Þjóðviljinn - 25.05.1975, Síða 6

Þjóðviljinn - 25.05.1975, Síða 6
6 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Sunnudagur 25. mai 1975 LÚÐVÍK JÓSEPSSON : 50 mílur — 200 mílur Núverandi rikisstjórn hefur lýst þvi yfir að á þessu ári muni hón færa fiskveiðilandhelgina við tsland Ut i 200 milur. Eins og fram hefur komið varð það að sam- komulagi i landhelgisnefnd þeirri, sem rikisstjórnin hefur skipað og I eiga sæti fulltrúar allra stjórnmálaflokka, að rétt væri að biða með ákvörðun út- færsludags fram yfir fundartima- bil hafréttarráðstlefnunnar i Genf, en hún átti að ljúka störfum 10. mai sl. Nú er fundum hafréttarráð- stefnunnar lokið að sinni, og má þvi búast við að senn hefjist um- ræður flokkanna um útfærslu i 200 milur, þ.e.a.s. hvenær hún skuli eiga sér stað og hvemig að mál- inu skuli staðið. 95% fiskaflans innan 50 mílna Um stækkun fiskveiðilandhelg- innar í 200 milur er fullt sam- komulag allra flokka. Það verður þvi eflaust enginn ágreiningur um útfærsludag, né heldur hvern- ig útfærslan skuli verða i aðalat- riðum. En þó að svo sé varðandi útfærsluna i 200 milur er ekki þar með sagt að allt sé á sléttu og enginn vandi á höndum varðandi okkar landhelgismál. Allir vita að býsna mikill ágreiningur hefur verið um framkvæmd landhelgis- málsins, einkum milli ýmissa for- ustumanna stjórnmálaflokkanna. Utfærsla fiskveiðilandhelginn- ar i 50 milur hefur nú staðið i tæp- lega 3 ár. A þessum tima hefur okkur ekki tekist að losna full- komlega við veiðar útlendinga i fiskveiðilandhelgi okkar og mun- ar þar mest um veiðar breta. Nýlega hefur hafrannsóknar- stofnunin tekið saman skýrslu fyrir landhelgisnefndina um fisk- veiðar við tsland innan 50 milna markanna og á svæðinu á milli 50 og 200 milana. 1 þeirri skýrslu kemur i ljós eins og Þórarinn Þórarinsson ritstjóri Timans hefur skýrt frá i blaði sinu, að innan 50 milna markanna veiðist svo að segja allur sá afli botnfiska sem veiddur er við ísland. Hafnrannsóknarstofnunin telur að um 97% alls þorskaflans veið- i istinnan 50 milna markanna, 99% ýsuaflans, 82—86% alls ufsaafl- ans og yfir 50% karfaaflans veið- ist innan 50 milnanna. Þessar staðreyndir hafa verið kunnar flestum islenskum fiskimönnum og flestum þeim sem fylgjast nokkuð með fiskveiðum á ís- landsmiðum. Á svæðinu milli 50 milna og 200 mllna hefur litil fiskveiði átt sér staönema sildveiði meðan sildin veiddist sem mest á góðu síldar- árunum, djúpt út af Austurlandi. Árangurinn i landhelgisbaráttu okkar stendur og fellur með þvi hvernig gengur að vernda 50- milna-svæðið. Útfærslan i 200 mflur er þýðing- armikil, ekki vegna veiðisvæð- anna, sem þar eru heldur vegna þess að aukið lögsögusvæði okkar gefur okkur aukið öryggi gegn þvi að útlend veiðiskip trufii fiski- göngur á þvi' svæði, og siðar getur auövitað komið til þess að fisk- veiðar verði stundaðar á þessu svæöi. Fiskaflinn á íslandsmiðum Samkvæmt skýrslum Hafrann- sóknarstofnunarinnar hefur meöaltalsaflamagn islendinga og útlendinga verið sl. 16 ár á Is- landsmiðum 728 þúsund tonn af botnfiski, þ.e.a.s. af þorski, ýsu, ufsa og karfa og nokkrum öðrum fisktegundum. Samkvæmt alþjóðlegum skýrslum um aflamagn kemur i ljós, að magn þessara fiskiteg- unda hefur i áratugi verið um 700—800 þúsund tonn á ári, og hef- ur aflinn skipst mjög jafnt á milli islendinga annarsvegar og allra útlendinga hinsvegar. Nú siðustu árin eftir útfærsluna i 50 milur, hefur hlutfallið snúist islendingum i hag og mun vera orðið 65% á móti 35%, en jafn- hliða hefur heildaraflamagnið minnkað. Á Hafréttarráðstefnunni, sem nýlega er lokið i Genf, kom greinilega fram sterkur vilji ráð- stefnufulltrúanna, að sú skipan skuli verða gildandi i hafréttar- málum, að viðkomandi strandriki eigi að geta ákveðið hvað mikið magn megi veiða á 200 mflna efnahagslögsögusvæði við landið og að það eigi einnig að hafa rétt til að segja sjálft til um, hvað það geti veitt mikið á svæðinu, og hvað rétt sé að heimila miklar veiðar tii annarra. Samkvæmt þessari reglú mýndum við Islendingar fá vald til að ákveða hámarksveiöi á fs- landsmiðum. Sennilega myndum við ákveða hana 500—600 þúsund tonn i næstu 2—4 ár,. meðan stofn- amir eru að ná sér upp, en siðan yrði árleg veiði 700—900 þúsund tonn eða jafnvel enn meiri. Það er því ljóst, að innan tiðar stöndum við islendingar frammi fyrir miklu og mjög vaxandi verkefni þar sem er að fullnýta á skynsamlegan hátt allan fiskafl- ann viö landið og vinna þann afla á fullkominn hátt til manneldis. Samningarnir viö breta falla úr gildi 13. nóvember Þann 13. nóvember i ár fellur samningur breta um veiðar i is- lenskri fiskveiðilandhelgi úr gildi. Þá ættu fiskimiðin innan 50 milnanna aö vera komin undir ó- skoraða, islenska stjórn og þá ætti að ljúka endanlega hinum gifurlega mikla ágangi erlendra togara á Islandsmiðum. En hvað gerist i raun og veru 13. nóvem- ber i ár? Getur það verið, að nú- verandi rikisstjórn hugsi til þess að framlengja samningana við breta og semja jafnhliöa um veið- ar þýskra togara i fiskveiðiland- helgi okkar? Fyrir fáum dögum var Matthías Bjarnason sjávarút- vegsráðherra spurður um það i útvarpsþætti hvort slikir samn- ingar kæmu til greina. Matthias svaraði óákveðið, en taldi þó, að slikir samningar kæmu til greina og i þvi sambandi kom hann með þessa gömlu og út- þvældu afsökun, ,,að við islend- ingar værum ekki einir i heimin- um” og ,,að við þyrftum að selja framleiðslu okkar” og „aðokkur væri nauðsynlegt aö ná góðu við- skiptasamkomulagi við Efna- hagsbandalagið”. Ummæli Matthiasar voru vissulega uggvekjandi og benda eindregið til þess, að hann hugsi sér aö semja um áframhaldandi veiöiheimildir breta og um nýjar heimildir fyrir þjóðverja. Matthias Bjarnason, sjávarút- vegsráðherra, er eflaust ekki einn I stjórnarliðinu á þessari skoðun. í grein Þórarins Þórarinssonar i Timanum þann 17. þ.m. kemur fram svipaður tónn, etf þó ekki eins slæmur og hjá Matthiasi. Þórarinn tekur upp kenninguna um þali, ,,að við séum ekki einir i heiminum” og talar um umþótt- unartima. En þvi má ekki gleyma að bret- ar hafa fengið sinn umþóttunar- tima innan 50 mflnanna. Fyrst tóku þeir sér umþótt- unartima með valdi i rúmlega eitt ár og siðan sömdu þeir um tvö ár. Með þeim sainningi hafa þeir viðurkennt, að samningstíminn sé úti þann 13. nóvember og við það eiga þeir að standa. Og Vestur-þjóðverjar hafa i þrjú ár neitað samningum um eölilegan umþóttunartima, en þess i stað beitt okkur viðskipta- þvingunum og stundað hér land- helgisbrot. Undanþágur gera útfærsluna í 200 mílur hlægilega Sú hugmynd að útfærslan I 200 milur gefi tilefni til nýrra undan- þágusamninga er fráleit. Allir þeir, sem eitthvað hafa hugleitt landshelgisbaráttu islendinga vita, að það sem fyrst og fremst skiptir máli er að ná fulikominni stjórn á fiskveiðum við landið, þar sem þær fara fram. Nú er brýn þörf á þvi að stöðva veiðar útlendinganna m.a. vegna veikra fiskistofna og augljósrar ofveiði. Það er auðvitað að snúa hlutunum öfugt að krefjast þess af íslendingum, að þeir stöðvi slnar veiðar eða stórminnki þær á sama tima og útlend veiðiskip fara héðan með hundruð þúsunda tonna af fiski. Minnkandi sókn i stofnana verður að eiga sér stað á þann hátt, að útlendingarnir viki af okkar miðum. A næstu mánuðum mun á það reyna, hvort sigur vinnst I land- helgisdeilum okkar við útlend- inga, eða hvort svo illa á til að takast, að enn verði látið undan kröfum breta og vestur-þjóðverja og siðan áfram flaggað með 200 milna útfærslu.sem þá yrði litið annan eð nafnið Nú, eins og áður, verður þjóðin öll — ekki aðeins fáir foringjar — heldur þjóðin öll, að standa á vérði i þvi mikla hagsmunamáli sem landhelgismálið er. Tillögurnar eru algerlega á mlna ábyrgð, sagði Ólafur Jóhannesson, þegar hann kom utan frá þvi aö semja viö breta foröum tfð. Tekur hani nú ábyrgð á þvi að semja enn við ofbeldisöflin I kompanii viö Geir HallgrimssoniMyndin af Ólafi er tekin þegar hann kynnti tillögur sinar um samninga viö breta haustið 1973, en myndin af þeim félögum er tekin, þegar Ólafur afhenti Geir lyklavöldin I forsætisráðuneytinu sl. sumar. in SKODA r. — S; ioo645.000.- Verð til öryrkja 470.000. TÉKKNESKA BIFREIÐAUMBOÐIÐ Á ÍSLANDI H/F. AUÐBREKKU 44—46 KÓPAVOGI SÍMI 42600

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.