Þjóðviljinn - 25.05.1975, Síða 9
Sunnudagur 25. mai 1975 þjóÐVILJINN — SÍÐA -9
FRÁ NESKAUPSTAÐ
Litið inn á
dagheimili
í Nes-
kaupstað
Kveöjuveisla meö sleikibrjóstsykri I eldri deild
Á sama tíma og víðast
annarsstaðar er kvartað
sáran yfir skorti á barna-
heimilum hefur bæjarfé-
lagið í Neskaupstað byggt
svo myndarlega yfir sín
börn, að þar hefur ekki
verið full nýting á dagvist-
unarplássunum. Forstöðu-
kona dagheimilisins á
Blómsturvöllum segir á-
stæðuna reyndar ekki þá
aðekki sé þörf fyrir pláss-
in, heldur að skipulagið
haf i ekki hentað foreldrun-
um nógu vel og hefur því
nú fyrir sumarið verið
breytt nokkuð um
rekstrarform dagheimilis-
ins.
Þaö var kalt og nöturlegt úti
daginn sem blaðamaður Þjóðvilj-
ans leit inn hjá krökkunum, en
inni var bjart og hlýtt og allir i
hátiðaskapi, enda verið að halda
sleikibrjöstsykursveislu i tilefni
af þvi að ein stelpan var að kveðja
— átti að hætta daginn eftir.
— Kannski ekki besta auglýs-
ingin fyrir dagheimilið að láta sjá
svonalagað á mynd! sagði fóstran
á eldri deildinni, Alda Stefáns-
dóttir, sem iþróttaunnendur
munu kannast við úr handboltan-
um og má reyndar skjóta þvi hér
inn, að hún er tekin til óspilltra
málanna við þjálfun þar eystra
svo við ýmsu má búast úr þeirri
áttinni á næstunni....
Að þvi er forstöðukonan Jó-
hanna Stefánsdóttir sagði, starf-
aði dagheimilið i tveim deildum i
vetur, fyrir yngri og eldri börn, og
var ekki alveg full nýting, en
Dagheimiliö á Blómsturvöllum
VILJUM KOMA
STARFSEMINNI í
FASTARISKORÐUR
hinsvegar mikil eftirspurn eftir
plássum hálfan daginn. Til að
koma til móts við óskir um hálfs-
dagspláss og til að nýta húsnæði
og starfskraft betur yfir sumarið
var ákveðið að breyta rekstrinum
og bæta við leikskóladeild, sem
starfar tviskipt, fyrir og eftir há-
degi. Hafa nú þegar verið innrituð
i leikskólann 35 börn, en 32 verða
á dagheimilinu i sumar. Ekki er
ákveðið hvort haldið verður á-
fram starfrækslu leikskóladeild-
ar næsta vetur lika, það fer eftir
reynslunni i sumar og umsóknum
næsta háust en fram að þessu hef-
ur Iðnskólinn i Neskaupstað notað
tvær stofur byggingarinnar á vet-
urna,
Fyrir utan Jóhönnu og öldu,
sem báðar eru fóstrur að mennt-
un, vinna 6 aðrar við gæslu barn-
anna og tvær i eldhúsinu. Tveir
nemar frá Fósturskólanum starfa
á dagheimilinu i sumar.
Jóhanna áleit það hafa háð
rekstri dagheimilisins nokkuð,
hve tið mannaskipti hefðu verið
þar hjá starfsfólkinu og skipulag-
ið þvi orðið dálitið laust i reipun-
um. Sjálf tók hún við heimilinu i
september sl. ár, — hafði áður
starfað við barnaheimili i Hafn-
arfirði og i Kópavogi, en er úr
Neskaupstað.
— Og líkar vel að starfa hér
heima, sagði hún, þótt hér sé svo-
sem einsog allsstaðar litlir pen-
ingar fyrir hendi þegar eitthvað
þarf að gera. Það sýnir þó amk.
góðan vilja að byggja svona
myndarlega, og við sem vinnum
hér núna höfum fullan hug á að
koma starfseminni i fastari
skorður, móta hana og byggja
upp þannig, að hún nýtist foreldr-
um og börnum sem best.
—vh
Alda Stefánsdóttir viö störf á eldri deild.
Jóhanna forstööukona meö börnum á yngri deild