Þjóðviljinn - 08.05.1975, Blaðsíða 7

Þjóðviljinn - 08.05.1975, Blaðsíða 7
Fimmtudagur 8. mal 1975. ÞJÓÐVILJINN — SIÐA n Riddarar óbreytts ástands Einar Agústsson Gylfi Þ. Gislason Baldur Guðlaugsson Ahugamönnum um vestræna samvinnu er einkar hugleikiö þessa dagana að fullvissa fólk um aö sviptingar heimsmálanna, hrakfarir bandarikjamanna i Víetnam, upplausnin innan NATÓ og sjálfheldan i Miðjarðarhafs- botnum, muni engin áhrif hafa á Islenska utanrikisstefnu. Þrfr riddarar óbreytts ástands ræddu þessi mál með spekingssvip i sjónvarpsþættinum Heimshorni á þriðjudagskvöld. Einar Agústs- son, utanríkisráðherra, lýsti þvi að visu yfir að hann hefði ekkert vit á þvi, hvaða afleiðingar sið- ustu hræringar heimsmálanna kynnu að hafa. Hann var samt jafn hjartanlega sammála Gylfa Þ. Gislasyni og Baldri Guðlaugs- syni, spyrli, um að NATÓ-sam- vinnan og efnahagssamvinna Evrópurfkja við Bandarikin myndi stóreflast á næstunni. Fréttaskýrendur erlendra stór- blaða eru ekki jafn samdóma þre- menningunum, sem eðlilega MvmlILstiu- sýning Ekkja Höskuldar Björnssonar, málara, eftnir til sýningar á verkum hans. Sýningin verður að Bláskógum 2, Hveragerði og er opin frá kl. 2-10 eftir hádegi alla dagana. Kúba stækkar kaupskipa- flotann HABANA 6/5 — Kúba hefur pantað þrjú fjórtán þúsund smálesta vöruflutningaskip frá dönskum skipasmfðastöðvum. Þrjú önnur kaupskip eru þegar i smiðum I skipasmiðastöðvum i Danmörku fyrir kúbanska kaup- skipaflotann. Auglýsinga- síminn er 17500 Þjóðviljinn Lagerstærðir miðað við múrop: Hæð: 210 sm x breidd: 240 sm - 210 - x - 270 sm Aðrar stærðir.smíðaðar eftir beiðni. GLUGGAS MIÐJAN SíðumúJa 12 • Sími 38220 reyna að stappa stálinu f fólk, sem undrast kreppuboðana I vestrænni samvinnu. Stjórnmálaskriffinnar eru sumir að gera þvi skóna að Efna- hagsbandalagið muni nota tæki- færið til þess að koma sér upp sjálfstæðari stefnu i utanrikis- málum, nú þegar dregið hefur úr stórveldisstyrk Bandarikjanna. Jafnframt er talið að viðskilnaður bandarikjamanna við banda- menn sina i Suður-Vietnam muni ekki efla trú forystumanna i Evrópu á NATÓ-skuldbindingar Bandarikjastjórnar. Þessara við- horfa, sem óneitanlega gætu haft áhrif á Islenska utanrikisstefnu, þótti ekki ástæða til þess að geta i sjónvarpinu. En þó að Einar Agústsson lýsti þvi yfir að hann hefði ekki vit á utanrikismálum var ekki annað að heyra á hagfræðiprófessorn- um, en að hann hefði dágott vit á kreppu auðvaldsheimsins. Hún stafaöi nefnilega ekki eingöngu af oliuverðshækkunum heldur fyrst og fremst af þvi að bandarikja- menn hefðu ekki haft tima til þess að hugsa um eigin efnahag vegna striðsrekstursins i Vietnam og al- þjóðlegra lögreglustarfa. Nú gæf- ist timi fyrir þá að lita í eigin barm og þá kæmi betri tið, þvi niðurstaðan hlyti að verða sú, að auðvaldsheimurinn þjappaði sér fastar saman. Stjórnmálaskýr- ingar af þessu tagi varpa nokkru ljósi á það hversvegna er litið á Gylfa Þ. Gislason sem furðufugl i alþjóðahreyfingu jafnaðar- manna. Þeir félagar Einar og Gylfi fóru hástemmdum orðum um nauðsyn þess að hernaðar- bandalög yrðu leyst upp, en jafn- framt sagöi utanrikisráðherra að bandarikjamenn myndu áfram halda uppi vörnum á Islandi um ófyrirsjáanlegan tima og engin breyting yrði á NATÓ-aðildinni. Framsóknarmenn virðast þvi endanlega hafa gefist upp við að skilgreina ákvæðið i stefnuskrá flokksins um að herinn skuli hverfa af landi brott i áföngum á friðartimum. Hann ætlar að koma seint friðurinn hans Einars. Þótt þrjátiu ár séu liðin frá enda- lokum heimsstyrjaldarinnar eru hinir umtöluðu friðartimar i stefnuskrá Framsóknarflokksins ekki runnir upp enn. Niðurstaðan er þvi óbreytt á- stand, enda þótt „Bandarikja- menn hafi hætt þátttöku i hinu hörmulega striöi i Vietnam”. Baldri Guðlaugssyni til hróss verður að segjast, að honum tókst I Heimshorni að fá það fram, sem hann ætlaðist til, og er það meira en venjulega er hægt að segja um okkur spyrla aðra i þáttum sjón- varpsins. Einar Karl. opnum viö útibú aö Arnarbakka 2. Útibúiö mun annast alla almenna bankaþjónustu. Breióholtsbúar! Útibúinu aö Arnarbakka er sérstaklega ætlað aö þjóna yöur. Kynnið yöur þaö hagræöi sem þér getið haft af því. Útibú Arnarbakka 2, Breiöholti, Sími 74600 Opið kl. 9.30-12, 13-16, 17-18.30. I

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.