Þjóðviljinn - 25.05.1975, Síða 4

Þjóðviljinn - 25.05.1975, Síða 4
4 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Sunnudagur 25. mai 1975 DWDVIUINN MÁLGAGN SÓSÍALISMA VERKALÝÐSHREYFINGAR OG ÞJÖÐFRELSIS Otgefandi: ótgáfuféiag Þjdðviljans Framkvæmdastjóri: Eiður Bergmann Jtijstjórar: Kjartan ólafsson, Svavar Gestsson Fréttastjóri: Einar Karl Haraldsson (Jmsjón með sunnudagsblaði: Vilborg Harðardóttir Ritstjórn, afgreiðsla, auglýsingar: Skólavörðust. 19. Sfmi 17500 (5 linur) Prentun: Blaðaprent h.f. ATBURÐIRNIR í PORTÚGAL Mikil og örlagarik umskipti hafa orðið á sviði alþjóðamála siðustu árin. Þar ber að sjálfsögðu hæst sigur þjóðfrelsisaflanna i Indókina, ásamt pólitisku og siðferðilegu hruni þeirra manna sem haft hafa forustu fyrir bandariskri heimsvaldastefnu og standa nú i hrönnum uppvisir afbrota- menn, hvort sem þeir dveljast innan tukt- húss eða utan. Einnig i Vestur-Evrópu hafa gerst örlagarikir atburðir sem munu draga langan slóða, fall fasismans i Grikklandi og Portúgal. Þar eru umskipt- in i Portúgal ekki sist mikilvæg vegna þess að þau hafa bundið endi á þá villi- mannlegu nýlendustyrjöld sem portúgalskir fasistar háðu i Afriku með tilstyrk Atlantshafsbandalagsins og Bandarikjanna. Atlantshafsbandalagið er nú veikara en það hefur nokkru sinni verið siðan það var stofnað, ekki siður en Var- sjárbandalagið þar sem aðildarrikjunum er haldið saman með sovésku hervaldi. Þau ár munu renna fyrr en varir að þessi nauðungarbandalög sundrist að fullu og smáþjóðir dragi andann léttar. Atburðirnir innan Portúgals hafa að vonum vakið athygli manna. Enn sem fyrr er það herinn sem hefur hin raun- verulegu völd i landinu, þótt hinir nýju ráðamenn hersins styðjist við aðrar stéttir og aðrar og nútimalegri hugmyndir en fyrr. Ráðamenn hersins i Portúgal segjast stefna að sósialisma, þeir hafa gert upp- tækar eignir hinnar fámennu forréttinda- stéttar sem áður réð öllu i landinu og tekið upp rikisrekstur i vaxandi mæli, hliðstæð- ir atburðir hafa gerst áður til að mynda i ýmsum Arabalöndum. Slik umskipti fela að sjálfsögðu i sér mikilvægar grund- vallarbreytingar á gerð þessara þjóðfé- laga, enþær eru enginn „sósialismi” með- an þær eru framkvæmdar með fyrirmæl- um að ofan, án þess að alþýða manna hafi getu eða völd til þess að framkvæma raunverulegt efnahagslegt lýðræði. 1 Portúgal er um að ræða mikilvæga á- fanga, en leiðin til raunverulegs og virks sósialisma getur orðið löng og krókótt hjá þjóð sem ekki hefur reynslu af öðru en fas- isma. Það er einnig mjög mikilvægt að i fyrstu frjálsu kosningunum sem fram fóru i landinu reyndist mikill meirihluti þjóðar- innar aðhyllast sósialisma. Sú staðreynd er jafn mikilvæg þótt siðan hafi komið upp valdabarátta milli Sósialistaflokksins sem var ótviræður sigurvegari i kosningunum og Kommúnistaflokksins sem fékk mun minna fylgi en leiðtogar hans höfðu gert sér vonir um. Átökin eru greinilega afleið- ing þess að forustumenn þessara flokka hafa meginhluta ævi sinnar ýmist dvalist i fangelsum fasistastjórnarinnar eða i út- legð, og gamlar úreltar kreddukenningar virðast móta viðhorf þeirra i rikum mæli. Vonandi eiga þessir forustumenn stjórn- visku til þess að bæjgja slikum kreddum til hliðar og snúa bökum saman, efla sósialiska þróun og stefna að þvi að flytja hin raunverulegu völd i landinu úr hönd- um herforingja til fólksins sjálfs. Sú leið verður vafalaust torsótt, þvi stórveldi, hernaðarbandalög og undirróðursstofnan- ir munu að vanda beita áhrifum sinum eftir óhrjálegustu leiðum til þess að tor- velda frjálsa framsókn portúgölsku þjóðarinnar til lýðræðis og sósialisma. í hernámsblöðunum islensku hefur ver- ið reynt á hinn furðulegasta hátt að heim- færa atburðina i Portúgal upp á Island. Það hefur verið viðurstyggilegt að sjá Morgunblaðið gera sér upp áhyggjur út af lýðræði i Portúgal, það blað sem áratug- um saman hefur verið málsvari fasista- stjórnarinnar. Það hefur verið skoplegt að sjá Gylfa Þ. Gislason lýsa portúgölskum sósialistum sem flokksbræðrum sinum; ef Gylfi hefði verið portúgalskur stjórnmála- maður væri hann nú tvimælalaust i útlegð, gagntekinn heift i garð Sósialistaflokksins sem er i öllum efnum andstæða Alþýðu- flokksforustunnar islensku. ísland og Portúgal eru einhver ólikustu þjóðfélög sem finnanleg eru i Vestur-Evrópu, og til- raunir til þess að heimfæra skoðanir manna i öðru þjóðfélaginu yfir á hitt eru til marks um það eitt hvilik lágkúra ein- kennir oft islenska stjórnmálaumræðu. Hérlendis eru atburðirnir i Portúgal stuðningur við þá eina sem berjast fyrir stjórnarfarslegu sjálfstæði, efnahagslegu lýðræði, fyrir sósialisma i samræmi við is- lenskar aðstæður. —m. FRÁ NESKAUPSTAÐ - o Mikill íþróttaáhugi — en dýrt fyrir félög úti á landi að komast langt , segir „fjármálaráð- herra” Þróttar í Neskaupstað íþróttahúsiö — myndarlegt, en of stutt. Auftvitaö er það gaman og mikil hvatning iþróttafélagi úti á landi aö komast langt á iandsmæli- kvarða i einhverri grein. En ánægjan getur verið dálitið blandin þegar þátttaka td. i 2. deild i knattspyrnu gleypir mest- alla fjárveitinguna til félagsins og þá óhjákvæmilega á kostnaö ann- arra iþróttagreina. bað er Þórður M. Þórðarson, stundum kallaður „fjármálaráð- herra” iþróttafélagsins bróttar i Neskaupstað, sem bendir á þetta, en til hans snerum við okkur til að fræðast um iþróttalifið i bænum. Mikill og almennur iþrótta- áhugi er rikjandi á Norðfirði, og hafa sennilega allflestir núlifandi innfæddir norðf irðingar ein- hverntima tekið einhvern þátt i iþróttunum þá rúmlega hálfu öld sem iþróttafélagið hefur starfað, enda má sjá marga núverandi þekkta menn staðarins sem krakka eða ungmenni i mynd- skreyttu riti félagsins, sem gefið var út i tilefni 50 ára afmælisins 1973. Færeyjaferð — Mestur hefur áhuginn oftast verið kringum knattspyrnuna, segir Þórður, en lika hér áður kringum handboltann þótt hann hafi heldur sett ofan siðustu árin. En nú höfum við fengið hingað öldu Helgadóttur landsliðskonu úr Kópavogi. Hún er nú búsett hér og er að drifa upp handboltann hjá stúlkunum. Skiðaáhugi er einnig mikill, sagði hann, bæði meðal yngri og eldri norðfirðinga. Félagið á skiðaskála i Oddsdal, sem tals- vert er notaður, ma. af gagn- fræðaskólanemum, sem skóla- stjórinn hefur farið mikið með á skiði i vetur. Á vegum félagsins eru einnig æfðar frjálsar iþróttir og sund og standa nú fyrir dyrum harðar æf- ingar i öllum greinum vegna keppni i Færeyjum i sumar. Þróttur hefur samskipti við iþróttafélagið i Sandavogi i Fær- eyjum og sendir þangað 40 manna hóp til keppni. Þetta er 2. ferð Þróttar til Færeyja, en Sandavogsmenn hafa komið einu sinni til Neskaupstaðar. iþróttahúsið þriðjungi of stutt tþróttamannvirki i bænum eru sundlaugin, sem starfrækt er á sumrin, iþróttavöllur og iþrótta- hús, sem notað er jöfnum höndum fyrir skóla bæjarins og iþrótta- félagið. En það er galli á iþrótta- húsinu, að vallarlengd er ekki næg og vantar þriðjung uppá upp- haflega ráðgerða stærð hússins. Það var iþróttasjóður sem stöðvaði framkvæmdir á sinum tima og varð aldrei úr að allt hús- ið væri steypt upp. En það er á stefnuskrá meirihluta bæjar- stjórnar að stækka húsið. fþróttahúsið er mjög mikið notað, sagði Þórður, ekki sist af fullorðnu fólki, sem þar stundar leikfimi og badminton. Aðrar al- menningsiþróttir eru skiðaiðkun á vetrum og sund á sumrin og er talsvert um að fólk fái sér sund- sprett áður en það fer i vinnuna á morgnana, en sundlaugin opnar kl. 7. Bæjarfélagið hefur styrkt rekstur iþróttafélagsins með um 600 þús. króna framlagi á ári. — En það er að verða svo dýrt að reka iþróttastarfsemi úti á landi, sagði Þórður, að það er nær ógjörningur. Það er bæði dýrt að kosta þjálfara og þá ekki sist ferðalög flokkanna; ferða- kostnaður hjá okkur hefur td. farið allt uppi 300-500 þúsund krónur á einu ári. Þórður N. Þóröarson Einkum sagði hann það dýrt að lenda i 2. deild. Þannig hefði td. félagið i Neskaupstað þurft að leika 7 leiki i Reykjavik og m.a.s ferðast allt til fsafjarðar þegar það var i 2. deild, á sama tima og Reykjavikurfélögin fáruðust yfir að þurfa að fara eina einustu ferð austur á land. Leikir innan 3. deiidar eru hinsvegar aðeins inn- an viðkomandi fjórðungs, en þá þarf reyndar að ferðast allt suður til Hornafjarðar og norður á Vopnafjörð. Þessi orð má samt ekki skilja svo, að Þórður fagni þvi að Þrótt- ur er ekki lengur i 2. deild: — Auðvitað er það geysileg hvatning að komast i hana og mark til að keppa að fyrir félögin úti á landi. En það verður að koma þessu einhvernveginn fyrir þannig, að það verði þeim ekki fjárhagslega ofviða. —vh

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.