Þjóðviljinn - 25.05.1975, Side 10

Þjóðviljinn - 25.05.1975, Side 10
ío SIÐÁ'—VjóÐVÍlJÍNN' Sunnúdágur 25. mál Í975 Sjúklingar í öllum velferðarrikj- um eru lyfjanotkun og lyfjasala mikið á dag- - skrá. Venjulega eru svipuð mál á dagskrá i hinum ýmsu löndum: almenn ofnotkun lyfja, tilhneiging til að „kaupa” sjúklinga af læknaþjónustunni með vanhugsuðum eða gagnslausum lyfjagjöf- um, ennfremur marg- visleg ráð sem lyfja- hringarnir hafa til þess að skrúfa upp bæði verð á lyfjum og söluna yfir- leitt. I nýlegum greinaflokki i Le Monde var um þessi mál fjallað eins og þau lita út i Frakklandi, enmargt er þar sagt sem einnig á við um önnur lönd. Þessar rosknu konur Þar er fyrst vikið að sjálfum gæðum lyfjanna. Aukaverkanir lyfja eru mjög útbreitt vandamál, til dæmis telja svisslendingar að þar deyi maður fjórða hvern dag vegna langvinnrar ofnotkunar á lyfjum, og i Frakklandi sjálfu er talið að 2-5% allra þeirra sem á sjúkrahús koma séu þar vegna þess að einhver lyf hafi haft á þá hæpin áhrif. I þriðja lagi er mikill sægur af lyfjum i umferð, sem eru sannarlega gagnslitil eða þá gagnslaus með öllu — tekið er dæmi af þvi lyfi sem mestur gróði er af i Frakklandi (211 miljónir franka á ári gefur það af sér) og sagt að ,,það hefur engin önnur á- hrif á heila þess roskna fólks sem það tekur sér til hressingar en þá æfingu sem fæst af að telja þrjátiu dropa af þvi á hverjum morgni”. Sjálfir viðurkenna tals- menn lyfjaiðnaðarins — með semingi þó — að mikið sé af á- hrifalitlum „huggunarlyf jum” sem gottsé að visa á öllum „þess- um áhyggjufullu rosknu konum, sem allar virðast finna eitthvað til I fótunum”. Markaðspóker Þessi vandamál — lyf sem hafa illa kannaðar eða illa upplýstar aukaverkanir og svo mikill fjöldi gagnslausra lyfja á markaði — rekja greinarhöfundar i Le Monde að verulegu leyti til sjálfr- ar samkeppnisstöðunnar á mark- aðinum. Flestir framleiðendur hafa af smáum framförum að státa I gerð lyfja. En þeir verða að halda sér á hreyfingu innan vitahrings markaðslögmála, jafnvel þótt um gervihreyfingu sé að ræða. Þvi eru þeir á endalaus- um snöpum eftir „efnilegum leið- um” I samsetningu lyfja, reyna að „smlða” nýtt lyf sem passi akkúrat inn i það svigrúm sem markaðurinn gefur. Um leiö eyða þeir tugmiljónum i að reyna að hrekja önnur og hliðstæð lyf út af markaðinum frá keppinautunum (sem að sjálfsögðu svara I sömu mynt). Þetta gæti verið nógu spaugilegt á að horfa ef að verið væri að framleiða til dæmis sinnep. En þetta er dýr og hættu- legur póker þegar lögð er undir heilsa fólks og opinber útgjöld til velferðar þess. Með þvi að setja svo mörg lyf á markaðinn á ári hverju — 200-300 sina um lyf með þvi að fara á námskeið og fyrirlestra, þá eru þeir rétt einu sinni enn að rekast á útsendara lyfjahringa, sem ann- aðhvort skipuleggja fyrir- lestrana, eða senda þangað tæknilega aðstoðarmenn eða borga þá kokkteila sem að lokum eru drukknir. Lyfjahringarnir eru firnalega auðugir, og þeir hafa ærin efni á þvi að fjarstýra smekk lækna allt frá þvi þeir setj- ast á skólabekk. Þeir smjúga inn um ýmisleg göt á sjálfri læknis- fræðslunni og notfæra sér opin- bera nisku á fé til rannsókna- starfa til að ráða firnamiklu af þeim upplýsingastraumi sem verðandi og starfandi læknar fá um úrræði við sjúkdómum : upp- lýsingar um lyf koma frá þeim sem mestan hag hafa af þvi að þau séu seld sem mest og sem mest bruðlað með þau. Einokunarverðlag 1 samantekt þeirri sem hér hef- ur verið rakin að nokkru eru stjómvöld og gagnrýnd harðlega fyrir að veita lyfjaframleiðend- um slælega mótspyrnu i verð- lagsmálum. Fullyrðingar iyfja- hringanna um að þeir verði að hafa verðlag á lyf jum jafn hátt og raun ber vitni vegna kostnaðar við rannsóknir, eru teknar góðar og gildar, þrátt fyrir ýmsar rann- sóknir — t.d. bandariskar — sem sýna að hlutföllin milli þess sem lyfjahringar eyða I rannsóknir og þess sem þeir eyða I auglýsingar eru hin svivirðuiegustu. Hér við bætist, að framleiðslan færist i æ rlkari mæli i hendur alþjóðlegra auðhringa, sem hvað eftir annað hafa verið sóttir til saka I hinum ýmsu löndum fyrir svivirðulegar ráöstafanir tilaðskrúfa upp verð. Innflutt lyf eru nú 25-45% dýrari en frönsk, en sú verðlagsleg vörn sem frönskum sjúklingum og riki hefur verið i innlendri fram- leiðslu er mjög að þverra vegna þess að alþjóðlegu hringarnir ganga mjög hart fram i þvi að kaupa upp frönsk fyrirtæki sem á þessu sviði starfa. Og þjóðnýting Hér hefur verið getið um all- mörg vandamál sem eru langt frá þvi aö vera sérfrönsk — við tæki- færi væri gott að bera þær upplýsingar sem hér voru raktar saman við Islenskar aðstæður. Að lokum er bent á nokkrar leiðir til úrbóta. Þar er getið um stuðning við innlenda framleiðslu og rann- sóknir. Aukna upplýsingastarf- semi sem gerði fólk sjálfstæðara gagnvart lyfjum. Stuðning við þá lækna og læknamiðstöðvar sem hafa gert tilraunir með nýja stefnu i lækningum ; hún byggir meðal annars á stórfelldum niðurskurði I lyfjanotkun annars- vegar, en hinsvegar á löngum viðtölum við sjúklinginn og könn- un á ferli hans og umhverfi (læknahópur dr. Jean-Marie Uhry I Grenoble). Og ennfremur segja þeir hjá le Monde, að það væri ekki svo galin hugmynd að setja upp þjóðnýttan lyfjaiðnað og gera nokkra grein fyrir þvi, hvemig þeir telja að best væri að þvi staðið. (áb tóksaman) Pillur, sprautur og glös á ári, og með þvi að reyna hvað sem það kostar, að „halda” markaðinum I þessum sjúkdómi eða öðrum, þá fer ekki hjá þvi, að menn lendi I þvi að setja á mark- að illa prófuð lyf eða fara á annan hátt „yfir strikið”. Þannig „gleyma” framleiðendur til dæmis að geta þess i Vidal, en svo nefnist rit það, sem læknar sækja flestar upplýsingar til um ný lyf — að tiltekið lyf hafi aukaverkan- ir á augu og að menn geti fengið hjartaslag ef þeir hætti skyndi- lega að taka annað lyf. Og menn þekkja til dæmis dæmi, að for- stjórar franskrar lyfjaverk- smiðju hafi reynt að hafa áhrif á ráðherra I þá veru að ákveðið lyf væri ekki sett á fiknilyfjaskrá, enda þótt það væri sannarlega mikið notað af dópistum I bland t við alkóhól. Þetta spillir sölunni sögðu þeir. Gervirannsóknir Mikið skortir á árvekni yfir- valda I þessum efnum. í Frakk- landi leggur heilbrigðisráðuneyt- iö blessun sina yfir ný lyf og þarf til þess vottorð um undangengna rannsókn fyrst á dýrum og svo á sjúklingum á eiturverkunum og svo lækningamætti. Blaðamönn- um Le Monde var trúað fyrir þvi I ráðuneytinu að um 80% af þess- um rannsóknum væru hand - vömm hin mesta, þótt allajafna mætti treysta þvi nú orðið að lyf væru ekki stórlega eitruð. Hér koma margar ástæður saman. I fyrsta lagi er I raun þörf á að prófa lyf miklu lengur en gert er — (markaðslögmálin reka á eftir einsogfyrr segir). 1 öðru lagi eru lyfin prófuð á alltof fáum sjúk- lingum. í þriðja lagi er það al- gengt, að i raun séu það menn á launum hjá lyfjahringunum sem prófa lyfin fyrir lyfjaeftirlit rikis- ins. Meðal annars i þvi formi, að sérfræðingar lauma til hringanna nytsömum visndalegum upplýs- ingum til framleiðanda vöru sem þeir siðar prófa fyrir rikið. Og fá undir borðið fyrir slika þjónustu sem svarar nokkrum hundruðum þúsunda islenskra á mánuði, eða þá ókeypis flugmiða á ráðstefnu I Tokio eða Melbourne... Ég vil hafa mitt lyf Eitt af þvi sem ýtir undir fárán- lega lyfjanotkun er viss vita- hringur sem skapasthefur i sam- skiptum lækna og sjúklinga. Yngri læknar, sem eru að reyna að hefja störf með sæmilega hreina samvisku kvarta yfir þvi, að sjúklingar trúi þeim ekki né treysti nema að þeir fái lyf — ef að reynt er að segja sjúklingun- um að þeir þurfi ekki á lyfjum að halda, þá móðgast þeir og fara annað. Lyf eru vlðast hvar rækilega niðurgreidd af heilbrigðisþjón- ustunni og velferðarborgaranum finnst að réttur hans til heilsu sé jafngildur rétti til að fá lyf, helst eitthvað nýtt. Þrýstingur frá sjúklingum sem heimta að fá lyf blandast saman viö þau þægindi sem læknar hafa af þvi að af- greiöa málin með þvi að skrifa vel útlitandi resept. Og þau þægindi eru lika arðbær. í stað þess að sitja drjúga stund með sjúklingi og skoða hann og yfir- heyra vandlega er hægt að auka afköstin með þvi að gefa hverjum sjúklingi aðeins 10-15 minútna samtal og svo lyf I kaupbæti. Heilaþvottur á læknum Ekki má heldur gleyma þvi, að mikið starf er unnið og miklu fé varið til að heilaþvo lækna. 1 Frakklandi eru til dæmis um 350 rit gefin út handa læknum einum ogíangsamlega flesterurekinfyr- ir tekjur af auglýsingum frá lyfjaframleiðendum. Þegar slik rit skrifa greinar um meðferð sjúkdóma, sem eru reyndar ekki mjög fyrirferðarmiklar þegar á heildina er litið, þá eru þær grein- ar einnig að þvi leyti tilbúningur lyfjaframleiðenda, að þær byggja á athugun, sem kostuð er af þeim og tengd þeirra eigin framleiðslu. Yfir hvern starfandi lækni er dembt firnalegu magni af skraut- legum upplýsingum um ný lyf, og i Frakklandi er þvi svo farið, að hver læknir er heimsóttur að meðaltali einu sinni á dagaf um- boðsmanni einhvers lyfjahrings- ins, sem heldur á lofti sýnum og skrautprentuðum bæklingum. Sjálft hið mikla magn af nýjum nöfnum á lyfjum (falskur marg- breytileiki) gerir það að verkum að slikt starf hefur mikil áhrif á þaö hvað læknar gefa resept upp á hverju sinni („það er minni dagsins sem ræður” segir einn þeirra). Þegar læknar (um 15% þeirra) reyna að hressa upp á vitneskju

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.