Þjóðviljinn - 25.05.1975, Side 15
SuDnudagur 25. mái 1975 ÞJÓÐVILJINN — SÍÖÁ 15
Hjördís Bergsdóttir
velur gítargrip
viö vinsæl lög
SITT
ÚR
HVERRI
ÁTTINNI
Tökum lagið
Halló þið!
í dag ætla ég aö kynna ykkur bandarískan verkalýðssöng. Ljóðið er
eftir FLORENCE REECE og orti hiin það áriö 1931, en þá var hún gift
kolanámumanni I Harlan County, Kentucky. Það varöveitir minningu
um baráttu kolanámumanna fyrir bættum kjörum á þessum árum.
Lagið er þjóölag.
Þeir sem eiga i erfiðleikum með þvergripin geta I staöinn fyrir
hljómana: b,e,f(Is) 7, A, tekiðhljómana: a, d, e, E7, G.
Corne all of you e good fftí;
rf, *■ -~a- f r ■ r " —i
Work-ers.good news to you I'll
ft, b e f'Al.
° tell, Of how the good oid
Which Side
are you on?
un-ion has co,ne in here _to awell
Which side are you on?
FtiSi 7 6
Whlch side are you on?
Come all of you good workers,
good news to you I’ll tell,
Of how the good old union
has come in here to dwell.
Viðlag:
V\hiich side are you on?
Which side are you on?
Don’t scab for the bosses,
don’t listen to their lies.
Us poor folks haven’t got a chance,
unless we organize...
Viðlag:
They say in Harlan County,
there are no neutrals there.
You’ll either be a union man,
or a thug for J.H. Blair.
Viðlag:
Oh, workers, can you stand it?
Oh tell me how you can.
Will you be a lousy scab,
or will you be a man?
Viðlag:
r
[ (H) rnoU
b lh)mcLL
©c ) c p > T
( )
c )
„Upplífgun”
til leigu fyrir
gestgjafa
Athafnamenn frjálsrar sam-
keppni finna sér alltaf eitthvað
nýtt til aö græða á. Þannig
stofnaði kona nokkur I Seattle i
Bandarikjunum nýlega fyrir-
tæki sem leigir út kvenkyns og
karlkyns „upplffgun”. Starfs-
fólk fyrirtækisins, sem er á
aldrinum 18-23 ára, kemur fyrir
50 dollara I parti þar sem það
afklæðist skyndilega öllum föt-
um og gengur þannig um meðal
gestanna. Fyrirtækiö ku
blómstra, en frúin segir aö visu,
aö enn gangi kvenkyns „upp-
lifgunin” betur út en sú af karl-
kyninu.
Sýniö tillitssemi
A skilti I gestasal einka-
sjilkrahúss nokkurs I Davos I
Sviss gat að lesa:
„Sjúklingarnir þurfa frið og
ró. Þeir eru hér til að ná heilsu,
en ekki til aö sjá alla kunningja
sina aftur”.
Sænsk nef
Danski teiknarinn Storm P.
málaði blá nef á alla svia sem
hann teiknaði. Þegar viðkvæm-
ar sálir spurðu, hvort hann gæti
ekki gert svia án þess að hafa þá
með blá nef, svaraði Storm:
— Jú, auðvitað. En hvernig á
þá að vita, að það séu sviar?
Fékk heyrnina
aftur
Maður nokkur frá St Michel I
Finnlandi, sem veriö hefur
heyrnarlaus á öðru eyranu
siðan I striðinu, að hann lenti 1
sprengjuárás, endurupplifði
strlösminningarnar við að sjá
kvikmyndina „Oþekktur her-
maður”.
Mitt I sprengjukasti I mynd-
inni fékk hann allt i einu heyrn-
ina á ný og heyrir nú jafnvel á
báöum eyrum.
Auralaus?
Tja, ekki þýðir að biðja til
guðs, þvl hann veit ekki hvað
peningar eru.
Og ekki þýðir að biðja
mennina, þvl þeir vita hvað
peningar eru....
My daddy was a miner,
and I’m a miner’s son,
And I’U stick with the union,
till every battle’s won...
Viölag:
hljómar: b, e, f(Is) F (Is) 7A.
e- hljómur
'( 2)
<í X D
Of gráðug
í peningana
Sara selurinn vinsæli I dýra-
garöinum I Denver I Colorado
dó um daginn eftir aö hafa étið
ýfir sig af peningum, sem fólk
henti I tjörnina hennar og óskaði
sér einhvers um leið. Varla var
það þó dauði Söru, sem það
óskaði eftir.
ÞATTUR
S.dór.
AF HÆSTA PRIKI
HEYRIST VEIN ...
Þessi visnaþáttur verður ein-
göngu helgaður vísum sem okk-
ur hafa borist að undanförnu,
ogi, er þá fyrst ein sem flaug
innum gluggann á dögunum
þegar Vilmundur var að hrella
Matthias bifreiðarkaupanda:
Úr Vilmundarrimmu
hinni nýjustu
(Vimmi minkur I stiunni)
Þá Vilmundur með voðans flein
vatt sér inn með steigurlæti,
af hæsta priki heyrðust vein
hænsnanna við Kirkjustræti.
Núdeila guðsmennirnir okkar
rétt einu sinni um rétt og rangt i
dýrkun vorri á þeim himnafeðg-
um og sýnist sitt hverjum eins
og gengur. í þvi tilefni yrkir N:
Sálina guðlausa geymir
I girndum við rökkurbói.
Hýðingameistarin-----
hreykinn á Skáiholtsstól.
Ástafar prestsins
Meyna hægt á sófann setti,
siður strauk á bibiiunni.
iipur bókarblöðum fletti
biessun hlaut af ritningunni.
Einar Hjálmar Guðjónsson
sendir þættinum þessar visur.
Bálega tókst
með alþing enn
Byggðastefnan brást þar enn,
bágt er til að vita,
hve flatir liggja forsvarsmenn
fyrir spón og bita.
Margir höfðu hugsað sér
hlutdeild vora stærri.
Ilátiðarárið horfið er
— hungurvofan nærri.
Andstreymi
Fjöldinn gengur flónsku á vald
fögrum dyggöum tapar.
Aldrei hik né undanhaid
ávinninginn skapar.
Víða er brask á Fróni frægt,
fastur er sá liður.
Svikamyllan malar hægt
mannkostina niður.
Málgagn
heimskunnar
Frekja og heimska fyigjast að
fölsuð rök og lýgi.
Eiga sér á einum stað
örugg saman vigi.
Griðastaður
Þegar vltt er vengi sett
viðjum klaka og fanna.
Gott er að eiga grænan blett
I garði minninganna.
Vor
Vorinu fylgir von og sól
vaxtarþrár og draumar.
Blómaskrúð á bæjarhól
og blakkir jökulstraumar.
Og þegar talið berst að sumri
og sól þá er ekki úr vegi að birta
nokkrar ferðavisur eftir Adolf
Petersen, ortar á þeim stöðum
sem sumarferðamenn sækjast
mest eftir.
í Þórsmörk
Fögnuð sótti I fjallasal,
fegurð þrótti borin.
Löngum rótt i Langadal
og ljós er nótt á vorin.
Loftið kliðar Ijúfum hljóm
lýsir friði myndin.
Allt um sviðið anda blóm
undir niðar lindin.
Vorið fangar vini nær,
vekur langan mina.
Kjarrið angar, kvöldsins biær
kyssir vanga þina.
Svanir yrkja sóiarijóð
söngsins virkja gleði.
Alfakirkjan opin stóð
andann styrkja réði.
Hugann seiðir hjalli og skeið,
hátt um breiða salinn.
Þá er greiðfær gönguleið,
gegnum eyðidalinn.
Mild og heið er morgunstund,
margan seiðir huga,
Við skulum ieiðast mund i mund
meðan skeiðin duga.
Á öræfum
Hvar sem fer þin fcrðasál,
um fjöll og eyðisanda.
Töfrar lands og tungumál
tala i sama anda.
Fjallahreimur fyilir sál
fögnuð heima vandar.
Heiðin geymir huldumál.
Hljóðir sveima andar.
Á Hveravöllum
Heillagyðjur hafa völd,
huga seiða manna.
Dátt sér leika og dansa i kvöld
disir öræfanna.
NáttfaU
Fjalla grætur feldur blár
foldar vætir kinnar.
Drjúpa lætur daggar tár
drottning næturinnar.
í Kerlingarfjöllum
Fögur ertu fóstra min,
fjöll .og heiðar þlnar,
hafa lika hrjóstur þin
heillað sjónir minar.
Við stiginn
Sem I móðu saga vor,
sýnd en fróðleik dylur.
Gömul þjóðar gengin spor
göstusióði hylur.
Adolf J .E. Petersen.