Þjóðviljinn - 06.05.1975, Qupperneq 1
Mikil hákarlaveiði
norður af Ströndum
Spírasmyglið:
Dreifingaraðilar að
koma í ljós
L>eim sem rannsökuöu spira-
smyglið stóra fyrr á þessu ári
gekk ilia að komast að þvi hverjir
hefðu annast dreifingu vökvans i
landi og var þvi ákveðið að hefja
framhaldsrahnsókn á þvi máii og
var Asgeiri Friðjónssyni, yfir-
manni fikniefnadeildar lögregl-
unnar, faiin þessi rannsókn.
A undanförnum dögum hefur
Asgeiri gengið all vel við rann-
sókn málsins og hefur hann náð i
nokkra aðila sem játað hafa á sig
dreifingu spirans i stóra smygl-
málinu og einnig hafa þeir játað á
sig dreifingu á spiritus sem ekki
var vitað um að hefði verið
smyglað til landsins.
Nokkuð margir einstaklingar
hafa verið yfirheyrðir vegna
þessa máls og einn maður situr i
gæsluvarðhaldi vegna þess.
S.dór
Mannslivarfið við Reykjanesvita:
Sporhundur rakti slóðina fram á
klettanef
Sem kunnugt er af fréttum,
hvarf maður úr Reykjavik að
heiman frá sér sl. föstudag og
hefur ekkert til hans spurst. Hins-
vegar fannstbifreiðhans skammt
frá Reykjanesvita, mannlaus, á
laugardagskvöldið.
Rannsóknarlögreglumenn fóru
þegar á vetvang og höfðu spor-
hund með sér. Hundurinn rakti
slóð mannsins frá bifreiðinni
fram á stapa þarna nærri, þar
fram á klettanef og þar snérist
sporhundurinn i hringi, en hélt
siðan niður i fjöruna og aftu
uppað bifreiðinni.
Leitarflokkar leituðu þarn
allan sunnudaginn en á
árangurs. Fyrir neðan klette
nefið, þangað sem hundurin
rakti slóð mannsins, er mik
klettaurð og oftast stórbrim.
S.d<í
Jón Kjartansson, formaður
Verkalýðsfélagsins I Vest-
mannaeyjum.
Rúmlega mán-
aðarútskipunar-
banni
i Eyjum aflétt
Samið
í fyrri-
nótt
t fyrrinótt tókust samningar
við Verkalýðsfélagið i Vest-
mannaeyjum, en þar hefur
verið útskipunarbann frá þvi
vcrkamenn þar feiidu
samningana sem gerðir voru
við vinnuveitendur af 9 manna
samninganefnd ASt.
Jón Kjartansson, formaður
Verkalýðsfélagsins i Vest-
mannaeyjum sagði i gær, að
hann gæti ekkert um samning-
ana sagt fyrir en hann hefði
lagt þá fyrir félagsfund, sem
væntanlega verður haldinn i
vikunni.
Jón sagði, að varðandi þessa
saminga og verkfallið hefði
hvarvetna verið veggur fyrir
og hörð samstaða vinnuveit-
enda gegn Eyjamönnum, og
að þvi er virtist af forystu ASÍ
eínnig, að þvi er Jón taldi.
— úþ
Að sögn Sveins Kristinssonar
skólastjóra að Klúku-i Bjarnar-
firði á Ströndum, hefur hákarla-
veiði verið með mesta móti þar
nyrðra i vor. Tveir bátar hafa
stundað hákarlaveiðar þar
nyrðra undanfarið, annar frá
Hólmavik en hinn frá Drangs-
nesi. Hólmavikurbáturinn hefur
fengið 37 hákarla en Drangsnes-
báturinn 25 hákaria. Þetta er
mun meira en verið hefur
undanfarin ár. Eins hefur
hákarlaveiði verið stunduð frá
Djúpuvik og frá Gjögri.
Mjög gott verð hefur verið
fyrir velverkaðan hákarl. t
fyrra var það yfir 500 kr. kílóið
og verður mjög sennilega enn
hærra i ár. Samt er eftirspurnin
meiri en framboðið.
Sveinn sagði að hákarlaveiði-
menn beittu nær eingöngu sel
við hákarlaveiðarnar. Hann má
ekki vera þrár en má gjarnan
vera úldinn og það verður að
beita selskinninu með.
Nú er að mestu hætt að verka
hákarl á þann hátt að grafa
hann i mel og láta kæsast. Þess i
stað er hann nú verkaður i tré-
tunnum og þykir alveg eins
góður eftir þá verkun.
Sveinn sagði að hákarlaveið-
arnar hæfust vanalega uppúr
páskum og stæðu fram til
aprilloka, lengur er ekki hægt
að stunda þær vegna þess að
ekki er hægt að verka hákarlinn
eftir að farið er að hitna i veðri.
Þá sagði Sveinn að grásleppu-
veiði hefði gengið mjög vel i vor,
utan það hvað menn urðu fyrir
nokkrum skaða með net si'n
þegar óveðrið gerði á dögunum.
Netin flæktust i þara og mikil
vinna liggur i að hreinsa þau
upp.
Sauðburður er nú rétt að
byrja fyrir norðan en vegna
kuldakastanna að undanförnu
er allur gróður stutt á veg
kominn, mun styttra en á sama
tima i fyrra.
—S.dór
HVERTER RETTA
SALTFISKVERÐIÐ?
Innflutningstollar
á Spáni 5 pesetar
Það er engu líkara en sölur á afurðum okkar úr
landi séu hin mestu launungarmál, i það minnsta
salan á saltfiskinum.
Það er til að mynda ekki hægt að fá það uppgefið
þessa dagana hvert er verð á saltfiski. Þeir tveir
menn, sem það vita gerst eru i söluferðum úti i
heimi og enginn á skrifstofu Sölusambands isl. fisk-
framleiðenda er talinn geta gefið upp verðið.
Fyrir nokkrum vikum rauk Morgunblaðið upp með þá frétt, að inn-
flutningsgjöld af saltfiski til Spánar væru að hækka upp úr öllu valdi.
Þó dró blaðið f land stuttu seinna og taldi þá, aö hækkun sú, sem yrði á
innflutningsgjöldum væri aðeins helmingur á við það, sem það f fyrri
frétt hafði sagt frá.
Aðflutningsgjöld sáralitil
Nú hefur Þjóðviljinn nokkuö góðar heimildir fyrir þvi, að þessi
aðflutningsgjöld séu ekki einu sinni þau, sem Mbl. segir f siðari fréttinni
en til þess að fá þetta staðfest var ætlunin að hafa tal af SIF. En enginn
getur svarað neinu þar um, þvi yfirmennirnir eru i útlöndum.
Það er næsta furðulegt ráðslag, að einn eða tveir menn skuli sitja
uppi með slika vitneskju, sem úrslitum getur ráöið um afkomu fjölda
fólks, og gefið siðan þær upplýsingar sem þeim einum og sjálfum
þóknast þvl fáir eða engir hafa aðstöðu til þess að hrekja upplýsingar
þessara manna.
Spurningunum ósvarað
Og eftir standa spurningarnar. Þeim er ósvarað. Hvert er verð á
blautfiski á Spáni? Er það 2 þúsund dollarar fyrir hvert tonn, eða 300
kr. kg.?
Hverjir eru innflutningstollarnir? Eru þeir 7,5% eða 1,5%? Er tekið 5
peseta gjald af hverju kilói eða 20 peseta gjald?
Samkvæmt þeim upplýsingum sem Þjóðviljinn telur marktækastar
er blautfiskverð suöur á Spáni 300 kr. fyrir hvert kiló, innflutningstollar
1,5%, og af hverju kg mun vera tekið 5peseta gjald.
En hverju halda SlF-menn fram? —úþ
umnuiNN
Þriðjudagur6. mail975 — 40. árg. 101 tbl.