Þjóðviljinn - 10.07.1975, Side 1
UOÐVIUINN
Fimmtudagur 10. júlí 1975 —40. árg. —152. tbí.
Hœkkun elli- og örorkulífeyris:
Aðeins 440
kr. á mánuði
Séö upp 1 Hólahverfi
ibúar i Hólahverfi og ná-
grenni i Breiöhoiti III hafa nú
beðið i ár eftir að hafnar verði
framkvæmdir við tengingu
Stekkjarbakka upp i Hóla-
hverfið, en til þessa hafa ibúar
hverfisins þurft að aka stóran
krók til þess að komast heim
til sfn. Er ljóst að hér er um
geysilegan aukakostnað i
bensini að ræða, þar sem
krókurinn lengir leiðina i
hverfið til mikilla muna.
Vegalagning þessi var á áætl-
un í fyrra en var frestað. Er
fyrirhugað að byrja á vegin-
um i sumar og verður hann þá
tilbúinn i fyrsta lagi um nástu
áramót.
Gatnamálastjóri Ingi tJ.
Magnússon sagöi i viðtali við
blaðið að ætlunin væri að
framlengja Stekkjarbakka til
austurs og mæta þar Höfða-
bakka, sem mun liggja neðan
við Hólahverfið. Tenging
verður úr honum upp i Hóla-
hverfið á móts við Arahóla.
Siðar er svo hugmyndin að
vegur verði lagður niður að
Elliðaám, en til að byrja með
verður aðeins gengið frá teng-
ingunni niður i Breiðholt 1 og
þaðan ekið niður á Reykjanes-
braut. Sagði gatnamálastjóri
að þessum framkvæmdum
hefði verið frestað i fyrra, en
kvaðst vonast til að þeim lyki
fyrir næstu áramót. Ekki er á-
kveðið hvenær byrjað verður á
vegi niður að Elliðaám, sem
mun i framtiðinni létta mjög
umferð af Reykjanesbraut-
inni. þs,
Svartsengismálið:
183 MILJÓNIR
BER Á MILLI
Landeigendafélag Hóps og Þór-
kötlustaða bjóðast til að selja
Hitaveitu Suðurnesja heitt vatn
fyrir 233 miljónir, en inni i þvi
verði er hvorki verð á landi þvi,
sem veitan þyrfti að fá undir
framkvæmdir i Svartsengi né
heldur verð fyrir kalt vatn.
Stjórn veitunnar mun hins veg-
ar hafa boðið 50 miljónir fyrir
landið og hita- og kaldavatnsrétt-
indi, svo að i milli ber 183 miljón-
ir. Þá eru ekki með taldar ýmsar
mjög veigamiklar kröfur landeig-
enda.
Aðilar málsins unnu að þvi i
gær, að koma sér saman um 3ja
manna gerðadóm. Hafði náðst
samkomulag um 2 menn i gerða-
dóminn, en ekki þann þriðja,
þegar blaðið hafði siðast fregnir
af. Mun ætlunin að fá sýslumann
Gullbringusýslu til þess að skipa
þriðja manninn i dóminn, náist
ekki samkomulag um hann.
Gerðadómur þessi á að veita
úrskurð um greiðsluskilmála og
heitavatnskaupin. Á hann að hafa
lok;ð störfum fyrir mánaðamótin
september-október. Eftir að úr-
skurður dómsins liggur fyrir hafa
aðilar mánaðarfrest til þess að á-
kveða hvort þeir hliti úrskurði
hans eða ekki, en báðir eru ó-
bundnir af niðurstöðu hans. —úþ.
Hitaveitan: Landeigendur:
Vill kaupa Vilja selja
allt á 50 sumt á 233
miljónir miljónir
SJÁ NÁNAR BAKSÍÐU
Beinafundurinn í Faxaskjóli:
Líkið verið grafið á
árunum 1951-1954
Á þeim árum hurfu 4 menn
— Að sögn manns, sem ég
ræddi við I morgun og þekki vel til
við Faxaskjól, var gryfja sú sem
beinagrindin fannst I i fyrradag,
alveg tóm fram til ársins 1951. Að
hans sögn gerðist það svo eitt sinn
á þvi ári að i hana er kominn
moldarhaugur og uppúr þvi fór
svo að bætast við það smátt og
smátt. Menn fleygöu þarna grasi
af blettum sinum, afgangsmold
og torfusneplum uns gryfjan var
orðin full árið 1954. Það er þvi
ljóst að llkið hefur verið grafið
þarna á þessum árum, sagði
Magnús Eggertsson yfirrann-
sóknarlögregluþjónn er við rædd-
um við hann i gær.
— Við höfum farið yfir skrá um
það fólk sem hvarf á þessum ár-
um og fannst aldrei og eru þaö
fjórar manneskjur.
— Þá hefur prófessor Ólafur
Björnsson rannsakað beinin og
telur hann að þau séu af mann-
eskju nærri fertugu, en ekki er
hægt að segja til um hve langan
tima þau hafa legið grafin. Þá
hefur það einnig komið i ljós, að
allar tennurnar i hauskúpunni eru
heilar, þannig að ekki er hægt að
fara i tannkort tannlækna. Engin
sköddun fannst heldur á beinum
og er fullvist talið að byssukúl-
urnar sem fundust þarna séu frá
tima ameriska hersins sem hafði
þarna skotæfingasvæði og að þær
eigi engan þátt i dauða þessarar
Framhald á bls. 10
1 dag hefst útborgun elli- og ör-
orkulifeyris I Reykjavik. Hækkun
sú, sem ákveðin var á lifeyrinum
með lögum á alþingi þýðir að elli-
iifeyrir einstaklings hækkar nú á
milli mánaða um 440 krónur!
Einstaklingur með tekjutrygg-
ingu hækkar um 795 kr. á mánuði
og fær I allt núna 27.095 kr. á mán-
uði. Hjón með tekjutryggingu fá
1.431 kr. á mánuði i hækkun, en
samtals verður tekjutrygging
þeirra eftir hækkun 47.444 kr. á
mánuði.
En, eins og komið hefur fram
hér i blaðinu, verður kauphækk-
unin sem launamenn fengu i júli
ekki greidd öldruðu fólki fyrr en I
september.
i forustugrein Þjóðviljans í dag
er fjallað um þessi mál.
Franskur
rithöfundur
ritar um
mótorhj ólaferð
landa sinna
Frönsku ferðalangarnir, sem
ritað hefur verið um i blöð að
undanförnu segjast ekkert
koma nálægt auglýsinga-
mennsku. Dágóðar auglýs-
ingamyndir hafa birst i blöð-
unum af þeim samt sem áður,
eins og meðfylgjandi mynd
ber með sér, þar sem þeir
auglýsa Land Rover, svo og
vissa mótorhjólategund og
fyrirtækið Film Screen, eins
og glögglega má sjá á klæðum
þeirra.
Sjá síöu 10
3 skip
kœrð
fyrir
ólögleg
veiðar-
fœri
Eins og skýrt var frá í
Þjóðviljanum sl. þriðjudag
voru 3 islensk veiðiskip
staðin að því að nota ólög-
leg veiðafæri, þegar fiski-
fræðingur frá Hafrann-
sóknarstofnuninni var að
mæla fiskastærð i afla
skipa fyrir Norðurlandi.
Þessi skip sem voru með ólög-
legan veiðibúnað og kærð hafa
verið eru Björgvin EA 311, sem
var með klæddan trollpoka, Sæ-
þór EA 101, sem var með rækju-
troll með of litlum möskvum og
Páll Pálsson, sem var með of litla
möskva i fiskitrolli sinu. — Sdór.