Þjóðviljinn - 06.05.1975, Page 11
Þriðjudagur 6. mai 1975. ÞJÓÐVILJINN — StÐA 11
KR varð Reykjavíkur-
meistari í 25. sinn
með því að sigra Val 2:0 í gærkveldi
KR tryggði sér Reykjavíkur- gærkveldi með þvi að sigra Val ij111 fór fram i miklu roki og af og
meistaratitilinn i knattspyrnu i 2:0 i siðasta leik mótsins. Leikur- til gekk á með éljum. Aðstæður
voru sem sagt eins slæmar til
West Ham
hafði það
Sigraði Fulham 2:0 í úrslitaleik
ensku bikarkeppninnar
West Ham varð enskur bikar-
meistari i knattspyrnu sl. laugar-
dag er liðið sigraði Fulham 2:0 I
úrslitaleik keppninnar sem fram
fór á Wembley.
Þessi sigur var ekki sanngjarn
að sögn þeirra sem sáu leikinn.
Fulham var betri aðilinn nær all-
an leikinn, liðið sótti án afláts en
tókst ekki að skora. Og þeir
Bobby Moore og Alan Mullery
lokuðu vörninni og réðu miðjunni.
1 leikhléi hafði ekkert mark
verið skorað og það var ekki fyrr
en um miðjan siðari hálfleik að
West Ham skoraði fyrra mark
sitt. Þá urðu Mullery á mistök,
þau einu f leiknum og útherjinn
Holand komst upp að endamörk-
um, gaf fyrir markið og Alan
Taylor skoraði.
Afram sótti Fulham og nú meir
1
en áöur en ekki tókst 2. deildar-
liðinu að jafna og West Ham náði
skyndisókn, Holand átti skot að
marki sem var varið, en mark-
vörður hélt ekki boltanum og
Taylor fylgdi vel á eftir og skor-
aði aftur.
Við þetta brotnaði Fulham-liðið
og West Ham sótti mun meira það
sem eftir var leiksins.
Alan Taylor, sá er skoraði bæði
mörkin fyrir West Ham er korn-
ungur leikmaður sem vakið hefur
mikla athygli. Hann skoraði bæði
mörk West Ham á móti Ipswich i
undanúrslitum bikarsins og hann
skoraði einnig tvö mörk á móti
Arsenal fyrr i keppninni. Þennan
unga pilt fékk West Ham fyrir lit-
ið fé i nóvember sl. frá einu af
litlu félögunum i Englandi. Hann
hefur skilað þvi fé margföldu sem
fálagið lagði i hann.
knattspyrnu og hægt var að hugsa
sér og einkenndist leikurinn mjög
af þvi.
KR-ingar áttu þennan sigur
fyllilega skilið miðað við gang
leiksins. Þeir voru betri aðilinn
allan timann, bæði þegar þeir
léku undan rokinu i fyrri hálfleik
og pressuðu stanslaust og eins i
þeim siðari þegar þeir léku gegn
rokinu. Vals-liðið var langt frá
sinu besta og fannst manni alveg
furðulegt að horfa á Hermann
Gunnarsson á varamannabekk
meðan framlina Vals var ger-
samlega bitlaus og átti aðeins eitt
skot að marki i siðari hálfleik
þegar liðið hafði vindinn með sér.
Mörk KR skoruðu þeir Jóhann
Torfason á 15. min. og Stefán
Sigurðsson á 78. minútu.
Undrabarn í
fimleikum
kom fram á
Evrópumóti
13 ára gömul stúlka frá Rú-
meníu bar þar sigur úr býtum
A Evrópumeistaramótinu i
fimleikum sem fram fór i Nor-
egi um siðustu helgi gerist enn
eitt ævintýrið i iþróttum, eitt
af þessum ævintýrum sem
setja allt á annan endann I
iþróttaheiminum og snarsnýr
við öllum spám sérfræðinga
um úrslit. Þetta ævintýri var
að 13 ára gömul stúlka frá
Rúmeniu, Nadi Comaneci
vann fjórar af fimm greinum
mótsins og hún braut heims-
meistarann Ludmilu Turis-
chevu svo gersamlega niður
að hún hrapaði niður i 4. sæti.
Comaneci er eins og áður
segir aðeins 13 ára, 152 sm á
hæð og 38 kg. að þyngd. Hún
var lang-yngsti keppandinn á
mótinu eins og gefur að skilja
þar sem fimleikakonur hafa
vanalega ekki náð toppnum
fyrr en undir tvitugt.
Crslit keppninnar urðu
þessi:
1. Comaneci, Rúmeniu 38,75
stig.
2. Kim, Sovétr. 38,50 stig.
3. Zinke, A-Þýskal. 37,95 st.
4. —5. Turischeva, Sovétr. og
Schmeisser A-Þýskal. 37,90 st.
Jóhannes skoraöi
í sínum fyrsta leik
Jóhannes Eðvaldsson lék sinn
fyrsta ieik með Holbæk um sið-
ustu helgi og hann átti stórleik,
skoraði m.a. mark fyrir lið sitt,
glæsilegt skallamark.
En það dugði ekki til fyrir Hol-
Nýtt
heims-
met í
kringlu-
kasti
Litt þekktur bandariskur
kringlukastari, John Powell,
setti nýtt heimsmet I kringlu-
kasti á frjálsiþróttamóti i
Kaliforniu sl. sunnudag er
hann kastaði 69,09 m. Hann
náði þessu metkasti slnu I 4.
umferð.
Eidra metið áttu þeir saman
Jay Silvester og Ricky Bruch,
það var 69,00 m. Silvester
kastaði 69,00 m árið 1968 en
Bruch jafnaði það 1972.
Bjarni
endur-
ráðinn
hjá
Þrótti
Þróttur hefur endurráðið
Bjarna Jónsson sem þjálfara
1. deildarliðs Þróttar i hand-
knattleik næsta vetur. Og eins
og slðastliðinn vetur mun
Bjarni leika með liðinu.
Fram sigraöi
Þrótt 3:1
Fram sigraði Þrótt 3:1 I
Reykjavikurmótinu i knattspyrnu
sl. laugardag og hefur Fram þar
með hlotið 8 stig og er öruggt með
2. sætið i mótinu.
Kristinn Jörundsson skoraði
fyrsta markið fyrir Fram en hinn
nýi miðframherji Steinn Steins-
son annað markið og Kristinnsvo
aftur það 3ja.
Mark Þróttar skoraði Leifur
Haraldsson. Eins og sagt er frá
annarsstaðar hér á siðunni léku
KR og Valur i gærkveldi siðasta
leikinn i mótinu.
bæk þótt Jóhannes ætti stórleik,
liðið tapaði fyrir KB, 2:4. Leikur-
inn var liður i dönsku deildar-
keppninni.
En á fimmtudaginn kemur
rennur stóra stundin upp hjá Hol-
bæk-liöinu, en þá leikur það til úr-
slita i dönsku bikarkeppninni, og
fer leikurinn fram á Idrettspark-
en.
Dankersen
tapaði fyrir
Gummers-
bach í
úrslitum
Axel Axelsson og félagar
hans I Dankersen töpuðu fyrir
Gummersbach I úrslitum v-
þýsku deildarkeppninnnar I
handknattleik 7:13.
Axel iék lltið með Danker-
sen-liðinu I þessum leik, en
þann stutta tima sem hann var
inná skoraöi hann mark og átti
góöa llnusendingu sem gaf
mark. Axel virðist vera I ein-
hverri ónáð hjá þjálfara liðs-
ins og hefur það valdið mikilli
ólgu meðal áhangenda liðsins
sem hafa dálæti á Axel. Hefur
þetta allt saman orðið til þess
að þjálfari liðsins var rekinn
%■ m
eftir leikinn viö Gummers-
bach og cru þvi llkur á að Axel
verði áfram með Dankersen-
liðinu,en hann ætlaði að hætta
hjá því vegna þjálfarans.
Vinni Holbæk leikinn yrði Jó-
hannes þar með danskur bikar-
meistari en hann varð sem kunn-
ugt er bikarmeistari með Val i
fyrra og gæti þvi hugsanlega leik-
ið meö Holbæk gegn sinum gömlu
félögum i Evrópukeppni bikar-
hafa I haust.
Ármann vann
Gróttumótið
Gróttumótinu i handknattleik
lauk sl. sunnudag með sigri
Armanns. Það voru Armann og
Fram sem léku til úrslita og báru
Armanns-stúlkurnar sigur úr být-
um 12:10.
1 undanúrslitum léku Fram og
Valur og sigraði Fram þá 13:12 en
Ármann sat yfir og lék gegn þvi
liðinu sem sigraði. Aður hafði
Armann sigrað KR og Hauka.
Þessi sigur Armanns kemur
nokkuð á ávart þar sem liðinu
gekk ekki sem best i tslandsmót-
inu i vetur er leið. Hinsvegar get-
ur allt gerst i svona mótum, þar
sem liðin koma litt eða óæfð til
keppni eins og var að þessu sinni,
enda rúmur mánuður siðan
tslandsmótinu lauk og ekkert lið-
anna hefur æft að neinu marki
siðan.
Ármenníng-
ar fresta
drætti í
happdrætti
Þar sem dregist hefur að gera
skil I happdrætti knattspyrnu-
deildar Armanns, veröur drætti
frestaö til 1. júni 1975. Allir þeir
scm hafa fengið miða til sölu eru
hvattir til að gera upp sem fyrst.
Knattspyrnudeild Armanns.