Þjóðviljinn - 16.08.1975, Síða 2

Þjóðviljinn - 16.08.1975, Síða 2
2 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Laugardagur 16. ágúst 1975 Blikkiðjan Ásgarði 7, Garðahreppi Önnumst þakrennusmíði og uppsetningu — ennfremur hverskonar blikksmíði. . Gerum föst verötilboð. SÍMI 53468 i MELTAWAY ■■ snjóbræðslukerfi úr PEX plaströrum AKATHERN frárennsliskerfi úr PEH plaströrum. Nýlagnir Viðgerðir Hitaveitutengingar Stilling hitakerfa Pípulagnir sf. Auðbrekku 59 — Kópavogi S. 43840 & 40506. Tónlistarhátíð ÍSLAND—NOREGUR 1975 Hefst á mánudag Yfir 100 ungmenni og nokkrir frœgir einleikarar halda tónleika á 20 stöðum fram til laugardags 23. þ.m. Eins og komið hefur fram i fjölmiðlum, þá fóru 15 ung- menni til Elverum i Noregi á vegum Félags isl. hljómlistar- manna i byrjun mánaðarins. Var förinni heitið til æfinga og tónlistarhalds þar i landi með Sinfóniuhljómsveit Ungmenna, sem Karsten Andersen stjórnar, en honum til aðstoðar á æfing- um voru Harry Kvæbæk og Leif Jörgensen, prófessorar við Tón- listarháskólann i Osló. Opnunarhljómleikar voru haldnir i Elverumhallen 10. ágúst, að viðstöddu fjölmenni, sem tók hinni 100 manna hljóm- sveit og einleikurum frábær - lega vel; meðal gesta var Willy Brandt fyrrum kanslari og frú. Mánudaginn 18. ágúst kemur hópurinn til Islands til viku tón- leikahalds og eru fyrstu tón- leikarnir i Háskólabiói kl. 21 þá um kvöldið. Auk stjórnandans og leiðbein- enda eru með i förinni ein- ieikararnir Camilla Wichs, Ragin Wenk Wolff, Harlad Gullichsen og Gisli Magnússon. Einnig koma fréttamenn blaða og annara fjölmiðla. Fararstjóri islendinganna er formaður F.l.H. Sverrir Garðarsson, en hann á veg og vanda af Tónlistarhátiðinni Noregur — Island 1975 af Is- lands hálfu, sem verður dagana 18. til 23. ágúst, að báðum dög- um meðtöldum. Á þessum stutta tima mun tónlistarfólkið koma fram á um 20 stöðum. Reykjavikurborg, islenska rikið og Norræni menningar- sjóðurinn styrkja komu ung- mennanna hingað og tónlistar- hátiðina. Atvinna ■ Atvinna — - - - __ á GJALDKERI Starf gjaldkera hjá rafveitu Hafnarf jarðar er laust til umsóknar. Laun samkvæmt kjara- samningi Haf narf jarðarkaupstaðar við Starfsmannafélag Hafnarf jarðarkaupstaðar. Umsóknum ásamt upplýsingum um menntun og f yrri störf skal skilað f yrir 23. ágúst til raf- veitustjóra, sem veitir nánari upplýsingar um starf ið. RAFVEITA HAFNARFJARÐAR RÍKISSPÍTALARNIR lausar stöður KLEPPSSPÍTALINN: YFIRLÆKNIR. Staða yfirlæknis við Kleppsspitalann er laus til umsókn- ar og veitist frá 1. nóbember n.k. Umsóknum, er greini aldur, náms- feril og fyrri störf ber að senda stjórnamefnd rikisspitalanna fyrir 15. september n.k. LANDSPÍTALINN: AÐSTOÐARMAÐUR við hjúkrun (karlmaður) óskast til starfa á geð- deild Barnaspitala Hringsins frá 1. september n.k. Umsóknarfrestur er til 24. þ.m. Upplýsingar veitir yfir- hjúkrunarkonan, simi 84611. SKRIFSTOFA RÍKISSPÍTAL- ANNA: EINKARITARI óskast til starfa fyrir framkvæmdastjóra rikis- spítalanna frá 1. september n.k. eða eft.jr samkomulagi. Góð vélritunar- kunnátta ásamt hæfni i a.m.k. einu erlendu tungumáli. Umsóknar- frestur er til 25. þ.m. Umsóknum ber að skila til skrif- stofu rikisspitalanna. Umsóknar- eyðublöð fyrirliggjandi á sama stað. Reykjavik, 15. ágúst 1975 SKRIFSTOFA R í KISSPÍTALANN A EIRÍKSGÖTU 5, SÍMI 11765 Sverrir Garðarsson9 formaður FIH \kranleg uppbygging Tónlistin er ein yngst listgreina hér á landi og hefur einatt átt ert itt uppdráttar, en fyrir þraut- seigju brautryðjendanna sem margir eru enn á lifi, bæði lærðir og leiknir, hefur merkið aldrei fallið. Flestir þessara manna hefðu getað haslað sér völl meðal er- lendra þjóða þar sem tónlistin stendur á gömlum merg, en þeir kusu að starfa heima að námi loknu, við uppbygginguna sem leiðbeinendur og túlkandi lista- menn. Oft bjuggu þeir við þröng- an kost og langan starfsdag, en þeir voru framsýnir. Trú þeirra var vissan um árangur erfiðisins, þó uppsker- unni yrði ekki lokið fyrr en þeir væru aliir. Slik var fórnarlundin. Sinfóniuhljómsveit Islands sem er 25 ára á þessu ári hefur alltaf þurft á erlendum liðstyrk að halda, en öll þessi ár hefur verið ötullega unnið að menntun ung- menna m.a. til að hljómsveitin stæði undir nafni. Nám einstaklingsins er undir- staðan, en samleikurinn er næsta skrefið. 1 mörg ár hefur starfað hljómsveit Tónlistarskólans i Reykjavik undir farsælli stjórn Björns Ólafssonar m.a. i þvi skyni að afla S.t. islenskra starfs- krafta og hefur hljómsveitin starfað sömu mánuði og skólinn. Viða erlendis hafa menn komist að raun um að sumarmánuðirnir væru dýrmætur timi og komið á æfinganámskeiðum fyrir upp- rennandi sinfóniuhljómsveitar- meðlimi. 1 nokkur ár hafa norðmenn haldið slik námskeið með hljóm- leikahaldi i bænum Elverum, sem stendur á bökkum árinnar Glomma og fer það fram i lýð- háskólanum þar. I þeim skóla sem Hákon Noregskonungur sagði hið fræga ,,Nei” þegar þýskur hershöfðingi fór fram á skilyrðislausa uppgjöf þjóðarinnar i siðari heimstyrjöld- inni, og hafa norðmenn reist þessu afdrifarika augnabliki, veglegan bautastein á skóla- lóðinni. Það er ekki að ástæðulausu að Elverum varð fyrir valinu, þvi i bænum er gróskumikið listalif á ýmsum sviðum og eru þar mörg söfn, en þekktust þeirra eru Norsk skogbruksmuseum, sem var vigt 1971 af Ólafi Noregs- konungi og segir sögu norskra skóganytja og veiðimennsku frá upphafi vega. Glommadalssafnið var stofnað 1911 og nær yfir stórt landsvæði; þar má m.a. sjá margra alda gamla sveitabæi, sel og veiðikofa. Það kostar mikla undir- búni.cgsvinnu að hrinda hljómsveitarnámskeiðunum af stað við Lýðháskólann i Elverum, Sverrir Garðarsson. en nauðsyn þessara námskeiða hefur sannast á þvi að eftirsókn þangað hefur verið meiri en hægt hefur verið að anna, þrátt fyrir að námskeiðin eru stifur skóli frá klukkan 7 að morgni og allt til klukkan 10 að kveldi, þegar hljómleikar eru haldnir. Tónamál um hátíðina t tilefni Tónlistarhátiðarinn- ar island—Noregur 1975 hefur Tónmál Rit félags islenskra hljómlistarmanna verið gefið út i vönduðum búningi.Það er að þessu sinni helgað tónlistarhátiðinni eingöngu. Meðal efnis er ávarp frá for- seta borgarstjórnar Ólafi B. Thors, hugleiðing eftir Jón Ás- geirsson, tónskáld, grein um tónlistarstarfið í Elverum i Noregi, kynning á stjórnend- um og einleikurum og cfnis- skrá tónlistarhátiðarinnar. Þjóðviljinn birtir hér grein Sverris Garðarssonar, for- manns Félags Islenskra tón- listarmanna, um aðdraganda og undirbúning hátiðarinnar. Þátttakendur vita sem er, að æfingin skapar meistarann og þarna er stórt tækifæri til að fá æfingu til samleiks i sinfóniu- hljómsveit. Þarna er i mörgum tilvikum um lokaskólun að ræða undir leið- sögn færustu kennara og þangað flykkjast frægustu einleikarar landsins tii að veita leiðsögn og leika einleik með hljómsveitinni, sem skapast hefur með hóp- og einkaæfingum i rúma viku. Karsten Ánderson, hljómsveitar- stjóri. Þeir sem aðallega hafa átt veg og vanda af starfinu i Elverum eru auk rektorsins Sigmund Moren, Karsten Andersen hljómsveitarstjóri, Harry Kve- bæk tónlistarháskólarektor og fiðlusnillingurinn Leif Jörgensen. Með opinbera framkvæmdar- stjórn fer Norsk Musikerforbund undir forystu hins gamalreynda formanns Sigurd Lönseth. Ég vona að á engan sé hallað, þó þessara manna sé getið sér- staklega. Þótt vel sé keppt að settu marki i Elverum er félagslifið ekki af- skipt, sund er iðkað af kappi og aðstaða til ýmiss konar iþrótta- iðkanna er eins og best verður á kosið. A kvöidvökum er margt sér til gamans gert, en flestar snúast þær um tónlist. Ein aðalkvöldvaka er haldin fyrir utan kveðjuhófið og er henni stjórnað af rithöfundinum og blaðamanninum Dagfinn Grönoset, en hann samdi m.a. hina þekktu metsölubók „Anna i ödermerka” (hún seldist i um 180 þúsund eintökum i Noregi og mun koma.út á islensku hjá A.B. um áramótin). 1 ár munu heiðursgestir kvöld- vöku þessarar verða Tage Erlander og Einar Gerhardsen, sem i áraraðir voru forsætisráð herrar Sviþjóðar og Noregs. I samvinnu við bróðurfélag sitt i Noregi hefur Félag isl. hljóm- listarmanna skipulagt samstarf og i ár fara til Noregs 15 islensk ungmenni til þátttöku, og eftir dvölina þar kemur allur hópurinn um 100 manna hljómsveit til Is- lands til hljómleikahalds i eina viku. Félag islenskra hljómlistar- manna þakkar þeim aðilum sem styrkt hafa framkvæmd þessa, þvi hún er varanleg uppbygging islensku tónlistarlifi. Þeim fjármunum sem varið er til menntunar og uppeldis ung- menna er ekki á glæ kastað. Sverrir Garðarsson.

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.