Þjóðviljinn - 25.05.1975, Síða 11
Sunnudagur 25. mai 1975 WóÐVILJINN — SÍÐA 11
TONABÆR
OPNAR MEÐ NÝRRI
PELICAN 30. MAÍ
Tónabær verður opn-
aður aftur nú 30. maí,
eftir að hafa verið
lokaður yfir próftima-
bilið sem nú er lokið.
Þann 30. mun Pelican
spila og daginn eftir
mun Júdas spila.
FORSÍÐU-
MYNDIN
„Hendur og málmur” heitir
mynd örlygs Kristfinnssonar
á forsiðu blaðsins i dag og má
hver túlka hana sem hann vill
i sambandi við væntanlega
málmblendiverksmiðju og
umræðurnar um hana, sem
voru kveikja myndarinnar.
En auðvitað má lita málið i
viðtækara ljósi og einskorða
það ekki við þessa einu
umræddu verksmiðju.
örlygur Kristfinnsson er
teiknikennari að menntun, —
stundaði nám i Myndlista- og
handiðaskóla Islands —, og
hefur unnið sem slikur, en i
vetur reyndar snúið sér að
öðrum viðfangsefnum og
starfað sem sviðsmaður hjá
Leikfélagi Heykjavikur milli
þess sem hann hefur verið
sinn eiginn herra og gert það
sem hann vildi.
Tónabær er nú búinn að starfa
i um það bil 5 ár með góðum
árangri. Stofnun Tónabæjar má
rekja til kvartana húsmæðra og
annarra út af hávaða og leið
indum frá unglingum sem
söfnuðust saman i sjoppum og á
öðrum slikum stöðum. Má segja
að Tónabær hafi virkt mikið af
þeim unglingum sem kvartað
var undan. Þessir krakkar, sem
eru frá 14 ára og jafnvel yngri
höfðu engan samastað annan en
götuna og sjoppur til að safnast
saman, en eins og allir vita er
félagsþörfin afar mikil á
þessum aldri og nauðsynlegt að
vel sé búið að þessum ung-
iingum. Tónabær uppfyllir hluta
af þessari félagsþörf.
Skemmtistaður
Tónabær er rekinn sem
skemmtistaður fyrir unglinga. I
sumar verða hljómsveitarböll i
öndvegi, og enginn getur neitað
þvi að Tónabær hefur alla tið
verið besti staðurinn fyrir
hljómsveitir, kaupið hjá hljóm-
sveitunum er tiltölulega gott, og
krakkarnir jákvæðir hlust-
endur. Og staðurinn hefur þar af
leiðandi alltaf boðið upp á bestu
hljómsveitirnar.
Er dýrt að
sækja Tónabæ?
Oft hefur verið gagnrýnt opin-
berlega hvað inngangseyrir sé
dýr. En er við berum saman við
staði sem eru reknir af einka-
aðilum kemur fljótt i ljós að hér
er va rla um neitt okur að ræða. 1
sumar verður opið á fimmtu-
dögum, föstudögum og
laugardögum, og reynt verður
að hafa opið á sunnudögum.
Inngangseyrir verður frá 200 kr.
til 500 kr. og til dæmis þá kostar
orðið 250 kr. á kvikmynda-
sýningar. Allar veitingar eru á
sama verði og annars staðar.
Pelican, 30. maí
Aldurshópurinn sem sækir
Tónabæ mest núna er árgang-
arnir 1957-1960. Eldri gestir eru
undantekningar. Reynt hefur
Við diskótekið
verið að fá eldri krakka inn en
án árangurs. I sumar verður
litið um nýjungar, enda erfitt að
koma sliku i kring yfir sumar-
timann. En alla vega að kynnast
nýjum og breyttum hljóm-
sveitum þar í sumar! (Pelican
spila 30.5.). Að minu áliti mætti
lifga við þjóðlagakvöldin sem
haldin voru þar fyrir nokkrum
árum. Þau voru dálitið sérstæð,
fólkið náði einhverri einkenni-
legri ánægjustemmningu og
áhorfendur náðu sambandi við
listamenn þá er þar tróðu upp
(eða öfugt).
Unglingarnir hegöa sér
vel, — miðað við þá eldri,
sem skemmtistaði sækja
Enn einu vil ég koma á fram-
færi. Það er mikill misskiln-
ingur að Tónabæ sæki einhver
óaldarlýður unglinga. Ungling-
arnir hafa verið án mikilla
undantekninga ódrukknir og
hegðað sér vel i þau skipti sem
ég hef komið þangað i vetur.
Allir aðrir standa Tónabæ langt
að baki i báðum þessum efnum.
En þurfum við ekki lika stað
fyrir aldúrshópinn 16-20 ára?
Sviptingar í poppinu
Gífurlegar sviptingar
eru í íslenska poppinu um
þessar mundir Pétur
Kristjánsson virðist hafa
verið rekinn úr Pelican út
af tónlistarlegum ágrein-
ingi, og Herbert Guð-
mundsson úr Eik hefur
tekið við hans stöðu í
hljómsveitinni. Herbert
hafði ekki verið með Eik-
inni nema nokkra mánuði.
Eik hyggst taka upp
plötu nú í lok mánaðarins
með nýjum söngvara, en
Demant h.f., umboðs
fyrirtæki Eikar, vildi ekki
gefa upp nafn hans að svo
stöddu. Nú, og svo hefur
líka heyrst að Björgvin
Halldórsson sé hættur í
Change sem enn eru úti.
Björgvin er að taka upp
,,solo"-plötu úti, og Change
koma með 2 plötur á mark-
aðinn á næstunni eina
stóra og eina litla. Meira
um þetta ,,vesen" allt
saman í næstu viku.
LANDSLEIKURINN
ÍSLAND —FRAKKLAND
fer fram á Laugardalsvellinum í dag sunnudaginn 25. maí og hefst kl. 2 e.h.
Dómari: Wright frá Irlandi Línuveröir: Wilson og Mac Fadden frá írlandi.
Knattspyrnusnillingarnir Ásgeir, Elmar og Jóhannes eru
'W' komnir til landsins og leika meö íslenska landsliöinu. Skólahljómsveit Kópavogs leikur frá kl. 1,30 e.h.
undir stjórn Björns Guðjónssonar. Aögöngumiöasala viö
o y Laugardalsvöllinn frá kl. 9 f.h. Fjölmennið á völlinn og
hvetjiö íslenska landsliöiö til sigurs.
Knattspyrnusamband Islands.