Þjóðviljinn - 25.05.1975, Blaðsíða 23
Sunnudagur 25. mai 1975 ÞJóÐVILJINN — SÍÐA 23
SAGAN
AF
SNÚLLU
Frænka mín á kisu sem
heitir Snúlla. Hún er
bara kettlingur. Frænka
mín er tíu ára og heitir
Sigurbjörg, kölluð
Sibba. Sibba átti fyrst
stóran kött, sem
eignaðist fjóra
kettlinga. Þegar þeir
voru nokkurra vikna
(mánaðar) voru þrír
drepnir en einum var
gefið líf og fékk nafnið
Snúlla.
Ég veit ekkert um
stóru kisu, en ég held að
hún sé dáin. Snúlla var
lítil og pissaði oft í
kojuna sem við Sibba
sváfum í. Eitt sinn
pissaði Snúlla mikið í
efri kojuna þar sem ég
svaf. Mamma Sibbu
skipti um lak og sæng,
en mér fannst samt að
ég væri að kafna.
Einu sinni mátti kisa
ekki fara út af því að
hún hafði klórað stelpu,
sem var að leika sér við
okkur Sibbu. Glugginn
var hátt uppi, glugga-
tjöld náðu niður fyrir
hann en ekki niður á
gólf. Glugginn var op-
inn. Snúlla gat ekki
stokkið upp á glugga-
karminn og þess vegna
læsti hún klónum i
gluggatjöldin og las sig
upp að glugganum og
stökk út.
Svo kom að því að ég
átti að gefa Snúllu
mjólk, en þá var hún öll
á bak og burt. Við f órum
út og sáum Snúllu sem
var að lemja flugur. En
þegar hún tók eftir okk-
ur, stökk hún yfir í
næsta garð og tróð sér
inn í bílskúrinn þar. Þá
urðum við að biðja
manninn, sem bjó þar,
að opna bílskúrinn.
Hann gerði það og þá
Umsjón: Vilborg Dagbjartsdóttir
hófst mikill eltingaleik-
ur. Loks fann ég Snúllu
niðri í kassa úti í skoti.
Einu sinni gleymdum
við að gefa kisu að
drekka. Þá mundi ég
eftir að Snúlla átti að fá
mjólk. En ég fann ekki
Snúllu. Við Sibba fórum
að leita og f undum hana
inni í þvottahúsi, þar
sem hún var að lepja
skolvatnið úr þvottavél-
inni. Ég tók Snúllu upp
og gældi við hana á
meðan Sibba sótti mjólk
í skál og setti fyrir hana.
Og þvílik græðgi! Snúlla
lapti í ákafa og búin
með mjólkina á auga-
bragði.
Margar fleiri
skemmtilegar minn-
ingar á ég um Snúllu, en
þær verða ekki sagðar
hér. Svo fór ég aftur
suður, og kom ekki til
Snúllu og Sibbu I nokkuð
langan tima. Næst þegar
ég f ór á Blönduós bjó ég
ekki hjá Sibbu. Þegar ég
kom í heimsókn sagði
Sibba mér að Snúlla
væri dáin og þar væru
engir kettir lengur
heldur bara fuglar.
Og svona enda ég sög-
una af hinni stuttu æfi
Snúllu.
Svala Jónsdóttir,
Lyngbrekku 5,
Kópavogi.
PENNA-
VINIR
Ég óska eftir pennavini
stúlku á aldrinum 10-11
ára. Ég svara öllum
bréf um.
Nanna Sif Gisladóttir
Sigtúni 34,
Selfossi.
KISA MÍN
Kisa min er falleg og fin
fagurleg um vanga
hún er mjúk eins og lin
og hefur rófu langa.
Kisa min er gulbröndótt
hún sefur i körfunni sætt og rótt.
Hún vaknar af værum blundi
er vorið á hana kallar
og fer að leika sér ósköp blitt
að bláu bandi
og kannske að hún hugsi hátt:
Ekkert band er svona blátt
og ekkert band er fallegra
og ekkert band er flottara
á þessu landi.
Svala Jónsdóttir,
Lyngbrekku 5,
Kópavogi
BRÉF frá Kirkju-
bæjarklaustri
í 'Vetur fengum við
bréf frá nokkrum
krökkum II. og 2. bekk i
barnaskólan um á
Kirkjubæjarklaustri á
Síðu. Nú skrifa 4. bekk-
ingar okkur. Við þökk-
um þeim kærlega fyrir.
Það er gaman að bera
þessar myndir saman og
athuga svo myndirnar í
blaðinu 8. desember.
Landslagið og f ossinn er
næstum eins á öllum
myndunum, þó bera
þær hver um sig pers
ónuleg einkenni.
Þeir sem hafa
komið að Kirkjubæjar-
klaustri kannast strax
við þetta landslag. Nú
langar okkur að biðja
krakkana, sem teikna
svo fallegar myndar af
fossinum, að skrif a okk-
ur eitthvað um þetta
landslag. Hvað heitir
fossinn? Hvað heita
ávalar hæðarnar sem
eru á öllum myndunum?
Eru til nokkrar örnef na-
sögur tegndar þessu
landslagi?
Kannski fáum við nú
bréf frá 5. og 6.
bekkingum?
FR N Nev <0 TIRfi,
Kir hju Kliu&t >■! á S/Jó
///
U
K^ibjórg HcUarsdétfir ,0 aro.
V Trua.?jóms$,crr> tfQekk*'
f?