Þjóðviljinn - 15.06.1975, Side 18
18 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Sunnudagur 15. júni 1975
Olía
Framhald af bls. 11
Um fjármögnun framhalds-
rannsókna segir:
„...að varnarmálanefnd eða
utanrikisráðuneytið sjái um þá
hlið málsins, etv. með ein-
hverjum framlögum frá
hernum.”
Eins og siðar verður að vikið er
það einmitt sú uppástunga, að
herinn greiði kostnaðinn við
hreinsun jarðvegs, rannsóknir og
hugsnalegar aðrar framkvæmdir
vegna sóðaskapar hans undan-
gengin ár, sem orðið hefur til þess
að stöðva málið nú. Hefur
deildarstjóri varnarmáladeildar
sett þar ofar að gæta fjármála-
legra hagsmuna vina sinna i
hernum, en heilsu og velferðar
landa sinna, sem við jaðar her-
stöðvarinnar búa.
Megn óánægja
Hreppsnefnd Njarðvikurhrepps
hélt fund þann 3. mars ma. um
bréf heilbrigðiseftirlitsins. Á
þeim fundi var gerð eftirfarandi
samþykkt:
..Hreppsnefnd Njarðvikur-
hrepps lýsir yfir megnri óánægju
sinni með þann drátt, sem orðið
hefur á rannsóknum á mengunar-
hættu vatnsbóla i Njarðvikur-
hreppi og Keflavik og krefst þess,
að unnið verði að fullum krafti að
þessu máli og að rikisvaldið sjái
til þess að fjármagn skorti ekki til
rannsóknanna.”
Og nú er að sjá hversu vel rikis-
stjórnin bregst við, og henni til
upplýsingar skal þess getið að
fjórir af sjö hreppsnefndar-
mönnum i Njarðvikum eru úr
Sjálfstæðisflokknum og einn
framsóknarmaöur. Hún er þvi að
bregðast trausti formælenda
sinna syðra ef hún lætur málið
stranda,auk þesssem hún stefnir
lifi og lifsafkomu fjölda fólks i
bráðan voða.
Aftur er farið af stað með
bréfaskriftir. 24. febrúar 1975
ritar heilbrigðisráðuney tið
varnarmáladeild bréf og sendir
með ljósrit af bréfi heilbrigðis-
eftirlitsins, þvi, sem hér að ofan
var getið.
t þessu bréfi lýsti ráðuneylið það
skoðun sina, að tafarlaust þyrfti
að hefja þær aðgerðir, sem heil-
brigðiseftirlitið lagði til í fyrr
greindu bréfinu og jafnframt, að
eðlilegt væri að þessar aðgerðir
færu fram á vegum varnarmála-
deitdar en i samráði við heil-
brigðiseftirlitið og ráðuneytið,
eftir þvi sem ráðherra sagði á
þinginu i vor. Þá er jafnframt
gert ráð fyrir þvi, að allur
kostnaður verði greiddur á sama
hátt og annar kostnaður við fram-
kvæmdir innan hernámssvæðis-
ins, eins og segir i tilvitnuðu bréfi.
Eitthvað hefur þeim i ráðu-
neytinu ekki likað póstsamgöng-
urnar innan stjórnkerfisins og
uppgötvuðu simann þvi i neyð
sinni. Ráðherra skýrði frá þvi á
alþingi, að hringt hefði verið til
varnarmáladeildar þann 21.
april, til þess að spyrjast fyrir um
hvort fyrrgreindar kannanir
hefðu verið gerðar. Svo var ekki.
Málið var þá enn i athugun!
Greiösla kostnaðar var talin
heista hindrunin fyrir þvi að
málinu var ekki hrint af stað af
varnarmáladeild!, i það minnsta
skýrði heilbrigðisráðherra
alþingismönnum svo frá.
Olían
og kukkurinn
Flestir oliutankar hersins
standa i slakka upp frá Fiskiðj-
unni i Keflavik. Þeir, sem eru
ofanjarðar, eru afgirtir með torf-
hleðslum á einn veg, en opið i
kringum þá að öðru leyti fyrir
oliuna að renna viða vegu ef eitt-
hvað kemur fyrir tankana. Er
þarna um að ræða i þyrpingu
amk. 12 tanka.
Am. fimm tankar eru niður-
grafnir á þessu svæði og hefur
ekki nokkur Iifandi sáia hugmynd
um hvert ásigkomulag þeirra er
nú: hvort þeir haldi oliu eða ekki.
Þessir tankar standa þannig, að
flestir eru sunnan litils dalverpis,
en nokkrir norðan þess, og lægi
oliustraumur þvi að dalverpinu
beggja vegna ef tankarnir héldu
ekki.
Yst i dalverpinu eru vatnsból
Njarðvikinga. Þangað rynni þvi
olian úr tönkunum ef til kæmi.
Þangað leitar og sú olia mest öll
ef að likum lætur, sem þegar
hefur farið niður i jarðveginn.
Það er þvi greinilegt að hverju
stefnir þar.
Það kemur þvi að þvi innan
tiðar að Njarðvikingar og Kefl-
vikingar einnig, þvi þeirra vatns-
ból eru i svipaðri afstöðu til
annarra mengunarsvæða og þau i
Njarðvikum, þurfi að taka ferska
vatnið annars staðar. Eru hug
myndir helstar uppi um að^aka
það á Stapanum eða i námunda
við hann, upp af Innri-Njarðvik^
En það eru fleiri vatnsból þar
syðra i hættu og af annars lags
völdum.
t heiðinni milli Keflavikur og
Sandgerðis, ofan við Garðinn, er
iitið herhreiður, radarstöð og
meðfylgjustöð: Rockville.
Þar þurfa menn að sjálfsögðu
að tefla við páfann eins og annars
staðar þar sem menn eru. Kukk-
urinn er leiddur úr hreiðri þessu
og út i heiðina. Endar frárennslið i
opinni þró, þaöan scm þvi er
ætlaö að pipa niður i jarðveginn.
Bætir það drykkjarvatn sand-
gerðinga og garðbúa sennilega að
litlu. Og til þess að skreyta
umhverfið við þróaropið flóir
kukkurinn oft yfir þróarveggi og
breiðir úr sér i næsta nágrenni
þróarinnar.
Ábyrgðeins manns
Það er á ábyrgð eins manns að
ekki hefur verið hafist handa við
að koma i veg fyrir frekari
mengun vatns syðra, að ekki eru
hafnar ýtarlegar rannsóknir á
jarðveginum svo færa megi
vatnsbólin áður en hættan er
orðin að raunverulegri vá. Sá
maöur cr formaður varnarmála-
nefndar, deildarstjóri varnar-
máladeildar, Páll Ásgeir
Tryggvason.
Þvi er þessari ábyrgð lýst á
hendur honum hér. llann hefur
sett oiar islenskum mannslifum
fjárhagslega hagsmuni herliðs-
ins.
A þriðjudaginn var hafði blaðið
sambandi við heilbrigðiseftirlitið.
Þar var blaðamanni tjáð, að
varnarmáladeildarstjórinn vildi
fá frekari upplýsingar um málið,
áður en varnarmáladeild léti til
skarar skriða! Hefur deildinni þó
að minnsta kosti borist fregn af
öllu þvi sem hér er sagt og jafnvel
einhverju til viðbótar. Þrátt fvrir
það aö Páli Asgeiri þyki þessar
upplýsingar ekki nægjanlegar,
má fullyrða. að öilum Suður-
nesjabúum þyki næg upplýsing
liggja fyrir til þess að hefjast
handa og þó fyrr hefði verið.
Og enn eitt bréfið hefur þvi lagt
af stað eftir póstkerfi rikis-
báknsins, þvi heilbrigðisráðu-
neytið sendi nýlega áleiðis til
varnarmáladeildar bréf með enn
frekari upplýsingum handa
deildinni að moða úr.
En þrátt fyrir það, að Páll
Ásgeir beri höfuðábyrgð á þvi hve
seint hefur gengið að fá málinu
hrundið af stað, þá eiga þó aðrir
sinn hlut i þeirri ábyrgð.
Það má lýsa ábyrgð á hendur
heilbr'igðiseftirlitinu fyrir að
ganga ekki enn harðar i skrokk á
varnarmáladeild, það má lýsa
ábyrgð á hendur heilbrigðis-
ráðherra fyrir að hafa ekki rekið
meir á eftir framkvæmdum, og
siðasten ekki sist má lýsa ábyrgð
á hendur rikisstjórn, og þá
sérstaklega utanrikisráðherra,
fyrir að láta einum starfsmanni
sinum haldast það uppi að taka
hagsmuni herliðsins fram yfir
hagsmuni þúsunda islendinga.
Slikum manni ætti ekki að liðast
að halda embættistitli deginum
lengur, ekki frekar en tefja má
framgang rannsókna og aðgerða
annarra i þessu máli frekar en
orðið er. úþ
Pistill
Framhald af bls 8.
og glæpum i samtimanum. Það
væri samt hæpin fullyrðing að
telja að gagnrýni á slik fyrirbæri
væri hið eiginlega hugmyndainn-
tak slikra kvikmynda. Frekar
mætti orða boðskapinn á þessa
leið: erfiðir timar kefjast sterkra
manna. Og þegar hinir sterku og
snjöllu foringjar á örlagastund
eru flestir hávaxnir og ljósir yfir-
litum, gott ef ekki ariskir, þá geta
menn farið að hugsa sitt af
hverju.
Árni Bergmann (stuðst við
Spiegel og Information).
m
Stúlkurnar i 3.HG. i smiðatlma. Taliö frá vinstri: Heiðdis Sigurðardóttir, Anna Siguröardóttir, Ellen
Blomsterberg, Unnur Gunnarsdóttir, Kristin Guðmundsdóttir, Sif Guðmundsdóttir, Sigrún Sigvaida-
dóttir og Harpa Eysteinsdóttir.
Munir eftir 10 og 11 ára stúlkur I Austurbæjarskóla unnir veturinn 1974 — 75. Stúlkurnar smlðuðu
Snældur, bókastoðir, skeiðahengi, kertastjaka, fánastengur, pennastæði, brúðuhúsgögn, sleifar, brauð-
bretti, litaspjöld o.fl. Þótt þær eigi kost á að velja um margt vilja þær helst smíða gagnlega smáhiuti.
Þetta eru vinsælir gjafamunir enda oft beinlinis smiðaðir handa mömmu og þá er stundum málað á
gripinn TIL MÖMMU með tilheyrandi skrautflúri.
KOMPAN: Finnst ^kkur gaman
að smíöa?
BAÐAR: Já.
KRISTÍN: Ég bjó til hest, borð og
stóla, fisk, þeytispjald og Bamba,
en mér finnst alveg eins gaman
að sauma.
SIGRÚN: Mér finnst mest
gaman, þegar ég fæ aö ráöa þvi
sjálf hvað ég bý til. Ég smiöaði
hest og kisu. Mér finnst pinulltið
meira gaman að prjóna og
sauma.
KOMPAN: Þið bjugguð til brúðu-
húsgögn. Eigið þiö margar
brúður?
SIGRÚN: Ég á Barbie-dúkku og
lika margar stórar.
KRISTIN: Ég á lltinn, brúnan
bangsa sem heitir Sveinn.
Ragnar Kristjánsson handavinnukennari leiðbeinir Sigrúnu og Kristlnu.