins 10
minútur voru til leiks-
loka i leik Fram og Vals
i Reykjavikurmótinu og
staðan jöfn 1:1 var
dæmd vitaspyrna á Val,
vitaspyrna sem vissu-
lega átti sér enga stoð,en
hún var dæmd eigi að
siður. Marteinn Geirs-
son, sem til þessa hefur
verið ein öruggasta
vitaskyttan i isl. knatt-
spyrnu framkvæmdi
spyrnuna, en mistókst
hrapallega. Boltinn
flaug hátt yfir markið.
Þar með missti Fram af
stigi sem hefði lyft liðinu
upp i efsta sæti mótsins,
i stað þess að vera nú i
3ja sæti.
Þessi leikur Fram og Vals var
einn skásti leikur mótsins til
þessa án þess þó að geta kallast
góður leikur. Einstaka sinnum
brá fyrir skemmtilegum samleik
og nokkrum sinnum skapaðist
mikil hætta upp við mörkin. Or-
slitin 1:1 geta kallast sanngjörn
miðað við gang leiksins og það
hefði verið óréttlæti ef Fram hefði
unnið leikinn á þeim fjarstæðu-
dómi sem vitaspyrnan var.
Valsmenn byrjuðu leikinn af
krafti og sóttu stift fyrstu 15
minúturnar og það gat varla farið
hjá þvf aö þessi sóknarlota gæfi
mark. Það kom svo á 15. min.
Mikil pressa haföi verið á Fram-
markið, allt i einu stóð sóknar-
maður Vals i góðu færi, en mis-
tókst að skjóta, hitti ekki boltann
sem rann til hins unga og efnilega
Alberts Guðmundssonar og hann
var ekki lengi að skora glæsilegt
mark, fyrsta mark hans með mfl.
Eftir þetta mark gáfu Vals-
menn mjög eftir og Framarar
sóttu mun meira það sem eftir
var fyrri hálfleiks. Og á 34. min.
uppskáru þeir mark. Dæmd var
óbein aukaspyrna á Val fyrir inn-
an vitateig. Og þrátt fyrir þéttan
varnarvegg Vals, tókst Marteini
Geirssyni að koma boltanum þar i
gegn með hörkuskoti og jafna 1:1
og það urðu úrslit leiksins þótt
bæði liðin ættu möguleika á að
bæta mörkum við.
Síðari hálfleikurinn var fremur
jafn; ef eitthvað var átti Valur
meira i honum. —S.dór
Eitthvað er
að hjá
Islands
meisturunum
Náðu aðeins jafntefli 0:0 gegn
Keflvíkingar
að sætta sig
urðu
við
2. deildarliöi Breiðabliks
jafntefli gegn ÍBH
Það er greinilega eitthvað að
hjá liði Islendsmeistaranna af
Akranesi um þessar mundir. Að
vfsu er lA-liðið grasvallarlið, en
samt getur það varla verið eðli-
legt að liðið nái aðeins jafntefli
tvisvar i röð gegn 2. deildarliði
Breiðabliks í Litlu bikarkeppn-
inni. í fyrri leik liöanna uppá
Akranesi var jafnt 2:2 og á
laugardaginn léku liðin i Kópa-
vogi siðari leikinn og aftur varð
jafntefli 0:0.
Og það er ekki bara þessi jafn-
tefli sem benda til þess að eitt-
hvað sé að hjá 1A. Liöið hefur
leikið tvo leiki í meistarakeppn-
inni og tapað þeim báðum.
Breiðabliks-liðið hefur staðiö
sig mjög vel í Litlu bikarkeppn-
inni og bendir flest til þess að liðið
verði sterkt í sumar. Hver veit
nema þvi takist að endurheimta
sæti sitt I 1. deild aftur? Allavega
ætti það að geta gerst ef liðið
heldur svona áfram.
A saina tima og tA og Breiða-
blik léku I Litlu bikarkeppninni
fór fram annar leikur I þeirri
sömu keppni, leikur IBK og tBH I
Hafnarfiröi. Og þar þurfti tBK,
silfurliðið frá siðustu 1. deildar-
keppni að sætta sig við jafntefli
gegn hafnfirðingum 1:1.
Þórir Jónsson áður leikmaður
með Val, nú með FH, skoraði
mark IBH og var það stór-glæsi-
legt mark, sannkallaður þrumu-
fleygur sem Þorsteinn markvörö-
ur ÍBK réð ekki viö.
Grétar Magnússon, sá mikli
baráttumaður i IBK-liðinu skor-
aöi mark keflvikinga og tryggði
þeim þar með jafnteflið, en þau
eru orðin æði mörg jafnteflin i
Litlu bikarkeppninni á þessu vori.
Nú eru aðeins eftir tvær um-
ferðir i Litlu bikarkeppninni, og
sem fyrr stendur baráttan á milli
1A og IBK en þau eiga eftir að
leika siöari leik sinn sem fram fer
i Keflavík.