Þjóðviljinn - 08.05.1975, Qupperneq 3
Fimmtudagur 8. mai 1975. ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 3
„Skóli að starfi”
Myndlista- og handiðaskólinn
opnar dyr sinar um helgina
Á morgun kl. 16 veröur opnuð
hin árlega sýning Myndlista- og
handiðaskólans Skipholti 1 undir
nafninu ,,Skóli að starfi”. Al-
menningi verður gefinn kostur á
aö fá innsýni starf skólans á laug-
ardag og sunnudag kl. 14 til 22.
Meðan á sýningunni stendur
verður kaffistofan opin almenn-
ingi.
Starfað verður i öllum deild-
um skólans um helgina og kostur
gefst á kvikmynda- og lit-
skyggnusýningum af starfi nem-
enda. A myndinni má sjá nokkra
nemendur að menningarneyslu.
Prósessía í
gömlum stíl
Leikfélagsmenn minna á borgarleikhúsið
1 dag fer starfsfólk Leikfélags
Reykjavikur i kröfugöngu til þess
að leggja áherslu á að ráðist verði
sem fyrst i byggingu Borgarleik-
húss. Þessi leikhúsganga hefst
hjá Iðnó kl 14 og verður raunar
ekiö i bifreiðum frá árunum
kringum 1930 upp Hverfisgötu, en
gengið niður Laugaveg. Fremst i
flokki fer gamli Ford með dixie-
landhljómsveit á pallinum. Þess
er að væmaað leikarar og annað
starfsfólk verði búið eins og al-
mennt tiðkaðist á þeim góðu
gömlu árum þegar amma var
ung. Með þessu vilja Leikfélags-
menn minna á leikhúsbygging-
una, sem þeir og raunar allir
borgarbúar bera mjög fyrir
brjósti, og fjáröflunarsýninguna
á Húrra krakka i Austurbæjar-
biói, sem frumsýnd var á þriðju-
dagskvöldið við fádæma góðar
undirtektir áhorfenda. Næsta
sýning á Húrra krakka veröur
miðnætursýning á laugardags-
kvöldið i Austurbæjarbiói. Mynd-
in sýnir Bessa Bjarnason og Guö-
rúnu Ásmundsdóttur i hlutverk-
um sinum. Leikstjóri Húrra
krakka er Jón Hjartarson.
Hörður Agústsson
r
Utvarpsráð skammar Yilmund og Bárð
Orökstuddar dylgjur
— „Þörf erindi” sagði einn útvarpsráðsmanna —
Flokksbróðir Yilmundar og Bárðar studdi þá ekki
Útvarpsráð fjallaði i
fyrradag á fundi um
tvö erindi ,,Um daginn
og veginn”, þ.e. erindi
Vilmundar Gylfasonar
s.l. mánudag og erindi
Bárðar Halldórssonar
menntaskólakennara á
Akureyri mánudaginn
annan er var.
Útvarpsráð gerði svofellda
bókun:
„Þátturinn ,,um daginn og
veginn” hefur verið og er opinn
sem flestum sjónarmiðum og
skoðunum sem settar eru fram
með málefnalegum hætti. Hins-
vegar telur útvarpsráð illa farið
að erindi um daginn og veginn
séu notuð til að setja fram órök-
studdar dylgjur um nafngreinda
einstaklinga.
Jafnframt átelur útvarpsráð
að sumir flytjendur þessara
erinda hafa ekki farið eftir gild-
andireglum um erindaflutning i
útvarpi þrátt fyrir ábendingar
dagskrárstjórnar”.
Þeir útvarpsráðsmenn sem
samþykkir voru þessari álytk-
un, voru allir fulltrúar ihalds-
flokkanna, þeir örlygur Hálf-
dánarson, Leó Löve, Ellert
Schram, Friðrik Sophusson og
Auður Auðuns.
Ólafur Einarsson, fulltrúi Al-
þýðubandalagsins lýsti sig and-
vfgan ályktuninni og lét bóka
eftirfarandi: ,,Ég tel að 3. gr.
útvarpslaganna kveði skýrt á
um óhlutdrægnisákvæði gagn-
vart einstaklingum og stofnun-
um, og þau ákvæði eigi að vera
nægilegt aðhald fyrir flytjendur
þátta ,,um daginn og veginn”.
Ég álit undanfarin erindi hafa
verib þörf og timabær, þó átelja
megi að málflutningur hafi ekki
verið rökstuddur sem skyldi og
á mörkum þess er kveðið er á
um i fyrrgreindri lagagrein”.
Kratinn sat hjá
Fulltrúi Alþýðuflokksins i út-
varpsráði, Sigurður E. Guð-
mundsson, sat hjá þegar at-
kvæði voru greidd um ályktun-
ina. afstaða hans vekur sér-
staka athygli. Þarsem flytjend-
ur erindanna, Bárður og Vil-
mundur, eru báðir flokksbræður
Sigurðar, hefur hann ekki viljað
styöja ihaldið i mótmælunum,
en hinsvegar er hann ekki ó-
sammála ihaldinu, þar eð ekki
réttir hann flokksbræðrum sin-
um hjálparhönd.
—GG
Kaupið flugdreka
til styrktar Dagheimili
og skóla fjölfatlaðra
I K jarvalshúsi á
Seltjarnarnesi er nú rekið
dagheimili og skóli fyrir
fjölfötluð börn. Þar er 21
nemandi, en daglegt
starfslið er 12 manns, auk
sérf ræðilegrar þjónustu
tiltekna daga vikunnar.
Stofnunin hefur starfað á
þessum stað frá þvi i október
1974, en áður hafði visir að slikri -
starfsemi farið fram i Bjarkar-
hliö við Bústaðaveg. Forstöðu-
kona dagheimilisins og skólans i
Kjarvalshúsi er Rannveig Löve.
í stjórnarnefnd skipaðri af
menntamálaráðuneytinu eiga
sæti: Formaður Þorsteinn
Sigurðsson kennari, Sævar Hall-
dórsson barnalæknir, Haukur
Þóröarson orkulæknir.
Lionsklúbburinn Týr i Reykja-
vik hefur lagt þessari stofnun lið á
þann hátt, að ágóða af flugdreka-
sölu hefur verið ráðstafað til
stofnunarinnar. Voru I gær
afhentar 2 göngugrindur og
styrktarstóll, en hvort tveggja
eru þjálfunartæki. Klúbburinn
hefur og varið fé til handbóka-
kaupa, og veitt önnu Þórarins-
dóttur, sjúkraþjálfa, styrk til 8
vikna námskeiðs i Bretlandi. Þá
hafa félagar i klúbbnum unnið
samtals um 50 dagsverk i lóð
stofnunarinnar, og munu senn
ljúka þeirri framkvæmd.
Lionsklúbburinn Týr veröur
með flugdrekasölu i Reykjavik i
dag, uppstigningardag, og aðrir
Flugdrekar af öllum stæröum og
gerðum, sem gaman er að leika
sér með i vorinu og vindinum,
verða til sölu i dag.
Lionsklúbbar einrrtg, viös vegar
um land. Allur ágóði af sölunni
rennurtil styrktar ýmsum félags-
legum þáttum á hverjum staö.
HÖRÐUR SÝNIR í
NORRÆNA HIJSINU
Hörður Ágústsson, list-
málari, opnar í dag sýn-
ingu á 67 myndum i kjall-
ara Norræna hússins. Sýn-
ingin stendur til 18. þ.m.
Hörður hefur gefið út afar
vandaða sýningarskrá, þar
sem m.a. eru upplýsingar
um málarann, formáli eft-
ir Ólaf Jóhann Sigurðsson,
skrá yf ir verk á sýningunni
og þrjár eftirprenfanir af
verkum listamannsins,
Skáldiðog stúlkan (olíulitir
á pappír), Land (tússlitir á
pappír), og Hrísla (túss-
teikning). Nokkuð er nú
umliðið frá siðustu einka-
sýningu Harðar.